Lögberg - 30.08.1956, Page 4

Lögberg - 30.08.1956, Page 4
4 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 30. ÁGÚST 1956 Lögberg Gefið út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA , Utanáakrif ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram The "Lögberg” is published by The Columbia Press Limited, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada Printed by Columbia Printers Limited Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa PHONE 74-3411 Ólíkar starfsaðferðir Sinn er siður í landi hverju segir hið fornkveðna og á þetta engu síður við um starfsvenjur á vettvangi stjórn- málanna en öðrum sviðum mannlegra athafna. Á Bretlandi hinu mikla, er framarlega stendur að stjórn- arfarslegri þróun, sitja stjórnir, sæti þær engum sérstökum áföllum, fjögur ár við völd í senn, en hafa fimm ára stjórn- skipulegt leyfi til valdameðferðar ef svo býður við að horfa, þó óalgengt sé að þær noti sér það. Einu sinni á ári, síðla sumars eða snemma hausts, halda megin þingflokkarnir brezku ársþing sín svo sem til að kynnast því, þó ekki sé nema að litlu leyti, hvernig í hátt- virtum kjósendum liggi, hvort þeir séu í sólskinsskapi, eða allra veðra geti verið von; á þingum þessum eða flokks- fundum, eru stefnuskrár flokkanna endurskoðaðar, sléttað yfir ábærilegustu misfellurnar og nýjum hylliboðum hampað framan í háttvirta kjósendur, og er þá vitaskuld til Iþess ætlast, að þeir allra auðmjúklegast segi já og amen við öllu, sem á borð fyrir þá er borið; þessir fundir, þótt haldnir séu einungis einu sinni á ári hafa að minsta kosti talsvert skemti- og kynningargildi, og eru til umræðu í borg og bygð löngu eftir að þeim var slitið. Nokkuð öðru máli skiptir, er nágrannar vorir sunnan landamæranna eiga í hlut; við lok tveggja ára fara fram almennar kosningar til neðri málstofu þjóðþingsins í Washington, auk þess sem þriðjungur öldungadeildar verður þá að fá nýtt eða endurnýjað umboð. Við slíkar kosningar er sjaldnast mikið um að vera, þær eru haldnar hávaðalítið, eða svo að segja hávaðalaust; það er því ekki í rauninni fyr en framboðsþing Demokrata og Republicana koma til sög- unnar að lifna tekur eitthvað í skákinni, því þá skal velja forseta- og varaforsetaefni og þá gefst háttvirtum erindrek- um allra náðarsamlegast kostur á að virða fyrir sér ásjónu leiðtoganna, er sett höfðu sér það markmið, að gæta vel- farnaðar þeirra næstu fjögur árin. Og hvað voru nokkrir svitadropar og hvað voru nokkrar vökunætur í samanburði við þann óumræðilega fögnuð, sem klæðafaldssnertingu gat orðið samfara? Framboðsþing eru, svo sem vitað er, um garð gengin, mannmörg og sögurík um margt; en þó þar væri vitanlega um að ræða tvær greinar af sama stofni, voru þær þó með mismunandi litblæ; yfir þingi Demokrata hvíldi eldlegur framsóknarandi með skýrmótuð stefnumið, þar sem innan- ríkis og utanríkismál voru tekin föstum tökum án hlið- sjónar af því hvað falla kynni bezt í kramið, er að kosninga- borðinu kæmi; þing Republicana minnti á ládeyðu, þar sem limirnir sýndust dansa viljalausir eftir höfðinu þakklátir yfir því, að fá að fljóta með. Hvernig Republicanaflokknum reiðir af í nóvember- kosningunum er vitaskuld enn á huldu; flokkurinn nýtur auðsjáanlega hvergi nærri þess fylgis með þjóðinni sem já- bræður hans láta í veðri vaka. Brezkur, pólitískur spásagnarandi, D. W. Brogan, lét