Lögberg - 30.12.1954, Page 3
3
í sólskini Suðurlanda:
Heimsókn í Péturskirkju
Ejtir SIGFÚS HALLGRIMSSON á Ytra-Hóli
ÞAÐ HAFÐI allt leikið í lyndi. ------
Við íslendingarnir, sem fórum
til Afríku, og komum við í
Palermo og Napoli, vorum nú
komnir til Rómar, „borgarinnar
eilífu“.
Við höfðum skemmt okkur
kounglega. Höfðum séð arabiskt
musteri, konungshallir og kata-
kombur, klaustur og fornar
kirkjur. Alltaf var sólskin og
logn, alla daga. Ég bjó á góðu
gistihúsi einhvers staðar í Róma-
borg. Þegar ég váknaði um
morguninn 8. apríl s.l. mundi ég
strax eftir því, að mikið stóð til.
Ég átti að fá að skoða Péturs-
kirkju og Vatikanið.
ÞEGAR morgunverður hafði
verið borðaður fórum við að
búast til ferðar. Stór Pullman-
vagn renndi upp að hótelinu.
Við þustum upp í hann og þar
næst var ekið um breiðar og
þröngar götur, fram hjá marm-
arahöllum og fögrum görðum,
fornum, uppgröfnum rústum
o. fl. Að lokum rann bíllinn inn
á hringlaga svæðið framan við
Péturskirkju. Þegar við stigum
út úr bílnum hóf leiðsögumaður-
inn frásögn og lýsingu á ýmsu,
er fyrir augu bar, en það, sem
ég segi hér, er aðeins það sem
ég sá ög heyrði við þetta tæki-
færi, en ekki tekið upp úr neinni
fræðaþulu eða eldri ferðasögum.
Það fyrsta, er ég sá, voru
súlur þær, sem eru eins og um-
gjörð um þetta hringlaga svæði,
Péturstorgið. Þær eru í dórísk-
um stíl, sem kallað er, og eru
284 talsins. Þessar súlur eru í
fjórum röðum, bera uppi þak eða
steinstétt, sem prýdd er 162
dýrðlingastyttum. Þetta eru eins
og armar, er ganga út frá kirkj-
unni, er bjóða 'öllum til sín í
helgidóminn. Á þessu svæði geta
500 þúsund manns staðið, er páfi
sýnir sig á svölum kirkjunnar.
Á miðju þessu torgi er
forkunnar-fagur steindrangur
(obelisk). Hann er 25 metrar á
hæð, ferkantaður og mjókkar
heldur upp. Ekki veit ég hve
sver hann er, getur verið einar
5 álnir hver hlið. Þessi merkilegi
steinn var fluttur frá Egypta-
landi, yfir haf og lönd. Galígula
keisari hafði ágirnd á honum og
skipaði að flytja hann til Rómar.
En Sixtus páfi 5. réð því, að
hann var reistur þarna 1586. Og
var það Dóminiko Fontana, er
sá um að reisa hann. Og ein-
hvern tíma hafði ég heyrt að
snaran hefði verið tilbúin á
verkstjórann, ef eitthvað bæri
út af við þetta verk. Efst á þess-
um egypska steindrang gnæfir
kross, merki endurlausnarinnar.
Sagt var, að flísar úr krossi
Krists væru innan í járnkrossin-
um. En það eru víst fleiri kross-
ar í Rómaborg þannig gerðir.
Tveir undurfagrir og miklir gos-
brunnar eru þarna líka. Þeytist
vatn í mörgum bunum hátt í loft
upp, en fellur svo niður í um-
gerðir eða skálar.
Var nú haldið upp tröppur
kirkjunnar og inn í forkirkjuna.
Þar voru allar myndavélar, er
við höfðum, teknar í geymslu á
á meðan kirkjan var skoðuð.
Þar sá ég kretasölu og minja-
gripaverzlun. Við horfðum á
hinar „helgu dyr“ inn í kirkj-
una, en um þær var ekki gengið,
heldur um aðrar óæðri.
Inni í kirkjunni
Við stigum inn á fagurt og
slípað marmaragólf, og talan 186
m. var greypt gylltum stöfum í
gólfið rétt framan við forkirkj-
una. Þetta var lengdin innan frá
gafli, eða 200 m. með forkirkju.
