Lögberg - 31.10.1957, Page 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 31. OKTÓBER 1957
7
Mig hefur ailtaf langað að koma heim
og verja fjarveru mína fró landinu
— segir JÚLÍANA SVEINSDÓTTIR í rabbi
um svari grjói og rauðan hati.
Ég hitti Júlíönu Sveins-
dóttur uppi í Listasafni ríkis-
ins í gær. Þar var hún að
leggja síðustu hönd á yfirlits-
sýningu sína, sem opnuð verð-
ur á laugardaginn. — Það er
auðséð, að þetta er stór við-
burður í lífi listakonunnar.
Hún segist hafa verið kvíðin,
þegar hún lagði af stað frá
Danmörku, en nú er allur
kvíði horfinn. Mér hefur verið
tekið tveim höndum.
Það er erfitt að lýsa Júlíönu
Sveinsdóttur fyrir þeim sem
ekki hafa séð hana. Fyrst í
stað hefur maður það á til-
finningunni, að það sé ekki á-
rennilegt að spyrja hana
bjánalegra spurninga. Fyrst
í stað er eins og það sé óvenju
mikið af íslenzkum jökli í
andliti hennar. En aðeins fyrst
í stað, eða þangað til hún
brosir ....
Við gengum um salina. Hún
sagðist vera þreytt, ég gæti
aðeins fengið að tala við sig í
nokkrar mínútur- Það getur
verið, að líkaminn hafi verið
lúinn eftir erfiða daga, en það
var enga þreytu að sjá í aug-
um hennar, þegar hún sagði
við mig fyrir framan eina af
Vestmannaeyjamyndum sín-
um:
— Ég hafði alltaf hugsað
mér að koma heim og sýna,
áður en kraftana þryti. Mig
hefur alltaf langað að koma
heim með myndirnar mínar
og verja mig. Já, verja þessa
fjarveru mína frá landinu,
sýna fólkinu, hvað ég hef gert,
minna það á, að ég er úr 4s-
lenzkara bandi en nokkur
annar. Það er gaman að koma
heim, víst er það gaman.
Ég spyr hana um Vest-
mannaeyjar. Þar var hún
fædd og alin upp að ferming-
araldri. — Þangað fer ég
alltaf, segir hún, um leið og
hún bendir á eina myndina.
Hér eru margar myndir frá
Vestmannaeyjum, ég veit ekki
hvað þær eru margar. Þeir eru
farnir að segja dönsku blaða-
mennirnir, að ég sé alltaf með
þessi venjulegu mótív, lands-
lagsmyndir frá íslandi og upp-
stillingar. En ekki er vert að
taka það svo hátíðlega.
Við skoðum nokkrar mynd-
ir frá Vestmannaeyjum. Það
er all-löng þögn, þangað til
listakonan segir allt í einu: —
Vestmannaeyjar sá ég í fyrsta
skipti 1946. Ég hafði aldrei séð
þær fyrr eins og þær eru í
raun og veru. Hafið þér verið
þar?
— Já.
— Á sjónum?
— Nei, aðeins komið þang-
að.
— Það er ekki nóg. Maður á
að klifra upp á fjöllin og horfa
á sjóinn. Hafið þér tekið eftir
þessu svarta grjóti í Vest-
mannaeyjum . . . Svart grjót
. . . svart grjót, sem veltur út
í sjóinn. Alls staðar grjót. Og
sjórinn. — Hafið þér tekið
eftir litbrigðunum í sjónum?
Hann er stundum blár og
stundum grænn. Lítið þér á,
hér er hann blár og órólegur.
Sjórinn er sjaldan rólegur,
alltaf eitthvert líf, einhver
kraftur. Það er alltaf eitthvað
að gerast við sjóinn. Hann
breytist. Við erum líka alltaf
að breytast. Það er eitthvað í
sjónum, sem minnir á menn-
ina ....
Við göngum að næstu mynd
af Vestmannaeyjum. Græni
liturinn er óvenjusterkur.
— Já, þetta er Yztiklettur,
útvörðurinn við höfnina. Sjá-
ið þér, hvað hann er grænn.
Ég hafði aldrei áður séð hann
svona grænan. Það var sum-
arið 1954, þegar allt var svo
grænt á Islandi. — En hér er
grjótið líka svart og hafið o-
rólegt- Svarta grjótið er hraun
sem hefur runnið úr Helga-
felli.
— Hafið hefur haft mikil
áhrif á yður. Óttizt þér það?
