Lögberg - 31.03.1955, Page 4

Lögberg - 31.03.1955, Page 4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN, 31. MARZ, 1955 EINAR SIGURFINNSSON: ÁVARP flulí á Skálholtshálíð 18. júlí. 1354 Lifi minning liðins tíma, langt um meir þó tímans starf. Lifi og blessist lífsins glíma, leyfi framtíð göfgan arf. Hverfi ofdrambs heimskuvíma, hefjist magn til alls er þarf. Lifi og blessist lífsins glíma, lifi og blessist göfugt starf. H. Hafst. Heiðruðu hátíðargestir! Mér er ljúft að ávarpa ykkur fáum orðum á þessum helga stað. Um upphaf varanlegrar manna vistar á Skálholti er tjáð í forn- um ritum á þessa leið: „Gissur hinn hvíti færði bú sitt í Skálholt frá Höfða. Hann lagði allan hug á að styrkja kristni í landinu. Hann sendi Is- leif son sinn í skóla suður til Sax JUMBO PUMPKIN Risajurt, sem unnið hefir mörg verölaun á sýningum, getur orð- ið um 100 hundrað pund á þyngd. Endingargöð, ágæt til gripafóðurs og eins í skorpu- steik. (Pakkinn 15c) (únza 30c) póstf rítt. Alveg cinstakt fa-ðujurta,safn. Jumbo Pumkin, Jumbo Cab- bage, Ground Cherry, Garden Huckleberry, Ground Almonds, Japanese Giant Radish, China I.ong Cucumber, Yard Long Bean, Guinea Butter Vine, Vine Peach, allar þessar 10 tegundir auðgrónar og nytsamar. Verð- gildi $1.60 fyrir $1.00 póstfrítt. lands. En er hann (þ.e. Isl.) kom til Islands, kvæntist hann JDöllu Þorvaldsdóttur, þeirra son var Gissur, svo og Teitur í Haukadal og Þorvaldur. Landsmenn sáu, að ísleifur var ágætur klerkur, og þeir báðu hann að fara utan og láta vígjast til biskups, og lét hann tilleiðast. ísleifur var bisk- ,up í fjóra vetur og tuttugu. Eftir lát ísleifs biskups báðu lands- menn Gissur son hans að taka blskupsvígslu. Hann fór utan og var vígður tveimur vetrum eftir lát ísleifs biskups. Gissur biskup var svo ástsæll af landsmönnum, að hver maður vildi hans boði og banni hlýða. Gissur biskup lagði þau lög á, að stóll biskups þess, er á Islandi væri, skyldi ávallt vera í Skál- holti, og hann lagði þar til stóls- ins landið heims og mörg önnur auðæfi í löndum og lausum aurum.“ Þannig segir Kristnisaga frá upphafi blskupsdóms á landi hér og staðsetningu biskupsstóls hér í Skálholti, og samhljóða frásögn stendur í Islendingabók. Eins og kunnugt er héldu þess ir feðgar, Isleifur og Gissur, skóla hér á staðnum og kenndu bændasonum þau fræði, sem til prestskapar þurfti, og reis þann- ig upp menntasetur á staðnum, samhliða biskupsstólnum. Ann- an skóla stoínaði Teitur í Hauka dal, bróðir Gissurar biskups. Hann var og einn hinn ágætasti meður og lærður vel. Á þessum tíma voru því tveir menntaskólar hér í Biskupstung um. Við báða þessa skóla gátu menn fengið þá menntun, sem fullnægjandi var til klerkdóms og kennslustarfa. Þannig var það hin kristna kirkja — jafnskjótt og hún komst í nokkurn veginn fastar skorður hér \ landi — sem gerð- ist brautryðjandi í menntamál- um þjóðarinnar. Þessi unga stofnun hlaut af Guðs náð þá SÍÐAN 1910 Canadískir menn bera traust til Tip Top Tailors elztu og stærstu fatagerðarinnar í Canada. Tip Top föt, sniðin eftir máli, njóta mestrar hylli í Can- ' ada vegna sniðs, gæða og == endingar. Spyrjist