Lögberg - 14.04.1955, Blaðsíða 1
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILYERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
TRANSIT - SARGENT
SILVERLINE TAXI
5 Telephone Lines
20-4845
68. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 14. APRÍL 1955
NÚMER 15
Gagnkvæm hópferð milli Reykjavíkur
og Winnipeg
Borgarstjórahjónin í Reykjavík boðin velkomin á jlugvellinum í Grand Forks, N. Dakota.
Frá vinstri til hægri: Dr. Richard Beck, ræðismaður Jslands í Norður-Dakota; Mrs. Bertha
Beck; frú Vala Thoroddsen; Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri í Reykjavík; Oscar Lunseth,
borgarstjóri í Grand Forks; og dr. George W. Starcher, forseti ríkisháskólans í N. Dakota
(University of N. Dakota).
Heimsókn borgarstjórahjónanna í Reykjavík til
Grand Forks, N.D., var minnistæður viðburður
Þar sem enn hafa eigi borizt
endanlegar upplýsingar um
fargjaldið, sem þó munu
væntanlegar innan fárra
daga, þykir rétt að endur-
prenta grein þá, er birtist
í Lögbergi 31. marz síðastl.
Þrír áhugamenn í Winnipeg,
flugfélagið Loftleiðir og ferða-
skrifstofan Orlof í Reykjavík,
hafa síðan fyrir jól verið að at-
huga möguleika á gagnkvæmri
hópferð flugleiðis milli Reykja-
víkur og Winnipeg á sumri
komanda. Er nú málið komið á
þann rekspöl, að ákveðið hefur
verið að auglýsa slíka för á
vegum ferðaskrifstofunnar Or-
lofs bæði austan hafs og vestan.
Áætlaður farartími verður
sem hér segir:
Hópur frá íslandi
12. júní, brottför frá Reykja-
vík. — 13. júní, komið til Winni-
peg, eftir um 19 stunda flug.
Sami hópur flýgur frá Winni-
peg 2. ágúst, komið til Reykja-
víkur 3. ágúst.
Hópferð Veslur-íslendinga
til íslands
14. júní, brottför frá Winni-
peg. —15. júní, komið til Reykja-
víkur.
On Post Graduate
Scholarship
Dr. George Johnson, M.D., of
Gimli ,Manitoba has been given
a scholarship to attend a special
post graduate course at the
Lankenau Hospital in Phila-
delphia, Pennsylvania from
April 20 to April 23rd. He and
Mrs. Johnson will be leaving
for the East Coast on Monday
April 18th. This scholarship was
offered to him by the Board of
Social Missions of the United
Lutheran Church in America in
recognition of the outstanding
service that he has rendered to
aged people through his position
as Staff Physician of the Ice-
landic Home for the Aged, Betel,
in Gimli. He will be taking a
special course on “Stress and
Aging” which is part of a pro-
gram that will precede the
meeting of the American Col-
lege of Physicians. Along with
three American Physicians, Dr.
George Johnson is the only
Canadian being offered this
scholarship which comes also as
an honor to the Home for the
Aged which he serves and which
has rendered a remarkable ser-
vice to the cause of aged people
for the past forty years.
30. júlí, brottför frá Reykja-
vík. — 31. júlí, komið til Winni-
Peg-
Verður hér því nálega um 7
vikna ferð að ræða.
í ráði er að skipuleggja 3—4
daga ferð (auk annarra ferða, ef
menn kjósa það) um nærsveitir
Reykjavíkur fyrir hóp þann, er
héðan færi til Islands. Yrði sú
för farin rétt eftir komuna
þangað, en þó örugglega dvalist
í Reykjavík á sjálfan þjóðhátíð-
ardaginn, 17. júní.
Svipuð ferð verður og skipu-
lögð um næstu íslendingabyggð-
ir og víðar um Manitoba fyrir
hóp þann, er frá Jslandi kæmi,
en lengri ferð, t. d. vestur að
hafi, fyrir þá, er þess óskuðu.
Allar þessar ferðir yrðu farnar
á vegum ferðaskrifstofunnar
Orlofs, er samband hefur við
ferðaskrifstofur um allan heim.
Þessi frásögn er aðeins til að
vekja athygli á ferðinni, svo að
menn geti þegar farið að hugsa
sér til hreyfings.
Ég undirritaður hef tekið að
mér að afla þátttakenda vestan
hafs og bið ég menn því að hafa
beint samband við mig, þegar
þar að kemur. Þeir Jakob Krist-
jánsson og Finnbogi Guðmunds-
son hafa unnið að undirbúningi
með mér og munu veita mér að-
stoð eftir því, sem á reynir.
