Lögberg - 31.10.1957, Síða 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 31. OKTÓBER 1957.
5
wwwwwwwwvwwwwwwwwwwwwwww
AlilJGAMAL
IWCNNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Eftirminnileng íslenzk skemmtun
Manitoba Pool Elevators
hefir í allmörg ár beitt sér
fyrir því að hvetja almenning
í sveitúm fylkisins til að iðka
listir og handiðnað alls konar
eftir því sem ástæður leyfa.
Hefir félagið efnt til sam-
keppni og sýninga árlega á
málverkum, hannyrðum og
ýmis konar listmunum, og
eru þessar samkomur nefndar
Rural Folk Festival. Fór §ú
síðasta fram í fyrri viku á
Royal Alexandra hótelinu
hér í borg. í sambandi við
þessi mót eru haldnar kveld-
samkomur, þar sem listafólk
af hinum ýmissu þjóðarbrot-
um kemur fram og skemmtir
með söng, framsögn, hljómlist,
dansi eða annari þjóðlegri list.
1 þetta skipti stóðu Islending-
ar frá Árborg og nærliggjandi
héruðum fyrir skemmtuninni-
Ég kom nokkrum mínútum
of seint; var þá hér um bil
hvert sæti í stærsta samkomu-
sal hótelsins skipað; munu
þar hafa verið svo skipti
hundruðum manna saman-
komið, en fátt sá ég þar ís-
lendinga fyrr en mér var
vísað á eitt autt sæti innar-
lega í salnum; þar sá ég fjölda
af fallegum börnum, flest ljós-
hærð, og var íslenzki svipur-
inn auðþekktur.
Mr. W. J. Parker, forseti
Manitoba Pool Elevators, var
samkomustjóri; skýrði hann
frá því, að fyrir atbeina
Gunnars Sæmundssonar hefði
félagið verið svo heppið að fá
tvo barnasöngflokka til að
skemmta þetta kveld; væru
börnin á aldrinum 3 til 16 ára,
70 að tölu. Hefðu flokkarnir
verið æfðir af Jóhannesi Páls-
syni söngstjóra og systur hans,
Mrs. Lilju Martin píanista. —
Svo hófst skemmtunin.
Yngstu börnin hópuðust upp
á pallinn og sungu við raust:
Fuglinn í fjörunni; Siggi var
úti; Krakkar úti kátir hoppa,
og Fyrst allir aðrir þegja.
Maður mætti halda að þessir
litlu angar væru þreyttir eftir
ferðina að norðan, en ekki bar
á því; þau voru broshýr, söng-
gleðin leyndi sér ekki og hvert
orð heyrðist skilmerkilega.
Þrjár ungar systur, Gayle,
Irene og Feye Finnson sungu:
Stóð ég úti í tungsljósi og
ensku þýðinguna, Gazing in
the Moonlight; Fyrr var oft í
koti kátt eftir Friðrik Bjarna-
son, og At the Hot Springs of
Iceland, lagið eftir Karl ó.
Runólfsson, og sungu þær
þetta mjög fallega.
Nú komu fram eldri börnin
og sungu báðir kórarnir í
sameiningu bæði á íslenzku
og- ensku, Fífilbrekka gróin
grund og Nú blikar við sólar-
lag. Voru raddir hinna 70
barna furðuvel samstiltar.
Johnson-systurnar fjórar, —
Christine, Herdís, Ólöf, Lilja
og frænka þeirra sungu: —
Hreðavatnsvalsinn, Sólskríkj-
una, Rokkvísu og Vögguljóð,
og var unun að hlusta á þær.
Fannst mér þær syngja Úr
þeli þráð að spinna sérstak-
lega vel, en á meðan sátu á
pallinum þær frú Hrund
Skúlason og frú Aðalbjörg
Sigvaldason, báðar klæddar
íslenzkum búningum og var
önnur að kemba ull og hin að
spinna. Frú Magnea Sigurd-
son var við hljóðfærið.
Á milli þess sem sungið var
léku þau systkinin Jón og
Valdína Martin tvíleik á
píanóið — Hungarian Dance
No. 6 eftir Brahms. Söngstjór-
inn Jóhannes Pálsson lék á
fiðlu lög eftir vestur-íslenzku
tónskáldin Jón Friðfinnsson
og S. K- Hall — Tárið og
Love’s Rapture. Systurnar
Jóna og Rosalind Pálsson
fluttu sitt kvæðið hvor, annað
eftir Jóhann Magnús Bjarna-
son og hitt eftir Einar H.
Kvaran, bæði í enskum þýð-
ingum Páls Bjarnasonar. Var
gaman að heyra, hve þær
gerðu skilmerkilega grein fyr-
ir hver þessi skáld væru, áður
en þær hófu framsögn sína.
Eldri kórinn söng að lokum
Ó, Gúð vors lands; Ríðum,
ríðum rekum yfir sandinn;
Svífðu nú sæta; Nú yfir heiði
háa; Ó, blessuð vertu sumar-
sól og ísland, ísland, Ó, ættar-
land. Söngurinn var tvíradda
og þríradda, prýðilega sam-
stiltur og blæbrigðin góð. Á-
nægjulegt hve þau sungu síð-
asta lagið hressilega.
