Lögberg - 27.09.1956, Blaðsíða 5

Lögberg - 27.09.1956, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 27. SEPTEMBER 1956 5 V W W 'w 'w W'NFV ÁIÍIJ6AMÁL IWENNA Ritstjón: INGIBJÖRG JÓNSSON Misjafnir gestir Vorið var komið. Snjórinn hafði hörfað burtu af fjalls- hlíðunum, og sólin stráði §eislum sínum yfir fólkið, sem var að vinna úti á túninu. Húsfreyja var ein inni að §egna búverkum. Allt í einu kemur dóttir hennar, 7 ára gómul, hlaupandi inn. Hún •er rjóð í andliti og er auð- sjáanlega mikið niðri fyrir: »Mamma, mamma!“ segir hun, „það er kominn hingað goður gestur; hann heilsaði mér, eins og hinu fólkinu.“ Það var ánægjulegt að sjá barnslegu gleðina, sem skein Ur andliti litlu stúlkunnar yfir þessum mikla heiðri, er henni fanst sér hafa verið 0uðsýndur. Móðir hennar brosti. — Ef til vill hefir hún einnig hugsað, að það gæti alls ekki verið slæmur gestur, sem sv° mjög hafði glatt barnið hennar. Þrjú ár eru liðin. Enn er komið vor með sól og fagurt veður, og nýgræðingurinn er Þegar tekinn að teygja upp graenan kollinn. Maður sézt á §angi úti. Það er bóndi. Hann er á heimleið. Áður en hann bverfur inn nemur hann þó skyndilega staðar og horfir lnn eftir veginum fyrir norð- an bæinn, eins og ætti hann v°n á einhverjum þaðan. En inni í lokuðu herbergi situr lítil stúlka, á að gizka 10 Ura gömul, með bók í hönd- Um og keppist við að lesa. Hefði gesturinn, sem kom að Þessum sama bæ fyrir þrem arum síðan, séð hana, myndi hann eflaust hafa þekkt, að Pað var sama stúlkan, er hann hafði heilsað þar úti á túninu. En nú hefir hún allan hug- ann við lesturinn. Það er líka eðlilegt, því að í dag á að Verða próf þar á staðnum. Eitla stúlkan hugsar til þess P^ófs bæði með von og kvíða. Hún veit að vísu, að hún er ekki sem verst að sér, því að Un hefir verið iðin og kapp- sóm að læra og hefir gaman af náminu. Sérstaklega er það Pó réttritunin, sem hún ann, Pótt hún sé ung, enda er það ezta námsgreinin hennar. En itla stúlkan er afar feimin; ón hefir heldur aldrei verið Pnófuð fyrr. Hún er svo r*dd um, að hún muni tspa sér í viðurvist prófdóm- arans, sem hún hefir aldrei séð. En það er metnaður í enni og hana langar að standa sig sem bezt. — Vel getur þetta þó gengið allt saman vel. Vera má líka, að Prófdómarinn taki tillit til pess, er hann fer að meta kunnáttu hennar, hvað hún hefir verið feimin, því að sjálfsagt er hann ákaflega góður og mikill maður, og réttsýnn, úr því að hann er prófdómari. Þegar prófið er afstaðið, ætlar hún að fara út að leika sér, því að til þess hefir hún engan tíma gefið sér ennþá í dag. En hvað það verður gaman! Nú heyrist hundgá mikil úti. Prófdómarinn er að koma. Honum er boðið til stofu og kallað er á börnin. Þar á próf- ið að fara fram. „Það er bezt að láta þau byrja á því að lesa,“ mælti prófdómarinn. Rómur hans var kaldur og strangur, og ósjálfrátt kipp- ist litla stúlkan við og skelfist, er hún heyrir hann. Þegar börnin hafa lesið sína grein- ina hvert, er byrjað að spyrja þau út úr náttúrufræði, landa fræði, kristnum fræðum o. s. frv. Síðast eru þau látin gera íslenzkan stíl. Prófdómarinn les sjálfur upp stutta sögu, eina og eina setningu í senn, og börnin skrifa þær jafn- óðum. „Eruð þið búin?