Þarna var ég kominn inn í
stærstu kirkju í heimi. Þetta er
krosskirkja, og lengd krossarm-
anna er 137 m. Inni þar eru 150
steinmyndir, 90 gipsmyndir, 40
myndir úr bronsi, og er ein
þeirra hin fræga stytta Péturs,
með tána, er kysst er á.
Páfagrafir eru 40 að tölu. Svo
eru þarna 30 ölturu. HæÖin upp
í hvelfinguna er ekkert smáræði.
Mælist hún frá gólfi vera 132,50
metrar. En þvermál hvelfingar-
inar er 42 m. Mest öll birtan
kemur ofan úr hvelfingunni.
Inni hvílir þak á 150 marmara-
súlum, sem eru dásamlega
skreyttar og eru það aðllega
smáar marmaraplötur, allavega
á litinn, sem eru felldar inn í
hvíta marmarasúluna með þeim
snilldar frágangi, að furðulegt
er. Ég hafði aldrei séð neitt því-
líkt fyrr. Ég strauk hendi yfir
mosaikmynd eina gljáfægða. Jú,
þetta var veruleiki. Þetta var
steinsúla og í feikna hæð hvíldi
á þessari súlu, og óteljandi öðr-
um, þak, dásamlega skreytt
gulli og gersemum.
Langt inni á gólfinu var loga-
gylltur hlutur; að honum var
yfir 100 m. vegalengd. Ég gekk
og gekk á þessu rósumprýdda
gólfi, þar sem milljónir manna
hafa gengið, en hvergi sést slit
eða skemmd. Loks kom ég að
þessum gyllta hlut. Þetta er hið
allra helgasta, altari páfa.
Þarna stendur það í sinni
miklu hæð og skrauti og dýrð.
Þetta er mesti dýrgripur, gjörð-
ur af meistara Berníni. Ég geng
inn að altarisgrindunum; þar
krjúpa nokkrar svartklæddar
konur og horfa upp í helgidóm-
inn. Þær bæra varirnar, flytja
bænir. Ég horfi niður í grafar-
stæði heilags Péturs. Þar er
ljósadýrð mikil. Marmarastigar
og þrep eru þarna og niðri eru
fögur líkneski. Píus VI. krýpur
þar í fullri stærð og sýnist vera í
páfaskrúða, flytjandi bæn. Mörg
fleiri líkneski voru þar, en nöfn
sá ég ekki. Yfir þetta gnæfir svo
altarið; tvær mannhæðir eru
upp á altarið sjálft. En svo, í
feikna hæð, um 60—70 m. uppi,
er altarishiminn, sem hvílir á 4
sverum, snúnum, gylltum súl-
um. Þetta sýnist allt vera eitt
gullvíravirki þarna uppi, en uppi
á brúnum altarishiminsins eru
mörg gyllt líkneski, sem eru í
fullri líkamsstærð, en sýnast frá
okkur, sem stóðum þarna, vera
eins og litlir englar eða börn.
Sagt var, að 17 tonn af gulli
væru þarna saman komin. En
eitthvað er það bronsi blandað,
gæti ég trúað. Leiðsögumaður-
inn sagði, að allt þetta gull hefði
verið rifið innan úr hvelfingu á
grísku hofi í Rómaborg, sem
Pantheon heitir. Kom ég þar og
sá bert, sementskústað loftið og
förin eftir gullskreytingarnar
eins og reitir í allri steinhvelf-
ingunni.
ÞESSI KIRKJA er byggð á gröf
Péturs postula. Yfir gröf Péturs,
sem krossfestur var í fjölleika-
húsum Nerós keisara, byggðu
guðhræddir, kristnir menn ofur-
lítið bænahús. Á sama stað lét
Konstantín keisari reisa veg-
lega dómkirkju, sem mjög varð
til fyrirmyndar. Júlíus II. lét
rífa hina fornu kirkju, og fól
Braníante endurbygginguna.
Eftir dauða hans var verkinu
haldið áfram af Rafael og An-
toníó da Sangallo. Lagði Michel-
angeló síiJSustu hönd á hvelfing-
una, og er hún eitt allra fegusta
listaverk þarna. Carlo Maderno
lauk við innbygginguna. Hann
gerði þetta að krosskirkju, og
lauk við framhlið og forkirkju
1612. Ég hljóp eftir tröppunum
meðfram framhliðarsúlunum og
var það dágóð hlaupabraut,
114,69 m. Og er ég leit upp fyrir
mig til að sjá svalifnar, er páf-
inn kemur út á, undraðist ég
hæðina; upp á þakbrún eru
45,44 m.