Vitað er, að talsverður áhugi
er á íslandi á hópferð vestur og
vonandi, að áhugi á Islandsferð
héðan verði ekki minni. Gagn-
kvæm hópferð er í senn
skemmtilegasta og verklegasta
leðin til aukinna kynna milli Is-
lendinga vestan hafs og austan
að ógleymdum þeim þægindum
og sparnaði, sem vinnast hlýtur
við slík samtök.
Veitið athygli frekari greinar-
gerð í næstu blöðum.
THOR VIKING,
Forsetahjónin
heimsækja
Noreg í vor
Ráðgert, að M.s. GULLFOSS
flytji forseta og frú hans til
Osló; munu þau dvelja þar í
tvo daga
Afráðið er nú, að forseta-
hjónin fari í opinbera heim-
sókn til Noregs í maímánuði
í vor. Er ráðgert, að M.s.
Gullfoss flytji forseta og
og frú hans til Osló, en að
lokinni tveggja daga dvöl
þar, munu forsetahjónin
ferðast um Noreg í boði
norsku ríkisstjórnarinnar.
Fréttatilkynning frá skrif-
stofu forseta Islands fer hér á
eftir:
Féll niður á s.l. ári
„Eins og kunnugt er, ætluðu
forseti Islands og frú hans að
heimsækja Noreg, ásamt hinum
Norðurlöndunum, á síðastliðnu
ári, en sökum hins sviplega frá-
falls Mörthu krónprinsessu varð
ekki af hinni opinberu heim-
sókn þá.
Hefur nú verið ákveðið, að
forsetahjónin komi í opinbera
heimsókn til Noregskonungs
hinn 25. maí næstkomandi.
Ráðgert er, að M.s. Gullfoss
flytji forseta og frú hans til
Osló, en að lokinni hinni opin-
beru heimsókn þar 27. maí,
munu forsetahjónin ferðast um
Noreg í boði norsku ríkisstjórn-
arinnar.“
—Alþbl., 12. marz
Eftir rúma hálfrar annarrar
viku dvöl á slóðum Islendinga í
Manitoba komu þau Gunnar
Thoroddsen, borgarstjóri í
Reykjavík, og frú Vala Thor-
oddsen, með flugvél frá Winni-
peg til Grand Forks, N. Dakota,
snemma dags þriðjudaginn 5.
apríl. Á flugvellinum tóku á
móti hinum kærkomnu gestum
þeir heri’a Oscar Lunseth, borg-
arstjóri í Grand Forks, dr.
George W. Starcher, forseti
ríkisháskólans í N. Dakota
(University of N. Dakota), dr.
Richard Beck, ræðismaður Is-
lands þar í ríkinu, og frú Bertha
Beck. Að móttökuathöfninni jol^
inni, var ekið beint til Dacotah
Hotel, þar sem borgarstjóra-
hjónin höfðu dvalarstað, meðan
þau voru í Grand Forks. Rak nú
hver atburðurinn annan.
Kl. 11 f. h. hélt Gunnar borg-
arstjóri fyrirlestur í lagaskóla
ríkisháskólans fyrir fjölmenn-
um áheyrendahópi háskólakenn-
ara og stúdenta. Skólastjóri
lagaskólans, dr. Olaf H. Thor-
modsgard, stýrði samkomunni
og kvaddi ræðismann íslands til
að kynna fyrirlesarann. Flutti
borgarstjóri því næst ítarlegt og
fræðimannlegt erindi um Al-
þingi hið forna; fór þar saman
prýðileg efnismeðferð og sam-
bærilegur flutningur, enda var
fyrirlesarinn örlátlega hylltur í
ræðulok, og þakkaði skólastjóri
honum komuna og hið gagn-
merka erindi hans fögrum orð-
um. Hafa margir háskólakennar-
ar og stúdentar einnig farið
miklum lofs- og þakkarorðum
um fyrirlesturinn í samtali við
höfund þessarar greinar.
Að loknum fyrirlestrinum var
Gunnar borgarstjóri heiðurs-
gestur og ræðumaður í miðdegis-
verði og á vikulegum fundi
Rotaryklúbbsins í Grand Forks,
er var mjög fjölsóttur, enda
hafði ýmsum utanfélagsmönn-
um verið sérstaklega boðið til
þess að hlýða á ræðumann og
kynnast honum. Gat nú að líta á
fundinum fjölda fremstu og
kunnustu manna Grand Forks
borgar á ýmsum sviðum. Stjórn
skemmtiskrár hafði með hönd-
um Paul Benson lögfræðingur,
fyrrv. dómsmálaráðherra í N.
