Lögberg - 05.04.1956, Side 6
6
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 5. APRÍL 1956
GUÐRON FRA LUNDIs
DALALÍF
„Vertu bara róleg, Borghildur mín. Það verða
varla margar sólir af lofti, þegar hún verður
komin heim aftur. Hvar heldurðu að hún uni sér
annars staðar en þar, sem þú ert til að stjana við
hana, og sízt í þessu húsi. Þó að ég þekki þar
ekki mikið til, er það víst heldur hávært fyrir
hana eins og hún er núna.
„Ég fer að halda að Sigga gamla hafi ekki
verið svo glámskyggn yfir spilunum. Hún talaði
stundum um, að Jón ætti mæðulegt hjónaband
fyrir höndum“.
„Nei, það var áreiðanlegt að Sigga fór ekki
með neina vitleysu“, sagði Þórður. „Það er bezt
að vera ekki að álpast út í neitt hjónaband. Það
höfum við bæði séð, Borghildur. Svo skulum við
fá okkur kaffi og vera ánægð með okkar einlífi. —
Þetta lagast allt með tímanum fyrir önnu. Hún
er ólíkt hressari núna en fyrst þegar þessi ósköp
komu yfir hana“.
„Jóni verður ekki vel við, þegar hann kemur
heim“, sagði Borghildur, þegar þau voru að
drekka kaffið.
„Þú segir bæði honum og öðrum að hún hafi
farið ofan á Ós að kaupa „kram“ og ætlað að
gista“, lagði Þórður til málanna.
„Ég segi honum nú allt, sem mér dettur í
hug“.
Önnu var léttara um andardráttinn en vant
var, þar sem hún reið út dalinn. Henni fannst
hún vera að flytja úr fangelsi út í víða og fagra
veröld. Steini var sífellt að glamra um hitt og
þetta, sem fyrir augun bar, en hún svaraði því
fáu, en fannst bara dalurinn óvanalega langur.
Það var líka talsvert lengra að fara að austan-
verðu heldur en yfir ána, sagði Steini spekings-
lega, þegar hún lét í ljós, að sér fyndist þeim
ganga ferðin seint. Loksins var hún þó komin
alla leið. Hún studdi sig við Steina, meðan hún
var að komast af baki. Svo tiplaði hún heim að
kaupmannshúsinu bakdyramegin. Helga kom út
í dyrnar, og Önnu fannst hún horfa svo skrítilega
ú sig — ekki ólíkt því, að hún væri hálfhrædd
við hana. Anna spurði eftir Matthildi og Helga
var fljót að hverfa inn. Svo kom hún fram aftur
og bauð Önnu að fá sér sæti í eldhúsinu, hún
væri náttúrlega þreytt að fara svona langt, frúin
væri vant við látin sem stæði og svo eitthvað
meira, sem Anna veitti ekki athygli. Hún settist,
því að hún var orðin þreytt, en það fann hún
reyndar ekki fyrr en þessi nærgætna stúlka
minntist á það.
Loksins kom frúin fram. Hún rétti báðar
hendurnar móti gestinum og brosti fallega: „Nú
er ég alveg hissa. Ég hélt að þú ætlaðir ekkert að
hafa fyrir því að koma, og reyndar var ég ekkert
undrandi yfir því, eftir að Gróa var búin að lýsa
heilsufari þínu. En hvað það er ánægjulegt að
þú ert að hressast. Ég býst við, að það sé eitthvað
eftir af „kraminu“, þó að þú komir seint“.
„En ég er nú ekki komin til þess að verzla,
heldur til þess að vera lengi hjá þér“, sagði Anna
barnslega glöð.
„Ó, hvað það var gaman“, sagði frúin. „Þú
hefðir átt að. hafa drenginn með þér. Hann er
kúldaður allt of mikið heima. Hann ætti að koma
oftar ofan eftir. Harald langar til að hafa hann
fyrir leikfélaga. Góða, komdu nú inn í stofuna".
Steini kom nú með ferðatöskuna hennar
Gróu. Hann heilsaði frúnni og vinnukonunni með
handabandi að gömlum og góðum sveitasið. Síðan
spurði hann Önnu, hvort hann ætti að taka nokkuð
til baka. „Ekki nema góða kveðju til allra“, sagði
hún. Svo kvaddi hann og fór.
Anna sá að frúin gaf töskunni forvitnislegt
hornauga, en Steina virti hún ekki viðlits. „Nú
skil ég, hvað þú ert að fara, Anna mín. Þú ert
náttúrlega að leggja af stað suður þér til lækn-
inga, en þú ferð þó ekki ein. Jón hlýtur að fara
með þér“.
„Ég er bara að koma til þín, og ætla að vera
hérna lengi — það er að segja, ef þú getur lofað
mér að vera einhvers staðar út af fyrir mig“,
sagði Anna, en stanzaði svo. Það yrði dálítið
óþægilegt að útskýra það fyrir frúnni, hvers vegna
hún væri að breyta svona til.
