Lögberg - 07.07.1955, Blaðsíða 4

Lögberg - 07.07.1955, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 7. JÚLI 1955 Lögberg Gefið út hvern flmtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA J. T. BECK, Manager Utanáakrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram The "Lögberg” is printed and published by The Columbia Press Ltd. 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada Authorized as Seoond Clase Mail, Post Office Department, Ottawa PHONE 743 411 Ræða Thor Thors sendiherra flull í San Francisco á 10 ára afmæli Sameinuðu þjóðanna Herra forseti: Ef við nú í dag ættum enga stofnun hinna Sameinuðu þjóða, þá er auðvelt að gjöra sér í hugarlund hvað væri eitt af aðalvandamálum heimsins, og ein af mest langþráðu óskum mannkynsins. Það væri vafalaust óskin um að eignast slíka stofnun. I aldanna raðir hefir mannkynið dreymt um það og þráð það að eignast stofnun og stað, þar sem þjóðir heimsins gætu komið saman, ræðst við og jafnað friðsamlega deilumál sín fyrir mál og aðgjörðir leiðtoga þeirra. Aldrei hefir þessi hugsjón verið eins brennandi heit eins og á tímum styrjalda og þeirra þjáninga og hörmunga, sem siglt hafa í kjölfar hildarleikanna. Aldrei hefir þessa verið eins alvarlega óskað og eins innilega þráð eins og á slíkum tímum. Tárin, sorgin, þjáningarnar, sárin og dauðinn hafa neytt leiðtoganna til þess að reisa musteri friðarins. Á þann veg var þjóða- bandalagið hugsað og stofnað í lok fyrri heimsstyrjaldar- innar. Það brást vonum okkar og féll niður. Síðari heims- styrjöldin gaf okkur hinar Sameinuðu þjóðir. Það var hér í San Francisco fyrir 10 árum meðan ófriðurinn geysaði ennþá, meðan óteljandi lífum var daglega fórnað og akrar og grundir og heilar borgir voru enn herjaðar og hrjáðar, að flestar þjóðir heims urðu smmála um það að koma upp alþjóðlegri stofnun, sem skyldi nefnast hinar Sameinuðu þjóðir, og enda þótt fallbyssurnar væru ennþá öskrandi, og sprengjunum væri ríkulega fleygt í allar áttir, þá var vor í lofti og í hugum mannanna, vor vona og góðs ásetnings, sem mótaðist af festu og einbeittni. Aldrei aftur! Við slíkar aðstæður og í þessu andrúmslofti fæddust Sameinuðu þjóðirnar, og um allan heim létti yfir mönnum, og þeir voru þakklátir. Þjóð- irnar, sem hér voru saman Jcomnar voru ákveðnar í því að bjarga komandi kynslóðum frá hörmungum ófriðarins. Leið- togarnir staðfestu trúna á grundvallarréttindi mannanna, virðingu og gildi hvers einstaklings, jafnrétti karla og kvenna og allra þjóða, smárra og stórra. Þeir voru ákveðnir í því að sýna umburðarlyndi og lifa saman í sátt og friði, svo sem góðum nágrönnum sæmir. Þetta voru háleitar hugsjónir. Hvernig hefir þetta tekizt. Við skulum víkja að því síðar. Fyrst skulum við hugleiða það hvernig horfði, ef við í dag ættum enga alþjóðlega stofnun, og værum að leitast við að koma henni á fót. Er það þá ekki dapurlega augljóst hversu geysilegir erfiðleikar yrðu á vegi okkar, jafnvel um það atriði eitt að fá þjóðir heimsins saman að samnings- borðinu, eða við það að ákveða hvaða þjóðir skyldu til ráð- stefnunnar boðaðar? Við megum ekki gleyma því að meira en fjórðungur heimsins þjóða eru ennþá utan við samtök vor. Hvaða nafn gætum við í dag valið félagsskap þjóðanna, er við nú aðgætum ástandið í heimsmálunum? Mundi nokkur hér hafa djörfung til að bera fram tillögu um nafnið Sam- einuðu þjóðirnar? Hvernig gætu allar og einstakar þjóðir heimsins á þessari stundu, í fullri alvöru og algjörðri ein- lægni, heitið hollustu þeim hugsjónum að afnema stríð og sýna umburðarlyndi og virða jafnrétti allra þjóða, hinna smæstu sem þeirra stærstu, og að virða sjálfsákvörðunarrétt þjóðanna? Eða hvernig væri um loforðin að sameina styrk- leika allra þjóða til að vernda og viðhalda alþjóðlegum friði og öryggi, eða um loforðið um gildi og framkvæmd mann- réttinda og fullkomins frelsis fyrir alla án tillits til kyn- þáttar, kyns, tungu eða trúarbragða? Við þurfum ekki annað en að láta hugann líða andartak um heim okkar nú í