Lögberg - 04.04.1957, Side 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 4. APRÍL 1957
Lögberg
, GefiS út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
303 KENNEDY STKEET, WINNIPEG 2, MANITOBA
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 303 Kennedy Stree, Winnipeg 2, Manitoba
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Skrifstofustjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
“Lögberg” is published by Columbia Press Limited,
303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Manitoba, Canada
Printed by Columbia Printers
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
PHONE 93-9931
Fallegt tímarit og batnandi
Lögbergi hefir alveg nýverið borizt í hendur tímaritið
The Icelandic Canadian, vorheftið 1957, hið fróðlegasta um
alt og vandað að lesefni. Það er ánægjulegra en frá þurfi að
segja, er einhver þau fyrirtæki, sem okkar fámenna fylking
vestan hafs berst við að halda uppi, styrkjast í rót og vaxa
að tilverugildi, því óþarflega margt á vettvangi starfsmála
okkar hefir óréttlætanlega sigið á ógæfuhlið upp á síðkastið
án þess að samvizkubits sýnist orðið hafa vart.
Að þessu sinni hefst tímaritið með ritstjórnargrein
“Communication Through the Ages and Our Literary Heri-
tage” eftir Ingólf Gilbert Árnason; í innganginum er vikið
að því, hve maðurinn sé frábrugðinn dýrategundum á lægra
tilverustigi vegna hæfileika hans til að hugsa; vísindamenn
halda því fram, að þar komi til greina stærð mannsheilans
og benda í því tilefni á, að heili í barni, er aðeing sé frá 5—10
punda þungt, sé miklu stærri en í hval, sem nálgist 100
smálestir að kroppsþunga.
Af heilabúinu og hugsun manns framleiðast bókmentir
og önnur afreksverk.
Stórfróðleg og hjartaStyrkjandi er ræða W. A. Packers
prófessors í þýzku við United College, “The Icelandic Ar>glo-
S^xon Tradition.” — Ritstjóri þessa blaðs varð þeirrar ó-
gleymanlegu ánægju aðnjótandi, að hlusta á prófessor Packer
flytja þetta tímabæra og'ágæta erindi, og víst er um það, að
við lestur þess er síður en svo að innviðir þess rýrni.
"Iceland's Unquenchable Flame" — íslands óslökkvandi
logi — eftir Mekkin Sveinsson Perkins, ble. 12, er hvorki
meira né minna en snildarritgerð, íturhugsuð, grundvölluð á
nákvæmri þekkingu og virðingu fyrir viðfangsefninu; höf-
undi stendur það Ijóslifandi fyrir hugskotssjónum, að það
vár ljóðið, er reyndist þjóðinni „langra kvelda jólaeldur",
þegar ein plágan bauð annari heim og hún háði frelsisbaráttu
sína til að losna úr viðjum erlendrar áþjánar.
"This Changing Canada," ræða eftir G. S. Thorvaldson,
Q.C., flutt á samkomu, er The Icelandic Canadian Club efndi
til í vetur, skýrir sig að öllu sjálf, og þarf engrar sundur-
liðunar við.
Formaður ritnefndar Icelandic Canadian, W. J. Lindal
dómari, ritar skarplega um Dr. Richard Beck, opinbera starf-
semi hans og um þýðingabók hans Icelandic Lyrics, sem
gefin var út 1930, og nú hefir verið ljósprentuð í Reykjavík,
svo sem áður hefir verið sagt frá hér í blaðinu.
W. Kristjánsson ritar um bækur og samkomur í tilefni af
nýlega afstöðnu þjóðræknisþingi; ágætar ljóðaþýðingar eftir
Pál Bjarnason prýða ritið, og gaman var að fá lag Gunnsteins
E^yjólfssonar við kvæði Þorsteins Erlingssonar, „Mig hryggir
svo margt, sem í hug mínum felst,“ í þýðingu meistara Eiríks
Magnússonar í Cambridge, þess, er fyrstur sneri á enska
tungu þjóðsöng Islands, Ó, Guð vors lands. —
★ * ★ ★
Betra en ekki neifrt
Lífeyrir hinna öldruðu borgara í Canada, eða hinn svo-
nefndi ellistyrkur, hækkar um sex dollara á mánuði frá 1.
júlí næstkomandi að telja; helming hækkunarinnar greiðir
sambandsstjórn, en hinn helminginn stjórnir hlutaðeigandi
fylkja; hækkun þessi, sem kemur með seinni skipunum, er
engan veginn fullnægjandi, þó hún að vísu sé vitund betri
en ekki neitt.
Lífeyrir hinna aldurhnignu þjóðfélagsþegna hefir verið
talsvert mismunandi í hinum einstöku fyíkjum. Saskat-
chewan, Alberta og British Columbia, hafa verið nokkru ör-
látari en Manitoba og skal slíkt að makleikum metið; elli-
stjrrkurinn getur ekki undir neinum kringumstæðum talist
ölmusa, heldur ræðir þar einungis um sjálfsögð eftirlaun
fyrir dygga þjóðfélagsþjónustu.
Ritgerðasafn dr. Richards Beck
Stór og myndarleg bók, gefin
út í lilefni sextugsamælis
hans í vor.