Frúin spurði hana ekki fleiri spurninga, en
leiddi Önnu inn í borðstofuna og bauð henni sæti.
Sjálf stóð hún við gluggann og horfði út, eins og
hún væri að hugsa um eitthvað, sem vandráðið
væri fram úr. Önnu fannst hún svo allt öðruvísi
en hún var vön, að hún var komin að því að
spyrja hana, hvort hún væri ekki vel frísk, en
þá tók frúin til máls:
„Þú varst eitthvað lasin um daginn, áttir
bágt með svefn og eitthvað meira. Þú ættir bara
að drífa þig suður. Hér er enga bót hægt að fá við
svoleiðis. Hann gerir nú minna, hann Halldór
læknir“.
„Ég hef ekki verið vel frísk, en nú er það
allt orðið gott“, flýtti Anna sðt að segja. „Mig
langar til að biðja þig að lofa mér að vera hérna
nokkra daga, svo að ég geti jafnað Tnig til fulls“.
„Þér er það velkomið. Það er náttúrlega ekki
mikið húsrúm, en samt hlýt ég að geta rýmt til
nokkrar nætur. Það er frú Svanfríður, sem gæti
lánað húsnæði sér að meinalausu“.
„Er ekki herbergið hérna í vesturendanum
ónotað eins og vanalega?“ spurði Anna með meiri
ákafa en hún hefði viljað láta á bera. Það var
einmitt það, sem hún hafði augastað á — svefn-
herbergi foreldra hennar. Við það voru bundnar
hlýjar minningar barnæskunnar.
„Ja, ég læt gesti sofa í því, en það er lítið
um þá núna“, anzaði frúin tómlega. Svo fór hún
fram.
Anna hugsaði margt. Því var hún eitthvað
öðruvísi en hún var vön? Kannske hafði Gróa
rausað eitthvað, sem helzt hefði átt að vera ósagt,
en það kom víst Matthildi lítið við. Hún fann til
ónotalegra þreytuverkja eftir reiðtúrinn. Náttúr-
lega fengi hún strengi af óvananum. Þarna sat
Steini á hestbaki og talaði við Rósu, kærustuna
hans Sigga. Anna færði sig út að glugganum,
þegar hún sá að þau kvöddust. Hún varð að sjá
Stjarna sinn, þegar hann kæmi í ljósmál næst
hinum megin árinnar. Lílega yrði langt þangað
til hún kæmi á bak honum, þessum indæla hesti.
Villa kom nú inn og fór að breiða dúk á
borðið. Hún heilsaði Önnu með höfuðbey^ingu:
„Sælar! Þér hafið verið að ríða út í góða veðrinu.
Var það ekki indælt?" Hún talaði í þeim tón,
sem vanalega er notaður við smábörn.
„Jú, það var gaman að koma á hestbak",
svaraði Anna. Henni fannst bæði stúlkurnar og
frúin mæla sig og vega með augunum, eins og
þær sæju sig í fyrsta sinn.
Nokkru seinna settist fjölskyldan að mið-
degisverði. Kristján kaupmaður var tuttugu og
fimm árum eldri en kona hans, skinhoraður og
visinn, með úlfgrátt hár og skegg, kaldur á svip
og óþýður í máli. Flibbinn og handstúkurnar voru
harðar og hólkuðust utan um beinabera úlnliðina
og mjóan hálsinn. Frúin var hreinasta mótsögn
við mann sinn í útliti, spikfeit með undirhöku,
brún augu og hrafnsvart hár. Svipurinn og hreyf-
ingarnar voru fyrirmannlegar. Önnu fannst hún
alltaf verða lítil, þegar hún var nálægt henni —
aldrei þó eins og núna, þegar hún var svo hræði-
lega föl og mögur.
Kaupmaðurinn var úfinn í skapi og byrjaði á
því að finna að matnum, sagði að kjötifi væri illa
soðið. Frúin svaraði í sama tón, að ekki fyndi
hún að það væri seigt. Þó reyndi hún að tala
þægilega til Önnu og spurði hana, hvort færið
væri ekki hálfslæmt framan að. /
„Jú, líklega er það hálfslæmt“, anzaði hún,
en reyndar hafði hún ltíið tekið eftir því, hvort
Stjarni slapp í öðru hvoru. Hugur hennar hafði
verið svo bundinn við þessa breytingu, sem fram
undan var, að hún gætti einskis annars.
Samtalið gekk stirt þangað til talið barst að
Gróu.
„Hvernig fellur þér við hana?“ spurði Matt-
hildur. „Hún þótti nú hálfgerð málaskjóða hérna,
skinnið. En hún þvoði vel. Nú, mér féll svo sem
ekkert illa masið í henni“.
„Hún er prýðishjú“, sagði Anna. öðruvísi
vitnisburð gáfu þau hjónin engu hjúi sínu.
