Lögberg - 23.06.1955, Blaðsíða 1

Lögberg - 23.06.1955, Blaðsíða 1
/ ANYTIME — ANYWHERE CALL Transit - Sargent Silverline Taxi 5 Telephone Lines 20-4845 I I ANYTIME — ANYWHERE I CALL Tronsit - Sargent Silverline Taxi 5 Telephone Lines 20-4845 68. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 23. JÚNÍ 1955 NÚMER 25 Kærkomnir gestir oí Fróni Hingað komu til borgar- innar í nokkurra daga heim- sokn um síðustu helgi þeir Jón Guðbrandsson, sem um langt áraskeið hefir verið umboðsmaður Eimskipafélags Islands í New York og Kaup- mannahöfn, Reykvíkingur að og óli Vilhjálmsson, sem arum saman hefir haft með höndum erlendis umboðsstarf íyrir Samband íslenzkra sam- vinnufélaga; þessir góðu gest- lr hafa int af hendi mikið nytjastarf í þágu íslenzks at- hafnalífs. Deyr í hórri elli Hinn 17. þ. m., lézt á Wash- lngton Island frú Júlía G. Thordarson ekkja hugvits- mannsins víðkunna Dr. Hjart- ar C. Thordarsonar, 100 ára °g 10 mánuðum betur að aldri, fædd 10. september 1854. Heimili hennar stóð ^ngstum í Chicago. Hún giftist Hirti C. Thordarsyni ^l- desember 1894, en hann lézt 1945. Hin látna lætur eftir sig tvo sonu og eina s°nardóttur. Útförin var gerð frá lút- erskri kirkju í Chicago hinn ,0- þ. m. Rev. Roy Mumm jsrðsöng. St’órf-jón á fóum Sekúndum Síðastliðinn sunnudag olli ellibylur á fáum sekúndum ’miklu tjóni í smábænum ita í suðurhluta Mamtoba- ylkis, að talið er að það muni laupa upp á hálfa miljón °llara; ýmsar byggingar lofnuðust við jörðu og mörg °nnur hús sættu stórskemd- UrnJ margir íbúar bæjarins nnstu aleigu sína og standa uPPi án skýlis yfir höfuðið. L Nú hefir Rauði krossinn fyrir aðstoð þeim til . sem verst eru settir u8 önnur mannfélagssamtök 0rniÖ til liðs við hann. °eitt sér ^íálpar, ^lu ára afmæli Þessa dagana er mikið um úýrðir í San Francisco í til- efni af tíu ára afmæli Sam- dnuðu þjóðanna, en í þeirri borg útu þessi mikilvægu alþjóðasamtök fyrst dags- Ijósið; eru nú þangað komnir erindrekar frá sextíu þjóðum. ^yrstu aðalræðuna flutti Eisenhower forseti. Endurkosinn í félagsst-jórn Arni G. Eggerison, Q.C. Eftirfarandi símskeyti barst Arna G. Eggertsyni, Q.C., frá Reykjavík hinn 14. þ. m.: Reykjavík, 14. júní 1955 „Á nýafstöðnum aðalfundi Eimskipafélags íslands voruð þér endurkosinn í fram- kvæmdarstjórn félagsins til tveggja næstu ára. Félagið greiðir hluthöfum 4% í árs- arð fyrir 1954“. — Grettir á Tilraun til byltingar Á fimtudaginn var lét nærri að til stjórnarbyltingar kæmi í Argentínu, sem staf- aði því, að Peron forseti, sem í rauninni er hvorki meira né minna en einvaldsherra í landinu, tók sér fyrir hendur að brjóta á bak aftur vald Róman-kaþólsku kirkjunnar, er þar hefir árum saman ráð- ið lögum og lofum og boðið ríkisvaldinu birginn; lét Peron reka úr landi tvo kardínála, er hann grunaði um launráð gegn stjórn sinni; jafnskjótt ag þau tíðindi bár- ust í Páfagarð, lét páfinn setja Peron og æðstu valda- menn hans út af Sakrament- inu, en slíkt er hin þyngsta refsing, sem áminst kirkju- deild ræður yfir; á fimtu- dagsmorguninn hófst úr lofti sprengjuhríð á forsetabústað- inn, er lauk með því, að allar árásarflugvélarnar urðu að heypja sig á brott; í árásinni létu um átta tugir manna lífið en nokkuð á annað hundrað voru fluttir á sjúkrahús; nokkrar skærur áttu sér stað víðsvegar um landið, en að nokkrum klukkustundum liðnum lýsti Peron yfir því í útvarpsræðu, að stjórnarher- inn hefði að fullu og öllu bælt uppreisnina niður. eftir annað ár í félagsstjórn- inni. Kveðjur, EIMSKIP GRETTIR EGGERTSON rafurmagnsverkfræðingur Sæmdur guilkrossi Ungum Islendingi, sem bú- settur er í New York, Sigurði A. Magnússyni, hefir fallið sú l markverða viðurkenning í skaut, að vera af