Lögberg - 18.08.1955, Síða 8

Lögberg - 18.08.1955, Síða 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 18. ÁGÚST 1955 Virðulegt silfurbrúðkaup Seattle, Washington, 8. ágúst, 1955 Úr borg og bygð — GIFTING — Föstudaginn 12. ágúst s.l. voru þau William Baum- gartner og Shirley Elsie Kjernested, dóttir þeirra Mr. og Mrs. Carl Kjernested, Oak View, Man., gefin saman í hjónaband af Dr. V. J. Eylands í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg. Brúðurin var aðstoðuð af þeim Guðnýju Kjernested, Ethel Kinder- forsa og Wilma Simms. Brúð- gumann aðstoðaði Mr. Roger Dubois. Að vígsluathöfn lok- inni var setin vegleg veizla 1 St. Regis Hotel hér í borg. ☆ Látinn er fyrir skömmu Jón Ólafsson fyrrum kaupmaður að Leslie, Sask., hniginn all- mjög að aldri, kunnur sæmd- armaður; vonandi verður hans frekar minst áður en langt um líður; hann lætur eftir sig fjögur börn og er eitt þeirra Thorsteinn, er skipar ábyrgðarstöðu hjá Pioneer Grain félaginu hér í borginni. ☆ Mr. P. N. Johnson er ný- kominn heim úr sex vikna dvöl vestur í Saskatchewan, þar sem hann tók þátt í há- tíðahöldunum í Wadena í til- efni af hálfrar aldar afmæli fylkisins, og heimsótti jafn- framt börn sín öll þrjú, sem búsett eru þar vestra; lét hann yfir*höfuð vel af upp- skeruhorfum. ☆ Hér er á ferðinni eystra Bjarni Sveinsson frá Van- couver, B.C., Er að mæta dóttur sinni, Ingibjörgu, ann- að hvort hér eða í Kenora, Ont., — en Ingibjörg starf- rækir sjúkraheimili í New York upp á eigin spýtur við vaxandi orðstír. G R A Y MARINE THE ENGINE FOR YOUR BOAT Always dependable under the most rugged conditions . . . the Graymarine is de- signed particularly for its particular job. The size and, type you re- quire is available through Mumford, MEDLANP, flMITEP, 576 Wall St., Wpg. Ph. 37-187 United Lutheran Church of Silver Heights Services in the St. James Y.M.C.A., Ferry Road South. (Just off Portage). Opening Service on August 21st, að 11 A.M. At this ser- vice Pastor Eric Sigmar will preach the sermon: “Why the Church?” A newly assembled choir from the St. James area, with assistance from some members of First Lutheran Choir, wrll lead in the singing. Guest' pianist and accomp- anist will be Miss Snjólaug Sigurdson of New York City. Svava Sigmar will sing the vocal solo, “Open the Gates óf the Temple.” The president of our Synod, Dr. V. J. Eylands, will bring greetings. ☆ Lúterska kirkjan í Selkirk Sunnud. 21. ágúst: Enskar messur, kl. 11 árd. og kl. 7 síðd. Fólk boðið velkomið. ☆ S. Ólafsson Björgvin Guðmundsson, sem hér er staddur, og hefir með- ferðis allmikið af íslenzkri sönglist, hefir ákveðið að hafa samkomur á eftirgreind- um stöðum: Lundar, mánu- daginn 22. þ. m. Ashern 23. Árborg 24., Geysir 25. og Gimli 26. ágúst. Allar sam- komurnar byrja kl. 8 síðdegis. Aðgangur ókeypis. Samskot tekin. ☆ Á sunnudaginn var drukn- aði á Gimli Charles Reykdal, 24. ára að aldri. Lögbergi er ókunnugt um þær aðstæður, sem til slyssins leiddu. Hann var ættaður frá Winnipeg Beach. ☆ Nálátinn er hér í borginni Nikulás Ottenson fyrrum um- sjónarmaður í River Park 91 árs að aldri; hann var ættaður af Patreksfirði, sérstæður maður, er sór sig í ætt til hinna fornu víkinga; útförin verður gerð frá Bardals kl. 3.45 e.h. á föstudaginn. Dr. V. J. Eylands jarðsyngur. ☆ Mr. Leifur Hallgrimson lög- fræðingur frá Ottawa hefir dvalið hér í borginni í sumar- fríi í þrjár vikur hjá foreldr- um sínum, þeim Mr. og Mrs. J. L. Hallgrimson 805 Gar- field Street. Hann hélt heim- leiðis á mánudaginn. ☆ Myndasýning Kjartans Ó. Bjarnasonar, er fór fram í G. T.