Lögberg - 06.01.1955, Page 7

Lögberg - 06.01.1955, Page 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 6. JANÚAR 1955 7 Fréttabréf úr Borgarfirði hinum meiri Góðir Vestur-lslendingar! Enn einu sinni vildi ég gera tilraun með að tína saman eitt- hvert fréttahrafl og biðja Lög- berg fyrir. Verður það þó sem fyrr meira af vilja en getu, og því með hálfum hug, að ég byrja á þessu nú. Línur þessar vildi ég byrja með því að leiðrétta villur, sem slæðzt höfðu inn í síðasta bréf mitt í Lögbergi: 1. Þar voru t. d. tvær dagsetn- ingar í stað einnar, og bréfið byrjar daginn eftir að það endar. 2. Gísli Jónsson á Innri- Brekku var sagður Magnússon, og 3. Árni Pétursson læknir var nefndur Karl Pétursson. Annað man ég ekki, sem máli skiptir af villum. Tíðarfar má telja, að hafi ver- ið fremur hagstætt, hér um Borgarfjörð á þessu ári, þó að víða annars staðar hafi út af því brugðið. Veturinn frá áramótum var þó hvassviðra- og úrkomu , samur sem annars staðar á land- inu, en frostalaus, og var jörð nær klakalaus undan vetrinum og byrjaði snemma að gróa. Vor- ið var mjög veðragott, þó gerði frostakafla í maíbyrjun. Fénað- ur gekk vel fram og gras spratt bæði óvenju snemma og mikið. Túnasláttur byrjaði því fyrr en venja er til; varð heyfengur meiri hér um Borgarfjörð, en verið hefir fyrr í sögunni og nýting allgóð, þrátt fyrir úr- komur allmiklar um sláttinn. En víða á landinu voru rigning- ar skaðlega miklar, og hefir því heyfengur á landinu orðið all- misjafn að gæðum, en víðast mikill að vöxtum. Heldur var sumarið þó hlýindalítið og í lok september gerði hart frost um landið t. d. 20 stiga frost á Möðrudal og 11' í Síðumúla í Hvítársíðu. Kartöflur frusu þá víða í görðum, en sumir. höfðu þá lokið við upptöku. Haustið varð mjög kalt, og vetrarfar byrjaði í fyrsta lagi, einkum á norðurhluta landsins. Varð því að taka fénað í hús fyrr en venja er til. Það sem af er vetri, hefir veðrátta verið fremur ó- stöðug, oft hvassviðra- og úr- komusöm, en frost þess á milli. Þó gerði góðan kafla síðari hluta nóvember og fyrstu vikuna af desember, en þá kólnaði mjög í veðri og hefir sótt aftur í fyrra horf. Þann 8. /íóv. gerði suð- vestan byl, er olli nokkrum fjársköðum. Um aflabrögð er svipað að segja og verið hefir undanfarin ár. Síldin brást við Norðurlandið sem fyrr, en aðrar fiskiveiðar hafa gengið sæmilega, og sömu- leiðis hvalveiðar, sem stundaðar hafa verið frá Hvalveiðistöð í Hvalfirði. Rjúpnaveiði hefir verið allmikil sums staðar á landinu, og hreindýraveiðar voru nú nokkuð stundaðar í haust á Austurlandi. Var fjöldi hreindýra orðinn allmikill, svo að leyfð var veiði á sex hundruð dýrum. Framkvæmdir hafa verið all- miklar á landinu, bæði hjá rík- inu og einstaklingum, auk ým- issa framkvæmda, sem ríkið styrkir hjá sýslum, sveitum og félagssamtökum. Verður hér fátt af því nefnt, því að það yrði of langt mál og ég ekki nógu fróð- ur um slíkt. Áburðarverksmiðj- an í Gufunesi við Reykjavík tók til starfa á árinu. Fá bændur nú innlendan áburð á tún og garða. Enn