ný- verið þannig ummælt, að sér þætti líklegt, að Eisenhower ynni kosningu, þó telja-mætti víst, að Republicanar mistu hald í báðum þingdeildum. Enn leggur ljóma út frá nafni Eisenhowers sem hinnar miklu sigurhetju í síðustu heimsstyrjöld, en hvort sá ljómi nægi honum til endurkosningar í haust getur orðið álitamál; og víst er um það, að í ráðherravali er síður en svo að honum hafi tekist giftusamlega til. Að meta góða menn og manngildi þeirra, er engin dygð, heldur hrein og bein skylda; að persónukostir Eisenhowers forseta séu að makleikum metnir, er drengilegt og virðingar- vert; en persónudýrkunin getur gengið langt, of langt, og orðið að dýrkun annarlegra guða og hefir þá illa tekist til; dómum um menn og málefni verður jafnan að stilla í hóf og sannmat lagt á orð og athafnir. Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá, og af ávöxtunum verða menn að læra að þekkja Eisenhower forseta sem stjórn- málamann, hvað sem lýðhylli hans og öllu öðru viðkemur. Bandaríkjaþjóðin er sterk og voldug forustuþjóð, og hún þarf á sterkum forustumönnum að halda. Eitt elzta hús íslands brennur til kaldra kola Margt manna í húsinu, er eldurinn kom upp. Litlu var bjargað — nær engu óskemmdu Eitt allra elzta húsið á ís- landi, stóra timburhúsið „Búðin“ á Raufarhöfn, brann til ösku á skömmum tíma á sunnudagsmorguninn. Varð litlu bjargað. En í húsinu bjó eigandi þess Einar Jónsson hreppstjóri, fréttaritari Mbl. á staðnum. Auk þess voru þar um 50 síldarstúlkur, sem unnu hjá Söltunarstöðinni Óðinn. — Stórhýsi þetta, setti mikinn svip á hið litla þorp, og er Raufarhöfn mun svipminni á eftir, þegar aðeins sjást kol- svartar rústir þessa stóra húss, sem flutt var til Raufar- hafnar árið 1832 frá Jótlandi. En talið er að það hafi verið byggt þar á dögum Hansa- kaupmanna. Margar síldarstúlkur voru í húsinu Eldurinn kom upp í rishæð hússins um kl. 2.30 á sunnu- daginn. Þar uppi bjuggu síld- arstúlkur. Mun þar hafa gleymst straumur á rafsuðu- plötu. Hið gamla hús varð al- elda á undra skömmum tíma. Vindur stóð á suðurhlið þess. Síldarstúlkurnar voru ekki allar að störfum og m. a. sváfu sumar. Mátti ekki tæpara standa að stúlkurnar kæmust út hjálpar- og slysalaust. Voru sumar fáklæddar. Munu nær því allar síldarstúlkurnar hafa misst allan sinn útbúnað, sem þær tóku með sér í verið. Auk þess munu þær hafa tap- að peningum, vinnulaunum sínum, en hve almennt það var meðal þeirra var ekki vitað í gær. Mikið íjón Einars hreppstjóra Einar Jónsson herppstjóri, sem rak verzlun sína í húsinu og bjó þar sjálfur með fjöl- skyldu sína varð fyrir mjög tilfinnanlegu tjóni. Það sem bjargaðist út af innbúi hans, varð fyrir meiri og minni skemmdum við þann flutning. Einnig það af vörunum sem bjargað var, mun mikið hafa skemmzt. Er ekki vitað hve mörg hundruð þúsundum króna brunatjónið nemur. Húsið var vátryggt en innan- stokksmunir og annað mun ekki hafa verið fulltryggt. Skemmdir minni en við hefði mátt búast' Á Raufarhöfn er það al- menn skoðun manna, að það gangi kraftaverki næst að ekki skyldi hljótast miklu meira tjón í bruna þessum. Brunadælur eru ekki til í þessu litla þorpi. Síldarverk- smiðjan á lausa dælu, ekki sérlega kraftmikla. Þá komu fjögur síldveiðiskip að bryggju í námunda við „Búðina“, og voru dælur þeirra settar í gang. Ekki var til neins að ætla sér að kæfa eldhafið, sem var óskaplegt