Grikkjakon- ungi sæmdur The Golden Cross of the Royal Order of Phoenix fyrir íhyglisverða bók, er hann hefir samið, er nefnist .Grískir reisudagar1 og fjallar um menningu Grikkja að fornu og nýju; erindreki Grikkja hjá Sameinuðu þjóð- unum, Christian Palamar, af- henti Sigurði heiðursmerkið. Sigurður A. Magnússon stundar nám við The New School, fæst við útvarpsstörf og kennir íslenzku á veg- um American-Scandinavian Foundation. Fornir vinir í heimsókn ✓ Síðastliðinn fimtudag komu hingað flugleiðis frá New York, Björgvin Guðmundsson tónskáld á Akureyri ásamt frú sinni og munu þau dvelj- ast hér um slóðir fram í októbermánuð næstkomandi; þau hafa verið búsett á Akur- eyri í síðastliðin tuttugu og fjögur ár; var Björgvin þar söngkennari við Menntaskól- ann, organleikari við Akur- eyrarkirkju og stjórnandi hins víðfræga Kantötukórs; þau Björgvin og frú hans eru frænd- og vinmörg hér um slóðir, og verður því mörgum það mikið fagnaðarefni að endurnýja við þau fornan vinskap. íslenzk lög í enskri þýðingu Fylgiblaðið Scan við tíma- ritið The American Scandi- navian Reviw getur þess ný- verið, að seinni part yfir- standandi árs komi út bók í enskri þýðingu af forníslenzk- um lögum, en útgefandinn sé The Bond Wheelright Com- pany í Portland, Maine. Er hér sennilega um að ræða út- gáfu af þýðingu Dr. Svein- bjarnar Johnson af Grágás, er Dr. Árni Helgason ræðismað- ur Islands í Chicago mun hafa beitt sér fyrir að kæmist á prent; þess er jafnframt getið, að í smásölu muni ein- takið kosta $25.00 og verði glæsilegur viðauki við lög- fræðileg bókasöfn víðsvegar um Bandaríkin. Landnemasporin Skefur gleymsku sand í gömul spor, gengin hér á fyrstu landnámsárum; jörð, sem keypt var blóði og tregatárum, treð ég þögull, lifi horfin vor. Akra þessa íslenzk ruddi hönd, auðn í gróðursælar lendur breytti, harða glímu hetjulega þreytti, hreystiverkum Jrægði ættarströnd. • Islenzkt bergmál bar um skógarlund bragur snjall, er axarhöggin gullu hátt, og þung á hörðum stofnum skullu; hló í rjóðri blómum þakin grund. Bæjarhús, sem brosa þarna við, byggðu hjón úr frónskum dalasveitum, vígðu býlið vonum trúarheitum, vefur ljómi þeirra starfa svið. Hverfa gömul spor í gleymsku sand, glatast flest, en sagan minnug geymir þeirra nöfn, er drauma fagra dreymir, dáðum helga framtíð numið land. RICHARD BECK —„Eimreiðin" Ræðumaður á mörgum samkomum Dr. Richard Beck prófessor hefir undanfarið verið ræðu- maður á mörgum samkomum og verður hér getið nokkurra hinna helztu. Þann 17. júní var hann aðal- ræðumaður á lýðveldishátíð að Mountain, N. Dak. Flutti hann þár kveðjur ríkisstjórn- arinnar íslenzku og las sím- skeyti þess efnis, en hélt síðan ræðu um íslandsför þeirra hjóna síðastliðið sumar, lýsti landi og þjóð, framförum, at- hafna- og menningarlífi. Kvöldið eftir (þ. 18. júní) flutti hann á norsku erindi um Noreg og norrænan menningararf („Fedreland og Fedrearv“) í hátíðarveizlu í Moorhead, Minnesota, er haldin var í sambandi við árs- þing ■ félags Norðmanna af Mæri og úr Raumsdal (Möre og Romsdal Fylkeslag), en hann er heiðursfélagi þess félagsskapar. Stuttu áður (þ. 4. júní) var hann ræðumaður í kvöld- veizlu þeirri í Grand Forks, er haldin var í tilefni af árs- þingi Sambands söngfélaga norskra kvenna í Mið-Vestur- ríkjunum (Norwegian Ladies Singers League) og fjallaði ræða hans um norræna arf- leifð á sviði söngmenntar (“Our Cultural Heritage of Song”). Sæmdur stórriddarakrossi Dr. Valdimar J. Eylands Samkvæmt símskeyti frá Thor Thors sendiherra ís- lands í Washington, var Dr. Valdimar J. Eylands sæmdur af forseta íslands hinn 17. þ. m., stórriddarakrossi hinn- ar íslenzku Fálkaorðu. i

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.