er þó aðeins um köfnunar- efni að ræða. Til Sementsverk- smiðjunnar á Akranesi var varið allmiklu fé, en þar vill sjórinn vera nokkuð óstýrilátur og eyðir þar mikíum verðmætum með hamförum sínum, jafnskjótt og unnið er, og stórtefur fram- kvæmdir. I Borgarnesi var byggð sund- laug, en ofviðri gerði nokkurn skaða á því mannvirki í vetur. Barnaskólinn á Laugalandi í Stafholtstungum var fullgerður í sumar, og er tekinn til starfa. Er hailn allmikið mannvirki, sem allar sveitir Mýrasýslu standa að. Hann er heimavistar- skóli. Heilsuverndunarstöð er verið að setja upp í Reykjavík, sem er mikið mannvirki, og þannig mætti lengi telja. Vegagerðir hafa verið all- miklar, og brúargerðir nokkrar; þó varð nokkur kyrrstaða vegna verkfalls hjá verkfræðingum við brúargerðir. í sumar varð brúin á Barnafoss byggð, þó í öðrum stíl en ákveðið hafði verið og ég nefndi í bréfi mínu í fyrra. Þessi nýja brú er nú ekki ætluð sem bílabrú, eins og ráð var fyrir gert í upphafi. Þrátt fyri rhina miklu dýrtíð, sem nú er hér í landi, er fram- farahugur mikill í mönnum og víða miklar framkvæmdir bæði í byggingum, framræslu og jarð- rækt. Hér um Borgarfjörð hafa ýmsir staðið í stórframkvæmd- um. Á Grund í Skorradal er t. d. verið að byggja mjög stórt og vandað íbúðarhús. Þar býr nú Guðrún Davíðsdóttir frá Arn- bjarnarlæk. Hún er ekkja eftir Pétur Bjarnason á Grund. Pétur varð bráðkvaddur ungur að árum, mikill álits- og myndar- maður. Nú býr Guðrún með frænda Péturs, Þorgeiri Þor- steinssyni frá Miðfossum og börnum sínum. Víða hafa verið byggð ný fjárhús, því að sauð- fénu fjölgar nú óðum, og hefir gengið ágætlega með það yfir- leitt, síðan hinn nýi fjárstofn kom. Hvítárbakkabændurnir, þeir feðgarnir, Guðmundur Jónsson og Jón sonur hans, byggðu mjög vönduð fjárhús og hlöðu við. Eru þeir báðir hinir mestu framfara- og atorkumenn í öllum búnaði. Jón fór til Bandaríkjanna og var þar nokk- urn tíma að kynna sér nýjungar í búnaði. Á Hvítárbakka er túnið nú orðið um 150 dagsláttur, og skurðir hafa nú verið grafnir að mestu umhverfis landareignina. Fleiri Bæsveitinga mætti nefna, er hafa stórframkvæmdir með höndum. Á Varmalæk býr nú Jakob Jónsson, sonur Jóns Jakobssonar og Kristínar Jónat- ansdóttur, skálds frá Hæli í Flókadal. Kona hans er Jarþrúð- ur Jónsdóttir frá Eyvík í Reykja- vík. Eru þau bæði listfeng og samhent í búskapnum, svo að heimili þeirra er mjög framar- lega hvað allan myndar- og glæsibrag snertir. Jakob er smiður góður og afreksmaður til allra verka. Hann er nýlega bú- inn að byggja sér mikið og vandað íbúðarhús og er nú að ljúka við að byggja vönduðustu og mestu fjósbyggingu, sem er hér nærlendis á bóndabæ. Skrúð garði er hann einnig búinn að koma af stað við hið nýja íbúð- arhús sitt. Jakob Jónsson á Varmalæk, afi þessa Jakobs, er nú býr þar, var einhver mesti framkvæmda- bóndi á sinni tíð, og einn af frumherjum umhótamanna þessa lands. Synir hans, Jón og Sigurður, er eftir hann bjuggu á jörðinni, voru sömuleiðis miklir dugnaðarmenn, en eru nú hættir búskap. Nú eru