Lögberg - 20.10.1955, Blaðsíða 2

Lögberg - 20.10.1955, Blaðsíða 2
2 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 20. OKTÓBER 1955 75 ára afmæli Argyle-byggðar 1880—1955 íslenzka byggðin í Argyle átti 75 ára afmæli á þessu sumri, og hérlenda mann- félagið á þessum slóðum á sömuleiðis 75 ára afmæli. Var þessa atburðar minnst með hátíðahaldi, sem stóð yfir í 3 daga í Glenboro, 1., 2. og 3. júlí. Sló íslenzka og hérlenda mannfélagið saman með þetta hátíðahald, og gekk það allt prýðilega. Fimm Islendingar frá N. Islandi skoðuðu og námu land í Argyle seinni part sumars 1880, og voru þeir fyrstir allra Islendinga að líta augum þá fögru byggð, og með því hófst íslenzka land- námið þar. Þessir 5 Islend- ingar höfðu allir verið frum- herjar í N. íslandi. Þeir fóru til baka um haustið og sátu í N. íslandi um veturinn, en fluttu um vorið til Argyle, og margir fleiri, og liðu ekki mörg ár þar til hún (Argyle) var albyggð. F. S. Friðriksson, 96 ára. Heiðursgeslur á 75 ára hálíðinni. Nöfn þeirra 5, sem fyrst komu eru öllum Islendingum kunn, og saga þeirra. En þeir voru: (1) Sigurður Kristófersson frá Ytri-Neslöndum við Mý- vatn, (2) Kristján Jónsson frá Fellsseli í Köldukinn, og síð- ast frá Héðinshöfða (3) Skafti Arason frá Hringveri á Tjör- nesi, (4) Halldór Árnason frá Sigurðarstöðum á Sléttu, og (5) Friðbjörn S. Friðriksson frá Hóli á Melrakkasléttu. Er hann sá eini af þessum 5, sem enn er á lífi. Var hann einn æðsti heiðursgestur á hátíð- inni. Skafti Arason dó 26. júní 1903, Kristján Jónsson 30. maí 1919, Sigurður Kristó- Fred Frederíckson, formaður 75 ára hátíðarnefndarinnar og dótturböm hans tvö Dr. R. E. Helgason, meðlimur 75 ára hálíðarnefndarinnar fersson 27. marz 1921, og Hall- dór Árnason 22. sept. 1932. Sjá söguþætti þessara 5 frumherja í Sögu Islendinga í Vesturheimi IV. bindi, bls. 34—46. Það er sagt í sögu- þætti Halldórs Árnasonar, að hann hafi búið rúm 60 ár í Argyle. Það er prentvilla; hann bjó þar rúm 50 ár (52). Hr. Fred Frederickson, stór- kaupmaður, sonur F. S. Frið- rikssonar landnámsmanns, var formaður hátíðarnefndar- innar, sem var vel skipuð; átti hann ekki lítinn þátt í því, hvað hátíðin lukkaðist vel. Hann sýndi þar bæði dugnað og frábæra smekkvísi. Aðrir Islendingar í hátíðar- nefndinni voru B. S. Johnson, Dr. R. E. Helgason, séra Jó- hann Frederickson og A. E. Frederickson; en um allt var hin bezta samvinna, og al- menn ánægja með hátíðina. Hátíðin byrjaði 1. júlí kl. 1.30 með skrúðgöngu (Parade) um öll helztu stræti bæjar- ins, og var stórkostleg; var það óefað ein stærsta og prýðilegasta skrúðganga, sem sést hefur í smærri bæjum. Þar var fjöldi af „floats“, smekklega útbúin og puntuð, og var íslenzka tillagið lofað ekki síður en það hérlenda, þó minna væri að vöxtum. Ekki verður skrúðgöngunni lýst nema lítillega. Þar voru landbúnaðarvélar af öllu tagi, vegagerðarvélar og eldvélar (slökkviliðs), sem sýndi greini lega þróunina á þessum 75 árum, þar voru bílar fornir og nýir. Sveit manna á reið- hjólum og hestum ríðandi óg keyrandi. Þar var Rauðarár- kerra a. m. fl. Ýms skóla- héruð tóku þátt í skrúðgöng- unni með „floats“, einnig mörg félög og einstaklingar; voru þau mörg falleg og til- komumikil og til sæmdar. Mun Fjallkonan þó hafa átt flesta aðdáendur. Skrúð- gangan nam staðar í sýning- argarðinum vestan við bæinn. Þar var múgur og margmenni og þar fór skemtiskrá fram, ræðuhöld, söngur og hljóð- færasláttur. Stjórnaði Mr. F. M. Ferg, Q.C., fylkisþing- maður skemtiskrá. Ræður fluttu þar eftirfylgjandi Is- lendingar: F. Frederickson, H. S. Sveinsson, oddviti (Reeve) Argyle-sveitar, Dr. R. E. Helgason, forseti