Lögberg - 30.12.1954, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 30. DESEMBER 1954
Úr borg og bygð
A meeting of the Jon Sigurd-
son Chapter I. O. D. E. will be
held at the home of Mrs. J. B.
Skaptason, 378 Maryland St., on
Friday Eve., January 7, 1955.
☆
Næsti fundur Stúkunnar
HEKLU No. 33 I. O. G. T. verður
haldinn n.k. þriðjudag 4. jan. kl.
7.30 e. h. í neðri sal G.T.-hússins.
☆
— Dánarminning —
Ögmundur Ólafsson, fyrrum
bóndi í Leslie í Saskatchewan
og Crake Mille í Alberta, and-
aðinst á Almenna sjúkrahúsinu
í Vancouver, B.C., þann 19.
september síðastliðinn.
Hann var fæddur að Hvassa-
hrauni á Vatnsleysuströnd í
Gullbringusýslu og var á 83ja
aldursári þegar hann andaðist.
Hann var af traustum og góðum
bændaættum og átti margt
skyldmenna hér í Canada og á
íslandi. Um 1890 flytst hann til
þessa lands og litlu síðar fluttu
hingað móðir hans og bræður.
Hann kvæntist hérlendri konu,
er lifir hann og dvelur að elli-
heimilinu „Höfn“, þar sem þau
hjónin höfðu dvalið í nokkrar
vikur fyrir andlát ögmundar.
Hún var manni sínum ágæt
eiginkona og fyrirmyndar hús-
móðir. Bjuggu Ögmundur og
kona hans góðu búi í Saskat-
chewan og Alberta og voru vin-
sæl og vel metin af öllu fólki.
Er Ögmundur hætti búskap
fluttu þau hjónin til Lulu eyjar-
innar við Vancouver, en bjuggu
síðustu árin í borginni sjálfri og
nutu sömu vinsælda og virð-
ingar sem fyrr. Þau eignuðust
tvo syni, sem komust til fullorð-
ins ára og eru þeir báðir bú-
settir í British Columbia.
Ögmundur var vel greindur
og minnugur; hann var trúmað-
ur og alla ævi var honum hjart-
fólgið það, sem hann lærði við
móðurkné af versum og andleg-
um ljóðum.
Heilsu hans fór ört hnignandi
síðasta æviárið og þegar haust-
blærinn var að færast yfir þetta
fagra land og blöðin féllu af
trjánum, fluttist sál hans héðan
inn í sumar eilífðarinnar.
Á útfarardegi hans, 22. sept.
síðastliðinn, fluttu þakkir og
kveðjur frá ættingjum og vin-
um enskur forstöðumaður
Bræðrasafnaðarins hér í Van-
couver, en þar höfðu þau hjónin
verið trúir meðlimir, og séra E.
S. Brynjólfsson.
FRÓNS-fundur
verður haldinn í Góðtemplara
húsinu á Sargent Ave., mánu-
dagskvöldið 17. jan. n.k. kl. 8.
Auk annars, sem þarna verður
til skemmtunar, flytur prófessor
Finnbogi Guðmundsson fyrir-
lestur. — Dagskrá fundarins
verður nánar auglýst síðar.
☆
Herbergi og fæði óskast handa
roskinni konu við allra fyrstu
hentugleika, helzt hjá íslenzkri
fjölskyldu. Sími 40-6785. Upp-
lýsingar einnig veittar á skrif-
stofu Lögbergs.
☆
Á mánudaginn, 27. des. kl. 7,
voru gefin saman í Fyrstu
lútersku kirkju þau Elín Helga
Smith, dóttir séra Valdimars og
frú Lilju, 686 Banning.St., og
David Ross Oakley, sonur Mr. og
Mrs. David Oakley, 1169 Mulvey
Avenue. Faðir brúðarinnar
framkvæmdi hjónavígsluna í
viðurvist allmargra vina og ætt-
ingja brúðhjónanna, en svara-
menn voru þau Jóhanna Nielsen
og Charles B. Hare. Systir brúð-
gumans, Miss Elaine Oakley
frá Toronto söng einsöngva með
aðstoð organista kirkjunnar, frú
Eric ísfeld. Að afstaðinni hjóna-
vígslunni var setin brúðkaups-
veizla á St. Regis hótelinu, og
mælti séra Haraldur Sigmar frá
Gimli fyrir skál brúðarinnar.