“ segir prófdómarinn með óþýðri, skipandi röddu, eftir að hafa þagað andartak, við lok hverr- ar setningar, og börnin flýta sér sem mest þau mega. Ein- hvern veginn finnst þeim þau alt af vera að skrifa, og próf- dómarinn sí og æ að reka á eftir sér. Litla stúlkan ætlar samt að reyna að vanda sig sem mest, en hún er svo skjálfhent, að stafaleggirnir verða allir í ótal-hlykkjum. Henni finnst þessi stíll aldrei muni enda taka. „Lesið þetta svo einu sinni yfir,“ mælti prófdómarinn þó loks stutt- lega og skellti aftur bókinni, sem hann hafði lesið upp úr. Litla stúlkan fletti við blaðinu sínu, sem var útskrifað, og hjartað kipptist til í brjósti hennar. Þarna sá hún strax orð í annari línu , er var skakkt skrifað. Það var orðið „hans“. Hún hafði í ógáti ritað það með tveimur n-um. Það kom hryggðarsvipur á andlit henn- ar. Hún, sem hafði vonað svo heitt, að stíllinn sinn yrði að mestu villulaus. En allt í einu glaðnaði yfir henni aftur. Hún gat bætt úr þessu; Það var ekki annað en setja stryk yfir aukastafinn. Það gerði hún. Nokkru neðar á blaðinu sá hún annað orð, sem ækki var heldur rétt skrifað. Hún lagaði það einnig með sama hætti. Nú fékk prófdómarinn stílabækurnar til yfirlits. Síð- ast tók hann bók litlu stúlk- unnar. „Það vildi ég að guð Fréttir fró Gimli, 24. september. 1956 Miss Sigríður Hjartarson (fyrverandi forstöðukona á Betel) og móðir hennar, Mrs. Sigrún Hjartarson, frá Steep Rock, komu heim úr skemti- ferð til íslands 1. ágúst s.l. Ferðalagið hafði verið mjög ánægjulegt. Skemtilegt að hitta frændfólk og kunningja. Það var góðviðrasamt á Suðurlandi, og hafði land og þjóð sýnt þeim mæðgum sitt bezta. Allir á Betel eru glaðir að fá Miss Hjartarson hingað aftur. Miss Hjartarson segir, að það sé gott að koma heim aftur. ' -------0---- Mrs. June Booth, frá Victoria, B.C., ásamt tveim ungum dætrum, hefir dvalið hjá foreldrum sínum, Mr. og Mrs. Stanley Einarson, Gimli, s.l. tvo mánuði. Hún lagði af stað heim til Victoria 13. þ.m. ----0---- Miss Lorraine Mae Sigurd- son og Thomas Ingvar Thomp- son voru gefin saman í hjóna- band í lútersku kirkjunni að Arnes, Man., 15. þ. m. Séra gæfi, að ekki verði nú margar villur í honum,“ andvarpaði hún í huganum. Hún gaf próf- dómaranum nákvæmar gæt- ur, þar sem hann leit yfir bókina. Tvisvar sá hún hann þrífa ritblýið, er lá hjá honum á borðinu, og hún heyrði hann segja, að tvær villur væru í stílnum. „Hamingjunni sé lof að ég skyldi taka eftir hinum tveim- ur; annars hefðu þær orðið helmingi fleiri,“ hugsaði litla stúlkan. Snögg tilhneiging knúði hana, þó að hún væri feimin, til að færa sig hægt í áttina þangað, sem prófdómarinn hafði lagt frá sér opna bókina hennar, unz hún sá á síðuna. Henni brá illa. Þvert yfir strikin, sem hún sjálf hafði dregið yfir aukastafinn, hafði prófdómarinn sett tvö önnur stór, svört strik. Var það mögulegt, að þetta væru vill- urnar, er hann talaði um? Eins og í leiðslu fletti hún við blaðinu; hvergi annars staðar hafði neitt verið íeiðrétt í stílnum. Þótt hún væri ung, þá fann hún þegar, að þetta var ekki rétt af prófdómaran- um, að telja það villur, sem hún sjálf hafði séð og lagfært. Ný tilfinning vaknaði í sak- lausu barnssálinni hennar. Tilfinning, sem þar hafði al- drei verið fyrr. Það var kali til prófdómarans, er hafði beitt