Glenboro Chamber of Commerce, og Dr. Tryggvi J. Oleson, kenn- ari í Miðalda-sögu við Mani- tobaháskólann. Flutti hann aðalræðuna, er hann fæddur og uppalinn í Glenboro. Séra Jóhann Fredriksson flutti bæn, og las ávarp frá Hr. F. S. Friðriksson, sem hann hafði samið til hátíðarinnar. (F. S. F. er fæddur á Hóli á Mel- rakkasléttu 9. jan. 1859, hann er því senn 100 ára, já, áður en varir. Hann hefur verið maður bjartsýnn og léttlynd- ur, prúðmenni og hinn mesti snyrtimaður. Heill og heiður sé honum). Þann 2. júlí voru boltaleikir aðalþátturinn að deginum; tóku þátt í þeim flokkar frá 7 bæjum og dró það múg og margmenni. Að kvöldinu var mikil og vegleg samkoma í skautaskálanum (Rink), aðal- lega söngur og hljóðfæra- sláttur (Concert). Þar söng frú Elma Gíslason frá Winni- peg með fullum krafti, og sinni vanalegu listhæfni. Hún er fædd og uppalin hér í þessu umhverfi. ■— Einnig skemtu með. söng þau séra Eric H. Sigmar og frú Svava, endurfædd með nýjum lífs- krafti, fyrir skömmu komin úr Islands- og Norðurálfuför Björn S. Johnson, meðlimur 75 ára hátíðarnefndarinnar sinni. Hr. Fulton Frederick- son frá Edmonton, sonarsonur F. S. F. kom þarna líka fram, og sýndi list sína. Á sunnudaginn 3. júlí var sameiginleg guðsþjónusta í kirkju, sem var „há til loíts og víð til veggja“. Með öðrum orðum var prédikað undir beru lofti, við fjölmenna að- sókn. Prestarnir, sem þjón- uðu, voru þeir séra K. K- Ólafsson, sem þjónaði Argyle- prestakalli frá 1925 til 1930, og á hér marga vini, einnig meðal hérlendra, og séra Fred Douglas frá Winnipeg. (Nefni ég hann, þó hann sé ekki ís- lenzkur; hann er fæddur og uppalinn hér, er ágætur mað- ur og hefir unnið sér frægðar- orð í Winnipeg fyrir mannúð- arstarf og dugnað). Sameinað- ur kór hafði kirkjusönginn með höndum. En Mrs. Elma Gíslason söng Solos. Allt fór Framhald á bls. 7 B. E. M. Television Service r' • Factory Trained > Technicians. í • All Work Guaranteed. ' • Swift Efficient Service. Phone 75-2875 178G Logan Ave. WINNIPEG 3 "IN THE WAKE OF THE STORM" BY LAUGA GEIR, EDINBURG, N. DAKOTA, U.S.A. A Three Act Play, Based on Icelandic Pioneer Life in Norlh America. Wlll be presented by The Jon Sigurdson Chapter, I.O.D.E. On Monday and Tuesday Evenings, November 14th and 15th Concert Auditorium of the Federated Church Banning St. and Sargent Ave. This is the prize winning play in the competition sponsored by the Chapter. What You Should Know About Your Water Heating Equipment • Do you have ample hot water? • Is your water heater automaiic? • Can you depend on years of trouble-free service? • Does your tank have quick recovery? • Is your tank guaranteed for 25 years? If you have to answer NO to any of the above questions then you are not getting ful value from your present water heater. This situation can be remedied by having one of our water heating experts give you free advice on your water heating equipment—whether it be for small homes or apartment blocks. Simply contact CITY HYDRO’S MERCHANDISE BRANCH, 405 Portage Avenue, for a man to call. City Hydro’s copper water heaters consist of two thermo- stats, two immersion type water heaters and features the Everdur tank guaranteed for 25 years. No. 40 (30 imperial gallons)...*..$189.50 No. 52 (40 imperial gallons) $219.50 ---------------CLIP HERE---------------- FREE ADVICE I would like to know more about my water heating equipment. Name.............................. Address.......................-.... Mail to CITY HYDRO, 405 Porlage Avenue I I I I I I' I I I / 405 PORTAGE PHONE east of Kennedy 96-8201

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.