Lögberg - 18.11.1954, Side 8

Lögberg - 18.11.1954, Side 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 18. NÓVEMBER 1954 Fréttir fró ríkisútvarpi íslands Úr borg og bygð Jarðaríör Björns Jónssonar Arnfinns- sonar, sem andaðist 6. nóv. s.l., fór fram frá Lútersku kirkjunni á Lundar, fimmtudaginn 11. nóv. s.l. að viðstöddu miklu fjölmenni. Séra Bragi Friðriks- son jarðsöng. Björn sál. var fæddur á bæn- um Hamborg í Múlasýslu á Is- landi 28. jan. 1874 Foreldrar hans voru hjónin Sveinbjörg Sigmundsdóttir, d. 1921, og Jón Arnfinnsson, d. 1917. Bjuggu þau hjón síðast í Hlíðarhúsum, áður en þau héldu vestur um haf árið 1903. Björn ólst upp á íslandi og giftist þar Önnu Jónsdóttur, Pálssonar frá Árna- stöðum í Loðmundarfirði. Hing- að til lands komu þau 1901. Bjuggu fyrst 3 ár í Grunna- vatnsbyggð, síðan 16 ár við Siglunes og loks á Lundar Eignuðust þau 11 börn og lifa 10 þeirra, auk einnar fóstur- dóttur. Systkini átti Björn 3, tvo bræður, Arnfinn og Helga, sem nú eru báðir látnir, en systir hans, frú Margrét Jóhannesson, býr í Winnipeg. Þau hjón Anna og Björn voru vel látin og vin- sæl. — Björn var maður einkar glaður og fjörmikill. Margir eru þeir, sem minnast hans með hlýju og þökk. ☆ Jónas Marino Jónasson, bóndi í Geysis-byggð, lézt að heimili sínu 2. nóv. s.l. Hann var 66 ára að aldri. Hann lætur eftir sig eiginkonu, Evelyn; sex sonu, Marino Baldwin, Jónas, Björg- vin, Steingrím, Einar og Ray- mond; tvær dætur, Mrs. Guð- rúnu Karvelson og Beatrice; átta barnabörn; einn bróður, Unvald, og fjórar systur, Mrs. John Pálsson, Mrs. John Gutt- ormsson, Mrs. Guðrún Jónasson og Mrs. G. B. Jóhannsson. ☆ — AÐALFUNDUR — Þjóðræknisdeildin „F R Ó N“ heldur aðalfund sinn í Góð- templara-húsinu mánudags- kvöldið 29. nóvember næstkom- andi kl 8.15. — Nánar auglýst í næsta blaði. THOR VIKING, ritari ☆ Mr. Thorsteinn Ásgeirsson málarameistari, er nýkominn til borgarinnar norðan frá Lynn Lake og er í þann veginn að leggja upp í heimsókn til íslands. ☆ Séra Guttormur Guttormsson frá Minneota, Minn., var staddur í borginni fyrripart vikunnar, sem leið, og sat hér fund í fram- kvæmdarnefnd íslenzka lúterska kirkjufélagsins. SONGS OF THE NORTH By S. K. HALL. Bac. Mus. JUST PUBLISHED— Volume in—Ten Icelandic Songs with English Translation and Piano Accompaniment. Price per copy—$2.00 On Saie by— S. K. HALL, Wynyard, Sask. Kaupið Lögberg VEÐLESNESTA ISLENZKA BLAÐIÐ Ársritið HLÍN, sem frk. Hall- dóra Bjarnadóttir gefur út og er ritstjóri að, er nýkomið hingað til kaupenda vestan hafs, og er skemtilegt og fjölbreytt að efni; rit þetta verðskuldar margfalt meiri útbreiðslu en það nú nýtur og er þess því að vænta, að kaupendum fjölgi til muna. Umboð fyrir HLIN hefir á hendi Mrs. J. B. Skaptason, 378 Maryland Street, Winnipeg. ■— Ritið kostar aðeins 50 cents. Áskrifendur utanborgar greiði burðargjald. ☆ Ungfrú Lilja Eylands söng einsöngva yfir frönsku útvarps- stöðina í St. Boniface á sunnu- dagskvöldið var og var það ó- blandið ánægjuefni að hlusta á hina fögru rödd hennar og ágæta