Dakota.
Lundseth borgarstjóri í Grand
Forks bauð hinn reykvíska em-
bættisbróður sinn velkominn
með hlýjum orðum og bað hann
síðan fyrir vinsamlegar kveðjur
til Reykvíkinga og íslendinga
almennt. Þá kynnti Beck ræðis-
maður Gunnar borgarstjóra sem
aðalræðumann fundarins.
Hóf hann mál sitt með því að
þakka hinar ágætu viðtökur, en
flutti að því búnu snjalla ræðu
um Reykjavík og sýndi ágæta
kvikmynd af henni. Var máli
hans að verðugu framúrskar-
andi vel tekið, og höfðu margir
fundarmenn orð á því við grein-
arhöfund, að Reykjavík væri
drjúgum stærri borg og með
meiri nútíðar- og menningar-
brag, en þeir hefðu áður gert sér
grein fyrir.
Samtímis því er Gunnar
borgarstjóri sat fund Rotary-
klúbbsins, var frú Vala Thor-
oddsen gestur frú Berthu Beck í
hádegisverði, ásamt nokkrum
öðrum konum borgarinnar.
Seinna um daginn var haldin
virðuleg móttaka til heiðurs ís-
lenzku borgarstjórahjónunum á
hinu fagra heimili dr. Starchers
háskólaforseta og frú Starcher,
er ræðismannshjónin íslenzku í
Grand Forks stóðu einnig að.
Var þar margt manna viðstatt,
sérstaklega úr hópi forustu-
manna ríkisháskólans og for-
ráðamanna Grand Forks borgar,
ásamt frúm þeirra. Meðal þeirra
var Olger B. Burtness héraðs-
dómari og fyrrum þjóðþing-
maður, sem íslendingum er að
góðu kunnur síðan hann kom til
íslands sem einn af fulltrúum
Bandaríkjanna á Alþingishátíð-
ina 1930. Af íslendingum voru
þar, auk ræðismannshjónanna,
þau Frímann M. Einarson, ríkis-
þingmaður frá Mountain, N.
Dakota, og frú Einarson, og
Andrew L. Freeman verkfræð-
ingur í Grand Forks og
framkvæmdastjóri Rafvæðingar
sveita á þeim slóðum, að nokkrir
séu taldir.
Á þriðjudagskvöldið voru þau
Gunnar borgarstjóri og frú Vala
heiðursgestir í veizlu á ríkis-
háskólanum, og tóku þátt í þeim
ánægjulega mannfagnaði margir
háskólakennarar og frúr þeirra
og íslendingar í Grand Forks.
Dr. Starcher háskólaforseti
flutti kveðjur háskólans, og gat
þess sérstaklega, að háskólinn í
N. Dakota hefði brautskráð
fleiri stúdenta af íslenzkum ætti-
um en nokkur annar háskóli í
Bandaríkjunum; síðan þakkaði
forseti hinum ágætu gestum
komuna og afhenti þeim fagra
gjöf frá háskólanum í þakklætis-
skyni og til minja um heim-
sóknina.
Frímann Einarson ríkisþing-
maður frá Mountain, og sonur
eins íslenzka landnemans þar,
flutti borgarstjórahjónunum
kærar kveðjur og velfarnaðar-
óskir íslendinga í þeim byggð-
um, jafnframt því og hann rakti
í nokkrum megindráttum sögu
íslenzka landnámsins og benti á
merkilegt framlag þess til þró-
unar ríkisheildarinnar með
mörgum hætti. Þótti honum vel
mælast og sanngjarnlega.
Aðalræðu kvöldsins flutti
Gunnar borgarstjóri, um Reykja
vík, sögu hennar, öran vöxt og
víðtæka hlutdeild hennar í at-
hafna- og menningarlífi þjóðar-
innar, og sýndi síðan hina fróð-
legu og skemmtilegu kvikmynd
af borginni. Var máli hans tekið
með miklum fögnuði, og þau
hjónin bæði ákaft hyllt af sam-
komugestum.
Var samþykkt einum rómi að
senda forseta íslands og frú, og
íslenzku þjóðinni, símkveðju í
virðingar- og þakkarskyiii fyrir
komu hinna virðulegu gesta.