verk allra þe'Ssara manna að falla í skugga hjá störfum hins nýja afreksmanns. Ég nefni þetta að- eins sem nærtækt dæmi um þær breytingar, sem orðið hafa og eru að gerast hér á landi. Pétur Jónsson, bróðir Jakobs á Varma- læk, reisti sér nýbýli við heita laug í Varmalækjarlandi fyrir nokkrum árum. Kona hans er Erna Sigfúsdóttir frá Vogum í Mývatnssveit, myndar- og dugn- aðarkona. Þau bjuggu fyrst með gróðurhús eingöngu, en nú í sumar byggði Pétur sér stóra hlöðu og fjárhús og setur sér upp sauðfjárbú. Hjá þeim Pétri og Ernu er prýðilegt heimili risið af grunni. Svona mætti lengi telja, því að margt og mik- ið er verið að gera, og yfirleitt ríkir bjartsýni og stórhugur í framkvæmdum hjá almenningi, og margir sýna dug og djörfung í framkvæmdum sínum. Til þess að koma hugsjónum fólksins í framkvæmd og skapa hér feg- urri og betri heim, er -treyst á tækni nútímans. Skurðgröfur eru látnar þurrka landið, ýtur og dráttarvélar eru látnar gera vegi og breyta þýfinu og órækt- inni í slétt tún, létta heyvinnuna og auka afköstin. Þekkingin, sem fengin er í grasrækt og trjárækt, á að notast við að klæða landið töðugrasi og grænum skógum. Fossana á að nota til að gefa birtu og yl og knýja margs kon- ar vélar, sem svo gera atvinnu- vegina fjölbreyttari og skapa fleira fólki lífsskilyrði í landinu, enda fjölgar nú óðum þeim heimilum í landinu, sem hafa fengið rafmagn til afnota. Lífskjör fólks hafa farið stór- um batnandi á síðustu áratug- um. Húsakynni, fæði, klæði og allur aðbúnaður hefir stófum batnað, fólkið hefir orðið til muna hávaxnara, menntun hefir aukizt og fólkið er miklu jafn- ara upplýst en fyrr. Allur undir- lægjuháttur hefir minnkað og allur oflátungsháttur og em- bættisrembingur um leið, því að peningum og allri yfirborðs- mennsku er almennt mætt með háði og fyrirlitningu. Að þess- um straumhvörfum hafa unnið mörg félög, flokkar og einstakl- ingar. Ungmennafélögin höfðu þetta á sinni stefnuskrá, Fram- sóknarfl. sömuleiðis með ráð- herra sína í fararbroddi og marga ágæta menn. Hafa ýmsir hinir bezt menntuðu embættis- menn á seinni árum gengið á undan með lítillæti og ljúf- mannlegri framkomu og talað sama mál við ríka sem snauða, lærða og fáfróða. Þannig hefir það á síðari árum verið með embættismenn hér í héraðinu, skólastjóra og kennara, og allir hafa þeir vaxið að vinsældum og virðing, sem hafa náð því þroskastigi. Á þessu ári var háð sam- norræn sundkeppni milli allra Norðurlandanna og urðu íslend- ingar í öðru sæti nú, en í fyrsta sæti, er áður var keppt. Nú var aðeins keppnin uih það, hverjir höfðu aukið mest þátttökuna frá fyrri keppni, og höfðu Svíar bætt mest við sig. Nokkuð mun það hafa dregið úr þátttöku hér, að menn töldu þessar keppnis- reglur svo óhagstæðar íslend- ingum vegna þess hve þátttaka var mikil hér áður. Margir gerðu þó sitt ýtrasta til þess að sigur ynnist, og það svo, að þeir létu heldur lífið á sundinu en gefast upp að óreyndu. Farsóttir hafa verið nokkrar hér á landi á árinu, svo sem kíg- hósti, mislingar og rauðir