Lögberg - 26.01.1956, Blaðsíða 1
HAGBORG
FUEL /káz
Sole Distributors
OiLNITE LIGNITE COAL
PHONE 74-3431
HAGBORG
FUEL JfcfcL
Sole Distributors
OILNITE LIGNITE COAL
PHONE 74-3431
68. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTÚDAGINN 26. JANÚAR 1956
NÚMER 4
Risofengið fyrirtæki
Samningar hafa nú verið
undirskrifaðir um fram-
kvæmd byggingafyrirtækis,
sem hleypur upp á að minsta
kosti 45 miljónir dollara;
byggingasvæðið er í hinum
svonefnda Windsor skemti-
garði í St. Boniface, og fyrir
hönd þeirrar borgar staðfesti
J. G. Van Belleghem samning-
ana með undirskrift sinni við
Land Assembly and Develop-
ment Company Limited. Land
spildan, sem félag þetta hefir
keypt, nemur 729 ekrum og
verða þar reist 3,041 fjöl-
skyldu heimili, sem gert er
t'áð fyrir að kosti frá $9,500 til
$18,000. Þarna verða reistar
kirkjur og skólar, auk fjöl-
margra nýtízku sölubúða;
ætlast er til að fyrirtæki þetta
verði fullgert innan tveggja
ára, og er nú þegar hafin við
það vinna.
Það liggur í augum uppi, að
risafyxirtæki af þessari gerð
veiti miklum fjölda manna og
kvenna stöðuga atvinnu.
) stjórnarnefnd
Qmerísks skóldafélags
Dagblaðið GRAND FORKS
HERALD flutti nýlega þá
frétt, að dr. Richard Beck
hefði verið skipaður í stjórn-
arnefnd skáldafélagsins “The
American Poetry League,”
Tók- hann sæti í nefndinni
fyrir sérstök tilmæli dr. J. V.
Chandler, Kingsville, Texas,
sem er forseti félagsins og
þekkt skáld, en bækistöðvar
félagsins eru í Philadelphia.
Lar sem umrætt skáldafélag
hefir félagsfólk bæði í Canada
°g Bandaríkjunum, eru full-
trúar í stjórnarnefndinni úr
háðum löndunum. Útnefning
*fr. Becks er til þriggja ára.
Jafnframt því að blaðið
flytur ofannefnda frétt, fer
það vinsamlegum orðum um
fjóðagerð hans og önnur rit-
störf, og getur sérstaklega
þýðingasafna þeirra úr ís-
lenzku, sem hann hefir annast
utgáfu á, Icelandic Lyrics og
fcölandic Poems and Stories.
Israelsmenn sakfeldir
Hinn 19. þ. m., sakfeldi ör-
^ggisráð Sameinuðu þjóðanna
sraelsmenn fyrir ástæðu-
ausa og óverjandi árás á
yriu hinn 11. desember síð-
^stliðinn; í árásinni voru
immtíu og sex Syríubúar
^agnir, er svo voru illa við-
únir, að þeir svo að segja
°mu engum vörnum við.
Flytur varnarræðu
Svo sem áður hefir verið
sagt frá, veittust brezk blöð,
þar á meðal sum helztu mál-
gögn íhaldsflokksins, allþung-
lega að forsætisráðherranum,
Sir Anthony Eden, og báru
honum á brýn aðgerðarleysi
og hik, varðandi varnarráð-
stafanir til að koma í veg
fyrir þá ískyggilegu verð-
bólgu, er sýndist vofa yfir
brezku þjóðinni; ákúrum
þessum svaraði forsætisráð-
herra nýlega í ræðu og kvað
sér í léttu rúmi liggja að-
finslur, sem á engum rökum
væri bygðar, og hann sagðist
geta fullvissað þjóðina um
það, að útilokun verðbólgu
væri engu síður sitt áhugamál
en annara brezkra þegna.
ÁiiHegur skildingur
Árið, sem leið var landað
í Noregi 1,635,233 smálestum
af fiski, og nam verðmæti
aflans 600 miljónum króna;
þetta var mesta aflaár, sem
um getur í fiskiveiðasögu
norsku þjóðarinnar og hafði
djúpstæð áhrif á efnahag
hennar í heild. Hagur norskra
fiskimanna stendur nú í
meiri blóma en nokkru sinni
fyr.