dag til þess að sjá það og skilja hversu langt er frá því að þessar göfugu hugsjónir séu enn ræktar eða hin hátíðlegu loforð efnd. Þessar athugasemndir gjöra okkur það ljóst hversu langt við eigum ófarið til þess að ná hinu fyrirheitna landi hins háleita tilgangs og hinna miklu hugsjóna svo sannar og eðlilegar sem þær virðast fögrum hugsunarhætti og eðlilegri viðleitni mannanna. En einmitt þessar sömu athuganir sanna okkur hversu heillavænlegar og stórbrotnar voru aðgjörðir stofnenda Sameinuðu þjóðanna. Það var vissulega þýðingar- mikill áfangi, sem að náðist hér í San Francisco, þegar svo margar af þjóðum heimsins, gáfu samhljóða yfirlýsingu og hátíðleg loforð um að aðhyll- ast hinar göfugustu hugsjónir allra kynslóða. Sáttmáli Sam- einuðu þjóðanna var yfirlýs- ing um góðvild og háleitan ásetning. En illu heilli er manninum eðlilegt að skjátl- ast, og oftsinnis reikar hann um veglausa auðn burt frá hinu góða til þess að gjöra hið illa. Sameinuðu þjóðirnar hafa enn ekki náð tilgangi sínum á hátindi mannlegra hugsjóna. Það er þess vegna, sem svo margt fólk í mörgum löndum, og mest þeir, sem minnst hugsa og lítið vita um þessi mál, falla fyrir því næst- um eins og girnilegri tízku, að gagnrýna órökstutt þessa stofnun og jafnvel fordæma. Sameinuðu þjóðirnar fædd- ust við hinn óraunhæfa á- trúnað að stærstu þjóðir heimins væru sameinaðar í friði og sammála um stefnu- mál og stjórn heimsmálanna, og mundu verða svo áfram. Þess vegna var of mikils krafizt af Sameinuðu þjóðun- um. Margir vilja kenna Sátt- málanum um getuleysi Sam- einuðu þjóðanna. En breyting Sáttmálans bæri lítinn árang- ur ein. Það sem þarf er breyt- ing hugarfarsins. Breyting hugarfarsins hjá stórþjóðun- um frá tortryggni og áróðri yfir í gagnkvæmt traust og umburðarlyndi. Fólkið í heiminum, og sér- staklega smáþjóðirnar, vill að Sameinuðu þjóðirnar haldi áfram og aukizt að þrótti. Við veitum því athygli, að það er viss tilhneiging til að sneiða hjá Sameinuðu þjóðunum og leysa mörg vandamál utan þessara samtaka. Þetta þarf ekki að byggjast á vantrausti til Sameinuðu þjóðanna. Sér- stök vandamál krefjast stund- um sérstakra ráðstafana, sem aðeins hinir fáu geta gjört. Lausn sérhvers vandamáls er þjónusta við Sameinuðu þjóð- irnar, sem ber að fagna ef úrræðin eru í samræmi við stefnu og hugsjónir Sáttmál- ans sjálfs. Við viljum hafa Sameinuðu þjóðirnar vegna þess að við vitum vel á hverju samtökin byggjast og að hverju stefnt er, og ennfremur hvað hefir áunnizt hin fyrstu 10 árin í sögu þeirra. Við skulum laus- lega líta á þessi afrek. Sameinuðu þjóðirnar hafa gjört ráðstafanir til að lægja og jafna deilur. Svo hefir orð- ið í Palestínu, Indónesíu og Kasmír, en þangað hafa Sam- einuðu þjóðirnar sent sátta- semjara til að leiða aðilana saman og koma á samningum. Sameinuðu þjóðirnar halda áfram hinni geysilega þýðing- armiklu viðleitni til að ná samkomulagi um takmörkun vígbúnaðar og herafla. Alla sína starfstíð hafa Sameinuðu þjóðirnar leitast við að ná samkomulagi um þetta ör- lagaríkasta mál, en því miður hefir áþreifanlegur árangur enn ekki náðst. Samt er svo komið, að loks nú virðast stór- veldin vera að jafna ágrein- inginn og alvarlega leita til samkomulags. Ef það tækizt að brúa bilið í þessu þýðing- armesta máli, samkomulag næðist og það yrði fram- kvæmt, þá hafa Sameinuðu þjóðirnar unnið mannkyninu slíkt heillaverk, sem vart yrði nógsamlega þakkað, og sem hefði í för með sér hinar blessunarríkustu afleiðingar. Þetta myndi reynast slíkur úrslitasigur fyrir Sameinuðu þjóðirnar, að allir þeir, sem nú vilja upphefja sig með því að gagnrýna þær, mundu verða að þagna og fyrirverða sig. Slíkt yrði hin ákveðnasta og augljósasta tjáning þess að þolgæði, þrautseigja, viðræð- ur og samningar eru tæki, sem þjóðir heimsins ætíð þurfa að beita til þess ítrasta og fram á síðustu stundu. Sameinuðu þjóðirnar hafa gjört og geta gjört sameigin- legar ráðstafnanir til að við- halda friðnum og koma á friði, þegar hinn alþjóðlegi friður hefir