Lögberg - 05.04.1956, Qupperneq 2
2
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 5. APRIL 1956
Árið 1908 virkjaði íslenzkur bóndi
hver til híbýlahitunar
Sagí frá fyrsfu tilraunum Erlendar Gunnarssonar
á Sturlu-Reykjum
Reykholtsdalur í Borgar-
firði er sögufrægur að fornu
og nýju.
Hann er einnig og verður
ein allra blómlegasta sveit á
landinu.
Þetta hafa ungu bænda-
synirnir og bændadæturnar
lengi vitað, því að þróunin
þarna er á þann veg, að í stað
þess að yfirgefa sveitina,
kaupa þau hluta úr jörðun-
um og setja á stofn sín eigin
býli og halda áfram að skjóta
rótum í fæðingarsveit sinni.
Enda hafa á síðastliðnum 20
árum risið upp 14 nýbýli í
dalnum.
í Reykholtsdal eru víða
breiðar lendur og ræktunar-
skilyrði góð.
Hverir og jarðhiti eru
hingað og þangað í landi 10
jarða og einn þeirra, Deildar-
tunguhver, er með þeim
stærstu hér á landi.
Hverareykirnir stíga í loft
upp hver í kapp við annan og
liðast yfir dalinn hvítir eins
og nýþvegin ull.
Meginið af þessari orku,
sem streymir úr iðrum jarðar,
á mannshöndin eftir að virkja
sér til hagsældar og nytja.
Súgþurrkun með hverahita
I Reykholtsdal eru nú 43
bæir og býli. 7 þeirra hafa
súgþurrkunarhlöður. En á
Sturlu-Reykjum, í Deildar-
tungu og Reykholti, hafa
bændurnir látið hverina hita
loft, sem dælt er í hlöðurnar.
Vegna yfirburða heita lofts-
ins hefir á þessum þremur
bæjum verið hirt í sumar
margtfalt heymagn miðað við
hina bæina á sama tíma, svo
að í miðjum ágúst var t. d.
Björn Jónsson bóndi í Deild-
gg§|
Erlendur Gunnarsson
artungu búinn að heyja nóg
handa skepnum sínum að
firningum meðtöldum.
Brautryð j andinn
I byrjun þessarar aldar
kom maður til sögunnar, sem
sá og skildi af brjóstviti sínu,
hve mikil nauðsyn var á, að
sveitirnar hagnýttu sér þenn-
an kraft, sem fólginn var í
jarðhitanum. Þessi maður var
Erlendur Gunnarsson, bóndi
á Sturlu-Reykjum. Árið 1908
virkjaði hann hveragufuna til
híbýlahitunar og þremur
árum seinna framlengdi hann
hitalögnina um allan Sturlu-
Reykjabæinn og steypti þá
jafnframt eldavél og leiddi í
hana gufu til þess að elda
matinn við.
Áður hafði Erlendur rætt
við ýmsa um þessa hugmynd
sína, meðal annara við verk-
fræðing og prest, hálærða
menn hvorn á sínu sviði, og
töldu þeír báðir öll tormreki
á að þetta mætti takast. En
Erlendur var þessari hugsjón
sinni trúr og kom henni
framkvæmd.
Varð íslendingur fyrsiur?
Ég hefi ekki frétt með vissu,
hvenær ítalir hófu að notfæra
sér jarðhitann til híbýla-
hitunar. En hafi Islendingar
verið á undan ítölum í þessu
efni, þá er það Sturlu-Reykja-
bóndanum að þakka.
Nú eru milli 20 og 30 hús 1
Reykholtsdal, þar á meðal
menntasetrið, hituð upp með
hveraorku. I flest þeirra hefir
heita vatnið verið leitt, en í
hin gufan.
Þórður sonur Erlendar á
Sturlu-Reykjum var hér ný-
lega á ferð og bað ég hann að
segja mér með hvaða hætti
Erlendur faðir hans hefði leiti
jarðhitann í bæinn.
Hverinn virkjaður
Frásögn Þórðar er á þessa
leið: Hverinn, sem virkjaður
var, var 26—30 faðma frá
bænum, og undan halla.
Vatnið í hvernum var á að
gizka 90—100 stiga heitt á
celsius.
Erlendur steypti yfir og
utan um augað á hvernum, þó
þannig, að vatnið rann neðst
úr steypta hólfinu út í gegn-
um vatnslás. Efst í hólfinu
var pípa, 4 þumlunga í þver,
mál, og þrýstist gufan upp 1
gegnum hana.
Gróf Erlendur síðan skurð
frá þessari pípu og heim í
bæinn og steypti hann í botn-
inn. Tók þá plötur úr sléttu
járni og skipti þeim í lengjur
og beygði þær þvers í hálf-
hring. Hvolfdi síðan lengjun-
um ofan á steyptan skurð-
botninn og steypti yfir járnið.
Fékk Erlendur á þenna
hátt 3—4 þumlunga víða pípu,
sem leiddi gufuna frá hvern-
um heim í bæinn.