Þetta er ein sú íslenzkasta
samkoma sem ég hefi verið
viðstödd í lengri tíð; hér
kenndi ekki afsökunar heldur
réttmæts • metnaðar yfir því
að kynna meðborgurum okkar
íslenzkar ljóðperlur og söngva.
Samkomugestir, sem flestir
voru annara þjóða kunnu líka
vel að meta þessa skemmtun
svo sem dynjandi lófatak
þeirra gaf til kynna hvað eftir
annað.
Ein af unglingsstúlkunum í
flokknum (því miður náði ég
ekki nafni hennar) kom fram
og þakkaði fagurlega þeim
systkinunum frú Lilju Martin
og Jóhannesi Pálssyni, er
þjálfað höfðu kórana, og frú
Sigurdson; ennfremur Mani-
toba Pool Elevators fyrir boð-
ið og viðtökurnar; ágætur-
kveldverður beið gestanna að
norðan, þegar þeir komu í
óæinn.
Samkomustjóri, Mr. Parker,
cvað félagið miklu fremur í
óakkarskuld fyrir þessa góðu
skemmtun, og lauk hann
miklu lofsorði á alla þá er
hlut áttu að máli. Ennfremur
þakkaði hann Gissuri Elías-
syni fyrir hans aðstoð við að
koma fyrir sýningarmunun-
um og að vera í dómnefndinni
og bað hann að taka til máls;
mæltist Gissuri vel.
Að hljómlistarskránni lok-
inni flutti Mrs. J. C. Hood,
ritstjóri kvennasíðu Tribune,
erindi — The Art and Craft of
Everyday Living.
Þökk sé börnunum og fólk-
inu frá Árborg fyrir þessa
ágætu skemmtun, sem var því
og okkur öllum íslendingum
til sóma. —I. J.
2227®
LÆGSTU FLUGGJÖLD TIL
ÍSLANDS
• A einni nóttu til Reykjavlkur.
RúmgóiSir og þægilegir farþega-
klefar, 6 flugliSar, sem þjálfaöir j
hafa veriS I Bandaríkjunum, bjóða j
ySur velkomin um borS.
• Fastar áætlunarflugferSir. Tvær
ágætar máltlSir, koníak, náttverSur,
allt án nnkagrciðslu með IAIi.
t’rá New York meS
viSkomu á ÍSIjAN i)I
UI NOREGS, DANMERKUR, SVIÞJÓÐAR. STÓRA
BRETIiANDS, ÞÝZKAUANDS.
Upplýsingar I öllum ferSaskrifstofum
n /~~\ n
icelanoíQ 'airunes
15 West 47th Street, New York 36 PL 7-8585
New York . Chicago . San Francisco
SILFURBRÚÐKAUP
Þann 30. ágúst s-1. komu
saman í samkomuhúsi Geysis
byggðar milli 2 til 3 hundruð
manns til að heiðra þau hjón-
in Jónas og Hrund Skúlason í
tilefni af 25 ára giftingar-
afmæli þeirra. Samsætinu
stjórnaði Bill Pálsson frá
Winnipeg, fyrrverandi Geysis-
búi. Minni brúðarinnar var
flutt af Mrs. Herdísi Eiríksson,
Árborg. Minni brúðgumans af
Heimi Thorgrímsson, Winni-
peg. Jón Pálsson, Geysir tal-
aði fyrir hönd byggðarbúa og
afhenti peningasjóð. Guðrún
Mclnnis frá Langruth, mælti
fagurlega til foreldra sinna og
afhenti þeim gjöf frá börnun-
um. Fyrir hönd systra og nán-
ustu skyldmenna brúðgumans
mælti Tímóteus Böðvarsson
og afhenti þeim gjög. Heimir
Thorgrímsson afhenti gjafir
og mælti nokkur orð fyrir
hönd móður og systkina brúð-
arinnar. Fyrir hönd Kvenfé-
lagsins Freyju talaði Mrs.
Ingibjörg Sigvaldason og af-
henti Hrund gjöf frá félags-
systrum. Bill Pálsson mælti
nokkur orð til Jónasar og af-
henti gjöf frá safnaðarnefnd
Geysissafnaðar. — Þá talaði
Björn Bjarnason nokkur orð
til brúðhjónanna, og forseti
las bréf frá séra Eric Sigmar
Pálmi Lárusson
Framhald af bls, 4
sinni, er annaðist um hann af
fágætri elsku og dótturlegri
tryggð. Síðustu fjögur ævi-
árin dvaldi hann á heimili
Hjálmars Valdimars sonar
síns í umönnun Óskar dóttur
sinnar og naut friðsællar elli
í kærleiksríkri umönnun
þeirra. — Eftir stutta dvöl á
Almenna sjúkrahúsinu í Win-
nipeg andaðist hann þar 18.