tóntúlkun; við hljóðfærið var hinn listræni píanóleikari ung- frú Sigrid Bardal. ☆ Mr. og Mrs. J. Th. Beck fóru norður til Oak View um helgina í heimsókn til Mr. og Mrs. Joe Johnson. ☆ Hr. Árni G. Eylands stjórnar- ráðsfulltrúi frá Reykjavík kom til borgarinnar á mánudaginn ásamt frú sinni sunnan frá Mountain, N. Dak., en þar flutti hann erindi og sýndi kvikmynd- ir í litum frá íslandi. Séra B. Theodore Sigurðsson og frú frá Mountain, komu með hin mætu Eylandshjón í bíl sín- um hingað norður. ☆ Mr. Th. Anderson bóndi frá Churchbridge, Sask., var stadd- ur í borginni í fyrri viku; hann kvað uppskeru vestur þar hafa orðið með rýrara móti jafnframt því hve erfiðlega hefði tekist til um heyskap vegna vatnselgs á engjalöndum og óþurka. ☆ Þeir prestarnir séra Jóhann Friðriksson frá Glenboro og séra Bragi Friðriksson frá Lundar, voru staddir í borginni á mánu- daginn. ☆ Hin nýja skáldsaga frú Láru Goodman Salverson, Immorlal Rock, birtist nú sem framhalds- saga í mánaðarritinu Canadian Home Journal, og hafa lesendur látið í Ijósi hrifningu yfir sögunni. ☆ The Women's Association of the First Lutheran Church held their annual meeting November 9th. Officers elected were: Past President, Mrs. Paul Good- man; President, Mrs. Paul Sig- urdson; Vice-President, Mrs. J. Anderson; Treasurer, Mrs. E.J. Helgason; Assistant Treasurer, Mrs. H. Olsen; Recording Secre- tary, Mrs. J. Ingimundson; Cor- responding Secretary, Mrs. J. Bergman; Publicity, Mrs. T. Gud mundson; Membership, Mrs. I. Swainson, Mrs. O. Skafeld; Nominating Committee: Mrs. A. Blondal, Mrs. R. Armstrong, Mrs. R. Broadfoot. ☆ The Women’s Association will hold their next meeting Tuesday November 23rd in the lower auditorium of the church. Frá Laugardagsskólanum Svo sem áður var skýrt frá, fer fram íslenzkukennsla Laug- ardagsskóla Þjóðræknisfélagsins í neðri sal Sambandskirkjunnar, Sargent og Bannig á laugardags- morgna og hefst kl. 10.30 f. h. Standið vörð um „Ástkæra, ylhýra málið“, og látið börn yðar verða aðnjótandi þeirrar ágætu fræðslu í íslenzku, sem skólinn hefir upp á að bjóða. ☆ Hjálparnefnd Sambandssafn- aðar efnir til sölu á heimatil- búnum mat svo sem rúllupylsu, lifrapylsu og blóðmör, laugar- daginn 20. nóv. n.k. Salan hefst kl. 1 e. h. og er til kl. 5 e. h. ☆ Skýrt var frá því í dagblöð- unum síðustu viku, að fólk þótt- ist hafa séð einn af hinum margumtöluðu fljúgandi diskum svífa með miklum hraða yfir Gimli í átt til flugstöðvanna þar; og sögðust yfirmenn þar hafa fengið nokkrar fyrirspurnir þessu viðvíkjandi. i ☆ Um miðjan vikuna, sem leið, kom hingað flugleiðis frá íslandi ungfrú Nanna Arnbjarnardóttir ættuð af Hvammstanga í Húna- vatnssýslu. ☆ Guðrún Signý, elzta dóttir Mrs. John Sigurdson, Sandy Hook, og Cpl. Bernard Paul Sicotte, R.C.A.F., Gimli, voru gefin saman í hjónaband í lút- ersku kirkjunni að Husavik af séra Harold S. Sigmar, 15. október s.l. — Veizla var haldin í samkomuhúsi byggðarinnar. Alltaf ráðagóð Það bar við fyrir nokkrum árum í sláturstíðinni, að bónda- kona utan af landi kom á