fyr ir hjá nágranna yðar hann veitir svarið. Beztu f&t f Canada, sem fáanleg eru. Avalt Tip Top búð í grendinni. r 3/ Tip Top tailors gæfu, að ágætir menn urðu þar til forustu, sem mörkuðu leiðina í aðalatriðum, vörðuðu veginn, ef svo mætti segja, og lögðu undirstöðuna trausta og góða, sem síðan hefur verið byggt ofan á í mennta- og menningarmálum þjóðar vorrar. Og hin kristna kirkja hefur um aldirnar, sem síðan eru liðn- ar, átt drýgstan og blessunarrík- astan þátt í menntun og menn- ingu á landi hér. Hún varð fljótt og var lengi ríki í ríkinu, sjálf- Stæð stofnun, sem stjórnað var á hverjum tíma af hinum mestu og beztu sonum þjóðarinnar, og í starfsliði hennar — prestastétt inni — hafa jafnan verið braut- ryðjendur í menningar og at- vinnumálum. Menn, sem hafa haldið uppi sóma lands og þjóð- ar og verið blysberar kynslóð- anna. Þessu verður ekki með rökum í móti mælt, þó að hin óheilla- vænlega efnishyggja nútímans vilji mjög snúa mönnum frá kirkju og kristnihaldi. Um 7 alda skeið var mestum hluta kristindóms og kirkjumála stjórnað héðan frá Skálholti. Þar sátu á biskupsstóli margir ágæt- ir menn. Höfðingjar, sem létu sér mjög annt um stofnun þá, sem þeim var trúað fyrir — kirkju landsins. Hér í Skálholti var höfuðstaður landsins. Þaðan var stjórnað andlegum málum mikils meirihluta íslenzku þjóð- arinnar og að talsverðu leyti e i n n i g veraldlegum málum. Kirkjan — þ. e. húsið, sem upp- haflega var reist á staðnum — hrörnaði, en var jafnan endur- bætt og reist að nýju, ef hún féll eða brann, sem fyrir kom. Skálholtskirkja var dómkirkja, vígð Pétri postula. Hún var höf- uðkirkja landsins, brátt auðug að löndum og lausafé og búin fögrum og dýrum gripum. Um síðaskiptin var hún að vísu rúin og rænd mörgum dýr- gripum og miklum eignum, en hélt samt sem áður nafni sínu og höfuðforustu. Mikilhæfir menn sátu að stóli sem áður. Menn, sem stjórnuðu kirkju og kristindómsmálum með rögg og skörungsskap. En svo fór, að kúgun erlends valds drepur í dróma þrek og framtak landsmanna, svo að þeir verða að taka með þögn hverri lögleysu, sem á þeim er framin. Þá er gjafabréf og lög Gissurar Isleifssonar að engu virt. Biskupsstóllinn er fluttur og Skálholtsdómkirkja afmáð sem slík. Þá verða hús og lendur staðarins einstaklingseign og lítt er hirt um veg og gengi eða útlit staðar og kirkju. 1 því efni sígur lengi á ógæfuhlið, og ekki batn- ar, þótt ríkið eignist Skálholt með gögnum þess og gæðum og væntu þá margir, að gott myndi leiða af þeim eigendaskiptum. Á síðustu árum hefur ýmsum áhugamönnum ofboðið meðferð þessa helga staðar, og nokkrir þeirra hafa bundizt samtökum og stofnað félag, honum til við- reisnar, og hafa stórvirki í huga. Og alþingi og ríkisstjórn hefur nú rumskað og mun væntanlega veita ríflegan stuðning, svo sem skylt er. En „Róm var ekki byggð á einum degi.