Ungu hjónin lögðu af stað suður
í Bandaríki næsta dag. Mr.
Oakley er nýlega útskrifaður frá
háskólanum í Toronto sem
“optometrist,” og stundar nú
það starf á Gimli, og verður
framtíðarheimili ungu hjónanna
þar í bæ.
Meðal utanbæjargesta við
brúðkaup þetta var eldri systir
brúðarinnar, Sigrún Dolores, og
maður hennar William R.
Lawler, flugstjóri frá Ottawa. í
för með þeim var ungur sonur
þeirra, sem afi hans skírði á jóla-
daginn í kirkju sinni, og hlaut
nafnið Daníel William. Auk séra
Haraldar frá Gimli og frúar
hans, voru einnig viðstaddir
þeir prestarnir, séra Bragi Frið-
riksson frá Lundar, og t séra
Robert Jack frá Árborg, og frúr
þeirra.
☆
W. J. Lindal dómari pg frú
fóru vestur til Stettler, Alberta,
rétt fyrir jólin og dvelja þar
fram yfir nýárið, en þar er bú-
sett dóttir Walters dómara af
fyrra hjónabandi og fjölskylda
hennar.
Mr. og Mrs. J. Th. Hallgríms-
son og sonur þeirra Leifur lög-
fræðingur, dvöldu í Riverton
um jólin hjá tengdafólki og
öðrum vinum.
☆
Páll Bjarnason skáld
Orðval býður okkar þjóð,
ort með prýði getur.
Endursmíðar úrvals ljóð. —
Enginn þýðir betur.
Sig. Júl. Jóhannesson
☆
Nýlega lézt í borginni Des
Moines í Iowaríkinu Mr. Gordon
Melsted 49 ára að aldri, drengur
góður og hinn mesti atorkumað-
ur; hann var útskrifaður af há-
skóla Manitobafylkis og sonur
hinna kunnu og ágætu hjóna
Mr. og Mrs. S. W. Melsted, sem
bæði eru látin. Gordon gegndi
um langt skeið ábyrgðarstöðu
sem Actuary hjá umfangsmiklu
lífsábyrgðarfélagi í Des Moines;
hann lætur eftir sig eftirgreind
systkini: Thor, Lárus, Hermann,
Mrs. S. Indriðason, Guðrúnu og
Dorothy.
☆
Mr. og Mrs. Harold Sigurdson
frá Fort William, Ont., dvelja
hér um hátíðirnar ásamt börnum
sínum í heimsókn til foreldra
sinna og sifjaliðs.
☆
Mr. F. O. Lyngdal kaupmaður
frá Vancouver og frú komu
hingað skömmu fyrir jólin og
dvelja hér um hríð í gistivináttu
þeirra Mr. og Mrs. J. G. Jó-
hannsson, 586 Arlington Street.
☆
Úrval af íslenzkum hljóm-
plötum nýkomið í Björnsson’s
Book Store, 702 Sargent Ave.,
Winnipeg, Man.
☆
Kennari í heimsókn
Hingað til borgar kom rétt
fyrir jólin Jón Kristgeirsson
kennari við Miðbæjarskólann í
Reykjavík, ættaður frá Gil-
streymi í Borgarfirði hinum
meiri; hann hefir dvalið í Banda-
ríkjunum síðan- um miðjan
nóvember til að kynnast þar
skólahaldi og sömu erinda er
hann hingað kominn; hann er
maður prýðisvel ritfær og hefir
samið fjölda greina, sem birzt
hafa í blöðum og tímaritum, svo
sem í tímaritinu Mentamál;
hann á hálfbróður að Lundar,
Svein Johnson, og brá sér þang-
að norður til fundar við hann.
— GIFTING —
Violet Thorvaldson og Joseph
Gagnon, flugmaður, sem dvalið
hefir á Gimli flugæfingastöð-
inni um skeið, voru gefin saman
í hjónaband í Únítarakirkjunni
að Riverton á sunnudaginn, 19.
desember s.l. Séra Philip M.
Pétursson gifti.