hund- ar, en ekki veit ég til, að mikill manndauði hafi af þeim hlotizt. Heilsufar hér um Borgarfjörð held ég að hafi verið allgott, þrátt fyrir áðurnefnda kvilla. Að sjálfsögðu hefir manndauði verið nokkur hér í héraðinu sem að undanförnu. Get ég þar að- eins nefnt fá nöfn: Guðrún Sigurðardóttir á Laxfossi í Staf- holtstungum, dó 17. marz. Hún var búin að búa þar langa hríð; var ekkja Snorra Þorsteinssonar, mikil dugnaðar- og myndar- kona, varð 96 ára. Þorsteinn Sigmundsson, bóndi í Gróf í Reykholtsdal, drukknaði 29. ág. Hann var tæplega sextugur. Hann bjó allan sinn búskap ókvæntur og barnlaus, tók við jörð og búi af föður sínum. Petrea Sveinsdóttir á Akranesi varð bráðkvödd 28. sept., var f. 1885. Hún var dóttir Sveins Guðmundssonar, er lengi var kaupmaður og hreppstjóri á Akranesi. Petrea var greind, áhugasöm og dugmikil. Hún bjó ein síns liðs hin síðari ár, var ógift og barnlaus, en vann að ýmsum velferðar- og áhuga- málum sínum. Jón Sigurðsson, smiður á Vindhæli á Akranesi, dó um síðustu áramót. Hann var hinn mesti hagleiksmaður og greindur vel. Voru þau Guðrún á Laxfossi og Jón alsystkini, frá Efstabæ í Skorradal. Guð- brandur Sigurðsson bóndi á Hrafnkelsstöðum dó í Borgar- nesi á gamlárskvöld 1953. Var þar gestkomandi hjá dóttur sinni, er hann leið út af. Hann var fremdarbóndi og einn af forustumönnum sinnar sýslu, þótt fatlaður væri. Ragnhildur Erlendsdóttir, fyrrum húsfreyja á ölvaldsstöðum, dó 25. febr. á Stóra-Fjalli hjá dóttur sinni og tengdasyni, Einari Sigurðssyni. Þuríður ólafsdóttir á Þorgauts- stöðum í Hvítársíðu, dó á sjúkra- húsi í Reykjavík. Hún var kona Guðmundar Jónssonar, bónda á Þorgautsstöðum. Þau bjuggu lengi á Þorgautsstöðum með myndarbrag, en áttu ekki börn og voru nýlega hætt búskap, en áttu þó heima á Þorgautsstöð- um ,og er nú Guðmundur þar áfram. Tómas Jónasson, stór- bóndi í Sólheimatungu, dó í Reykjavík 5. nóv., 72 ára að aldri. Hann var mikill álitsmað- ur, greindur, og stoð sinnar miklu sveitar. Kona hans var Sigríður Sigurðardóttir frá Stóra-Fjalli, og lifir hún mann sinn ásamt fjórum uppkomnum börnum þeirra hjóna. Friðrik Hjartar skólastjóri á Akranesi dó 6. nóv. Hann var þjóðkunnur maður fyrir kennslustörf sín, óvenju mikla sönglagakunnáttu og afskipti af bindindismálum. Guðmundur Ögmundsson, fyrrum bóndi á Fjarðarhorni í Hrútafirði, flutti að Reykholti í haust til séra Einars Guðnason- ar, fóstursonar síns. Var hann þá farinn að kröftum og heilsu, lifði þar skamma hríð. Var hann jarðsettur í Reykholti að hans eigin ósk. Ég má varla hafa þessa upp- talningu lengri, þótt hér sé að- eins fátt eitt talið. Ég þori varla að fara út fyrir héraðið, því að ég kaus helzt að nefna þá, sem líklegast er að allir Vestur-ls- lendingar viti að farnir eru. En Lögberg eða Heimskringlu sé- ég ekki, svo að ég veit ekki, hvað segja skal. En margt vel þekktra manna hefir kvatt þennan heim á árinu. Set ég hér örfá nöfn: Ragnheiður Torfadóttir, ekkja Hjartar Snorrasonar, er var skólastjóri við bændaskólann á Hvanneyri og síðar