Lögberg - 18.08.1955, Qupperneq 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 18. ÁGÚST 1955
Lögberg
GeflÖ út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA
J. T. BECK, Manager
Utanáskrlft ritstjúrans:
EDITOR LÖGBERG, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press Ltd.
695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
PHONE 743 411
íslendingadagurinn á Gimli
Vegna fjarveru ritstjórans fórst það fyrir að Islendinga-
dagsins yrði minnst hér í blaðinu í vikunni, sem leið, og
skal nú lítilsháttar tilraun til þess gerð, að bæta úr
drættinum.
Síðastliðið hátíðahald fór að öllu leyti hið bezta fram,
veður var ákjósanlegt frá morgni til kvölds og samkomu-
gestir í hátíðaskapi; það var ánægjulegt að litast um í hin-
um vingjarnlega skemtigarði Gimlibúa, heilsa þar upp á
frændur og vini, minnast sameiginlegs uppruna og gá til
veðurs varðandi meðferð þjóðræknismála í framtíðinni, en
í slíkri viðleitni er Islendingadagurinn engan veginn óveru-
legur liður og þess vegna ber að leggja við hann alla hugs-
anlega rækt. Islenzka mannfélagið stendur í mikilli þakkar-
skuld við þá menn, er íslendingadagsnefndina skipa og
leggja fram endurgjaldslaust krafta sína ár eftir ár til
vandaðs og skipulagsbundins undirbúnings.
Til þeirrar skemtilegu nýbreytni hafði nefndin stofnað
í þetta sinn, að hátíðin hófst með glæsilegri skrúðvagna-
fylkingu um bæinn, er áhorfendum þótti mikið til koma;
í fylkingarbroddi var bíll Fjallkonunnar, en honum ók einn
nefndarmanna, K. W. Johannson byggingameistari; því
'næst hófst eins konar sönghátíð í skemtigarðinum þar sem
leikin voru af spólum mörg tónverk og fögur undir forustu
Björgvins Guðmundssonar tónskálds af Akureyri, sem nú
dvelur hér í heimsókn ásamt frú sinni; mörg laganna voru
snildarverk, er Björgvin hafði samið, og þar gafst fólki
kostur á að hlýða á hinn fræga Kantötukór Björgvins, er
hann stofnaði og stýrði fram til þessa dags; þau Björgvin og
frú eru vinmörg hér um slóðir og vakti því nærvera þeirra
á áminstri hátíð mikinn og almennan fögnuð.
Á tilteknum tíma hófst hin reglubundna skemtiskrá og
var.þá Fjallkonan, ungfrú Snjólaug Sigurdson, leidd til há-
sætis ásamt hirðmeyjum sínum; var framkoma hennar tígu-
leg og ávarp hennar röggsamlega flutt og prýðilega samið;
forsæti á hátíðinni skipaði Snorri Jónasson, og fórst honum
samkomustjórn hið bezta úr hendi; um nöfn aðalræðu-
manna er lesendum þegar kunnugt; ræðurnar voru af hæfi-
legri lengd, kjarnyrtar og skipulega samdar; í stað nýortra
kvæða, svo sem við hefir gengist undanfarið, las prófessor
Finnbogi Guðmundsson ljóð eftir Einar H. Kvaran og
Einar P. Jónsson.
Fyrir hönd fylkisstjórnarinnar sótti hátíðina Ron
Turner fylkisféhirðir og ávarpaði mannsöfnuðinn; ávarp
hans var stutt og laggott, en lýsti góðvild í garð íslenzku
landnemanna og íslenzka þjóðarbrotsins yfirleitt.
Frú Björg Isfeld hafði æft kvartett, er með ágætum
söng vakti mikinn fögnuð meðal samkomugesta; söngmenn-
irnir voru pTófessor Sigurður B. Helgason, Hermann Fjeld-
sted, Alvin Blondal og Albert Halldórsson; þessi liður
skemtiskrárinnar var slíks eðlis, að gróði hefði verið að ef
söngurinn hefði verið tekinn á stálþráð;' vera má að slíkt
verði gert síðar, því hér var um óvenju fagran söng að ræða.
Að lokinni meginskemtiskrá fór fram skrúðganga að
landnema minnisvarðanum og lagði Fjallkonan þar að hon-
um fagran blómsveig; nokkuð var um íþróttir á hátíðinni,
og þar á meðal sýndu fjórir piltar íslenzka glímu undir
stjórn Art Reykdals. Um fimmleytið var sezt að snæðingi í
samkomusal lútersku kirkjunnar þar sem borð svignuðu
undan margbreyttum og girnilegum vistum, enda hafa ís-
lenzku konurnar á Gimli lengi haft orð á sér fyrir risnu og
skörungsskap við undirbúning borðhalds; undir borðum
þakkaði Dr. V. J. Eylands fslendingadagsnefndinni með
snjöllum orðum boðið í kjallarasal kirkjunnar og hann
gleymdi heldur ekki að þakka kvenþjóðinni fyrir ágætan
beina. Er líða tók að kveldi hófst venju samkvæmt almennur
söngur í skemtigarðinum, er Alvin Blondal stýrði með
miklum glæsibrag, en við hljóðfærið var frú Peark Johnson;
var það hressandi • eftir hita og þunga dagsins, að hlusta á
hljómniðinn í kveldkyrðinni.
