Lögberg - 06.01.1955, Síða 1
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
68. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 6. JANÚAR 1955 NÚMER 1
Merkur verkalýðsleiðtogi látinn
Friörik H. Fljozdal
Ráðist á tollmúra milli Norðurlanda
Þegar Lögberg var
hálfprentað í fyrri viku,
barst blaðinu sú frétt,
að látíst hefði að heimili
sínu í Detroit, Mich.,
hinn mikilsmetni og víð-
kunni verkalýðsleiðtogi
Friðrik H. Fljozdal 86
ára að aldri; hann flutt-
ist ungur vestur um haf
með fósturforeldrum sín-
um, þeim Eiríki og Vil-
borgu Johnson, er settust
fyrst að í Minnesotaríki,
en lögðu leið sína þaðan
til Árborgar í Manitoba-
fylki; voru þau valin-
kunn sæmdarhjón; þrjú
börn þeirra eru búsett í
Árborg og grend, Eddie,
Begga og frú Margrét
Lifman.
Á unga aldri tók Friðrik að
gefa sig við járnbrautarvinnu og
á þeim vettvangi lá hans megin
ævistarf og það átti fyrir honum
að liggja, að verða einn áhrifa-
mesti leiðtogi járnbrautarþjóna
í Bandaríkjunum og Canada, og
var hann forseti slíkra samtaka
um fjölda mörg ár.
Ættir okkar Friðriks komu
nokkuð saman og frændrækni
hans mat ég mikils; ég held að
hann hafi naumast komið svo til
Winnipeg, að hann eigi liti inn
á skrifstofu mína og rabbaði við
mig um hugðarmál sín, sem voru
mörg og fjölþætt; nokkrum
sinnum kom hann á heimili okk-
ar til þess að fá sér íslenzkan
kaffisopa, er hann jafnan kvað
hina beztu hressingu.
I forsetaembætti sínu hafði
Friðrik meiri mannaforráð en
nokkur annar íslendingur hefir
nokkru sinni haft.
Friðrik Fljozdal var heillynd-
ur drengskaparmaður, sem gróði
var í að kynnast; ég kyntist
einnig nokkuð bræðrum Frið-
riks þeim Jóni og Brynjólfi, sem
báðir voru greindarmenn þó
misháttað væri um lífshamingju
þeirra.
Friðrik var einn þeirra manna,
Samsæti á Lundar
Þann 2. janúar héldu börn
Sigurðar og Sigríðar Hólm, á
Lundar, Man., hátíðlegt gull-
brúðkaup foreldra sinna í sam-
komuhúsinu á Lundar.
Samsætinu stýrði sóknarprest-
urinn á Lundar, séra Bragi Frið-
riksson. Fyrir minni brúðarinn-
ar mælti frú Hólmfríður Daniel-
son. Vigfús Guttornísson talaði
fyrir skál brúðgumans, en Rev.
Father Rarent mælti mjög hlýj-
um orðum til brúðhjónanna.
Frumort kvæði flutti þeim Gísli
Magnússon. — Sömuleiðis var
skemt með söng, en undirspil
annaðist Miss Dorothy Daniel-
son. Lukkuóska símskeyti var
lesið frá Dr. Arnold Holm, syni
brúðhjónanna, sem heima á í
Vancouver. — Gullbrúðhjónin
lýstu þakklæti sínu með nokkr-
um vel völdum orðum.
Á meðal verðmætra gjafa,
sem færðar voru gullbrúðhjón-
unum, var sjónvarpstæki frá
börnum þeirra og silfurskál með
áletran og peningaupphæð frá
vinum og vandamönnum þeirra.
Að síðustu voru bornar fram
rausnarlegar veitingar fyrir
veizlugestina, sem voru um 160
manns. Um 30 þeirra sóttu sam-
sætið frá Winnipeg.
er Bandaríkjastjórn valdi sem
fulltrúa á Alþingishátíðina 1930,
og var hann þá af stjórn íslands
sæmdur riddarakrossi hinnar ís-
lenzku Fálkaorðu; hann lætur
eftir sig konu sína, fjórar dætur
og einn son og búa þau öll í
Detroit.