skömmu áður en húsið féll, en það var aðeins um hálfum öðrum klukku- tíma síðar. — Slökkvistarfið beindist að því að verja mik- inn síldarbragga Óskarsstöðv- arinnar, síldartunnulager, þar sem uppsaltaðar tunnur voru í stórum flekk, og svo bryggj- una. — Og með dælum skip- Dánarfregnir Edgar J. Ransom, sem lengi var forstjóri Columbia Press Ltd., og einn af stofnendum ensku Unitara kirkjunnar í Winnipeg lézt í Ottawa 23. ágúst. Hann var listrænn og kunnur fyrir snild sína í leturgrefti og prentmynda- gerð. Lætur eftir sig ekkju, tvo sonu og dóttur. ☆ Mrs. Margréi Anna I. Ólafs- son, dó á föstudaginn 24. ágúst að heimili sínu 387 Queens, St. James, 60 ára að aldri. Hana lifa eiginmaður hennar, Ólafur; tvær dætur, Mrs. Charles Kydd og Mrs. Roy Webster; tveir synir, Narfi og Alfred. Dr. Valdimar J. Ey- lands flutti kveðjumál í Bardals útfararstofunni á mánudaginn. Jarðað var í Chapel Lawn grafreitnum. ☆ Mrs. Lillian Grace Einars- son, 606 Alverstone St., Win- nipeg, lézt á miðvikudaginn 22. ágúst, 72 ára að aldri. Hún lætur eftir sig tvo sonu, A. Murray og Walter James; þrjár dætur, Etta Einarsson, Mrs. Laura Charles og Mrs. J. H. Murray; ennfremur sjö barnabörn. Hún var lögð til hvíldar í Brookside grafreitn- um á laugardaginn. ☆ Oddur Brandson. 972 Minto St., hér í borg, lézt á Almenna sjúkrahúsinu 23. ágúst. Hann var 78 ára að aldri; hafði dval- ið í Winnipeg um 45 ára skeið og stundað trésmíði og húsa- byggingar. Hann lifa ekkja hans, Ásgerður; þrír synir, Karl, Björn og Ásgeir. Hann var jarðsunginn á mánuda^- inn af séra Philip M. Péturs- syni og lagður til hvíldar í Brookside grafreit. ☆ Sigurihor Maiihías Hen- rickson, fyrrum í Winnipeg, en um alllangt skeið í Chicago, lézt þar í borg á mánudaginn, 20. ágúst og var jarðaður þar. Hann var í 23. herdeild cana- diska hersins í fyrri fteims- styrjöldinni. Hann lifa kona hans, þrjár dætur, Mrs. Wright, Mrs. G. Haines og Mrs. R. Jensen; tveir bræður, Wilhelm og John, og ein systir, Fredericka. anna og síldarverksmiðjunn- ar, vatnsburði síldarfólks, sem fljótlega safnaðist til hjálpar, tókst að verja síldarbraggann, tunnurnar, og skemmdir a þeim lager munu ekki telj- andi, og loks sjálfa bryggjuna. Síðar um daginn kom varð- skipið Þór til Raufarhafnar og bæfði í rústunum að mestu með kraftmikilli dælu, sem varðskipsmenn fluttu á land. Flult í barnaskólann Strax í gærkvöldi var farið að koma fólkinu, sem í brun- anum hafði misst allt sitt, fyrir og sýndu allir mikla hjálpsemi við það og lánaði fólk sængurfatnað, dýnur og fleira, svo hægt var að skjóta skjólshúsi yfir allt fólkið, en á Raufarhöfn var hver smuga setin. Barnaskólinn var feng- inn fyrir fólkið. ----0---- í gær munu allmargar síld- arstúlkur, sem í brunanum lentu hafa haldið heim. Full- trúi sýslumannsins á Húsavík, var á Raufarhöfn í gær við rannsókn brunans. —Mbl., 24. júlí — Þér ættuð að reyna að komast heim, sagði nætur- vörðurinn við augafullan ná- unga, sem var að basla við að finna skráargat á ljóskers- staur. — Hér býr enginn maður. — Góði maður! Þér hljótið að hafa fengið yður of mikið neðan í því. Sjáið þér ekki að þarna uppi logar Ijós — eða hvað? "Betel" $180,000.00 Building Campaign Fund ----—180 —160 —140 —120 Make your donations to tbo "Beiel" Campaign Fund. 123 Princess Street, Winnipeg 2.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.