“ Péturs- kirkja í Skálholti verður ekki uppbyggð að nýju á skammri stundu. En viljinn er máttur, og sameinaðir kraftar, sem beitt er í Guðs trausti og Guðs nafni, geta gert kraftaverk. Og sá er tilgangurinn með samkQmunni í dag, að samstilla hugina, að vekja vilja góðra manna, til að leggja lið því þjóðþarfaverki, sem hér þarf að vinna. Þjóðar- heiður liggur við, að helgidómi, slíkum sem þessi staður er, sé sýndur sá sómi, sem hæfir for- sögu hans. Ég sagði, að Skálholtsfélagið hefði stórvirki í huga. Já, hér duga engar smávegis umbætur. Hér er allt í rústum. Alt verður því að reisa að nýju frá grunni. Fyrst er kirkjan sjálf, Skálholts- dómkirkja, endurbyggð á sínum forna grunni og sem líkust því, sem hún hefur fegurst verið. íbúðarhús handa biskupi, sókn- arpresti og öðrum þeim, er á staðnum búa. Margt fleira þarf að gera hér og verður gert smátt og smátt. En við sem nú lifum, verðum að byrja. Níu alda afmæli bisk- upsstólsins er skammt undan. Þá verður hér mjög gestkvæmt. Þá verður að sjást myndarleg byrjun og glögg merki þess, hvert stefnt er og stefna á. Gestir góðir! Staðurinn, sem vér stöndum á, er heilög jörð. Hér hefur h 1 j ó m a ð vígðra klukkna hljómur oft og lengi, og þeir hljómar hafa laðað og kall- að fólk til helgra tíða. Hér hafa helgir söngvar ómað ótal sinn- um, Guði allsherjar til lofs og dýrðar og ótelj"andi mannahjört- um til huggunar og harmaléttis. Héðan hafa bænarandvörp og blessunaróskir stigið frá ótelj- andi fjölda ungra og aldinna, upp að hástóli herrans Krists. Hér eru hvarvetna dulin spor mikilmenna og kirkjuhöfðingja. Á slíkum stað er hollt og heil- brigt að taka ákvörðun. Að vinna heit, hátt eða í hljóði. Heita því, að leggja lið því máli, sem hér er um rætt, uppbygg- ingu og endurreisn Skálholts- staðar og kirkju. Að leggja þótt ekki sé nema lítið korn í þann mæli, sem fullur þarf að verða til þess að sögulegum heiðri þessa staðar sé borgið á viðhlít- andi hátt. Hafið þökk fyrir hingaðkom- una. Hljótið öll blessun Drottins. — Heimilisblaðið Vaxandi trúaróhugi meðal brezkra hóskólakennara í gær kom hingað til lands góður gestur frá Englandi. Er það Arnold S. Aldís, sem er kennari í skurðlækning- um við háskóla Wales í Car- diff. Kemur hann hingað á vegum kristilegsfélags stúd- enta til að halda hér fyrir- lestar um trúmál og vísindi. Blaðmenn ræddu við Aldis í gær, en hann er einkar viðkunn- anlegur og skemmtilegur maður, sem víða hefir farið. Hann lauk prófi í grasafræði og lífeðlis- fræði, áður en hann háf læknis- fræðinám, en er sonur kristni- boðshjóna, er lengi dvöldu í Kína og er fæddur austur þar. Hann er vinsæll fyrirlesari og hefir mikið látið trúmál til sín taka og farið til fyrirlestrahalds á vegum kristilegra félaga á Norðurlöndum og víðar um Evr- ópu, og einnig til Bandaríkjanna og Kanada, þar sem hann flutti jafnframt fyrirlestra við háskóla í vísindagrein sinni skurðlækn- ingum. Hinn brezki fyrirlesari mun WESTINGHOUSE 21" TV... Gerir skýrustu myndir, sem hægt er að hugsa sér! Þarna eru myndir sem að kveður þegar um kaup á sjónvarpstæki (T. V.) er að ræða. Westinghouse gerir skýrastar, bjartastar og stærstar myndir — jafnvel í umhverfi, sem viðtaka er erfið. Hinn sérstaki nýi stillir í hverju Westinghouse sjón- varpstæki, gefur greinilegri myndir með minni „snjó.