Minningargrein um þenna
merka mann eftir Dr. Richard
Beck, verður birt í Lögbergi við
fyrstu hentugleika. E. P. J.
Hörmulegur
atburður
Um nýársleytið vildi það
hörmulega slys til á Lake of the
Woods, að tveir farþegabílar
sukku niður um veikan ís og
drukknuðu þar sex af átta
manns; ung hjón björguðust af
með undursamlegum hætti; alt
átti fólk þetta heima í bænum
Kenora í Ontariofylki; lík hinna'
druknuðu hafa þegar verið
slædd upp.
27. desember 1954
Kæri ritstjóri Lögbergs,
Vestur-lslendingar hafa feng-
ist talsvert við að þýða íslenzka
söngtexta á enska tungu og gefa
út, svo sem kunnugt er. — En
nú ber nýrra við, hugsaði ég,
þegar fyrsta jólabókin að heim-
an kom í póstinum: Kórlög,
sungin og gefin út af Kirkjukór
Húsavíkur og Karlakórnum
„Þrymur“. Lögin eru tíu að
tölu — þrjú fyrir samkóra, hin
fyrir karlakóra. Sex þeirra eru
amerísk, eitt norskt, eitt rúss-
neskt og tvö íslenzk. Textarnir
við íslenzku lögin eru eftir séra
Friðrik prófast á Húsavík í S.-
Þingeyjarsýslu, hina hefur hann
þýtt og „fært til íslenzks við-
horfs.“ Annað ísl. lagið er eftir
Sigurð Sigurjónsson, núverandi
söngstjóra Þryms, en hitt eftir
séra Friðrik. Efnisröðin er sem
fylgir:
Ó, ættarland. Ljóð og radd-
setning Gene Brauscombe.
Menuet. Beethoven.
Ómhljóð. A Brown Bird Sing-
ing. Royden Barrie. Haydn
Wood.
Á heimleið. Gathering Home.
Royden Barrie. Loskwood.
Vákna, Dísa! Marjorie, wake
up, wake up! Royden Barrie.
Emile Foss Christiani.
Blunda, barn, í ró. Kentucky
Babe. Richard Henry Buck.
Adam Geibel.
í frónskri jirða sveit. — Ljóð
og lag,— Séra Fr. A. Friðriksson.
Öræjaseiður. Séra Fr. A. Frið-
riksson. Sigurður Sigurjónsson.
Lýðveldisforseti
myrtur
Sá atburður gerðist síðastliðið
sunnudagskvöld, að forseti Mið-
Ameríku-lýðveldisins Panama,
Jose Antonio Remon, var skot-
inn til dauðs þar sem hann var í
viðræðum við vini sína á Juan
Franco íþróttavellinum; hinn
látni forseti, sem þótti hinn
mikilhæfasti maður, var 45 ára
að aldri og hafði gegnt forseta-
embætti í 10 ár.
Á mánudaginn kom aukaþing
saman og valdi að forseta til
bráðabirgða Jose Ramon Gui-
zado utanríkisráðherra.
Nokkrir hafa"þegar verið tekn-
ir fastir, sem grunaðir eru um
að hafa hafa verið viðriðnir
morðsamsærið og þeirra á meðal
er fyrirrennari Remons í forseta-
embætti.
Formaður leyniþjónustunnar,
sem var með Remon á íþrótta-
vellinum, var einnig skotinn til
bana.
Samningar
afgreiddir
Eftir langar og harðar umræð-
ur afgreiddi franska þingið
Parísar-London samningana um
endurhervæðingu Vestur-Þýzka
lands þar sem fallist var á að
Þjóðverjar kæmu á fót 500,000
manna her og gerðust með því
aðiljar í varnarbandalagi Vest-
ur-Evrópu.
