Lögberg - 23.06.1955, Page 8

Lögberg - 23.06.1955, Page 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 23. JÚNÍ 1955 Úr borg og bygð Mrs. P. Reykdal, 979 Inger- soll Street hér í borg, fór vestur til Vancouver, B.C. s.l. fimmtudag í heimsókn til ættingja og vina. ☆ Mr. og Mrs. Carl Kernested frá Oak View, Man., voru stödd hér í borginni um síð- ustu helgi; voru þau á leið vestur að hafi í heimsókn til sonar síns þar og annara ættingja og vina. ☆ Á miðvikudagskvöldið í fyrri viku lögðu af stað áleiðis til íslands Ingólfur N. Bjarna- son og frú frá Gimli og munu þau verða að heiman nálægt tveggja mánaðatíma. Þau hjóríin eru vinmörg hér um slóðir og hafa unnið drengi- lega að þjóðræknismálum okkar á Gimli og öðrum ís- lenzkum mannfélagssamtök- um. Ingólfur er ættaður af Reyðarfirði, en frú hans, Ingi- björg, af Akureyri; hlökkuðu þau bæði mikið til að heilsa upp á forna vini og litast um á æskustöðum sínum. Lögberg árnar þessum mætu hjónum góðs brautar- gengis og heillar heimkomu. ☆ Mr. Pétur Thorsteinsson frá Kandahar var staddur í borginni í byrjun vikunnar ásamt frú sinni og syni, Raymond Thorsteinsson; lét Pétur hið bezta af uppskeru- horfum í Vatnabygðunum. BLOOD BANK . # - - WINNIPEG BREWERY IIMITID MD-365 Látinn er nýlega að heimili sínu í Vancouver, Guðmund- ur Eiríksson byggingameist- ari, fæddur í Reykjavík 7. júlí árið 1888. Útför hans var gerð í dag, fimtudag. Séra Eiríkur S. Brynjólfsson jarð- söng. Hann lætur eftir sig konu sína, frú Svanfríði Thor- kelsdóttur, ásamt þremur börnum; en systir hans, frú ftfería Sigurðsson, er búsett í Finnipeg, en tvær systur, Kristín og Sesselja, eiga heima á íslandi. Guðmundur var traustur vinur vina sinna og mikill atorkumaður. ☆ Eva ólafsdóttir frá Höfnum í Gullbringusýslu er nýkomin til borgarinnar í heimsókn til ættingja og vina. Hún er dóttir Steinunnar Oddsdóttur, prests Gíslasonar, sem margir kannast enn við hér vestan hafs, og Ólafs Ketilssonar manns hennar, sem var á sinni tíð vel þekktur dugnað- ar- og athafnamaður á Suður- nesjum. Bróðir hennar er Oddur Ólafsson, yfirlæknir á Reykjalundi. Eva gerir ráð fyrir að dvelja hér vestan- hafs í nokkrar vikur; mun hún og ferðast nokkuð um nærliggjandi sveitir, og einnig um Bandaríkin, áður en hún hverfur aftur heim á leið. ☆ , GJAFALISTI frá „Höfn", Vancouver Lestrarf. „Iðunn“, Marker- ville, Alta $100.00 í minningu um fyrstu land- nemana í Alberta, sem stofn- uðu lestrarfélagið og héldu því við um fleiri tugi ára. Júlíus Davidson, Winni- peg, $10.00 John Hillman, Sylvan Lake, Alta .................$10.00 Jóhann K. Johnson, Hecla, Man. ................ $25.00 í minningu um gamla Mikl- eyinga: Mrs. Elín Anderson Bogi Sigurgeirsson Guðmundur Berg Jónas Stefánsson frá Kaldbak Mrs. Sigríður Stefánsson. Victor Thorson, Vancouver $20.00 Erling Bjarnason, Vancouver 10.00 Dr. W. H. Thorleifson, Vancouver 10.00 Kvenfélagið „Sólskin“, Vancouver 100.00 Kvenfélagið „Sólskin“, Vancouver, rúmföt og bolla- pör. Mr. og Mrs. Mundi Egilson, Vancouver, kaffi og sykur. Meðtekið með þakklæti, Mrs. Emily Thorson, féhirðir ☆ Lawrence Edward Ingi- mundson, 18 St. Elmo Road lézt á Almenna spítalanum á miðvikudaginn 15. júní; hann var 50 ára að aldri, fæddur í Selkirk, 13. marz 1905. Hann var giftur Jakobínu Breck- man frá Lundar, og áttu þau þar heima í nokkur ár, og síðar í Treherne; en til Winni- peg fluttust þau 1941. Á yngri árum var Mr. Ingimundson vel þekktur íþróttamaður. — Auk ekkjunnar lætur hann eftir sig þrjár dætur upp- komnar og giftar og hóp systkina. Útförin fór fram frá Fyrstu lútersku kirkju á laugardaginn 18. júní, og var mjög fjölmenn. Dr. Valdimar J. Eylands flutti kveðjumál. ☆ — LEIÐRÉTTING — í næstsíðasta Lögbergi hefir slæðst óþægilegt innskot í grein mína um Samson J. Samson, sem óskast hér með leiðrétt. Setningin í blaðinu hljóðar svo: „Var hinn látni daglegur gestur á þessum látnu stöð- um“. En á vitanlega að lesast: „Var hinn látni daglegur gestur á þessum stöðum". —J. G. ☆ Miss Helga Thordarson hjúkrunarkona frá Van- couver kom til borgarinnar á þriðjudaginn í heimsókn