“ Kjósið Westinghouse, það er trygging sjón- varpskaupum yðar. AÐ VIÐBÆTTU ÖLLU ÞESSU Fögur gerð prýði hverrar stofu. Temprarar eru á hliðunum til þess að áhaldið haldi sem beztu útliti. Stærstu myndir Canada stærsta, bjartasta, skýrasta sjónvarpstæki . . . aluminerað til meiri fullkomunar. Fullkomnust hljómbrigði Fylstu tónbrigði og öryggi með stóru konsert-horni VOU CAN SE SURE...IF ITÍ Sjáið þetta nýjasta undur Model 2V2K í næstu búð í dag — úr valhnotu, eða ljósum við. Wfestindiouse dvelja hér á landi þar til 5. marz og halda marga fyrirlestra fyrir almenning í húsi K. F. U. M. á Gamla garði, í dómkirkjunni og hátíðasal háskólans. Auk þess í ýmsum framhladsskólum. Séra Jóhann Hannesson verður túlk- ur á fyrirlestrunum. Fyrirlestrar hans munu aðal- lega fjalla um afstöðu vísind- anna gagnvart kristinni trú og mun hann svara þeirri spurn- ingu hvort vísindin hafi rýrt gildi trúarinnar. Arnold Aldis, sagði á blaða- mannafundinum í gær, að trúar- áhugi hefði aukizt mjög á Bret- landi frá lokum styrjaldarinnar og væri víða mikill fjöldi há- skólanemenda í kristilegum fé- lögum. Einnig gætir þess mjög þar í landi að læknar snúa ekki baki við kristinni trú, heldur leita sér og sjúklingum sínum aukins trausts í trúnni. Eru um 1000 læknar í félagsskap, sem að þess um málefnum vinnur, enda er mönnum þar í landi nú að verða það ljósara en áður, að til er traustur lækningamáttur í fleiru en meðölum og aðgerðum, enda útbreidd skoðun að lækaaar þurfi að sinna meira, en gert er þeim þætti starfsins, er snýr að hinu innra lífi hvers manns og geta þannig veitt huggun og hjálp, sem ekki verður veitt með með- alablöndu, eða skurðhníf. — TIMINN 23. febr. Lesið Lögberg Sr. V. J. Eylands, Dr. TheoL Heimili 686 Banning Street. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ • Lúterska kirkjan í Selkirk Pálmasunnudag: Ensk messa kl. 11. árd. Sunnu- dagaskóli kl. 12. íslenzk messa kl. 7. síðd. Föstudaginn langa Föstuguðsþjónusta kl. 3 síðd. Páskadaginn: Ensk messa kl. 11 árd. Altaris- ganga safnaðarins. Islenzk há- tíðamessa kl. 7 síðd. Fólk boðið og velkomið. S. Ólafsson ÍSLENZKAR HLJÓMPLÖTUR sungnar af Karlakór Reykjavíkur, Stefáno íslandi, S m á r a Kvartettinn, Elsa Sigfúss, Guðmundur Jóns- son, María Markan, M. A. Kvart- ettinn, Einar Kristjánsson, Hauk ur Morthens. fást í Björnsson's Book Store 702 Sargent Ave. Winnipeg 3, Man. ☆ Stúkan Hekla, I. O. G. T. held- ur næsta fund sinn þriðjudag- inn 5. apríl, á venjulegum stað og tíma. CrissXCross (Patentod 1945) French Shorts Fara alveg sérstaklega vel, meö teygjubandi um mittiö — einka- leyfÖ — knept meösjalfvirku “Criss x Cross’’ aö framan, er hið bezta lltur út, búið til úr efnisgóðri k e m b d r i bómull. Auðþvegin . . . engin strauing . . . sézt lltið á vjð brúkun . . . Jersey er við á. LÆGSTU fargjöld til ÍSLANDS Douglas Skymasters, er 7 norrænir menn æfðir í Banda- ríkjunum stjórna, tryggja yður þægindi, öryggi og vin- gjarnlega aðbúð. C. A. B. vottfest... reglubundið áætlunarflug frá New York til ÍSLANDS, NOREGS, SVÍÞJÓÐAR, DANMERKUR og •ÞÝZKALANDS. Bein sambönd við öll Evrópulönd. Kaupið far hjá ferðaskrifstofu yðar n /—\ n ICELANDIO AIRLINES U/AlUo 15 West 47th Street, New Yark 36 Pl 7-8585

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.