rönt- gen-deild Landsspítalans og var með nokkrar rúllupylsur með sér. Vildi hún fá pylsurnar gegnumlýstar. Ástæðan til þess var sú, að á meðan hún var að búa til rúllu- pylsurnar, hafði hún týnt gift- ingarhringnum sínum, og þóttist hún fullviss um, að hann leynd- ist í einhverri pylsunni. Fannst henni borga sig betur að taka sér ferð á hendur til höfuðstað- arins og fá allar pylsurnar gegn- umlýstar, í staðinn fyrir að skera þær e. t. v. allar niður, áður en hún fyndi hringinn. Pylsurnar voru gegnumlýstar og hringurinn fannst inni í einni. Framhald af bls. 4 lögfræðingur kjörinn formaður þess. Samþykkt var þar skipu- lagsskrá fyrir minnisvarðasjóð Sveinbjarnar Egilssonar rektors. Félagið reisti Jónasi Hallgríms- syni minnisvarða á sinni tíð, og hyggst nú reisa Sveinbirni Egils- syni minnisvarða hjá mennta- skólanum. ☆ Fyrra fimmtudag fóru tveir menn úr Reykjavík í róður á litlum báti, vélbátnum Áfram. Þeir komu ekki að um kvöldið, og var leit hafin daginn eftir og leitað unz sýnt þótti að bátur- inn hefði týnzt. Brak úr honum' hefir rekið á fjörur, en ekki er vitað með hverjum hástti slysið hefir gerzt. Á bátnum voru þeir Jón Pétursson, Kleppsvegi 106, og Gestur Sölvason, Suðurpól 4. ☆ Útför Einars Jónssonar mynd- höggvara var gerð á fimmtudag- inn frá Hreppshóla-kirkju, en þar í kirkjugarðinum hvíla for- eldrar hans. Viðstaddir voru að- eins vandamenn og vinir, og meðal þeirra forsetahjónin, biskup landsins og menntamála- ráðherra. Minningarguðsþjón- usta um prófessar Einar Jóns- son myndhöggvara var haldin í dómkirkjunni í Reykjavík í gær og var þar mikill fjöldi manns, og meðal viðstaddra voru for- setahjónin, ráðherrar, forsetar Alþingis, fulltrúar erlendra ríkja og margir listamenn. Fán- ar voru dregnir í hálfa stöng í Reykjavík. Biskupinn yfir Is- landi, herra Ásmundur Guð- mundsson, flutti minningarræð- una og sagði m. a.: „Um engan sona sinna var þjóðin meir sam- mála en um þennan hógværa, hlédræga og hjartahlýja mann að hann væri snillingur og göfugmenni. Verk hans voru stolt hennar — sívaxandi auð- legð. Vér blessum minningu Einars Jónssonar og ódauðlegt ævistarf og þökkum guði, sem gaf“. Einar Jónsson var 80 ára að aldri, er hann lézt. Hann var fæddur á Galtafelli, sigldi ungur til Kaupmannahafnar og lagði stund á höggmyndalist og ferð- aðist víða um Evrópu. Hann varð snemma kunnur listamað- ur og mikils metinn af þjóð sinni. Árið 1920 settist hann að í Reykjavík. Hús var reist fyrir höggmyndasafn hans og heitir það Hnitbjörg. Þar bjó Einar síðan og þar var vinnustofa hans. Komið hafa út tvær bækur með myndum af listaverkum Einars Jónssonar, og nú í vetur er von á hinni þriðju. Sjálfur ritaði Einar tvær bækur — Minningar og Skoðanir. ☆ Jarðskjálftakippir fundust í fyrrakvöld, fyrrinótt og í gær í Reykjavík. Upptök þessara jarð- hræringa munu hafa verið 5 til 10 km. fyrir norðvestan Hvera- gerði. ☆ Þjóðleikhúsið hafði í gær- kveldi frumsýningu á sjónleik, sem nefnist Lokaðar dyr og er eftir þýzka höfundinn Wolfgang Borchert. Sverrir Thoroddsen íslenzkaði