Lögberg - 20.12.1956, Qupperneq 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 20. DESEMBER 1956
Lögberg
GeflO út hvern íimtudag aí
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
303 KBNNEDY STREET, WINNIPEG 3, MANITOBA
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 303 Kennedy Street, Winnipeg 3, Manitoba
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Skrifstofustjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
The “Lögberg” is published by The Columbia Press Limited,
303 Kennedy Street, Winnipeg 3, Manitoba, Canada
Printed by Columbia Printers Limited
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
PHONE 93-9931
Jólin í nónd
Um þær mundir, sem þetta eintak af Lögbergi berst les-
endum í hendur, er jólahátíðin í þann veginn að verða hringd
inn, innihaldsríkasta friðarhátíðin á þessari jörð, og vér
fögnum henni sem hátíð gleðinnar eins og stendur í sálmin-
um, þótt umhorfs sé dapurlegt víða, því einmitt þegar þannig
stendur á, er þörfin brýnust fyrir bjartsýni og óhvikult
lífstraust.
Að standa eins og foldgnátt fjall
í frerum alla stund,
hve mörg sem á því skruggan skall,
sú skyldi karlmannslund. —
Fyrirmyndina má sækja til meistarans frá Nazaret, er
var jöfnum höndum ímynd hins eilífa kærleika og hinnar
karlmannlegu hetju, sem hvorki óttaðist kvalir né krossdauða;
mannhelgin, þessa heims og annars, var fyrsti og æðsti liður-
inn í stefnuskrá hans. —
Sú staðreynd verður vissulega eigi umflúin, að umhorfs
sé dapurlegt víða; viðsjár miklar hafa teflt í tvísýni æski-
legum friði í Miðaustri; kynþáttadeilan í Suður-Afríku hefir
vakið hvarvetna ótta og ugg og hliðstæða sögu má segja, þótt
í annari mynd sé, af hjaðningavígunum í Algeriu; en átakan-
legasta harmsagan verður þó vitaskuld sú, sem gerzt hefir og
er enn daglega að gerast í Ungverjalandi, sem er í öllum
atriðum þyngri en tárum taki; frelsisþrá þjóðarinnar leitaði
framrásar í byltingu gegn rússneskum kúgunaröflum, þar
sem horfst var í augu við eld og dauða með slíku hugrekki,
er jafan mun talið aðdáunarvert; í fyrstu var svo að sjá
sem frelsisfylkingarnar myndu ganga sigrandi af hólmi, því
þær skutu æ dýpri og dýpri rótum í vitund þjóðarinnar; en
eigi leið á löngu unz eiturormar afkristnaðs Rússlands, sendu
lestir skriðdreka inn í Budapest, er ýmist limlestu eða stein-
drápu þúsundir saklausra manna, kvenna og barna, er það
eitt höfðu til sakar unnið, að verja á opinberum vettvangi
heilög mannréttindi sín; þessar baráttuhetjur voyu ofurliði
bornar, þúsundir flýðu land og leituðu haölis innán vébanda
Austurríkis þar sem þeim var göfugmannleg viðtaka veitt;
þúsundir voru fluttar í sóðalegum þrælavögnum til Síberíu-
vistar, en þaðan eiga, ef sagan endurtekur sig, fáir aftur-
kvæmt.
Nú hafa margar þjóðir, þar á meðal Canada, opnað
drengilega hlið sín fyrir flóttafólki frá Ungverjalandi, sem
nú fagnar því að eiga þess kost að deila örlögum við canadisku
þjóðina og þær aðrar þjóðir, er heitið hafa því lífsöryggi og
landsvist; fyrstu hópar þessara óvæntu innflytjenda eru nú
komnir hingað til lands og þar á meðal hreint ekki svo fáir
til Manitoba; hefir þessum píslarvottum mannréttindabar-
áttunnar verið hvarvetna vel fagnað svo sem vera bar; þeim
hafa verið fengin hlý skjólföt til afnota, vistlegt húsnæði og
holt fæði; hafa stjórnarvöld og einstaklingar svarist í fóst-
bræðralag um það, að útvega hinum nýkomnu bræðrum
vorum atvinnu og koma þeim á fastan kjöl í canadísku þjóð-
lífi; þetta er í drengilegu samræmi við anda jólanna og þann
grundvöll réttlætis, er meistarinn sjálfur lagði.