-húsinu á þriðjúdags- kvöldið var, eins og áður hafði verið auglýst, þótti hin ánægjulegasta í alla staðið. Má með sanni segja, að kvöld- stund þessi hafi heppnast vel, því að samkomusalur hússins var að kalla mátti þéttskipað- ur, þrátt fyrir sumarfrí og sumarhita á þessum tíma árs. Próf. Finnbogi Guðmundsson sagði frá ferðum þeirra félaga og skýrði myndirnar ásamt myndatökumanninum. Myndirnar voru með ágæt- um, enda hefir Kjartan fyrir löngu fengið orð fyrir að vera snjall myndatökumaður. Kæri ritst'jóri Lögbergs, Fjölmennt og skemmtilegt silfurbrúðkaup var haldið hér þann 29. júlí s.l., í blómum skreyttri kirkju Calvary lút- erska safnaðarins, til heiðurs Mr. og Mrs. Barney Björns- son. Hver bekkur var skip- aður, er hin vinsælu hjón voru leidd til sætis. Forseti safnaðarins, Mr. Karl F. Frederick, bauð alla vel- komna, ávarpaði brúðhjónin og óskaði þeim til hamingju í tilefni dagsins. Um leið þakkaði hann þeim sérstak- lega fyrir 25 ára starfsemi þeirra í þágu kirkjunnar. — Kórinn söng sálminn: “O perfect love,” en Mrs. Harold Eastvold lék' á orgelið. Séra G. P. Johnson flutti því næst bænarorð. Öllum til ánægju voru við- staddar um kvöldið tvær vin- konur brúðhjónanna frá Win- nipeg, Miss Inga Bjarnason, er söng tvö heillandi lög, og Miss Sigrid Bardal er lék undir, og skemmti síðan með fínni píanó-sóló. Næst á dagskrá voru ávörp til brúðhjónanna, en „á milli þátta“ las forsetinn mörg skeyti frá fjarstöddum skyld- mennum og vinum. Mrs. G. P. Johnson las upp kvæðj frá H. E. Magnússyni. Mrs. Ruth Sigurðsson bar fram þakklæti frá kvenfélagi safnaðarins til Mrs. Björnsson, og afhenti henni gjöf. Sömuleiðis Mrs. Trondsen fyrir hönd sunnu- dagaskólans. Síðast ávarpaði undirrituð heiðursgestina í nafni allra veizlugesta og fleiri vina, er eigi gátu verið viðstaddir, og Dúkurinn er úr Sandakirkju í Dýrafirði og mun vera frá því um siðaskipti Norsk kona, frú Martha v. Spreckelsen, sem býr í Randers í Danmörku, færði Þjóðminjasafninu í gær stórmerka gjöf, og veitti Kristján Eldjárn þjóðminjavörður henni viðtöku. Gjöf þessi er út- saumaður altarisdúkur úr Sandakirkju í Dýrafirði. Er Kristján Eldjárn veitti gjöfinni viðtöku, gat hann þess, að hér væri um hinn merkasta hlut að ræða, 'sem væri einstæður meðal íslenzkra kirkjumuna. Dúkur þessi mun vera frá því um siðaskipti, eh ekki hefir enn verið unnt að kveða nákvæmlega á um tímann. Þ a k k a ð i þjóðminjavörður kærlega þessa merku gjöf. Dóttir hvalstöðvarstjóra j Frú Spreckelsen er dóttir afhenti þeim viðeigandi gjöf, til minningar um silfurbrúð- kaupsdaginn og velvildar hug fólksins hér, alveg almennt talað. —. hjónin svöruðu bæði, hlýtt og innilega. Ef „góða veizlu gera skal,“ er mér næst að halda, að ísl. konurnar í Seattle séu til fyrirmyndar. — í kaffisalnum var margra „góðra vina fundur“ þetta eftirminnilega kvöld. — í samtali hér og þar heyrðist mér Winnipeg- borg vera nefnd á nafn oftar en einu sinni. — Á meðal að- komugesta var Mr. S. Björns- son frá Blaine, hinn unglegi faðir brúðgumans, og Mr. Henry Thorbergsson frá Van- couver, B.C., bróðir brúðar- innar. Barney Björnsson og Clara Thorbergson voru gefin sam- an í hjónaband 30. júlí 1930 í Fyrstu lútersku kirkjunni í Winnipeg, af Dr. B. B. Jóns- syni. — Barney var búinn að koma sér vel fyrir í Seattle, er hann sótti brúði sína til Canada, og hér hefir heimili þeirra slegið föstum rótum. Clara tók strax tryggð við Seattle, og heimilið laðaði að sér vini, eldri sem yngri. í hlýleik og starfsgleði