St-órkostlegur eldsvoði
Síðastliðinn sunnudag kom
upp eldur í Minto-herbúðun-
um í Winnipeg, er lagði að
mestu í rústir allar þessar
miklu byggingar; eignatjónið
er metið á $600,000, og hefir
hermálaráðuneytið þegar fyr-
irskipað rannsókn í málinu.
Deildarstjóri slökkviliðsins,
Andrew Hebenton, er vann að
því að slökkva eldinn, gafst
upp, var fluttur á sjúkrahús
og lézt þar tveimur klukku-
stundum síðar.
Sæmdur gullstjörnu
Laugardaginn 5. nóvember
s.l. hélt stjórn Stúdentafélags
Reykjavíkur fund og sam-
þykkti að sæma séra Sigurð
Einarsson gullstjörnu félags-
ins fyrir framúrskarandi störf
í þágu félagsins á liðnum
árum.
Þetta er mikill heiður fyrir
séra Sigurð, ekki sízt þegar
þess er gætt, að einungis mjög
fáir menn hafa fengið þessa
viðurkenningu öll þau ár
síðan stúdentafélagið var
stofnað, eitthvað tíu — tólf
manns. Næstur á undan séra
Sigurði mun Tómas Guð-
mundsson skáld hafa fengið
gullstjörnuna, er hann varð
fimmtugur 1951.
—Suðurland
Hlýtur mikla
viðurkenningu
Séra H. S. Sigmar
Séra Haraldur S. Sigmar,
fyrrum Gimli-prestur, en nú
þjónandi prestur í bænum
Kelso, Washington, hefir ný-
lega hlotið mikla viðurkenn-
ingu meðal stéttarbræðra
sinna. Stærsta lúterska kirkj-
an í suðurríkjunum St. John’s
Iiutheran, í Salisbury, North
Carolina, sem telur um 1700
meðlimi, hefir boðið honum
að koma þangað suður til pré-
dikunarstarfs dagana 5.—11.
feþrúar n.k. Er þetta í sam-
bandi við vakningastarfsemi
þá (evangelism mission) sem
r.ú fer fram í ýmsum deildum
kirkjunnar.
Einnig hefir hann verið
kvaddur til Berkeley, Cal.,
síðustu daga þessa mánaðar
til þess að taka þátt í prakt-
isku prédikunarnámskeiði
fyrir presta. Flytur hann þar
erindi um „Flutning fagnað-
arerindisins á vorum dögum“
“Preaching for today.”
Úr borg og bygð
Make it a point to attend
the Icelandic Canadian Club
Annual Dinner and Dance at
the Marlborough Hotel, Fri-
day evening, January 27,
1956.
The program is excellent.
The guest speaker, Rev. Eric
H. Sigmar needs no intro-
duction to Icelandic audiences
for his cultural and enter-
taining talks.
Len Pattendens orchestra,
a well known dance band,
will be in attendance with
good musical items.
Tickets may be obtained at
the Columbia Press and also
at the Viking Press.
Come one. Come all — and
make this a real social event.
— TILKYNNING —
í bréfi, sem ég fékk frá ís-
landi nýverið, var mér til
kynnt, að „Menningarsjóðs og
þjóðvinafélagsbækurnar væru
á leiðinni vestur. Áskrifendur
mega því eiga von á þeim
til sín bráðlega, að ég vona.
Að dregist hefur koma bók-
anna vestur, stafar af því, að
þær komu ekki út á Islandi
fyr en undir jól.
Ýmsar fleiri bækur koma
þá líka, bækur, sem margir
vilja eiga, svo sem myndabók
um Reykjavík, sem kostar að-
eins $2.00.
Ensk-íslenzk orðabók, G. T.
■Zoega $7.00.
Dulsagnir II. $3.75.
Öndvegissúlur með teikn-
ingum eftir frú Laufey Vil-
hjálmsdóttur (móður Próf.
Finnboga Guðmundssonar), —
falleg bók og góð, kostar að-
eins $1.50, o. fl.
Björnsson's Book Store,
763 Banning St.,
Winnipeg 3, Manitoba
☆
Gefin voru saman í hjóna-
band í íslenzku lútersku
kirkjunni í Selkirk þann 19.