Brúðurin er yngsta dóttir
Sveins heitins Thorvaldson,
kaupmanns, M.B.E. og seinni
konu hans, frú Kristínar Thor-
valdson. Herbert Lother, frá
Winnipeg, söng brúðkaups-
söngvana, en Miss G. Johnson
var við hljóðfæHð. Að lokinni
hjónavígslunni fór fram vegleg
veizla í samkomuhúsi bæjarins.
Mr. Marino Frederickson, frá
Winnipeg, mælti fyrir minni
brúðarinnar, Fjöldi gesta frá
Winnipeg og nágrenni sóttu
brúðkaupið. Hin ungu hjón fóru
til átthaga brúðgumans í New
Brunswick, en þaðan fara þau
til Hanover á Þýzkalandi, og
munu dvelja þar um þriggja ára
skeið.
*
Board of Trusíees of The Firsl
Lulheran Church 1955
Grettir Eggertson, President;
Paul Goodman, Vice-President;
Erlingur Eggertson, Secretary;
Gordon Gíslason, Treasurer;
Alan Johnson, Envelope Sec.;
Robert Storry, Choir Warden;
Skúli Anderson Stewardship;
Kári Jóhannsson, Property
Committee; Gus Gottfred,
Property Committee; Axel
Vopnfjord, Property Cimmittee.
Tilvalin nýársgjöf
Enn er við iíði margt fólk af
íslenzkum stofni í þessari álfu,
sem ann hugástum íslenzkri
tungu og íslenzkum menningar-
erfðum; þetta fólk lætur sér
ekki á sama standa um framtíð
vorrar tignu tungu, og vill að
sjálfsögðu nokkuð á sig leggja
henni til verndar.
Vinnið að útbreiðslu Lögbergs.
Kaupið það í nýársgjöf handa
vinum yðar hérlendis og eins á
Fróni!
☆
Frú Kristín Pottruff fór í dag,
miðvikudagsmorgun, flugleiðis
í heimsókn til sonar síns
Douglas Pottruff og fjölskyldu
hans í Ann Arbor, Michigan,
U. S. A. Hún mun og einnig
heimsækja systur sínar tvær,
sor. heima eiga í Michiganríki,
Miss Kristjönu Ólafsson í
Garden City og Mrs. Sally
Johnson í Romulus; ennfremur
mun hún heimsækja mörg
skyldmenni, er heima eiga á
þessum slóðum. Frú Kristín
gerir ráð fyrir að vera þrjá
mánuði í burtu.
Æskulýðsþóttur
Að vera þreyttur og sveittur
og óhreinn frá hvirfli til ilja er
ekki þægilegt. Að geta þá kastað
af sér óhreinu fötunum og
þvegið sig hreinan hátt og lágt
og klæðst hreinum og góðum
fötum, er í raun og veru dásam-
legt. Það veitir sælukennd og
vellíðan að vera allur hreinn.
Það er svo þægilegt, styrkjandi
og læknandi að vera hreinn.
Oft er unglingum gefið úr 1
fermingargjöf. Ef þú værir á
þeim aldri og hefðir fengið dýrt
og fallegt úr í fermingargjöf, þá
mundir þú ekki opna það og
láta einhver öhreinindi inn í
úrið.
Úrið er hárfínt og viðkvæmt
sigurverk og þolir ekki óhrein-
indi.
Sálarlíf unglingsins er við-
kvæmt og undursamlegt sigur-
verk. Hugarheimur barnsins er
hreinn. Hann er laus við allt hið
óheppilega, sem síðar treður sér
inn í hugarfar manna. Það eru
einmitt slík óhreinindi hugar-
farsins, sem valda mönnum
mestu tjóni. Mesta vandamál
unglingsins er að halda hugan-
um lokuðum fyrir öllu óhreinu,
sem leitar á, öllum leiðinlegum
og óhreinum hugsunum. Slíkar
hugsanir sýkja sálarlífið hægt
en markvisst, og einmitt af því,
að sýkingin er hægfara, gefur
unglingurinn því oftast lítinn
eða engan gaum. Samt fer svo,
að smátt og smátt dýpka sárin
og verða að meini, sem síðar
getur komið fram í alls konar
sálartruflun, taugabilun, vanlíð-
an og ófarsæld. En auk alls
þessa skemma óhreinar hugsanir
fyrir öðrum og eru alls staðar
sýkingarhætta í mannfélaginu.