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 30. DESEMBER 1954
I ÞEIM ARAGRÚA mynda,
stórra og smárra, sá ég eitt
marmara-minnismerki e f t i r
Bertel Thorvaldsen. Það var til
minningar um Píus páfa VII.
Páfi situr með kórónu og í páfa-
kápu, svipmikill og tignarlegur.
Englar sitja við hliðar hans, en
tvær gyðjur eða kvenverur
standa á stöllum neðar og fram-
ar. Þetta er undurmikið lista-
verk, allt frá fögrum andlits-
dráttum til smágjörvra fellinga
á klæðum.
f þessari miklu kirkju voru
smáhópar af gestum hingað og
þangað. í einni kapellu var verið
að messa. Prestur var þar í fögr-
um skrúða fyrir altari og svart-
klæddur karlmaður og nokkrar
konur voru áheyrendurnir.
Kona ein stendur fyrir fram-
an styttu Péturs, hún horfir upp
í kalt og ófrítt eirandlit hans,
en leggur svo varir sínar að
slípaðri tánni, er stendur fram
á brún styttustallsins. Þarna
fékk Pétur langan og innilegan
koss. Með henni voru þrjú börn;
hún lyftir þeim upp, svo að þau
geti kysst líka. Það yngsta, lítill
svarthærður snáði, skildi ekki
þýðingu þessarar athafnar, en
konan þrýstir munni hans á
tána. (Þú skalt samt). — Ég
gekk að styttunni, strauk um
tána með hendinni, en kyssti
ekki. Þessi stytta er eftir ein-
hvern Cambio.
Nokkrir skriftastólar voru
út við veggi kirkjunnar. Voru
þeir úr tré, og fáeinir trébekkir
voru í hlaða þar, annars er
kirkjan sætalaus með öllu. Þegar
ég var kominn að útidyrum lít
ég upp í hvelfingarnar og minn-
ist Michelangeós, þessa mikla
snillings í málaralist, högg-
myndalist og ýmsu smíði, sem
greinilega er óviðjafnanlegt, og
get ég varla hugsað mér fjöl-
hæfari mann eftir verkum hans
að dæma.
Kvaddi ég svo Péturskirkju.
Aldrei mun ég sjá annað eins
hús. Eins stórt myndskreytt
marmaramusteri. Eins stílhreint.
Hús þétta er fullt af list, og bak
við byggingu þess er svo mikil
hugsun og stórhugur. Það er
ekki eins og hver kynslóðin hafi
tekið við af annarri. Nei, það er
eins og lampinn hafi verið strok-
inn í „1001 nótt“, og óskinni hafi
verið fullnægt. Höllin ' stendur
þarna. —Jólablað DAGS 1953
Krosskirkja úr steini verði reist
í Skólholti
Business and Professiona! Cards
Phone 74-7855 ESTIMATES FREE J, M. Ingimundson Re-Roofing — Asphalt Shingles Insul-Bric Siding Vents Installed to Help Eliminate Condensation 632 Slmcoe St. Winnipeg, Man. Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary's and Vaughan, Winnipeg PHONE 92-6441
SEWING^MACHINES Darn socks in a jiffy. Mend, weave in holes and sew beautifully. 474 Porlage Ave. Winnipeg, Man. 74-3570 J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Faateignasalar. Leigja hús. Út- vega peningal&n og elds&byrgC, bifreiCaábyrgC o. s. frv. Phone 92-7538
Dr. ROBERT BLACK SérfræCingur I augna, eyrna, nef og h&lssjúkdömum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofusimi 92-3851 Heimasími 40-3794 SARGENT TAXI PHONE 20-4845 For Quick, Reliable Service
Dunwoody Saul Smith
& Company
Chartered Accountants
Phone 92-2468
100 Princess St. Winnipeg, Man.
And offices at:
FOHT WILLIAM - KENORA
FORT FRANCES - ATIKOKAN
DR. E. JOHNSON
304 Eveline Street
SELKIRK, MANITOBA
Phones: Office 26 — Residence 230
Office Hours: 2.30 - 6.0L p.m.