Samstiltar blessunaróskir streyma vitanlega að hinni
hugprúðu, ungversku þjóð nú um jólin; um ofsóknarmenn
hennar, sem týnt hafa úr hjörtum sínum sjálfum jólaboð-
skapnum, getur maður í rauninni ekki annað en kent í brjósti
um. —
Á Skólavörðustígnum í Reykjavík stendur listasafn
Einars Jónssonar frá Galtafelli; húsið er sérkennilegt að
byggingarstíl hið ytra og verður manni ekki síður minnis-
stætt er inn úr dyrunum kemur; listaverkin sem við augum
blasa verða eftirminnilég, þó ekki hvað sízt Kristsmyndin,
sem býr yfir tiginni, dramatískri fegurð; með slíka mynd í
huga er auðvelt að óska vinum sínum gleðilegra jóla, því til-
gangur þeirra verður fyrst og fremst að búa í hjartanu.
Frá Glenboro, Manitoba
Glenboro Lutheran
Ladies Aid
Glenboro Lutheran
Men’s Club,
Mr. & Mrs.
P. A. Anderson,
Mr. S. A. Anderson,
Mr. & Mrs.
T. E. Oleson,
Mr. & Mrs.
Arni Josephson,
Mr. & Mrs.
Albert Sigmar,
Mr. & Mrs.
S. E. Johnson,
Mr. & Mrs.
O. Olafson and Sig.
Hallgrimson, 30.00
Mr. & Mrs. A. S. Arason, 30.00
Mr. & Mrs.
R. Lloyd Einarson, 30.00
Glenboro Lutheran
Sunday School, 25.00
Glenboro Lutheran
Ladies Aid, Memorial
wreath fund,
In memory of Ellis
Sigurdson, 25.00
Mr. &Mrs. G. J. Oleson, 25.00
Mr. & Mrs.
Ben. J. Anderson, 25.00
Mr. & Mrs.
Halli Freeman, 25.00
Mr. Fred Frederickson, 25.00
Mr. & Mrs.
Gísli Bjornson and
family, 25.00
In memory of our dear
mother and grandmother
Mrs. Guðrún Stefanson,
who passed away
January 23, 1956.
Mr. F. S. Frederickson, $25.00
Mr. &Mrs.
Hannes Anderson, 20.00
Mr. & Mrs.
N. Lambertsen, 15.00
Mr. & Mrs.
Matt. Swanson, 15.00
Mr. Bjorn Sigmar, 15.00
Mr. S. A. Josephson, 10.00
Mr. & Mrs.
C. H. Christie, 10.00
Mr. & Mrs.
H. B. Hallson, 10.00
Herman Arason, 10.00
Mr. & Mrs.
H. Heidman, 10.00
Miss Olga Sigurdson, 10.00
Mr. & Mrs.
Ingi Helgason, 10.00
Mrs. Margrét Josephson , 10.00
Mr. W. Christie, 5.00
Mr. &Mrs.
Herman Johnson, 5.00
Paulson Brothers, 5.00
Sigurdson Brothers, 5.00
A Friend, 5.00
Mr. & Mrs. S. Storm, 5.00
Mrs. Thordís Jónsson, 5.00
Mrs. Sigrún Sigurdson, 5.00
Mrs. Ninna Sigmar, 5.00
Mr. & Mrs.
Siggi Guðnason, 5.00
Mr. & Mrs.
Frank Skardal, 3.00
Frá Langrulh, Manitoba
Langruth Lutheran
Church, $50.00
Valdi Bjarnason, 30.00
Mr. & Mrs.
B. Bjarnason, 10.00
Frá Glandslone, Manitoba
Mr. & Mrs.
Magnús Peterson, 30.00
Framhald á bls. 8
“Betel" $180,000.00
Building
Campaign Fund
----—180
—160
—140
Make your donations to the
"Betel" Campaign Fund.
123 Princess Street,
Winnipeg 2.
Additions to Betel Building Fund
a
$100.00
61.18
50.00
50.00
30.00
30.00
30.00
30.00
When calling Long Distance you will save time if you tell the operator the
NUMBER you want. Otherwise, she has to obtain it from "Information"
in the distant city, with consequent delay.
Keep a note of the
out-of-town number
when the operator
gives it to you.
NEXT
CALL BY
NUMBER
MANITOBA TELEPHONE SYSTEM