Bezta ráðið til þess að varð-
veita hugarfarið hreint, er að
fylla hugann björtum og fögrum
hugsunum, lesa göfgandi og
mannbætandi bækur, vera öðr-
um til gleði og hjálpar, láta
þjónustú í té, vera trúr í öllu,
ástunda nytsamleg störf og velja
sér menntandi og göfgandi
áhugamál.
„Með hverju getur ungur
maður haldið vegi sínum hrein-
um?“ spyr hebreska sálma-
skáldið, og svarar: „Með því að
gefa gaum að orði þínu“. Það er:
orði Guðs.
Orð Guðs, er siðgæðis og
mannkærleika kenning Krists,
lífsreglur og heilræði spámanna
og spekinga, lærisveina Krists
og allra þeirra manna, sem
leiddir hafa verið af anda Guðs.
Hygginn er sá ungi sveinn eða
svanni, sem gefur slíkum heil-
ræðum gaum. Með því getur
hann haldið vegi sínum hrein-
um, hugsunum sínum hreinum.
Það er dásamlegt að vera
hreinn.
—EINING
«!«««!««€«««€««!«!««!
Greetings of the Season and Best Wishes
for a
Prosperous New Year.
| E. & F. FURNITURE FINISHERS I
Specializing in
REFINISHING PIANOS and FINE FURNITURE
„ Phone 72-7862
663 Ellice Ave.
m „
'<iai3»M)»3)3t3i>í»»3t»i9M>»9i3!»a>3)3)3>3)a!3)S)»at9»ta)3ia9»»9)>«k3)»aia»)Stagk»atai«
Winnipeg, Man. #
Fullkomnasta . . . Úrvals aðbúð farþega
Lægsfa flugfargjald til íslands
Fljúgið skemstu hringferðina til Reykjavlkur vi8
því lægsta fiugfargjaldi, sem fáanlegt er.
Hinar fivi8jafnanlegu fjögra hreyfla Douglas
Skymaster vélar, er skandinaviskir flugmenn, sem
notið hafa U. S. æfingar stjárna, veita hina
fullkomnustu flugfer8atækni, þægindi og ávalt
lent á áætlunartíma. Þér njðtiS ágætis máltíSa,
hallandi sæta og fyrsta flokks afgreiSslu ferSina
á enda.
Bein sambönd við alla Evrópu og Mið-Austurlöncl.
Frekari upplýsingar og verð fargjalda
hjá ferðaskrifstofu yðar
n /—\ n
ICELANDICl AIRLINES
uzAauo
15 W.«t 47th St„ N. Y. 36, PL 7-8585
Ferhendur og ferðaminningar
Framhald af bls. 4
Að sjálfsögðu fórum við ekki
fram hjá dyrum Skagfirðinga í
þessari pílagrímsför okkar til ætt
jarðarinnar, og gistum Stephan
G. að Arnarstapa, þaðan sem
hann hvessir sjónir yfir sögu-
frægar og sviphýrar fæðingar-
og bernskustöðvar sínar. Sæmir
ágætlega, að hann stendur þann-
ig vörð á fornum slóðum sem
verndarvættur sveitarinnar sinn-
ar hugumkæru! Hallgrímur yrkir
fallegar vísur um „Vorkvöld í
Skagafirði“. Með því að breyta
því í „Sumarkvöld“ gæti það
verið laukrétt lýsing á yndislegu
kvöldi, sem við áttum í góðum
hópi á Sauðárkróki norður í
dásemdarríki miðnætursólar-
innar:
„Fegurð, sem um fæstir vita
jelst í djúpsins bláa straumi.
Þetta gullport Ijóss og lita
lifir mér í vöku og draumi.
Manstu afanelda sindra
úti á sundum meginbreiðum,
eða morgun tíbrá tindra
töfra bliki frammi á heiðum?“
Ekki urðu Vestfirðingar út-
undan í íslandsferð okkar hjóna,
ísfirðingar sáu til þess með
rausn og prýði, og íslenzkir Góð-
templarar; og annað kvöldið,
sem við dvöldum vestur þar,
sáum við bókstaflega kvöldroð-
ann og morgunroðann fallast í
faðma með þeim hætti, að vart
verður með orðum lýst, en vel
kemst Hallgrímur þó frá því í
hinum fögru vísum „í Reykja-
nesi við lsafjarðardjúp“:
„Djúpsins kyrrð er dul og stór,
daggarperlur glitra, skína,
landið, blærinn, sól og sjór
saman flétta töfra sína.