Richard Beck ræðismaður
stjórnaði hófinu og lauk sam-
komunni með því að biðja
borgarstjórahjónin fyrir kærar
kveðjur heim um haf, eigi aðeins
frá þeim ræðismannshjónunum,
með innilegum þökkum fyrir
síðast, heldur einnig í nafni ís-
lendinga í N. Dakota og annarra
vina og velunnara íslands þar í
ríkinu.
Dagblaðið í Grand Forks,
Tekst ó hendur
prestsembætti
í Duluth
Séra Skúli J. Sigurgeirsson
Svo að segja alveg nýverið
barst Lögbergi sú fregn, að séra
Skúli J. Sigurgeirsson, sem um
nokkur undanfarin ár hefir verið
þjónandi prestur að Walters,
Minn., hafi tekizt á hendur
prestsþjónustu í borginni Duluth
í Minnesotaríkinu og sé nú
fluttur þangað ásamt frú sinni;
hinn nýi söfnuður hans heitir
St. John’s English Lutheran
Church og var stofnaður árið
1884 sem einn af fimm söfnuð-
um, er fyrst mynduðu North-
west lúterska kirkjufélagið þar
um slóðir. Séra Skúli hefir
einnig verið ráðinn statistician
(hagfræðingur) fyrir kirkjufélag
sitt.
Lögberg árnar séra Skúla og
frú Sigríði heilla og blessunar í
hinu nýja umhverfi og verka-
hring.
“Grand Forks Herald”, eitt af
allra víðlesnustu blöðum ríkis-
ins, flutti ítarlegar frásagnir um
heimsókn borgarstjórahjónanna,
meðal annars langan útdrátt úr
hinum merkilega háskólafyrir-
lestri Gunnars borgarstjóra um
Alþingi, og tók blaðið sérstak-
lega fram, hvað fyrirlesturinn
hefði verið fluttur á ágætri
ensku. Einnig var heimsóknar
þeirra hjónanna getið í öðrum
blöðum ríkisins og í útvarpi;
ennfremur komu þau fram í
sjónvarpi frá Fargo, N. Dakota.
Með glæsilegri og prúðmann-
legri framkomu sinni heilluðu
þau borgarstjórahjónin hugi ís-
lendinga og annarra, sem kynnt-
ust þeim í Grand Forks, og þeir
voru margir, og með þeim hætti
öfluðu þau hjónin Islandi einnig
nýrra vina á þeim slóðum. Með
ræðum sínum vann Gunnar
borgarstjóri auk þess ágætt
landkynningarstarf. Hafi þau
hjónin því hjartans þakkir fyrir
komuna og kynninguna. Góð-
hugur allra, sem kynntust þeim
á þessum slóðum, fylgir þeim á
veg. Slíkum fulltrúum íslands er
gott að fagna á erlendri grund.
Richard Beck
Góður gestur
væntanlegur
Ólafur Skúlason
Blaðið Parish Messenger lætur
þess getið, að von sé hingað
vestur í byrjun næstkomandi
'júlímánaðar á ungum manni,
Ólafi Skúlasyni, er ljúki seinni-
partinn í maí guðfræðiprófi við
Háskóla íslands, þiggi þegar
prestsvígslu og kvænist um
sömu mundir. Ólafur er dóttur-
sonur Ágústs Helgasonar frá
Birtingaholti, en Ágúst var
föðurbróðir Ásmundar Guð-
mundssonar biskups.
Óumræðilegt
fagnaðarefni
Á þriðjudaginn bárust út um
heim allan frá háskóla Michigan
ríkis þau gleðilegu tíðindi, að
fundið hefði verið upp meðal
gegn hinni ægilegu lömunar-
veiki, polio, er myndi í lang-
flestum tilfellum ráða niður-
lögum hennar; sá, sem fann upp
þetta undralyf, er Dr. Jonas
Salk frá Pittburgh. Framleiðsla
meðalsins er þegar hafin í
Canada og svo til ætlast, að
hvert einasta barn verði bólu-
sett til öryggis gegn áminstum
vágesti.
Dr. Salk hefir uijnið að þessari
uppgötvun sinni árum saman af
frábærri elju og ekki orðið
svefnsamt, því löngu fyrir
venjulegan fótaferðatíma hefir
hann verið kominn á rannsókn-
arstofu sína og tíðum ekki komið
heim fyr en liðið var að mið-
nætti; ekki hefir hann fram að
þessu auðgast af rannsóknum
sínum, enda hefir hann það
einkunnarorð, að lífið sé meira
virði en peningar.