Þegar tekið var að rökkva, sýndi hr. Kjartan Ó. Bjarna-
son, kvikmyndatökumaður frá fslandi, myndir af ættjörð-
inni, sem vel var látið af.
Fréttabréf frá ríkisútvarpi íslands
31. JÚLÍ ------------------
Síðastliðná viku hefir verið
sunnan og suðvestanátt um
land allt, en um miðja vikuna
gerði norðan og norðvestan-
átt í einn dag eða svo. Rigning
hefir verið um sunnan og
vestanvert landið og einnig
rigndi lítilsháttar norðanlands
í vikunni, aðallega vestan til.
Heitt hefir verið í veðri norð-
an og norðaustanlands í síð-
ustu viku.
☆
Skipt hefir í tvö horn um
heyskapinn hér á landi í sum-
ar vegna tíðarfarsins. Sunnan
lands og vestan hafa verið
stöðugir óþurrkar, en fyrir
norðan og austan hafa verið
sífelldir þurrkar og hlýindi
víðast hvar. Óþurrkasvæðið
nær frá Mýrdalssandi til
Húnaflóa, og hefir þar hvergi
verið þurrkuð heytugga að
heita má til þessa. Margir
bændur sunnanlands og vest-
an hafa sett eins mikið í vot-
hey og þeir hafa getað en
sums staðar hafa súrheys-
turnar þeirra ekki komið að
gagni sökum þess að heyið
hefir verið of blautt til þess
að blása því upp í turnana.
Þá hefir súgþurrkunaraðferð-
in ekki komið að gagni sunn-
anlands þar sem ekki hefir
þornað á steini að kallað
verði 1 margar vikur, en gras-
ið þarf að vera grasþurt til
þess að hægt sé að nota þá
verkunaraðferð. Þurrkar voru
litlir í Húnavatnssýslu og
Skagafirði þar til um síðast-
liðna helgi, að þurrkur kom
þar góður og náðu flestir
bændur upp heyjum sínum. í
Eyjafirði, Þingeyjarsýslum og
Múlasýslum hefir verið hin
ákjósanlegasta heyskapartíð í
margar vikur, og hafa Þing-
eyingar aldrei átt eins mikil
og góð hey og nú svo snemma
sumars. í Austur-Skaftafells-
sýslu hefir gengið sæmilega
að þurrka hey, en miður í
Vestur-Skaptafellssýslu. Þó
horfir þar ekki til vandræða
nema í Mýrdalnum.
☆
Veður hefir yfirleitt verið
gott á síldarmiðunum fyrir
norðan og síldveiði allgóð
vikuna, sem leið. Um s.l.
helgi var síldaraflinn orðinn
7600 mál í bræðslu og í salt
rúmlega 81,000 tunnur, og er
það tæplega tveir þriðju af
aflamagninu á sama tíma s.l.
sumar, en hins vegar hefir
miklu meira verið saltað nú,
svo að verðmæti þessa afla til
útgerðarmanna er tæplega
einni miljón króna meira en
á sama tíma í fyrra. Á þriðju-
dagskvöldið var heildarsöltun
No»ðanlands orðin rösklega
95,000 tunnur, og allmikið
hefir veiðzt síðan. Alls munu
130 skip stunda síldveiðar
fyrir Norðurlandi í sumar eða
um 60 færri en í fyrra. Um s.l.
helgi var Snæfell frá Akur-
eyri aflahæsta skipið með
3119 mál og tunnur, en næst
var togarinn Jörundur frá
Akureyri með 3035 mál og
tunnur.
☆
Laxveiðin í sumar hefir
verið nokkuð misjöfn. í ná-
grenni Reykjavíkur hefir
veiðst ágætlega og sömuleiðis
í Borgatfirði, en í Dalasýslu
er veiðin ekki eins góð. Á
Suðurlandi hefir verið mjög
misjöfn veiði og á vatnasvæði
Ölfusár og Hvítár hafa lang-
varandi flóð spillt mjög veiði.
☆
Forsetahjónin komu í opin-
bera heimsókn til Akraness á
sunnudaginn var, skoðuðu
ýmsa staði og mannvirki og
sátu kaffiboð bæjarstjórnar
Akraness.
