Lögberg - 26.05.1955, Síða 1
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
Transit - Sargent
Silverline Taxi
5 Telephone Lines
20-4845
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
Transit - Sargent
Silverline Taxi
5 Telephone Lines
20-4845
68. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 26. MAI 1955
NÚMER 21
Hans hágöfgi landstjórinn í Canada heimsækir Gimli
Heimsókn landsstjórans til Gimli
Síðastliðinn laugardag hafði
safnast saman nokkru fyrir
hádegi í skemtigarði Gimli-
bæjar álitlegur hópur manna,
kvenna og barna í tilefni af
heimsókn landstjórans, og
var undirbúningur allur í
bezta lagi; einmuna blíða
ríkti yfir bústað guðanna um
daginn og voru allir viðstadd-
ir í hátíðaskapi; skemtiskrá
var stutt, en þó tilkomumikil.
Bæjarstjórinn á Gimli, Mr.
B. Egilsson, setti samkomuna
með snjallri og röggsamlega
fluttri ræðu, þar sem hann
bauð hinn tigna gest velkom-
inn, en Mr. G. S. Thorvald-
son, Q.C., kynti landsstjóra,
með þeirri háttlægni, er jafn-
an einkennir framkomu hans
á ræðupalli.
Ungmennakór af Úkraníu-
ættum skemti með söng, en
söngflokkur undir stjórn Jó-
hannesar Pálssonar átti áhrifa
mikinn þátt í hátíðahaldinu;
nokkrir gestir voru kyntir
landsstjóranum, þar á meðal
Vigfús Arason í Kjalvík, er
kom til Gimli í fyrsta hópn-
um 1875.
Miss Jórunn Thordarson
kenslukona, heimsótti mann-
fagnað þennan í íslenzkum
faldbúningi, en Sigurbjörg
Stefánsson kynti landsstjóra
Ungan námsmann, er hlotið
hafði Governor Generals
uiedalíuna.
Ræða landsstjórans birtist
hér í íslenzkri þýðingu í rit-
stjórnardálkum blaðsins, og
hinar ræðurnar verða einnig
birtar á íslenzku í næstu viku.
Að lokinni skemtiskrá var
landsstjóra og mörgum öðrum
boðið til ríkmannlegrar mál-
tíðar í kjallarasal hinnar
fögru, lútersku kirkju í Gimli.
Móttaka landsstjórans var
Gimlibúum til hinnar mestu
sæmdar.
Landstjórinn í boði
Canada Press Club
Á fimtudaginn fór fram að
tilhlutan Canada Press klúbbs-
ins virðuleg og fjölmenn at-
höfn í Royal Alexandra hótel-
inu í heiðursskyni við land-
stjórann í Canada, The Right
Honourable Vincent Massey;
var honum afhent þar fagur-
yrt ávarp, er stofnandi klúbbs-
ins og fyrsti forseti hans, W.
J. Lindal dómari átti sinn þátt
í að semja; þau Lindal dómari
og frú önnuðust um móttök-
una og kynnti dómarinn af
mikilli prýði landstjóranum
hina mörgu gesti. Mr. Massey
þakkaði viðtökurnar með
fögrum orðum og árnaði
klúbbnum heilla; vegna rúm-
leysis í blaðinu var ekki unt
að birta ávarpið í þessari
viku.
Flytur ræður á þjóð-
hótíðarsamkomum
Norðmanna
Dr. Richard Beck prófessor
hefir undanfarna daga flutt
ræður á þrem samkomum
Norðmanna í tilefni af þjóð-
hátíðardegi þeirra þ. 17. maí.
Hann var samkomustjóri og
flutti ávarp á hátíðarsam-
komu þjóðræknisfélags Norð-
manna (Sons of Norway) í
Grand Forks, N.D., föstudags-
kvöldið þ. 13. maí, en hann
hafði jafnframt verið for-
maður undirbúningsnefndar.
Mánudagskvöldið þ. 16. maí
var hann aðalræðumaður á
hátíðarsamkomu þjóðræknis-
deildar þeirra í Crookston,
Minnesota, og flutti þar ítar-
legt erindi um Noregsferð
þeirra hjóna síðastliðið
sumar.