bóndi í Arnarholti í Stafholtstungum. Ragnheiður var dóttir Torfa í Ólafsdal hins þjóðkunna búnað- arfrömuðar. Hún var orðlögð myndar- og gæðakona, dó 5. jan. Runólfur Sveinsson, sand- græðslustjóri í Gunnarsholti á Rangárvöllum, dó af slysi 4. febr. Hann var áður skólastjóri á Hvanneyri. Séra Hálfdán Helga- son að Mosfelli varð bráðkvadd- ur 9. apríl. Hallgrímur Bene- diktsson stórkaupmaður í Reykjavík dó af hjartabilun 26. febr. Hann var áður glímukóng- ur íslands, síðar alþingismaður Reykjavíkur. Teódóra Thorodd- sen dó 23. febr. Hún var svo þjóðkunn, að ekki mun þar þurfa skýringar við. Þann 18. október lézt þjóðar- sóminn, Einar Jónsson mynd- höggvari, 80 ára að aldri. Þann 17. des. dóu þeir Jón Bergsveinsson, erindreki Slysa- varnarfélagsins, org Páll Einars- son, fyrrum hæstaréttardómari og fyrsti borgarstjóri Reykja- víkur. Þannig mætti lengi telja, en ég læt þetta nægja. Kaupfélag Borgfirðinga í Borgarnesi átti 50 ára afmæli á síðastliðnu ári. 1 tilefni af afmælinu var ákveðið á aðal- fundi félagsins að koma af stað trjárækt í Norðtunguskógi og byrja með að gróðursetja þar 50 þúsund plöntur barrtrjáa strax, er búið væri að ganga frá girð- ingu umhverfis það svæði, er planta skyldi í. Frumkvæði að þessu átti kaup félagsstjórinn, Þórður Pálmason. En sem dæmi um það, hve al- menn er orðin bjartsýni manna og trú á möguleika í þessum efn- um, má nefna, að ekki heyrðist nokkur rödd andmæla, og var þetta samþykkt í einu hljóði af öllum fundarmönnum. Ég enda svo þetta losaralega samtíningsbréf og bið afsökunar á hve ábótavant því er í mörgu. Öllum Vestur-lslendingum, sem fyfr eða síðar hafa sent mér línur, heimsótt mig að sent mér hlýjar kveðjur, þakka ég kær- lega. Ég vona, að enn um langan aldur megi haldast ættartryggð og vinátta milli ættingjanna austan hafs og vestan. Þannig hugsunum ættu allar þjóðir að skiptast á, þá yrði heimurinn bjartur og fagur. Svo kveð ég ykkur með ósk um gæfurík ókomin ár. Runnum, 22. des. 1954 Einar Kristletfsson "A Realislic Approach io ihe Hereafier" by Winnipeg auihor Edith Hansson Bjornsson's Book Store 702 Sargeni Ave. Winnipeg m BLOOD BANK . # - 4^ — T H I S SPACt CONTRIBUTED BY DREWRYS M A NITO■A DIVIilON WESTERN CANADA BREWERIES L I M I T E D MD-»2 it’s good ... it’s MADE RIGHT...HERE IN CANADA Ahat’s right! Products of Dominion Textile Company Limited are good . . . they’re rnade right here in Canada! Celebrating its Golden Anniversary this year, this thoroughly Canadian company, through Canadian merchants every- where, is offering Canadian consumers golden savings in textiies . . . anniversary values that will surprise and delight you! Ask at your favorite shop or store for sheets and pillowslips, blankets, fashions by the yard . . . all brought to you in the famous striped packages with the Tex-made label. Look too for the Tex-made iabel on ready-to-wear goods you buy . . . it means quality. CANADA LIVES BETTER WITH DOMINICN TEXTILE COMPANY LIMITED

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.