verið rofinn og árás gjörð. í Kóreu börðust Sameinuðu þjóðirnar sam- eiginlega og þeim tókst að reka á brott árásarmennina, og sanna að árásir eru hvorki til frægðar né fjár. Sameinuðu þjóðirnar hafa unnið stórvirki á sviði tækni- legrar aðstoðar. Frá því árið 1950 hafa þær sent meira en 5000 sérfræðinga frá 70 þjóð- um til meira en 75 landa. Þessi síðustu 5 ár hafa þær veitt yfir 5000 námsstyrki til manna frá yfir 100 löndum. Slíkar gjörðir munu bera ríkulegan ávöxt aukinnar þekkingar, vaxandi velmeg- unar og framfara. Sameinuðu þjóðirnar hafa veitt sjúkum hjálp og vernd, og óteljandi þjáðum flótta- mönnum aðstoð um allan heim, einkum í Evrópu og Asíu. Barnahjálp Sameinuðu þjóð anna hefir rétt út hjálpsama og miskunnarsama hönd til sjúkra barna í fjarlægum löndum, og fært milljónum þeirra í hrjáðum og herjuðum löndum fæði og klæði og fró. Hin síðastliðin 8 ár hefir barnahjálpin beint blessun sinni til yfir 90 landa, og meira en 90 milljónir barna hafa notið læknisskoðunar og aðstoðar, og yfir 15 milljón- um barna hefir verið gefin mjólk og önnur næring. Þetta er fagurt verk til hags og bóta fyrir þessi ungmenni og kom- andi kynslóð. Fyrir allar þessar sakir og ótal aðrar viljum við að Sam- einuðu þjóðirnar haldi áfram, og að þær vaxi að styrkleika, vísdómi og vináttu meðal þjóðanna. Þegar við nú höfum náð þessum þýðingarmikla og söguríka áfanga, þá er hollt að nema staðar um stund, horfa fyrst aftur á bak, en síðan fram á veginn. Er við lítum til baka, þá hljótum við að viðurkenna að miklu góðu hefir verið komið til vegar. Margar hættulegar deilur hafa verið jafnaðar, og skelf- ingum, raunum og rústum al- heimsófriðar hefir verið af- stýrt. Því ekki að viðurkenna hreinskilnislega, að alla þá tíð, sem við njótum Samein- uðu þjóðanna, munu heljar- drunur fallbyssanna þegja, og hinar djöfullegu sprengjur vera ósnertar, og við fáum að lifa í friði. Saga liðinna síð- ustu 10 ára mundi sannarlega hafa verið hættulega frá- brugðin, ef Sameinuðu þjóð- anna hefði ekki notið við. Ef við lítum fram á veginn, þá blasa við okkur mörg stór, óleyst vandamál, sem nauð- syn ber til að leysa, bæði í bráð og lengd. Mál málanna fyrir gjörvalt mannkynið er að koma á vinsamlegri sam- búð meðal þjóðanna í gagn- kvæmu trausti, og að tryggja og festa hvorttveggja. Á þeim grunni verða öll vor verk að byggjast. Lækkun vígbúnaðar er vandamálið, sem hæst blasir við og þyngst mæðir á þjóð- unum. Vígbúnaðarkapphlaup- ið verður að stöðva. Er her- irnir verða stöðugt stærri og fjölmennari, ef fallbyssurnar vaxa stöðugt að ógn og víð- tækni, ef sprengjurnar geta stöðugt fært aukna eyðingu — hvar á þetta þá að enda? Hve- nær verður kveikt í púður- tunnunni, og hver mun gjöra það? Allur heimurinn bíður í skelfdri undrun, og hið ógn- andi sverð Damoklesar hangir yfir höfðum vorum. Einn brjálaður maður getur kveikt í öllum heiminum. Er þessi ógnun ekki hryllileg, þegar við vitum það, að stríðinu fylgir aðeins rústir, algjör út- rýming, eyðing og tortíming menningarinnar. Það er öllum mikill fögnuð- ur, að undanfarna mánuði hefir andrúmsloftið á sviði alþjóðamálanna batnað, og horfurnar eru heldur bjartari. Stórveldin tala nú alvarlegar en áður, og á vinsamlegri hátt, um að leysa deilumálin. Að minnsta kosti virðist okk- ur smáþjóðunum það, og við biðjum þess og vonum, að við verðum ekki enn á ný blekkt- ir og sviknir. Helztu leiðtogar stórþjóðanna tala nú ýmist um að lifa í friði saman, eða þeir berjast til sigurs í kosn- ingum með loforðum um frið og farsæld sem aðalásetning, eða þá að þeir sjá dagrenn- ingu í vændum. Við skulum vona að leiðtogarnir stjórnist af vísdómi, þolgæði, ráð- snilld og skilningi. Við viljum mega trúa því, að leiðtogar okkar samtíðar séu raunveru- lega stórmenni, sem muni standast dóm tímans og sög- unnar, en lítillækki sig ekki og verði að dvergum síngjarnrar þjóðernisstefnu, valdagræðgi eða drottnunar- girndar. En í höndum leiðtog' Framhald á bls. 5

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.