„Svo-o-o. Þér fellur nú við allar þínar stúlkur.
Ég vildi að ég væri eins heppin með vinnukon-
urnar og þú“, sagði frúin brosandi. „En það eru
nú kannske dálítið öðruvísi verk, sem þarf að
vinna í kaupstað eða sveit. Allar manneskjur
geta þó lært að mjólka kýr og raka hey og spinna
skammlaust band. Og svo held ég að þið sveita-
konurnar séuð ákaflega mikið óvandlátari við
stúlkurnar en við. Það fannst mér móðir mín
vera“.
„Kannske þú álítir að það sé ekkert, sem þarf
að gera í sveitinni, annað en að raka á sumrin og
spinna á veturna“, gégndi kaupmaðurinn konu
sinni. „Það er heldur ekki sama, hvernig þau verk
eru unnin“.
„Ég er víst ekki ókunnug sveitastörfum, sem
er alin upp í sveit“, anzaði frúin stuttlega.
„Það þarf mikið fleira að gera“, sagði Anna
brosandi, „sífelldir þvottar og svo þjónustu-
brögðin á karlmönnunum, sem eru mikið meiri í
sveitinni en hérna í kaupstaðnum“.
„Jæja, það er nú svona, Anna mín, ég hef nú
tvær vinnukonur. Þær þykjast alltaf vera slit-
uppgefnar. það væri víst óhugsandi, að þær hefðu
tíma til að spinna eina einustu snældu, hvað þá
meira. Nú er heimilisfólkið mikið færra hér en
hjá þér, svo að eitthvað hlýtur að vera minna að
gera eða fleira sett til hliðar í sveitinni".
„Ég hef þrjár stúlkur og bæti stundum þeirri
fjórðu við að vetrinum, þegar mikið liggur á að
koma upp vef, og svo vinnur Borghildur á við
tvær“.
„Einmitt það, þá breytist nú dæmið þó
nokkuð. Þú hefur þá fjórar vinnukonur og stund-
um þá fimmtu. Það er hægt að gera anzi mikið
með þeim hóp. Annars þarf ég að minnast á Borg-
hildi við þig seinna. Hún hefur oftast verið með
þér, þegar þú hefur komið, og gætt þín eins og
smábarns, svo að ég hef ekki komizt að með eitt
orð nema við ykkur báðar“.
„Hvað skyldi það nú svo sem vera?“ hugsaði
Anna. Matthildur var undarlega íbyggin á svip-
inn núna. Líklega var hún í slæmu skapi •—
kannske eitthvað milli hjónanna. Gróa sagði, að
hjónabandið væri hálfkaldranalegt.
Kaupmaðurinn stóð upp frá borðinu og fór
burt, án þess að þakka konu sinni með einu orði
fyrir matinn — því síður með kossi .Reyndar var
það sjálfsagt ekki eftirsóknarvert að kyssa svona
gamlan og kaldlyndan mann. Það hlaut að vera
óskemmtilegt fyrir svona unga og fallega konu.
Litlu bræðurnir höfðu ekkert fyrir því heldur að
þakka móður sinni fyrir sig, heldur fóru þeir
út að glugganum og aðgættu, hvað úti fyrir væri
að gerast meðal leikfélaganna, sem þeir höfðu
skilið við fyrir stundu síðan.
„Þarna bíður Bjössi eftir þér til að geta rifist
við þig. aftur“, sagði yngrL bróðirinn, Hákon.
Þá tók Haraldur rauðan, nýjan blýant úr vasa
sínum og hélt honum á milli fingranna fast við
rúðuna, sigri hrósandi á svipirpi.
„Svínið þitt!“ var þá orgað úr strákahópnum-
„Þarna ertu með blýantinn minn — fáðu mér
hann undir eins“. Dálítill snáði nálgaðist glugg'
ann, auðsjáanlega hamslaus af bræði. Þá stakk
Haraldur blýantinum í vasann og hló framan í
félaga sinn.
„Haraldur, reyndu að fá Bjössa blýantinn eða
ég tala við hann pabba þinn“, var þá allt í einU
sagt með rödd, sem Anna kannaðist við Það var
Siggi Daníels.
Haraldur opnaði gluggann til hálfs og kallaði
út: „Haltu kjafti, Siggi! Þér kemur þetta ekkert
við, slettirekuræfillinn þinn“.
Anna andvarpaði: Drottinn minn, hvað börnin
læra ljótt orðbragð hér í kaupstaðnum“.
„Ó-já, það eru nógu margir kennarar í þeirri
námsgrein“, sagði frúin. „Mér finnst nú að svona
lagað komi Sigurði lítið við. Það er bezt að láta
þá tvo eina um það. En hann hagar sér nú alltaf
eins og götustrákur, og er það líka að upplagi •
„Siggi er ágætur“, sagði Anna. „Ég var næst-
um búin að gleyma því, að ég ætti þar kunningja
hér í kaupstaðnum“.