Járndunkar í stað
miðstöðvarofna
Fyrsta veturinn leiddi Er-
í lendur gufuna í einn járn-
dunk, er hitnaði svo að tæp-
lega var hægt að snerta hann.
En úr járndunknum lá pípa
upp úr þaki bæjarins, og fékk
gufan þar útrás.
Þremur árum síðar leiddi
Erlendur svo hitann í flest eða
öll herbergi í bæ sínum. Not-
aði hann venjulegar vatns-
pípur og fyrst járndunka,
einn í hverju herbergi, sem
seinna voru látnir víkja fyrir
miðstöðvarofnum.
Og þá um leið keypti Er-
lendur eldavél og' leiddi í
hana gufu til þess að elda
matinn við.
Hér lýkur frásögn Þórðar.
Mikil breyting
Erlendur Gunnarsson var
fæddur 1853 og dó 1919. Hann
giftist fyrst konu norðan úr
Húnavatnssýslu. En hún lézt
að fyrsta barni þeirra hjóna
og barnið með. Seinni kona
Erlendar var Andrea Jóhann-
esdóttir af Akranesi, ættuð
lengra fram austan undan
Eyjafjöllum. Elzti sonur
þeirra, Jóhannes, tók við
jörðinni eftir föður sinn og
byggði þar myndarlegt hús
nokkru áður en hann lézt. Á
Sturlu-Reykjum búa nú 3
sonarsynir Erlendar. En alls
voru börn Erlendar og
Andreu 10, sem upp komust,
5 dætur og 5 synir.
Geta má nærri, hvort fólkið
í baðstofunni hefir* ekki fagn-
að breytingunni, sem á varð,
þegar hitinn var fyrst leiddur
í bæinn. Hefir ein af dætrum
Erlendar sagt mér, að svo hafi
hitaveitan gefizt vel, að fólk-
ið á Sturlu-Reykjum vissi
naumast af kuldunum 1918,
og var þá mesti frostavetur,
sem komið hefir á þessari öld.
Mér kæmi ekki á óvart, þótt
einhverntíma rynni upp sú
stund, að Reykdælingar reistu
Erlendi Gunnarssyni minnis-
merki og staðsettu það í tún-
inu á Sturlu-Reykjum.
Mundi það minna vegfar-
endur á íslenzka bóndann,
sem var svo framtakssamur
og hugkvæmur, að verða
fyrstur allra til þess að nota
hveraorkuna til híbýlahitun-
ar og útrýma þannig vetrar-
kuldanum. —ODDUR
—Mbl., 3. nóv. 1955
LÆGSTA FLUGFAR TIL
meí Douglas Skymasters, er hver
um sig hefir 6 skandinaviskra
manna áhöfn, sem fengiS hafa
fiugœfingu í Bandaríkjunum.
C. A. B. skrásettar, reglubundnar
flugferSir frá New York.
Þýzkalands . Noregs . Svíþjóðar
Danmerkur . Duxemburg
KaupiS far hjá næstu fertiaskrifstofu.
n /71 n
iCELAMDiCi AIRLINES
uzAaud
ÍSLANDS
31000
BAÐAR LEIÐIR
15 West 47th Street, New Yom 36
Pl 7-8585
c4lt MÓÐINS
REYNÐ NÆRF0T AÐ GÆÐUM
Það borgar sig að krefjast PENMANS vörumerki til tryggingar verðs og efnis
E
Penmans 253 hvftar; HNÉ-SfDD HNAPPALAUS
SSTUTTERMUÐ 251 eðlilegur; fp| Stuttar ErmarPenmans 253 hvítar; [ö1 Teygjuband um mitti
si-l- .!JJ 009 O U-/9T- 1-1.- LJCAXrCTrHA OSl -Sia—1 , n______________ n
ökla sídd 223 2-þráða, hvftar;
SAMSTÆÐA 222 2-þráða, eðlilegur.
SAMSTÆÐA 251 eðlilegur
BUXUR Penmans 253, hvítar
SV-NECK Penmans 2530 hvítar; öklasídd 251 eðlilegur;
Stuttar ermar 2510 eðlilegur; fj~]Hneft að framan
öklasfdd 223 2-þráða, hvftar;
222 2-þráða, eðlilegur.
, CRISS-CROSS
HNEFT að FRAMAN
E Engar ermar einhneftar, hnélcngd [TlStuttar ermar Penmans 253, hvítar
SAMSTÆÐA Penmans 253, hvítar SKYR'f UR 251, eðlilegur;
251 eðlilcgar; 223 2-þráða, hvítar
222 2-þráða, eðlilegur.
öklasídd Penmans 253 hvítar;
251 eðlilegur;
[Jj T-SKYRTUR fyrir mcnn og drengi
rnJERSEYS fyrir menn og drengi
1— slétt eða rifjuð
ffmmaná
jT) BRIEFS
fyrir menn og drengi
slétt eða rifjuð
LÉTT NÆRF0T
B4-G