þ. m. þau Lawrence Thor
Indriðason og Mary Eleanor
Bolow, bæði til heimilis í Sel-
kirk. Svaramenn voru Mr. R.
I. Indriðason og Miss Wilma
Gwendolyn Walterson. Veizla
var setin að giftingu afstað-
inni að heimili móður brúðar-
innar Mrs. Blanche Bolow í
Selkirk. Sóknarprestur gifti.
☆
— DÁNARFREGN —
Látin er að heimili sínu
Framnesi í Geysisbygð í
Nýja-íslandi, þann 16. janúar,
Mrs. Margrét Símonarson,
ekkja Sigvalda Símonarsonar
landnámsmanns þar í bygð, 96
ára að aldri, merk kona og
þróttmikil. Útförin fór fram
frá kirkju Geysis-safnaðar
þann 20. janúar. Hennar mun
minst nánar síðar.
☆
Frú Marja Björnsson fór á
þriðjudagskveldið flugleiðis í
heimsókn til sonar síns, Dr.
S. S. Bjornson og fjölskyldu
hans í Wilmington, Delaware.
Hún mun einnig heimsækja
systur sína frú Kristínu Tait
og fjölskyldu hennar í Miami,
Florida.
☆
The Annual meeting of the
Jon Sigurdson Chapter IODE
will be held at the home of
Mrs. E. Isfeld 575 Montrose
St., River Heights on Friday
Eve. February 3 at 8 o’clock.
Frá G. S. Johnson
P.O. Box 217, Glenboro, Man„
15. janúar 1956
Kæri ritstjóri og útgefendur
Lögbergs:
.Ég sendi hér með Manitoba
Pool Elevator ávísun $6.11 til
áskriftarframlengingar fyrir
Lögberg (áskriftarmiðinn á
blaðinu er: „Marz 56. Guðm. S.
Johnson, Box 217, Glenboro,
Man.).
Ég gerðist kaupandi að blað-
inu í marz 1955, og rétt þar á
eftir var það minnkað um
alt að 50%. í þetta sinn þarf
ekki að minka blaðið, þó ég
framlengi fyrirframborgun að
blaðinu. Reyndar veit ég vel
að íslenzku vikublöðin í Win-
nipeg eiga í vök að verjast
með útgáfukostnaðinn. Ég vil
síður sjá blöðin falla niður,
því það þykir mér mikils
virði að fá fréttir af íslend-
ingum bæði frá Islandi og
vestan hafs. Það er eitt, sem
máske skemmir sölu á þess-
um, blöðum, Lögbergi og
Heimskringlu, að mikið birt-t
ist af sama lesmálinu í þeim
báðum — ritgerðum; — svo
við kaupum sama hlutinn
tvisvar, þegar við kaupum
bæði blöðin. Þetta stafar af
tveimur stefnum Islendinga
vestan hafs, sem hvorki eiga
samleið í trúarlegum efnum
né í pólitík. Ég hefi álitið að
þetta fyrirkomulag væri gott
og uppbyggilegt vegna þess að
þá hafa blöðin hvort í sínu
lagi meira persónugildi og
ákveðin karakter.
Nú er svo komið, að margir
hinir eldri íslendingar, sem
lesa íslenzku, ganga nú inn í
eilífðina að endaðri ævi sinni.
Bráðum verða of fáir Islend-
ingar til að halda við blöðun-
um — tveim blöðum.
Nú hefir mér dottið í hug að
blöðin ættu að skipta um lag
á hörpunni sinni með því að
sameinast í eitt frjálsi blað, —
blað, sem væri lausl við trú
og laust við pólitík, og væri
aðeins háð heilbrigðri dóm-
greind og sjálfum sannleikan-
um. Sumt sem lúterskan
kennir er ekki aðgengilegt, þó
sumt þar sé gott og gagnlegt.
Eins er Unitara-kenningin
mjög misjöfn að gæðum og er
fremur óaðgengileg íslenzku
fólki, en íslenzkt fólk er mjög
Goðahugsjónaríkt fólk og þar
með menningarlegra. heldur
en efnistignandi fólk er.
Framhald á bls. 5