/
Hinn 9. júní næstkomandi
verður prófessor Richard Beck
sextugur. Um nálega 3 tugi
ára hefur hann verið einn
helzti útvörður íslands í
Vesturheimi og kynnt þjóð
vora, málefni hennar og
menningu þar vestra með ó-
þreytandi elju. Hér heima
hefur hann ferðast oftsinnis,
kynnzt þar fjölda manns og
hvarvetna getið sér vinsældir.
Ritgerðir hans og ræður um
íslenzka menn, mál og menn-
ingu, eru orðnar geysimargar.
Er þær að finna víðsvegar í
blöðum og tímaritum, bæði
austan hafs og vetan, en margt
er þó óprentað í fórum hans.
í tilefni af afmæli hans,
hafa nokkrir vinir hans og
velunnendur ákveðið að gefa
út myndarlegt úrval þessara
ritgerða, og kemur bókin út á
afmælisdegi dr. Becks. í bók-
inni eru bæðj erindi og grein-
ar, eru flestar þeirra um ís-
lenzka rithöfunda og fræði-
menn, austan hafs og vestan.
Meðal annars eru þættir um
þessa menn: Svein Björns-
son, forseta Islands, skáldin
Stephan G. Stephansson, Þor-
stein Þ. Þorsteinsson, Þorska-
bít (Þorbjörn Bjarnarson),
Sigurð Júl. Jóhannesson, Sig-
urð á Arnarvatni, svo enn-
fremur um Sigurð skóla-
meistara Guðmundsson og
Hjört Thordarson, hinn nafn-
kunna vísindamann, auk
margra annarra.
Fremst í bókinni er ritgerð
um Richard Beck, eftir séra
Benjamín Kristjánsson á
Laugalandi, og afmælisósk
ásamt nöfnum allra áskrif-
enda. Bókin er prentuð í
Prentverki Odds Björnssonar,
á myndpappír, með mörgum
myndum og til hennar vandað
á allan hátt. Verð kr. 200.00.
Þar sem forráðamenn út-
gáfunnar geta ekki persónu-
lega náð til allra þeirra
mörgu, sem heiðra vilja
Richard Beck á afmæli þessu,
Dr. Richard Beck
Dánarfregn
Pálmi Jóhannsson, bóndi og
fiskimaður við Gimli, Man.,
andaðist að Johnson’s Mem-
orial Hospital á Gimli mánu-
dagskvöldið 25. marz, eftir
stutta legu þar. Hann var
fæddur að Bólsstað sunnan-
vert við Gimli, sonur land-
námshjónanna Jóhanns Jóns-
sonar og Sigríðar ólafsdóttur
konu *hans, er voru bæði ætt-
uð af Akureyri. Hann fluttist
árið 1903 með foreldrum sín-
um að Breiðabólsstað í
Mínerva-byggð; þar giftist
hann árið 1913 Önnu Jóhann-
esdóttur Magnússonar frá
Dagverðarnesi. Árið 1935
flutti hann til Gimli-bæjar.
Hann stundaði ávalt fiski-
veiðar. Dætur Jóhannsson’s-
hjónanna eru: Sigríður Jó-
hanna, Mrs. Albert Hólm,
Pine Falls, Man.; Kristín
Bergþóra, gift Gísla Ander-
son, Gimli, Man.; Anna María,
gift Helga Benediktssyni,
Gimli, Man. Fóstursonur Jó-
hannssons-hjónanna er Stan-
ley Einarsson, bóndi við
Gimli, Man, kvæntur Dísu
Helgason.
Pálmi var einn hinna kyr-
látu í landinu, prúður maður
°g trygglyndur og skyldu-
rækinn. Útför hans fór fram
frá heimilinu, á íslenzku,
þann 27 marz. — Sá, er þetta
ritar, flutti kveðjumál.
S. Ólafsson
vænta þeir þess, að þeir, sem
gerast vilja áskrifendur að
bókinni og rita undir afmælis-
kveðju til höfundarins sendi
nöfn sín til Árna Bjarnasonar,
bókaútgefanda, Akureyri.
Akureyri, 1. febrúar 1957
1 útgáfunefnd:
Aage Schiöth, Siglufirði
Árni Bjarnason, Akureyri
Árni G. Eylands, Reykjavík
Benjamín Kristjánsson,
Laugalandi
Sigurður O. Björnsson,
Akureyri
Steindór Steindórsson,
Akureyri
Þórarinn Björnsson,
Akureyri
Þorkell Jóhannesson,
Reykjavík
Þorsteinn M. Jónson,
Reykjavík.
Betel" $180,000.00
Building
Campaign Fund
$42,500—
—180
—160
—140
—$129,473.56
—120
z /
—100
—80
—60
—40
—20
Make your donatlons to the
"Betel" Campaign Fund.
123 Princees Street,
Winnipeg 2.
NOW! Freedom From Washday Blues
with the New
FRICIDAIRE
SUPER WASHER and DRYER
BOTH
ONLY
$
469
.95
and exchange of your
Present washer or dryer
PORTAGE east of Kennedy PH. 96-8201