Forsætisráðherra Frakka,
Mendes-France, krafðist trausts-
yfirlýsingar og kvaðst tafarlaur^
biðjast lausnar fyrir sig og
ráðuneyti sitt ef atkvæðagreiðsl-
an yrði sér óhagstæð; en er til
úrslitaatkvæðagreiðslu kom, var
samningurinn samþyktur með
tuttugu og sjö atkvæða meiri-
hluta og mátti því í rauninni
ekki tæpara standa, að þetta
mikilvæga mál næði fram að
ganga.
íslands jjöll. Norges Fjelde. H.
Vergeland. H. Kerulf.
Heiðló. Return of the Nightin-
gale. Velma Hitchcock. Rúss-
neskt þjóðlag.
Hanna. Jeanie with the Light
Brown Hair. Stephen C. Foster.
Kápa og nótur eru hand-
tiknaðar, af séra Friðrik.
Hann var söngstjóri Þryms í
mörg ár, og mun eiga efni í
fleiri hefti. Lithoprent í Reykja-
vík hefur ljósmyndað útgáfuna,
og hún kemur skemmtilega fyrir
sjónir. — Séra Friðrik er fæddur
listaskrifari. En tæknin, sem hér
kemur fram hjá ófaglærðum
manni, hlýtur að vekja eftirtekt
og aðdáun. 1 þýðingum hans eða
stælingum öðlast söngvarnir
fagran, lipran og ljúfan blæ.
Það veldur hlýju í hug og hjarta
að fara með þá. Þar er bæði
auðlegð í orðavali, og innileiki
og nákvæmni í túlkun. — Jeanie
with the light brown hair syng-
ur svo yndislega norður á Is-
landi, „að fuglar taka undir og
standbergin há“. — Og Ken-
tucky Babe „leggur hrokkna
höfuðið hægt í mömmu fang.“ —
Þegar sungið er um frónska firði,
fjöll og öræfi, er málið að sama
skapi örvandi og hressandi.
Þó bókin sé sérstaklega ætluð
til notkunar á Islandi finnst mér
ánægjulegt að geta um hana. —
Bæði er það að séra Friðrik á
marga vini vestan hafs, og svo
er hér á ferð listræn og lífræn
kynning hugnæmra amerískra
söngva.
Jakobína Johnson
Á leið til íslands
Valdimar Bjornson
I yfirstandandi viku lagði af
stað áleiðis til Islands ásamt frú
sinni, Valdimar Bjornson fyrr-
um fjármálaráðherra Minnesota-
ríkis og munu þau dvelja á
Fróni í rúman hálfan mánuð.
Tekst Valdimar á hendur för
þessa að tilhlutan Bandaríkja-
stjórnar.
Dánarfregn
Guðmundur Jóhannesson, St.
5, Agnes Apts., lézt að heimili
sínu á nýársdag; hann var 88
ára gamall, fæddur 26. nóv 1866
að Keldunesi í Þingeyjarsýslu.
Foreldrar hans voru Jóhannes
Árnason og Ingiríður Ásmunds-
dóttir, sem lengi bjuggu að Ytra
Álandi í Þistilfirði, en þangað
íluttist Guðmundur með for-
eldrum sínum, er hann var
fjögurra ára gamall, og þar ólst
hann upp. Tæplega tvítugur
missti hann föður sinn, en dvaldi
þó hjá móður sinni enn um
nokkur ár. Þá fluttist hann til
bróður síns, séra Árna í Greni-
vík og var hjá honum um skeið.
Árið 1901 giftist hann Krist-
veigu Grímsdóttur frá Laxárdal
í Þistilfirði, og tveim árum síðar
fluttu þau til Canada. Árið 1904
tóku þau sér land í nánd við
Árborg, og dvöldu þar í sveit
allt til þess að þau fluttust til
Winnipeg árið 1929.
Guðmundur lætur eftir sig,
auk ekkjunnar, eina systur, Mrs.
Kristínu Sveinsson; eina dóttur,
Ásu Munroe í Spokana, Wash.,
og sex sonu: Grím í Ashern,
Ingólf í Portage la Prarie,
Adolph í Dauphin, Robert í
Winnipeg, Alfred í Kenora, og
John í Ft. Frances, Ont. Tvo
sonu höfðu þau misst, Matthías,
1941, og Arthur, sem féll í síð-
ara heimsstríðinu í Evrópu, árið
1942.