til móðursystur sinnar, Mrs. Th. L. Hallgrimson, 805 Garifield Street. Daginn eftir hélt hún áfram ferð sinni áleiðis til Evrópu. Systir hennar, Lára, sem einnig er hjúkrunarkona, starfar í Egyptalandi á veg- um United Nations. Hafa syst- urnar mælt sér mót í Aþenu- borg. Þær eru dætur Mr. og Mrs. Thordar Thordarson í Vancouver. Helga hefir í hyggju að koma til Islands á heimleið. Tilkynning Ársþing Unitara kvenna- sambandsins verður haldið í Wynyard, Sask., 1. júlí 1955. Varður það haldið í sambandi við aðalkirkjuþing Unitara í Vestur-Canada. — 1 tilefni af því vildi ég einnig tilkynna öllum vinum og styrktar- mönnum sumarheimilisins á Hnausum hvaða not hafa verið höfð af heimilinu í síð- astliðin 3 ár síðan við urðum að hætta við að starfrækja það sjálfar. Heimilið hefir verið lánað endurgjaldslaust munaðarlausum börnum, — (Childrens Aid Soc. of Winni- peg) — í 6 vikur, (fyrsta árið í tvo mánuði). Einnig höfum við lánað það í 2 vikur, Mentally retarded Girls of Broadway Home. Þær höfðu mikla ánægju af verunni. Nú vil ég fyrir hönd félagsins þakka kærlega öllum, sem styrkt hafa þetta fyrirtæki með peningagjöfum í „Blóma- sjóðinn“, og á annan hátt. Ég vona, að þeir sem vilja styrkja okkur í framtíðinni, gjöri það ef þeim finst að við séum að gjöra góðverk með því að lofa þessum foreldralausu börnum að njóta sín í sumarfríinu. — Nafn nýja fjármálaritarans verður birt í íslenzku blöð- unum. Með vinsemd, Sigríður McDowell, forseti Fyrsta lúterska kirkja Sumarfrí í júlí. Engar guðsþjónustur unz nánar auglýst. ☆ — KVEÐJA — Winnipeg, 18. júní 1955 Nú þegar ég er að hverfa aftur heim til átthaganna, eftir mánaðardvöl í Vestur- heimi, langar mig til að þakka öllum, sem ég átti kost á að kynnast á ferðum mínum hér, fyrir frábæra gestrisni og velvild í minn garð. Beztu þökk fyrir góða skemmtun og góða viðkynn- ingu. Vinsamlegast, Elías Dagfinnsson, « Reykjavík ☆ Heimilisfang séra Erics H. Sigmars er að 215 Silver Heights Apts., St. James, Winnipeg 12. Telephone 83-7809. FRÓÐLEIKSMOLAR Ein eftirköstin af Austur- Afríku-stríðinu var það, að nú úir og grúir af hákörlum- Fiskimenn í Smyrna (í Liltu- Asíu) hafa snúið sér til stjórn- ar sinnar sakir þessarar hættu, því að hákarls hefir allt til þessa örsjaldan orðið vart i Egeoshafi. Það er ætlun manna, að allur fjöldinn af hákörlum þessum hafi komið gegnum Suez-skurðinn, því að það er venja þeirra að fylgja skipunum og grípa sérhvað það, sem varpað er fyrir borð af matarleyfum. Nú var ó- venjulega mikil skipaferð um Suez-skurðinn 1936 og þá hef- ir hákörlunum orðið kunn leiðin og með þeim hætti hafa þeir tekið sér bólfestu í Mið- jarðarhafinu. Kaupið Lögberg Sjötugasta og fyrsta ársþing Hins ev. lúí. kirkjufélags íslendinga í Vesiurheimi, Gimli. Man., 25.—30. júní. Laugardaginn 25. júní Kl. 5. Skrásetning erindreka og gesta. „ 7. Kvöldverður í samkomusal kirkjunnar. „ 8. Þingsetning. — Skýrsla forseta o. fl. Sunnudaginn 26. júní Kl. 9. Guðsþjónusta á Betel. Séra Ólafur Skúlason. „ 11. Guðsþjónusta með altarisgöngu í kirkjunni, séra Sigurður Ólafsson prédikar. „ 3. Sjötíu ára afmælishátíð kirkjufélagsins. Ræðumenn: Séra K. K. Ólafssón, séra R. Marteinsson, D.D., séra Ólafur Skúlason. „ 8.30. Fulltrúi U.L.C.A. flytur ræðu (Dr. George Harkins frá New York). Séra Bragi Friðriks- son flytur erindi. Mánudaginn 27. júní Kl. 9—11. Þingfundir. „ 12. Dagverður. Sunrise Lutheran Camp. „ 9. Samkoma í kirkjunni að Árnesi. Ræðumenn: Séra Bragi Friðriksson, séra Eiríkur Bryn- jólfsson, séra Ólafur Skúlason. Þriðjudaginn 28. júní Þingfundir hefjast kl. 9 og standa yfir allan daginn. Kl. 8.30. Samkoma. Ræðumenn: Séra Jóhann Frið- riksson, séra Eric H. Sigmar, séra Robert Jack. . j Miðvikudaginn 29. júní Þingfundir frá morgni til kvölds. Kl. 8.30. Æskulýðssamkoma. Séra Russell Weberg, Seattle, ræðumaður, ásamt fleirum. * Fimmtudaginn 30. júní Erindrekar og aðrir þingmenn ferðast til Mikleyjar . árdegis. Samkoma fer þar fram eftir hádegi. Ræðu- menn: Séra Eiríkur S. Brynjólfsson og séra Stefán Guttormsson.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.