— Nei — nei. En það orkar
mjög á mig, ég veit ekki,hvers
vegna. Hvað er náttúran, hvað
er náttúran? ...
— Og þarna er Snæfells-
jökull, hvað sjáið þér í hon-
um?
— Ég er ekki skáld, ungi
maður, ekki skáld. Ég reyni
aðeins að láta aðra sjá það
sem hefur hrært mig, reyni að
túlka það sem hefur hrifið
mig. Er ekki hægt að segja
það á íslenzku? Hrifið mig. —
En ég forðast alltaf tvennt:
að myndirnar séu kaldar og
kæruleysislega unnar.
Upp úr þessu fer Júlína
Sveinsdóttir að segja mér frá
því þegar hún fór utan. — Þá
vissi ég ekki nokkurn skapað-
an hlut, hvorki um listina né
annað. Ég gerði allt eins sam-
vizkusamlega og ég gat. Það
var engin list í blóðinu, ég gat
bara teiknað laglega í Kvenna
skólanum og var send til Þór-
arins B. Þorlákssonar að læra
teikningu og síðan út. Þegar
ungu strákarnir eru að segja,
að það sé svo mikil lit innan
í þeim, þá er það ekkert nema
rugl. En þetta má maður víst
ekki segja nú á dögum. Allir
eiga að tala með sem mestri
ábyrgðartilfinningu. Er yður
ekki kennt það?
— Jú, sérstaklega þeim
blaðamönnum, sem fást við
stjórnmál.
— Nú-já. Einmitt það-
— Við vorum að tala um
utanför yðar.
— Já, Ingibjörg H. Bjarna-
son kenndi mér teikningu.
Það var einkum hún sem ýtti
undir það, að ég færi utan tL
frekara náms. Henni fannst
ég vera mjög efnileg og pabbi
lét ekki á sér standa, hann
var elskulegur maður. Það
var ekkert grín að senda dótt-
ur sína til listnáms á þeim
árum. Þá voru peningar ekki
á hverju strái eins og nú. En
hann lét sig hafa það, og svo
var ég send til Hafnar. Þar
fór ég húsavillt, því ég lærði
í tvö ár hjá manni, sem Aka-
demían tók ekkert mark á.
Hann hafði fjölda nemenda.
Þegar ég hafði fallið þrisvar á
inntökuprófi inn í Akademí-
una, herti ég upp hugann, fór
á fund Viggos Johnsens mál-
ara, sem þá var prófessor við
Akademíuna, og spurði hverju
þetta sætti. Hann minntist á
lærimeistara minn og sagði:
Vi ta’r ikke hans elever. Það
var stutt og laggott. En ég lét
samt ekki bugast, heldur hélt
áfram námi hjá öðrum kenn-
ara. Og það hafðist. Ég komst
upp í Akademíuna. Maður á
ekki að missa kjarkinn, þó að
á móti blási.
Við staðnæmdumst fyrir
framan mynd af manni, sem
sat og las í bók. Hann var í
þungum þönkum. Júíana
segir:
— Mér hefur alltaf þótt
gaman að mála fólk. Já, ég hef
alltaf haft gaman af því- Ef
þér farið um salinn, þá sjáið
þér alls staðar fólk, nú og svo
er ég hérna sjálf hingað og
þangað. Elzta myndin á sýn-
ingunni er frá 1912. Hún er
af gömlum manni, svo að þér
sjáið, að ég hef alltaf haft
gaman af mannamyndum.
Oftast er þetta fólk mitt að
hugsa eitthvað, sjáið þér til
dæmis þarna hvað hann er
djúpt hugsi.
— Hverju eruð þér að leita
að í andliti þessa fólks?
— Leita að? Það veit ég
ekki. Ætli það sé ekki eitt-
hvað sem enginn skilur?
— Dauðinn?
— Nei-nei, dauðinn — og
það liggur við að listakonan
hlæi, svo undir taki í Saln-
um. — Dauðinn, það var þá
spurning. Og hún sezt. Fær
sér sígarettu og kveikir í.
stendur síðan upp, gengur til
mín og segir ákveðið: — Ungi
maður, ég er ekki hrædd við
dauðann. Við deyjum öll ein-
hvern tíma. En það hefði verið
leiðinlegt, ef ég hefði dáið, á
meðan ég var að koma upp
sýningunni. Þá hefðu mynd-
irnar kannski ruglazt ....
— En sjálfsmyndirnar? —
Hvað sjáið þér í þeim, þegar
þér lítið á þær fullgerðar?