Útför Guðmundar heitins var
gerð frá útfararstofu Bardals á
þriðjudaginn, 4. jan., og var
mjög fjölmenn. Stýrði dr. Valdi-
mar J. Eylands athöfninni. Að
greftrun afstaðinni voru veit-
ingar framreiddar af mikilli
rausn á heimili þeirra Mr. og
Mrs. H. Daníelsson á Garfield St.
Ráðstejna 15 ráðherra jrá Dan-
mörku, Svípjóð og Noregi hejir
þokað málinu áleiðis
Nýlokið er fundi 15 ráðherra
frá Svíþjóð, Danmörku og
Noregi og var hann haldinn í
Harpsundi í Svíþjóð. Viðfangs-
efni fundarins var að leggja
drög að sameiginlegum markaði
þessara þriggja ríkja, þannig að
engir tollar eða aðrar hindranir
verði á flutningi milli þessara
landa á þeim vörum, sem vænt-
anlegt samkomulag næði til. Um
þetta mál var sem kunnugt er
nokkuð rætt á fundi Norður-
landaráðsins í sumar og á það
bent, að nauðsyn bæri til að sér-
stakur ráðherra í stjórn hvers
lands færi með þessi samstarfs-
málefni landanna og jafnvel
fleiri málefni norrænnar sam-
vinnu. Ráðherrarnir segja, að ár-
angur fundarins hafi verið góður
og betri en vonir stóðu til. Á
sömu skoðun eru Norðurlanda-
blöðin, sem segja, að fundar-
menn notfærðu sér þá mögu-
leika, sem fyrir hendi voru, og
byggðu tillögur sínar á þeim
grundvelli. Samkomulag náðist
á fundinum um yfirstjórn sam-
starfsins, sem þannig skal háttað,
að sérstakur ráðherra verður út-
nefndur hjá hverju aðildarríkj-
anna, Noregi, Svíþjóð og Dan-
mörku til að fara með þessi mál,
cg munu þeir síðan í samráði við
þrjá sérfræðinga frá hverju
landi, vinna úr tillögum ráð-
herrafundarins. Að svo komnu
máli töldu ráðherrarnir sig ekki
geta komizt nær lausn málsins,
enda þótt bæði Svíar, og þó sér-
staklega Danir, hefðu kosið að
framkvæmdir gætu hafizt nú
þegar.
Samningur gerður
Sem stendur er mun auðveld-
ara að koma þessu í framkvæmd
með því að-einskorða samning-
inn við vissar vörutegundir, og
því er það skoðun Harpsund-
fundarins að ráðast skuli á garð-
inn þar sem hann er lægstur, og
setja einhverjar takmarkanir,
a. m. k. til að byrja með. Þetta
kom fram í skýrslu fundarins, og
þar sagði einnig að athuga bær'i
möguleika á fjölgun vörutegund-
anna, og voru þar m. a. tilnefnd-
ar efna-, rafmagns- og málm-
iðnaðarvörur. Norski iðnaðar-
ráðherrann, Handal, undirstrik-
aði, að allar þessar vörur væru
sérlega mikilsverðar fyrir þessi
viðskipti, minnsta kosti frá
norskum sjónarhóli séð. Einnig
var rætt í skýrslunni um mögu-
leika á samvinnu í framleiðslu-
útvíkkun, þannig að ríkin hjálp-
uðust að því, að koma á fót fram-
leiðslu í nýjum greinum, eða efla
framleiðslu þá, er þegar væri
hafin í öðrum.