Seinni partinn á sjálfan
þjóðhátíðardaginn, þ. 17. maí,
flutti hann frá útvarpsstöð
ríkisháskólans i Norður-
Dakota (K.F.J.M.) erindi er
hann nefndi „Andinn frá
Eiðsvelli“ (The Spirit of
Eidsvoll), og dró þar athygli
að frelsis- og framsóknarhug-
sjónum þeim, er svipmerktu
þá menn, er grundvöllinn
lögðu að frelsi og framförum
norsku þjóðarinnar með
samningu og samþykki
stjórnarskrárinnar á Eiðsvelli
árið 1814.
Lýkur prófi
Alberl Thorvaldson, B.A.
Þessi ungi og efnilegi maður
lauk í vor Bachelor of Arts
prófi með fyrstu einkunn við
Manitobaháskólann; hann er
sonur hinna góðkunnu hjóna,
Mr. og Mrs. T. R. Thorvald-
son, sem heima eiga á Boyd
Avenue hér í borginni.
Fylkið liði um íslendinginn
Mr. Paul Thorkelsson
Svo sem Lögberg hefir fyrir
skömmu skýrt frá, leitar Mr.
Paul Thorkelsson forstjóri
kosningar í 2. kjördeild til
skólaráðs Winnipegborgar, en
aukakosningin fer þar fram
hinn 8. júní næstkomandi
vegna þess að einn skólaráðs-
manna, Mr. Malcolm, sagði
lausri sýslan sinni áður en
kjörtímabil hans rynni út; frá
fjölþættum starfsferli Mr.
Thorkelsson’s heflr blaðið
þegar grandgæfilega sagt, svo
þar er í rauninni litlu sem
engu við að bæta; hann er
hagsýnn atorkumaður og
Hópferðin til fslands
Eins og lesendum blaðsins
er kunnugt, er nú útrunninn
sá tími, sem fólki var ætlaður
til að láta skrá sig í þessa ferð.
Úrslitin urðu þau, að um 20
manns tilkynntu þátttöku
sína. Verður því hópferðin
farin frá Winnipeg, um New
York, til íslands, og fargjaldið
verður þá $460.00, eins og áður
var auglýst. Fólki, sem ekki
hefir nú þegar útvegað sér
nauðsynleg farargögn, það er:
gilt vegabréf og vegabréfs-
áritun, skal ráðlagt að gera
það án tafar, því að tími er
nú orðinn naumur. Strax og
mér berast frá Islandi upp-
lýsingar um brottfarartíma
frá Winnipeg og New York,
tilhögun um greiðslu far-
gjalda og annað varðandi
ferðina, mun ég tafarlaust
koma þeim upplýsingum til
hlutaðeigandi aðilja, þ. e. a. s.
fólksins, sem þegar hefir látið
skrá sig í þessa ferð.
Vinsamlegast,
THOR VIKING,
515 Simcoe Street,
Winnipeg 10, Man.
kippir þar mjög í kyn til hins
rameflda víkings, föður síns,
Mr. Soffoníusar Thorkels-
sonar. '
Fjármagn það, sem ráðstafa
þarf til skólahalds í þessari
borg veltur árlega á miljónum
og þar af leiðandi er það
mikils um vert, að í skólaráð
veljist hagsýnir menn, og ein-
mitt einn slíkra manna er
Mr. Paul Thorkelsson, er nú
býður sig fram undir merkj-
um hinna borgaralegu kjós-
endanefndar.
Til þess að tryggja Mr.
Thorkelsson kosningu verða
íslenzkir kjósendur í áminstri
kjördeild að greiða honum at-
kvæði, allir sem einn.
Flytur til Winnipeg
og stofnar söfnuð
Séra Eric H. Sigmar
Nú er fullráðið, að séra
Eric H. Sigmar, er látið hefir
af prestsþjónustu í Seattle,
flytji hingað til borgar um
mánaðamótin ásamt frú sinni,
og taki sér fyrir hendur
stofnun lútersks kirkjusafn-
aðar í hinu fagra og fjöl-
menna River Heights hverfi
hér í borg. Sameinaða kirkjan,
The United Lutheran Church
of North America, stendur að
safnaðarstofriuninni. —
Séra Eric hefir getið sér
ágætan kennimannsorðstír,
auk þess sem hann er gæddur
góðum skipulangingarhæfi-
leikum, svo sem hann á kyn
til. — Lögberg býður þau séra
Eric og frú innilega velkomin
til borgarii.