Undir skærum óttu hyr
uppi langt um himinboga,
aldrei sá ég áður fyr
ísafjarðardjúpið loga.
Nóttin hljóð og hauðrið vítt,
hafsins blik og andi manns
renna saman þétt og þýtt,
þættir fólks og ættarlands.“
4
Hér hefir þá verið stungið við
fæti á nokkrum stöðum í minn-
ingaríkum ferðum okkar um
ættjörðina á nýliðnu sumri, eftir
því, sem vísur Hallgríms kenn-
ara tengjast þeirri ferð, en miklu
víðar kemur hann við á ferða-
leiðum sínum, þó eigi verði
nánar rakið hér, né heldur lýst
öðrum kvæðum hans. Einnig
komum við hjónin á miklu fleiri
staði bæði á Suður- og Norður-
landi, en hér hefir verið getið,
og verður þeim þætti fararinnar
gerð nokkur skil annars staðar.
En alls staðar voru viðtökurn-
ar jafn ástúðlegar og höfðing-
legar; ég nefni sem dæmi hina
frábæru móttöku, er við áttum
að fagna á ættarslóðum konu
minnar í Þykkvabænum, í virðu
legu boði Siglfirðinga, á Blöndu-
ósi og annars staðar í Húnaþingi,
á Selfossi, og enn víðar. 'Sagan
var hin sama hvarvetna. Við
sáum daglega ríkuleg merki
þess í heimferðinni til ættlands-
ins, að orð Sigurðar Breiðfjörð
um ísienzka gestrisni, er ég
vitnaði til í málsbyrjun, standa
enn í fullu gildi, og að hún er
eitt af djúpstæðustu og fegurstu
einkennum þjóðarinnar, rótfest
í mannást hennar og höfðings-
lund. Samruni þeirra tilfinninga
er aðalsmark manndóms hjá
hvaða þjóð, sem um er að ræða.
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. TheoL
Heimili 686 Banning Street.
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 2. jan.:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
Siífurtungl og
Salka-Valka
Ákveðið hefir verið, að „Silf-
urtunglið“ eftir Halldór Kiljan
aLxness verði sýnt í Helsingfors
í febrúar n.k.
Hefir Gunnlaugi Rósinkranz
Þjóðleikhússtjóra borizt bréf
um þetta frá Juuranto, ræðis-
manni Islands í Helsingfors.
Guðlaugur Rósinkranz lét svo
um mælt við Vísi í morgun, að
kvikmyndin „Salka-Valka“ veki
geysi-athygli 1 Stokkhólmi, en
þar var hún frumsýnd s.l. mánu-
dag. Sagði Þjóðleikhússtjóri, að
blöðin minntust á sterkar per-
sónulýsingar leikenda, drama-
tísk átök í myndinni og fallega
ljósmyndun. Kvað Þjóðleikhús-
stjóri blaðadóma yfirleitt hafa
verið jákvæða, en eftirspurn
eftir myndinni væri mikil utan
Svíþjóðar.
í sambandi við þetta má
minna á skeyti það, sem Vísir
fékk frá Sven-Ehic Brunnsjö,
fréttaritara sínum í Stokkhólmi
í fyrradag, en þar var sagt, að
blaðadómar hefðu verið mis-
jafnir, áherzla lögð á ljósmynd-
un og landslagslýsingar, en sjálf
hefði myndin þótt „trakig“
(tyrfin).
—VÍSIR, 18. nóv.
Creators of
Distinctive Printing
Columbia Press Ltd.
695 Sargenl Ave. Winnipeg
PHONE 74-3411
Innilegar hátíðakveðjur
«!<*'«!«!« te!«!«!«!«!C !*•«««««!«(«!« («!«(«-«>« («l«!eií;!«(«!«(«!«!«(«>*!«!«*!«!«!«!«!«!« !*!«!«!«!«!«««
1
X
I
I
1
X
5
Not-ið
HAPPY GIRL
HVEITI
í alia yðar bökun
SOO LINE MILLS LIMITED
Higgins og Sulherland, Winnpeg
I
3
»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»%»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»