Einnig íbúðarhús fyrir prest eða
biskup og margar aðrar
framkvæmdir
Skálholtnefndi hefir skilað álili
í aprílmánuði s.l. vor skipaði
kirkjumálaráðherra Skálholts-
nefnd. Verkefni nefndarinnar er:
„að gera tillögur um endurreisn
Skálholts og framtíðarskipulag
staðarins, sérstaklega með tilliti
til afmælis biskupsseturs í Skál-
holti 1956 .... skal nefndin
hafa lokið störfum fyrir 1. októ-
ber n.k.......ætlazt er til, að
nefndin standi fyrir fram-
cvæmdum öllum, þegar þar að
kemur“.
Lagt er fyrir nefndina í bréfi
ráðherra að hafa samráð við
aiskup landsins um öll störf sín,
og hefir hann frá upphafi starfað
með nefndinni og setið fundi
aennar.
í Skálholtsnefnd eiga sæti
sessir menn: Hilmar Stefánsson,
bankastjóri, og er hann formað-
ur nefndarinnar, Sveinbjörn
Högnason prófastur á Breiða-
bólsstað og Magnús Már Lárus-
son, prófessor. Upphaflega var
Hálfdán Helgason, prófastur, í
henni, en hann lézt mjög stuttu
eftir að hún var skipuð og var
þá prófessor Magnús Már Lárus-
son skipaður í hans stað, og er
hann ráðinn framkvæmdastjóri
nefndarinnar. '
Nefndin hefir þegar fyrir
nokkru sent ráðherra álit sitt og
tillögur. Eru þær, eins og til var
ætlazt, fyrst og fremst miðaðar
við árið 1956, þó þannig, að
gengið er út frá, að framkvæmd-
ir þær, sem gerðar verða, skapi
traustan grundvöll undir frekari
aðgerðir og framtíðarstarfsemi á
staðnum.
Hilmar Stefánsson, banka-
stjóri, formaður nefndarinnar,
skýrði blaðamönnum frá þessu í
gær.
Tíminn er skammur til stefnu,
e ná verður að treysta að takast
megi að leysa þau verkefni, sem
álit nefndarinnar til ráðherra
felur í sér, með sterkum og ein-
lægum vilja, og einhug allra
þeirra aðila, sem um málið eiga
að fjalla.
Tillögur í iíu liðum:
1. Reist verði kirkja í Skál-
holti, stór og fögur.
2. Reist verði íbúðarhús fyrir
prest staðarins eða biskup,
helzt báða.
3. Reist verði íbúðarhús fyrir
bónda eða ráðsmann.
4. Nauðsynlegustu fénaðarhús,
hlöður og geymslur fyrir
áhöld og vélar.
5. Hitaveita verði lögð í öll hús
staðarins og þá einnig vatns-
veita (kalt vatn).
6. Rafmagn.
7. Ræktun.
8. Skógrækt.
9. Vegagerð.
10. Hreinsað rækilega til á
staðnum, girt og gert bif-
reiðastæði o. fl.
Kostnaður við þessar fram-
kvæmdir telur nefndin að muni
verða ekki innan við ca. 6 mill-
jónir króna. Þar af hefir ríkið
þegar lagt fram eina, tvær eru
áætlaðar á fjárlögum fyrir
næsta ár. Það, sem á vantar,
kæmi á fjárlögum fyrir 1956 og
jafnvel eitthvað 1957.
Nefndin hefir haft samstarf
við ýmsa helztu sérfræðinga rík-
isins og fleiri ágæta menn. Má
þar nefna húsameistara ríkisins,
skipulagsstjóra, þjóðminjavörð,
raforkumálastjóra, skógræktar-
stjóra, landnámsstjóra, vega-
málastjóra, forstjóra teiknistofu
landbúnaðarins, Gunnar Böð-
varsson, verkfræðing, og ýmsa
fleiri.
Krosskirkja
Nefndin leggur til að í Skál-
holti verði reist steinkirkja, er
rúmi 250 manns í sætum. Stíll
kirkjunnar verði í samræmi við
hinar eldri dómkirkjur og í odd-
bogastíl, með háu miðskipi og
lægri hliðarskipum og stúkum
(krosskirkja). Er það talið æski-
legt að hún standi þannig að há-
altari hennar verði yfir háaltaris
undirstöðum miðaldakirkjunn-
ar. 1 kirkjunni er sjálfsagt að
varðveita alla þá forngripi, sem
komið hafa frá Skálholti, enda
verði þeir þar í öruggri geymslu.