Samstarj um aðra markaði
Ennfremur voru fundarmenn
sammála um, að samstarf bæri
að hafa um öflun nýrra markaða
í öðrum löndum, svo og um
skuldbindingar þær, er ríkin
hafa gengizt undir í sambandi
við alþjóðasamvinnu á þessum
vettvangi. Einnig var rætt um
nauðsyn þess, að nánari rann-
sókn færi fram á orsökum þeim,
er lægju til grundvallar sam-
keppni í framleiðslu ríkjanna
innbyrðis, og í því tilliti m. a.
nefndir styrkir, launagreiðslur
og skattar. Að lokum er þess
getið í skýrslu fundarins, að
rannsóknum um orkugjafa muni
haldið áfram. Það gefur m. a.
til kynna að sama stefna og ríkt
hefir í vatnsafls- og raforkumál-
um undanfarið, muni ríkja
áfram.
Nýjar brautir
Oscar Torp, forsætisráðherra
Noregs, lýsti ánægju sinni með
árangur fundarins, er hann kom
að honum loknum til Stokk-
hólms. Hann sagðist vera viss
um að tillögur fundarins yrðu
samþykktar í norska þinginu,
jafnvel einnig af stjórnarand-
stöðunni. Torp sagði, að nú væri
norrænni fjármálasamvinnu
beint inn á þær brautir, að öll-
um aðildarríkjum yrði fram-
vegis mikill stuðningur að, jafnt
stjórnmálalega sem fjárhags-
lega.
Erlander, forsætisráðherra
Svía, var einnig ánægður með
fundinn, vegna þess, eins og
hann sagði, að árangurinn gefur
bjartar vonir um að tillögurnar
verði að veruleika, ef til vill
ekki alveg á sama hátt og Danir
og Svíar hefðu helzt kosið sér,
en í öllu falli munum við berjast
hlið við hlið að hinu sameigin-
lega markmiði. Aðspurður um
það, hvort orðrómurinn um að
fundurinn myndi leiða af sér
sænsk-danska samvinnu, vegna
þeirrar sérstöðu, er Norðmenn
höfðu í sumu tilliti á fundinum,
svaraði forsætisráðherrann því
til, að ekkert benti til þess, þar
eð það myndi áreiðanlega hafa
slæmar afleiðingar í för með sér
fyrir öll löndin. „Norræn sam-
vinna í varnarmálum fót út um
þúfur“, sagði ráðherrann, „en nú
höfum við lagt drög að annarri
samvinnu, sem ef til vill á eftir
að hafa ennþá meiri þýðingu
fyrir einingu landanna. Það er
ekki langt síðan við afnámum
vegabréfin, og nú höfum við ráð-
ist á tollana. Það er ekkert und-
arlegt þótt slíkar aðgerðir valdi
erfiðleikum. En umfram allt
megum við ekki skella skuld-
inni á Norðmenn, því að vitan-
lega eru aðstæður allar misjafn-
ar í löndunum og eftir því verð-
um við vissulega að sníða okkur
stakk“.
Forsætisráðherra Dana, Hans
Hedtoft, átti fund með leiðtog-
um stjórnmálaflokkanna áður
en hann fór á ráðherrafundinn í
Harpsund, þar sem afstaða Dan-
merkur var ákveðin. M. a. var
þar samið um að Danir væru
fúsir til að afnema þegar allar
hömlur og tolla af 40% varnings
þess, er milli aðildarríkjanna er
fluttur, og á Harpsundfundinum
gaf Hedtoft það í skyn, að sú
tala gæti hækkað upp í 70%
áður en langt um liði.
—TÍMINN, 4. nóv.
Vetrarsólhvörf að baki
Klifið er húmsins háa, bratta fjall,
hlær mér af tindi þess við augum fagur,
sveipandi roða svartra kletta stáll,
svíjandi vængjum björtum lengri dagur.
Vefur hann bjarma vetrarkálda fold,
vekur að nýju sumardraum í hjarta
mannanna barna; jræ, er jelur mold,
finnur sinn þrótt við geislann himinbjarta.
Speglast í skærri frostsins jögru rós
fagnandi vorsins blóm í sólarljóma;
leystir úr vetrarfjötrum, jram að ós
lANUSöOh ' Sá ( fossandi lœkir glaðir eyrum hljóma.
2021<SÖ RICHARD BECK
i .ÍSLANOS V
Fró Seatfle, Washington