Lögberg


Lögberg - 18.08.1955, Qupperneq 5

Lögberg - 18.08.1955, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 18. ÁGÚST 1955 5 "WWWWWWWVWWWWWWWWWWWWWyrW AHIJCAHAL LVENNA Ritstjón: INGIBJÖRG JÓNSSON ÁVARP FJALLKONUNNAR Flutt af MI88 SNJÓFAUGU SIGURDSON á tslendingadaginn á Gimli 1. ágúst 1955 Fréttabréf fró ríkisútvarpi íslands Hjartkæru börnin mín 1 Vesturheimi: Mér er ávalt hjartfólgið ®nægjuefni að koma hingað og ávarpa ykkur á þessari íniklu árssamkomu, sem þið helgið minningum frá liðinni tíð á ættlandinu forna í austri. Úg veit að minningarnar lifa enn í hugum margra hinna eldri, en eins og ávalt eru þær blandnar söknuði. Ég veit einnig að jafnvel í treganum munið þið eiga þá sigurgleði, er stafar frá lífi og athöfnum íslenzkra landnáms rnanna og kvenna, er fyrst reistu bú hér í landi og gátu sór þann orðstír, sem aldrei deyr. Þeir feður og mæður ykkar, sem við öll minnumst I dag, reyndust svo trú sinni köllun, þrátt fyrir allt, að fá rnunu þess dæmi. Og köllunin var annað og meira en hin nauðsynlega vinna hvern dag. Hún var engu síður ræktuð a hinu andlega sviði lífsins. Hjá þeim var ávalt líf í bað- stofunni, þar sem allar hend- Ur störfuðu undir hljómi >.dýrra braga“. Og þó að kaldan blési stundum, var lögð rækt við þá óbilandi ást a íslenzkri tungu, ljóðum og þjóðlegum fræðum, sem fólk- flutti með sér að heiman. Þannig varð hvert heimili að uPpeldisstofnun, sem kenndi umfram allt trúna á þann guð, Sem leiðir börn sín gegnum allar þrengingar, og að lokum inn á fyrirheitna landið. Hún ^enndi einnig sögu minnar þjóðar og landsins, þar sem oáttúruöflin eru ofin í líf og stríð þjóðarinnar í stórfeng- legum myndum. Þetta fólk vissi af eigin reynslu að án fræðslu um hið liðna, sézt ekki hið nýja til samanburðar. Það vissi að irúin á forngildar hugsjónir, frelsis, jafnréttis og bræðra- fugs, var hin eina rétta í öllu iifi og starfi manna, og að sú trú var sprottin af ást og að- dáun á andans afrekum þjóð- ^rinnar gegnum liðnar aldir. etta var hin mikla arfleifð, Sem landnemar hér fundu að ^hesta nauðsyn bar til að eSgja rækt við. Eins og ást móðurinnar verður vegarljós barnsins alla Pess ævi, svo var og er ástin a því göfuga og góða, sá geisli, sem á ætt sína að rekja II vilja skaparans. Hún var °§ er sá heilagi eldur, sem sfendur. í sífeldri baráttu við auða og myrkur mannlegs lfs. Ef hún kulnar um stund, þá lifnar hún á ný, af umhugs- uninni um ahdardrátt barns- ins, er það lá í vöggu, og sér á ný lífsafl guðs í brosi þess. Þetta innræti var uppistaða í hinni stórfeldu voð land- nemans. Hann vissi eins og skáldið Einar Benediktsson, að „Marmarans höll er ein moldarhrúga, musteri guðs eru hjörtun, sem trúa, þó hafa þau ei yfir höfði þak“, og ennfremur segir hann: „án vegabréfs vors hjarta er leiðin töpuð.