hana ranglæti. Prófinu er lokið. Börnunum er leyft að fara. En litla stúlk- an finnur nú enga löngun hjá sér til að hlaupa út í góða veðrið, eins og hún hafði áður hugsað sér. Hið barnslega traust hennar á mennina er lamað. Vonir hennar hafa brugðist. Vorgleði hennar er spillt. Bragi Friðriksson gifti. For- eldrar brúðarinnar eru Mr. og Mrs. Sigurður Sigurdson að Arnes. Brúðarmeyjar voru Miss Inga Sigurdson, Miss Margaret Sigurdson, systur brúðarinnar, og Miss Frede- rica Peterson. Aðstoðarmaður brúðgumans var Magnús Thompson, bróðir hans. Til sætis leiddu Thor Thompson, bróðir brúðgumans, og Jimmie Bortowski. Foreldar brúð- gumans eru Mr. og Mrs. P. G. Thompson að Gimli. Faðir brúðarinnar leiddi hana að altarinu. Mrs. I. Peterson var við hljóðfærið, Mrs. A. Thor- steinsson (frá Húsavík) söng einsöng. Að afstaðinni hjóna- vígslunni var setin vegleg veizla í Arnes Hall. — Ungu hjónin fóru í brúðkaupsferð til Bandaríkjanna, en setjast svo að í Churchill, Man. ----0---- Kveldlestrar-klúbburinn á Gimli hafði kaffiheimboð fyr- ir séra Braga Friðriksson og frú Katrínu s.l. fimtudag, að heimili Kristínar Thorsteins- son. Skemt var með upplestri, og var séra Braga afhent minningargjöf minningu um í þakklátri hans góðu og skemtilegu uppfræðslu í ís- lenzkum bókmentum s.l. vet- ur. — 17 manns sátu þetta kveðjusamsæti. ----0---- Árdals safnaðarkvenfélagið frá Árborg kom til Betel 14. þ.m. með rausnarlegar veit- tingar og peningagjöf. Séra Bragi Friðriksson og frú Katrín voru gestir á Betel þennan dag, og tók presturinn á móti gestum og þakkaði fyrir heimilisins hönd kom- una, einnig sagði Mrs. Tallman nokkur orð/ Það var íslenzkur söngur til skemtunar og upp- lyftingar, eins og söngur ætíð er. Mrs. Krislín Thorsteinsson -L DÁNARFREGN — Sunnudaginn hinn 16. þ.m., lézt á Betel að Gimli, Mrs. Guðrún T. Sigurðsson 91 árs að aldri, er átt hafði heima í hún lætur eftir sig eina dóttur, Manitoba síðastliðin 60 ár; Mrs. S. B. Stefánsson, og eina systurdóttur, Mrs. Hannes Anderson. Útförin var gerð frá Betel á fimtudaginn. — Séra Bragi Friðriksson jarð- söng. KAUPIÐ og LESIÐ —LÖGBERGI ii v JANE ASHLEY segir: ETIÐ CROWN BRAND SÝRÓP sem inniheldur fjörefni fram yfir aðrar fæðutegundir." CROWN BRAND hefur 93 próc. af ekta sykurreyr, 6 próc. hreinstillt sýróp, 1 próc. tilbúinn sykur. Þetta bragðgóða og sæta ofanálag hefur aukafæðu fjörefni fyrir þá, sem vilja megra sig. Notið það ofan á pönnukökur, soðin hrísgrjón, með morgun- matnum, með því að smyrja það ofan á brauð tóst, svo er það einnig gómsætt fyrir eftirmat. Gufusoðinn súkkulaðs búðingur % bolli kakó. 2 matskeiíSar MAZOLA 1 bolli sigtað hveiti. matarolía. Vt, teskeið salt. 1 egg, slegitS. Yt teskeiS lyftiduft. % bolli CROWN % bolli strausykur. BRAND korn-sýróp. Yí teskeitS vanilla. 2/3 bollar heit mjólk. Hræra vel saman öll þurefnin fyrst. Hræra svo út í þaS MAZOLA, egg, CROWN BRAND korn-sýróp, vanilla og mjólk. HræritS svo allt vel saman. LAtiS það síðan í sex smáglös eða form og byrgiS þau vandiega. LátiS glösin síðan i vatnskatla þumlungs djúpa af vatni. Gufusjóðið það svo i klukkutima. Berið þaS á borð meS heitri sósu. Áætlun fyrir sex. RÁÐLAGT SEM MJÓLKURBÆTIR FYRIR BÖRN

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.