leikritið. Leikstjóri er Indriði Waage, og aðalhlutverk- ið, stríðsfanga, sem kemur heim frá Rússlandi til fæðingarborgar sinnar í rústum og eru allar dyr lokaðar, leikur Baldvin Halldórsson. ☆ Kosningar til stúdentaráðs Háskólans fóru fram í gær og voru fjórir listar í kjöri. Úrslit urðu þau, að A-listi Stúdenta- félags lýðræðissinnaðra sósíal- ista og Félags frjálslyndra stúdenta hlaut 2 fulltrúa kjörna, B-listi Þjóðvarnafélags stúdenta einn mann kjörinn, C-listi Fé- lags róttækra stúdenta tvo menn kjörna, og D-listi Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, fjóra menn kjörna. ☆ Tvær málverkasýningar eru nú í Reykjavík. Hörður Ágústs- son sýnir í Sýningarskála mynd- listarmanna og er það fjórða sjálfstæða sýningin, sem hann heldur. Þar eru um 70 myndir. Á föstudaginn var opnuð í salar- kynnum Listasafns ríkisins mál- verkasýning Nýja myndlista- félagsins, og sýna þar félags- menn allir, en þeir eru sjö að tölu, — Ásgrímur Jónsson, Jó- hann Briem, Jón Engilberts, Jón Stefánsson, Jón Þorleifsson, Karen Agnete Þórarinsson og Sveinn Þórarinsson. Þarna eru 150 myndir, og seldust 17 fyrsta daginn. — Jóhannes Kjarval hefir sýningu á málverkum sín- um á Akureyri. ☆ Allmargar nýjar bækur hafa komið í bókabúðirnar að undan- förnu, og m. a. er kominn út nýr kjörbókaflokkur Máls og menn- ingar. 1 þeim flokki er íslenzka íeiknibókin í Árnasafni eftir Björn Th. Björ'nsson, bók í stóru broti með fjölda mynda, Dagar mannsins, smásögur og þættir eftir Thor Vilhjálmsson, Fólk, þættir og sögur eftir Jónas Árnason, skáldsagan Barrabas eftir Par Lagerkvist í þýðingu eftir Ólöfu Nordal og Jónas Kristjánsson, og Ællarsamfélag og ríkisvald í þjóðveldi íslend- inga eftir Einar Olgeirsson. ☆ Leiftur h.f. hefir gefið út íslenzk læknisfræðiheiti eftir Guðmund Hannesson prófessor, og hefir Sigurjón Jónsson læknir séð um útgáfuna. Enn- fremur hefir Leiftur gefið út MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol. Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjuin sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ — MESSUBOÐ -- Sunnudaginn 21. nóv. verður messað á Lundar á ensku kl. 11 f. h. (fjölskylduguðsþjónusta). Sama dag kl. 2 e. h. fer fram ársfundur safnaðarins. Messað á Steep Rock 21. nóv. kl. 8 e. h. á ensku. Sunnudaginn 28. nóv. verður messað á Silver Bay kl. 11 t- h- á Vogar kl. 2 e. h. og á Lundar kl. 7.30 e. h. Sú messa verður sérstaklega fyrir ungt fólk. Sýnd verður kristileg kvikmynd. All* ar þessar messur verða á ensku. Séra Bragi Friðriksson ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 21. nóv.: Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli kl. 12 Ensk messa kl. 7 síðdegis undir umsjón Luther League. Fólk boðið velkomið. S. Ólafsson nýja útgáfu af Ljóðmælum Gríms Thomsens, og safn Ha- skólafyrirlestra, og sjötta bindið af Samlíð og sögu, og er Stein- grímur J. Þorsteinsson ritstjóri. ☆ Skartgripaverzlun Jóns Sig' mundssonar í Reykjavík átti ný" lega hálfrar aldar afmæli og minntist þess með útgáfu rits, er heitir Islenzk