☆
Dr. Luis Norton de Mattos,
hinn nýi sendiherra Portúgala
á Islandi, afhenti á þriðjudag-
inn forseta íslands trúnaðar-
bréf sitt við hátíðlega athöfn
að Bessastöðum að viðstödd-
um utanríkisráðherra.
☆
Fyrsti forsetafundur Norð-
urlandaráðsins, sem haldinn
er hér á landi, verður settur í
Alþingishúsinu á fimmtudag-
inn kemur, og sitja hann þeir
Erik Eriksen fyrrum forsætis-
ráðherra Dana, Nils Hönsvald
formaður þingflokks norska
verkamannaflokksins, N i 1 s
Herlitzs ríkisþingmanns frá
Svíþjóð og Sigurður Bjarna-
son forseti neðri deildar al-
þingis. Einnig sitja fundinn
ritarar deildanna. Þessir
fundir eru haldnir þrisvar til
fjórum sinnum á ári. Á fund-
inum í Reykjavík verður rætt
um fyrri ályktanir, sem ráðið
hefir gert og unnið að mála-
tilbúnaði fyrir næsta fund
Norðurlandaráðsins, sem hald
inn verður í Kaupmannahöfn
í lok janúarmánaðar í vetur.
☆
Félagsmálaráðherra hefir
ákveðið, að kosning á sjö
manna bæjarstjórn í hinum
nýja Kópavogs-kaupstað skuli
fara fram sunnudaginn 2. októ
ber næstkomandi. — Sam-
kvæmt bráðabirgðalögum frá
23. þessa mánaðar verður
kosið samkvæmt kjörskrá
þeirri, sem samin var í síðast-
liðnum febrúarmánuði.
☆
Nýlega er lokið niðurjöfnun
útsvara í Reykjavík og var
jafnað niður 123 miljónum
króna, eða 22 miljónum hærri
upphæð en í fyrra. Sam-
kvæmt fjárhagsáætlun bæjar-
ins átti nú að jafna niður
101,4 miljónum króna auk 5
til 10% fyrir vanhöldum, en
um það leyti, sem niðurjöfnun
var að ljúka, ákvað bæjar-
stjórn að hækka útsvarsupp-
hæðina í 110 miljónir króna
vegna fyrirsjáanlegrar út-
gjalda-aukningar hjá bæjar-
sjóði af völdum hækkana, er
leiddu af lausn verkfallsins á
þessu ári. Útsvörin hafa
hækkað frá í fyrra um 5 af
hundrað miðað við sömu
tekjur. — Einstakir útsvars-
gjaldendur eru taldir 21 til 22
þúsund að tölu, og félög nær
því eitt þúsund. Hæsta útsvar,
eina miljón 155 þúsund krón-
ur, ber Samband íslenzkra
samvinnufélaga.
☆
Um þessar mundir vinna
um eitt þúsund manns hjá
Sameiðuðum verktökum á
Keflavíkurflugvelli og annars
staðar á landinu að fram-
kvæmdum fyrir varnarliðið,
og á þeim fjórum árum, sem
samtökin hafa starfað hafa
gjaldeyristekjur af þeirri
starfsemi numið um 270
miljónum króna. Sameinaðir
verktakar vinna nú meðal
annars að smíði radarstöðva
á þremur stöðum, — á Horna-
firði, Langanesi og Straumnes
fjalli við Aðalvík.
☆
Minnisvarði um Bólu-
Hjálmar var afhjúpaður að
Bólu á sunnudaginn var og
afhentur Skagafjarðarsýslu
til eignar og varðveizlu. Skag-
firðingafélagið á Akureyri
gekkst fyrir þessari fram-
kvæmd, en Jónas Jakobsson á
Akureyri teiknaði varðann og
þær táknmyndir, sem á hon-
um eru. Minnisvarðinn er
þriggja metra há ferstrend
súla úr steinsteypu og efst á
henni hörpulíkan úr svörtum
steini, en í súluna eru greyptar
koparplötur tvær, á annarri
táknmynd af skáldinu en á
hinni ljóðlínur eftir Hjálmar.
Minnisvarðinn stendur rétt
við þjóðveginn fyrir neðan
Framhald á bls. 5
Sagl um Bidault
Bidault, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Frakka, er sagð-
ur gera litlar kröfur til lífsins,
lifa fábreyttu lífi.
Að loknum erfiðum degi
eftir utanríkisráðherrafund í
London, heyrðist umsjónar-
maður þinghússins hrópa
valdsmannslega:
— Komið strax með bíl
Foster Dulles!
— Einnig bíl Anthony
Edens!
— Hafið skóhlífar Georges
Bidault tilbúnar eftir tvær
mínútur.
Kaupið Lögberg
Heimsins bezta
munntóbak