“ En af því innræti, sem að ofan greinir frá, lærðuð þið að meta og ávaxta þann mikla arf, sem í tungunni er fólg- inn, og að aflið til þess bjó í ykkur sjálfum. Þið funduð að ný útsýn opnaðist með hverju orði. Einar Benediktsson nefndi íslenzkuna „drottningu allra heimsins tungna“, og kunni hann þó og mat mörg önnur tungumál, en um tungu okkar kvað hann þetta fagra ljóð: „Ég ann þínum mætti í orði þungu. Ég ann þínum leik í hálfum svörum, grætandi mál á grátins tungu, gleðimál í ljúfum kjörum. Ég elska þig málið undurfríða og undrandi krýp að lindum þínum. Ég hlýði á róminn bitra, blíða, brimhljóð af sálaröldum mínum.“ Ég hefi ávalt vitað, að ein- mitt vegna þess að lífsbarátta ykkar hér í landi var reist á þeim grunni, sem að ofan getur, hafið þið gegn um árin unnið fleiri og markverðari sigra, og að allt líf kynslóð- anna hefir orðið fegurra og blessunarríkara. Ég vil minnast þess hér, að á þessu ári eru liðin hundrað ár síðan fyrstu íslendingar settust að í Utah, og hefir þess atburðar verið minnst í sumar með veglegum hátíða- höldum þar, eins og kunnugt er. Mér er sérstök ánægja í að geta þessa hér, því þar hefir komið fram, eins og á meðal ykkar, undraverð tryggð og fastheldni við hinar íslenzku menningarerfðir. Er þessi há- tíð í dag einnig ljós vottur um órofa tryggð og ást, sem þið berið í brjósti til ættjarðar- innar og stofnþjóðar ykkar. Ég fagna þyí með þakklát- um og hrærðum huga og bið guð að blessa ykkur, börnin mín í Vesturheimi á öllum ókomnum tímum. Framhald af bls. 4 Bólu. Margt manna var á sam- komunni er minnisvarðinn var afhjúpaður, en það gerði dóttur-dóttur-dóttir B ó 1 u - Hjálmars. ☆ Náttúrulækningafélag ís- lands hefir komið upp stóru og vistlegu heilsuhæli í Hveragerði, og var það tekið í notkun á sunnudaginn var. Hælið er 620 fermetrar, einn- ar hæðar hús. Þar komast fyrir 28 gestir auk starfsfólks, borðsalur þar fyrir 100 manns og rúmgóð setustofa. Ákveðið er, að starfrækja heilsuhælið allt árið. Það er fullskipað fram í næsta mánuð. ☆ í háskólasafninu í París er deild, sem nefnist Norræna bókasafnið, og senda bóksalar í Danmörku, Finnlandi, Nor- egi og Svíþjóð safni þessu bókagjafir ár hvert. í safninu er töluvert af gömlum ís- lenzkum fræðum, en tilfinn- anlegur skortur hefir verið á nýrri íslenzkum bókum þar. Nýlega gáfu íslenzkir bóka- útgefaendur safni þessu um 600 bindi, eða meira en var þar fyrir af íslenzkum bókum, cg hafði forstjóri Bókfellsút- gáfunnar, Birgir Kjaran, for- göngu um þetta mál, en Pétur Benediktsson sendiherra ís- lands í París afhenti gjöfina fyrir hönd gefenda. Stjórnar- formaður bókasafnsins til- kynnti við það tækifæri, að Pétur Benediktsson hefði ver- ið kjörinn heiðursfélagi í stjórnarnefnd safnsins. Sendiherra Sovétríkjanna hér á landi afhenti, nýlega Landsbókasafninu að gjöf 800 bindi bóka, sem voru á vöru- sýningu Sovétríkjanna í Reykjavík, og eru gefendur útflutningsfyrirtæki 1 Sovét- ríkjunum. ☆ Á aðalfundi kvenfélagsins Hringsins í Reykjavík, sem haldinn var fyrir nokkru, skýrði stjórn félagsins frá því, að samningar hefðu tekizt við ríkisstjórnina í samráði við læknana dr. Snorra Hall- grímsson og Kristbjörn Tryggvason, að efsta hæð Landsspítalans yrði notuð til