Uppdráttur kirkjunnar verður
fullgerður á þessum vetri
Nefndin hefir með bréfi falið
húsameistara ríkisins að gera
uppdrætti að kirkjunni. Þá hefir
og verið fallizt á, að H. Christie,
arkitekt, sem staðið hefir fyrir
rannsókn hinna fornu kirkju-
grunna s.l. sumar verði ráðu-
nautur húsameistara um þessi
mál. Þá er einnig gert ráð fyrir,
að einn þekktasti húsameistari
Norðurlanda, M. Paulsen í Osló,
verði með í ráðum um teikningu
Skálholtskirkju. Talið er að
kirkjan muni kosta 2,5 til 3
milljónir króna. Húsameistari
ríkisins hefir ferðazt allvíða í
haust í þeim erindum að kynna
sér þessi mál, sem bezt verður
á kosið. Uppdráttur að kirkjunni
mun verða fullgerður síðari
hluta þessa vetrar. Telja verður
sjálfsagt og óhjákvæmilegt að
taka nýjan kirkjugarð í Skál-
Framhald á bls. 7
Hofið
Höfn
í hugo
Heimili sðlsetursbarnaima,
Icelandic 01(1 Folks’ Home Soc
3498 Osler St„ Vancouver, B.C.
ARLINGTON PHARMACY
Prescription Specialist
Cor. Arlington and Sargent
Phone 3-5550
Christmas Gifts, Cards,
Ribbons and Paper.
We collect light, water and
phone bills.
Post Office \
Muir's Drug Store Lid.
J. CLUBB
FAMILY DRUGGIST
SERVTNG THE WEST END FOR
27 YEARS
Phone 74-4422 Ellice & Home
Thorarinson & Appleby
Barristers and Solicitors
S. A. Thorarinson, B.Sc., L.L.B.
W. R. Appleby, B.A., L.L.M.
701 Somerset Bldg.
Winnipeg, Man. Ph. 93-8391
Phone 92-7025
H. J. H. PALMASON
Chartered, Acccuntant
506 Confederation Life Bnllding
WINNIPEG MANITOBA
Parker, Parker and
Kristjansson
Barristers - Solicitors
Ben C. Parker, Q.C.
B. Stuart Parker, A. F. Kristjansson
500 Canadlan Bank ot Commerce
Chambers
Wlnnipeg, Man. Phone 92-3561
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
60 Louise Street Simi 92-5227
EGGERTSON
FUNERAL HOME
Dauphin, Manitoba
Eigandi ARNI EGGERTSON Jr.
Van's ESectric Ltd.
636 Sargent Ave.
Authorized Home Appliance
Deálers
GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL
McCLARY ELECTRIC — MOEFAT
Phone 3-4890
Thorvaldson. Eqgerison.
Basiin & Siringer
Barristers and Solicitors
209 BANK OF NOVA SCOIIA Bldg.
Portage og Garry St.
PHONE 32-8291
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE, Managing Director
Wholesale Distributors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET
Office: 74-7451 Res.: 72-3917
Office Phone Res. Fhone
92-4762 72-6115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BUILDING
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment.
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur líkkistur og annast um öt-
farir. Allur OtbúnaCur sá bezti.
Stofnað 1894 SlMI 74-7474
Phone 74-5257 70« Notre Dame Ave.
Opposite Matemity Pavilion
General Hospital
Nell's Flower Shop
Wedding Bouquets, Cut Flowers,
Funeral Designs, Corsages,
Bedding Plants
NeU Johnson Res. Phone 74-6753
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smith St. Winnipeg
PHONE 92-4624
Gilbart Funeral Home
Selkirk, Manltoba.
J. Roy Gilbart
Licensed Embalmer
Phone 3271 Selklrk
SELKIRK HETAL PRODUCTS
Reykh&far. öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hltaeiningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldi-
viS, heldur hita frá a8 rjúka út
meC reyknum.—SkrifiC, sfmiC til
KF.LLY SVEINSSON
625 Wall St. Winnlpef
Just North of Portage Ave.
Slmar 3-3744 — 3-4431
J. Wilfrid Swanson & Co.
Insurance in all its branches
Real Estate - Mortgages • Rentals
«0 POWER BUILDING
Telephone 93-7181 Res. 46-3496
LET US SERVE YOU