júlí s.l. — Útför hans fór fram
í kirkju Gimli-safnaðar 22.
júlí; hann var lagður til hinztu
hvíldar í grafreit Gimli-safn-
aðar. — Við útförina þjónuðu
séra J. Fullmer og sá, er þessar
línur ritar. S. Ólafsson
og frú. — Á milli ræða var
skemmt með söng og hljóð-
færaslætti. Jóhannes Pálsson
spilaði á fiðlu af sinni alkunnu
snild, aðstoðaður af Mrs. Lilju
Martin. Kristín Johnson, Ár-
borg, söng einsöng, aðstoðuð
af Mrs- S. A. Sigurdson, Ár-
borg. Almennur söngur var
undir stjórn Jóhannesar Páls-
sonar og Lilju Martin. —
Brúðhjónin þökkuðu bæði
með vel völdum orðum heiður
sér sýndan og góðar gjafir. —
Að lokinni skemmtiskrá voru
rausnarlegar veitingar fram-
bornar.
Jónas er sonur hinna kunnu
landnámshjóna Jóns og Guð-
rúnar Skúlason frá Fögruhlíð
í Geysisbyggð, nú bæði látin.
Tók Jónas við búi eftir for-
eldra sína. — Hrund er dóttir
séra Adams heitins Thorgríms
sonar og eftirlifandi konu
hans, Sigrúnar, nú búsett í
Winnipeg. Hafa þ^u Hrund og
Jónas tekið giftudrjúgan þátt
í öllum félagsmálum byggðar
sinnar. Lestrarfélag Geysis
hefir átt samastað í Fögruhlíð
í samfleytt 41 ár. Var Jón
Skúlason þá settur bókavörð-
ur, en hafði verið forseti fé-
lagsins frá því það var stofn-
að 1911. Jónas tók við skrifara
og féhirðisembætti fyrir 37
árum, en Hrund hefir verið
bókavörður síðan hún flutti
að Fögruhlíð 1932. Þau hafa
verið stoð og stytta félagsins í
öll þessi ár. I fjölda mörg ár
stóð lestrarfélagið fyrir ís-
lenzkum leiksýningum. Var
Jónas þar ávalt hluttakandi og
Hrund einnig í seinni tíð. —
Jónas hefir verið í safnaðar-
nefnd um 30 ára skeið og for-
maður nefndarinnar um
margra ára skeið, og Hrund
hefir tilheyrt kvenfélagi safn-
aðarins síðan 1932, oftast í
stjórnarnefnd þess. Hún hefir
frá byrjun tilheyrt söngflokk
kirkjunnar. Einnig eru þau
meðlimir Þjóðræknisdeildar-
innar Esjan í Árborg.
Fögruhlíðar-heimilið hefir
ávalt verið annálað fyrir fram
úrskarandi gestrisni og höfð-
ingsskap, viðtökurnar þær
sömu hver sem í hlut á. Barna
lán hafa þau Hrund og Jónas
átt í ríkum mæli. Þrjár dætur
og tveir synir voru til staðar
til að samgleðjast foreldrum
sínum á þessu 25 ára hjúskap-
ar-afmæli þeitra. H- E.
Skuggsjá
Bílstjóri einn stöðvaði bíl
sinn fyrir framan lögreglu-
stöðina í Róm, gekk þangað
inn og tilkynnti, að stolið
hefði verið kjöti, sem hann
hefði geymt í aftursæti bíls-
ins. Þegar hann kom út aftur,
var búið að stela bílnum.
* * *
Enski hljómsveitarstjórinn
Thomas Beecham sagði eitt
sinn í blaðaviðtali, að hann
vildi ekki hafa konur í hljóm-
sveit sinni. — „Ef þær eru
fallegar,“ sagði hann, „trufla
þær hljóðfæraleikara mína, en
ef þær eru ljótar, trufla þær
mig.“
* * *
ítalsk blað, sem gefið er út
í London, fékk nýlega svo-
hljóðandi símskeyti: — Róm,
föstudag, kl. 19.02. Ljónatemj-
arinn Antoni Guisuppi í sir-
kusnum, sem hér er, stingur
á hverju kvöldi höfðinu upp í
stórt karlljón. í kvöld lokaði
ljónið skyndilega kjaftinu-
* * *
í Huntingdon í Englandi
starfar sextugur maður að því,
að halda við hinum hvítu um-
ferðastrikum á þjóðvegunum,
og hefur lengi stundað það
starf. En þar sem hann verður
alltaf að vera viðbúinn að
bjarga lífinu, er bílarnir þjóta
fram hjá, hefur það reynt svo
á taugar hans, að hann var
búinn að fá snert af magasári.
Hann ákvað því að binda endi
á þann háska, og gerði það
með því, að mála með hvítum
stöfum á rauðan dúk orðið
LÍFSHÆTTA. Dúkinn saum-
aði hann síðan á bakhlutann á
buxunum sínum, og síðan eru
það bílstjórarnir, sem eru að
veiklast í maganum af tauga-
æsingu. —Heimilisblaðið