gullsmíði. Höf" undur er Björn Th. Björnsson listfræðingur og segir þar fra íslenzkri gullsmíði frá land- .námstímum og fram til upphafs þessarar aldar. Kemur ekki til mála! Hinn víðfrægi bandaríski rit- höfundur, — John Steinbeck, dvelst um þessar mundir í Parxs ásamt konu sinni og þrem ung" um börnum. Rithöfundurinn réði til sin franska matreiðslustúlku, sem býr til óviðjafnanlega góðan mat. Jafnframt kennir l11111 börnunum franska mannasiði. Vinur Steinbecks spurði hann nýlega, hvort hann ætlaði ekkx að taka hana með sér, þegar hann færi til Bandaríkjanna. — Ertu alveg frá þér, maður- sagði Steinbeck. — Heldurðu virkilega, að ég vilji hafa það a samvizku minni að hafa eyðilagt eina af beztu matreiðslustúlkum Frakka. QuA. Ro.maniuk.: Bókin er 283 blaðsíður að stærð, skreytt 23 fögrum og sögulegum myndum. Hér er um að ræða fyrir margra hluta sakir sérkenni- lega og merka bók, er fjallar um frumbyggjalíf og merka samtíðarmenn í Riverton og grend, svo sem Dr. S. O. Thompson; atvinnuhætti til lands og fiskveiðar á Winnipegvatni. Höfundur bókarinnar er af úkraníuættum og er mikill vinur íslenzka mann- félagsins í Norður-Nýja-lslandi. — Hann veitir forstöðu Sandy Bar hótelinu í Riverton. Bók þessi, sem prentuð er hjá The Columbia Press Limited, kostar í kápu $4.00, en í bandi $5.00. Pantanir ásamt andvirði, sendist MR. GUS ROMANIUK, Riverion, Man. <7akUuý Ro.ot IN Canada ÁRNI G. EYLANDS: Að Fremri-Kotum Þótt skriður falli hjá Fremri-Kotum, sig færir bóndinn þar hvergi um set, á völl í auri og ból í brotum hann beinir augum: „Ég vil og get, rutt að nýju og ræktað völlinn, mér reyndist landið hér inn við fjöllin til fanga drjúgt, og þá mold ég met. Enn er hér mýri, sem manntaks bíður, og margur grasblettur fjær og nær, enn er bithaginn býsna víður og bjarglegur fyrir hraustar ær, því oft er snjólétt og auðnar tíðum árla í þessum bröttu hlíðum, er fer að sólbráð og sunnanblær. Hér féllu áður og fyrrum skriður, en foldin brást ei um gróðurþrótt. Nú skal hér notast hinn nýi siður og neyta tækninnar vel og fljótt. Grafan kemur og grefur skurðinn, gráa leirborna framhlaupsurðin skal rudd með jarðýtu og jöfnuð skjótt. Ég stend ei einn við minn styrk að reyna, ég stefna* hugina til mín finn, er fúslega vildu flytja steina og fylla varðhring um bæinn minn, sem vona að Kotin enn komi við sögu, sem kjósa ekki’ að allir lendi í þvögu á mölinni, drjúpi dalurinn. Hér mun ég búa og blómgast lenda í blásal fjalla við hlíðarskjól. Vordægrin björtu mér vonir senda og vetrarstillurnar Gleði-jól. Hér munu kona og börn mér benda á blessun starfsins, að vegarenda við eigum gróður, sem aldrei kól“. 5. september Verndið yerðmæta heilsu Látið hvorki þrálátan hðsta né kvef stofna heilsu bams yðar, sem er á viðkvæmu vaxtar. skeiði, I hættu. Wampole’s Kxtract of Cod Liver er viður- kendur heilsugjafi, auðugur af “D” bætiefni. Börnum geðjast hið ljúfa bragð og meðal inniheldur enga ollu. EXTBflCT COD LIVER 1 © mmM EXTRACT 0F C0D LIVER * HKW-5

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.