þess, hafa vaxið upp þrír góðir og mannvænlegir synir, Paul, Henry og Dwight. — Veizlu- gestir, ásamt vinum fjær og nær, þakka þessum vinföstu hjónum alla alúð þeirra og gestrisni — og gott samstarf í 25 ár. Heill og gæfa hvíli yfir heimli þeirra um ókomin ár! Vinsamlegast, Lauritz Berg, er var hval- stöðvarstjóri í Dýrafirði og síðar á Mjóafirði til ársins 1905. Skýrði hún svo frá við afhendinguna í gær, að á meðan fjölskylda hennar bjó á Dýrafirði hafi gamla torf- kirkjan verið rifin og ýmsum hlutum verið fleygt, sem ekki þótti taka að flytja í nýju kirkjuna. Móðir frúarinnar tók eftir þessum altarisdúk og fékk leyfi til að taka hann. Hefir dúkurinn síðan verið í eign fjölskyldunnar. Kvaðst frúin vilja með gjöf þessari þakka Islandi fyrir æsku og unglingsár sín og systkina sinna á íslandi. Fara lil Dýrafjarðar Með frú v. Spreckelsen er systir hennar, frú Norden- skjöld, sem er ekkja hins fræga pólarfara Norden- skjölds. Þær systur ætla nú að ferðast til æskustöðvanna í Dýrafirði. —Alþbl., 7. júlí Dónarfregn Þann 9. júlí s.l. andaðist a Arcade Rest Home í Seattle, íslendingur að nafni Sveinn George Richter. Hann var aldurhniginn maður og dauða hans bar rólega að. Sveinn sál. var fæddur 10- nóv. 1865 að Hraunhöfn í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Foreldrar hans voru þan hjónin Kristján Sigurðsson, Guðmundssonar, frá Elliða i Staðarsveit, og Steinunn Jónsdóttir, Sveinssonar, fra Sólheimatungu í Borgarfirði. Þau voru af atorkufólki kom- in og búnaðist vel í Hraun- höfn með barnahópinn sinn. En Kristján bóndi dó af slys- förum á sjó um vorið 1868, og þá tók við erfitt tímabil, fyrir ekkjuna með börnin sjö. Eitt af þessum börnum, Margrét Þorbjörg, varð síðar- meir kona Thor Jensens a Korpúlfsstöðum. Þrír af bræðrunum fluttust til Vestureims. Einn af þeim mun enn vera á lífi — H. C. Ritcher, í St. Paul, Minnesota. Pétur Kristjánsson, dáinn fyrir mörgum árum, átti heima í borginni Victoria, B.C. Hann lifa tvær dætur, þar til heimilis. Önnur þeirra Mrs. Jane Eldon, kom og ann- aðist um útför frænda síns. Hann var ókvæntur, og einn síns liðs í Seattle. í Home út- fararstofu fór fram kveðju- athöfn að viðstöddum fáein- um vinum. Velvalin kveðju- orð flutti lúterskur prestur, séra Theo. A. Jensen, og jarð- sett var í Pacific Lutheran grafreitnum. Blóm frá Thor Thors voru lögð á gröfina. Sveinn sál. hafði dvalið hér vestur frá í fjöldamörg ár, lengi sem matreiðslumaður á skipum meðfram ströndinni. Síðar bjó hann einn í smá- hýsi er hann átti og ræktaði lengst af í garði sínum blóm og aldini o. fl. sér til ánægju. Hann tilheyrði íslenzka félag- inu „Vestri“, og sótti fundi og samkomur þess um eitt skeið. Nokkrir gamlir kunningjar héldu uppi samböndum við hann og ætíð var hann glaður í viðmóti og vinalegur hvar sem hann kom. Hann hélt sér vel fram yfir áttræðisaldur — hafði í lengstu lög ánægju af að sækja samkomur og leik-. hús — einkum ef um söngleiki var að ræða. Þó hann væri kominn um eða yfir sjötugt, er ég sá hann fyrst, fannst mér það ekki leyna sér, að hann hafði verið fríður mað- ur, nettvaxinn og snyrtilegur. Hann bar í brjósti tryggð til ættfólks síns og til íslands, þó hann dveldi í fjarlægð, og fann til metnaðar vegna frændfólksins, og ættlandsius norðlæga og smáa. —Nú eru allir vegir færir anda þínum, gamli farmaður, — svíf þú heill um höfiu breið! Jakobína Johnson Seattle, Washington, 4. ágúst, 1955. Jakobína Johnson Norsk kona gefur Þjoðminjasafninu dýrmæfan altarisdúk

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.