bráðabirgða fyrir barna- spítala, þar til nýi barna- spítalinn yrði fullgerður, og að kvenfélagið Hringurinn tæki að sér að búa hæðina rúmum, sængum sængurfatn- aði og öðrum húsbúnaði. — Barnaspítalasjóður Hringsins nemur nú tæplega þremur miljónum 240 þúsund krón- um, og jókst um rösklega 365.000 krónur á reiknings- árinu. Auk þess á félagið tvo minningarsjóði, sem nema samtals rösklega 150.000 kr. ☆ Hinn níunda næsta mánað- ar koma út ný frímerki, svo- neínd íþróttafrímerki, og er þar um að ræða tvö verð- gildi. í undirbúningi er að gefa út nokkuð af minningar- frímerkjum á næstu árum, og m. a. verða gefin út á árinu 1956 sérstök Skálholtsfrí- merki, sem verða með yfir- verði og rennur það gjald, sem fram yfir er, til viðreisn- ar Skálholtsstaðar. Þá er og í undirbúningi að gefa út sam- norrænt frímerki, og einnig er í ráði að gefa út skógræktar- frímerki, og á næsta ári á Landsími Islands 50 ára af- mæli og verða þá sennilega gefin út sérstök frímerki 1 því tilefni. ☆ Kvennabandið, — samband kvenfélaga í Vestur-Húna- vatnssýslu, — hefir ákveðið að leggja 200 þúsund krónur til byggingar sjúkraskýlis og elliheimilis á Hvammstanga. Byggingarnefnd hefir verið kjörin og munu bygginga- framkvæmdir hefjast næsta vor. Það er sýslan, sem byggir, en með framlagi sínu til byggingarinnar tryggir Kvennabandið sér húsrými þar fyrir gamalt fólk, og að þar verði jafnframt athvarf fyrir fólk, sem þarf hressingar við. ☆ Hin árlegu hátíðahöld verzl- unarmanna í Reykjavík eru um þessa helgi og hófust síð- degis í gær og lýkur annað kvöld. Fjölbreytt skemmti- atriði eru á hátíðahöldum þessum, sem fara fram í Tívolí. Annað kvöld hafa verzlunarmenn dagskrá 1 út- varpinu. ☆ í vikunni, sem leið kvað siglingadómur upp dóm í máli, sem ákæruvaldið höfð- aði gegn skipstjóranum á tog- aranum Agli rauða, er strand- aði í vetur og 5 skipverjar drukknuðu. — Skipstjórinn, Guðmundur Isleifur Gíslason, er eigi talinn hafa á viðhlýt- andi hátt rækt skyldur þær, sem á honum hvíldu sem skip- stjóra, og var hann dæmdur í sex mánaða fangelsi og sviptur skipstjóra- og stýri- mannaréttindum í þrjú ár. ☆ Fimmtán danskir kennarar dvöldust hér þrjár vikur í boði íslenzku kennarasamtak- anna og Norræna félagsins og og fóru víða um land. Þeir héldu heimleiðis í vikunni, sem leið. íslenzkir og danskir kennarar hafa skipzt á heim- sóknum að undanförnu, og tókust þau skipti að frum- kvæði sendiherra Danmerkur hér á landi, frú Bodil Begtrup. ☆ Einn íslendingur, Ingi R. Jóhannsson, keppti á unglinga meistaramótinu í skák, sem haldið er í Antwerpen. Hann komst ekki í úrslitakeppnina þar. Skákþing Norðurlanda hefst í Osló 14. ágúst n.k., og taka þátt í því sjö íslenzkir skákmenn. í landsliðsflokki tefla þeir Friðrik Ólafsson, skákmeistari Norðurlanda. Guðjón M. Sigurðsson og Ingi R. Jóhannsson. 1 meistara- flokki tefla Arinbjörn Guð- mundsson, Ingvar Ásmunds- son, Jón Pálsson og Lárus Johnsen. Miss Snjólaug Sigurdson

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.