— Vanmátt.
— Það er stórt orð.
— Já, en ekki of stórt. Á
ég að segja yður, hvenær ég
byrjaði að mála fyrir alvöru?
Það var 1946. Samt hef ég
haldið á pensli í nær hálfa
öld. Ég er orðin gömul kona...
Við gengum um salinn og
það var auðséð að listakonan
hafði gaman af, þegar undir-
ritaður lét gáfulega athuga-
semd falla um myndir hennar.
En það var víst ekki oft. Ég
spurði hana um arfinn, sem
hún tók með sér út í heiminn.
Hún minntist þá á seiglu ætt-
arinnar og sagði: — Ég hef lif-
að þetta af. Það er stundum
mikill kraftur í króanum,
sagði hún, þótt hann sá ósjálf-
bjarga í fyrstu. En svo lifnar
hann við einn góðan veðurdag
og verður sjálfstæður maður.
— Það fylgir því mikil á-
byrgð að vera sjálfstæður.
— Nú, ég veit það ekki.
Mér finnst það sjálfsagður
hlutur. Ég held ég viti ekki,
hvernig það er að vera „ósjálf
stæður.“ Það hefur oft hjálpað
mér í Danmörku.
Ég leit aftur á eina af sjálfs-
myndunum, og áður en ég
vissi af, var ég farinn að tauta
með sjálfum mér: grænt bak-
svið, rauður hattur, svört
treyja . . .
— Já, og hún er meira að
segja sauðsvöri, greip lista-
konan fram í. Og brosti
þrjózkulega. — Síðan spurði
ég hana, hvort það hefði ekki
stundum hvarflað að henni að
flytjast heim til íslands. — Jú,
svaraði hún, það hefur oft
hvarflað að mér. En ég held
ég yrði afskaplega einmana.
Hvern ætti ég t. d- að tala við,
sagði hún og leit spurnaraug-
um á mig. Ég leit aftur á sjálfs
myndina. Andlitið sýndi vel
hina alvarlegu tilraun, leitina
að sannleikanum. Munnsvip-
urinn einbeittur, augun eins
og óráðin gáta. Ekkert bros,
aðeins alvara. óljós þrá. Van-
máttur. — Svo gengum við
inn í lítið herbergi með tepp-
um á veggjum. Myndirnar
voru óhlutlægar, barátta við
liti. Hún segir: — Ungu list-
málararnir segja, að ég sé
abstrakt. — Eruð þér ekki
hreyknar af því, spyr ég. —
Nei, en ég er ánægð, ef þeir
sjá, að ég er ekki dauð. Sumir
eru dauðir um sextugt, hvað
þá sjötugt.
Við göngum út. Júlíana
Sveinsdóttir bendir á teppin:
— Svavar Guðnason segir, að
þetta sé kúnst. —M.
—Mbl., 11. sept.
Nær nefndarskipun í handrita-
málinu ekki fram að ganga?
Bseði íhaldsmenn og Vinsiri-
menn móifallnir skipun
nýrrar nefndar
Kaupmannahöfn, 11. sept.
(Fréttaritari Mbl.)
ÆÐI íhaldsflokkurinn og
Vinstri-flokkurinn h a f a
hafnað tillögunni um að ný
nefnd verði skipuð í handrita-
málinu. Er það álit beggja
þessara flokka, að skipun
nýrrar nefndar sé algerlega
þarflaus, þar sem sérstök
nefnd hafi þegar fjallað um
málið.
Berlingske Aftenvis greinir
frá afstöðu íhaldsflokksins
með þessum hætti:
— Afstaða flokksins táknar
ekki að hann sé mótfallinn af-
hendingu handritanna að
hluta. — Hann telur rétt að
skila Islendingum þeim hand-
ritum, sem fjalla eingöngu um
íslenzk málefni, en hins vegar
ekki þeim handritum, sem
hafa þýðingu í samnorrænni
menningar- og bókmennta-
sögu. íslendingar gætu verið
vel sæmdir af slíkri afhend-
ingu að hluta, þar sem í þeirra
hlut félli þannig þrátt fyrir
allt gjöf, sem væri mikils virði
bæði að magni og gæðum.
Blaðið segir, að þegar Hvid-
berg var kennslumálaráðherra
hafi hann samið frumvarp um
afhendingu að hluta sam-
kvæmt þessari meginreglu, en
frumvarp það var aldrei lagt
fyrir þjóðþingið.
Eigi nú að framkvæma af-
hendingu handritanna, heldur
Berlingske Aftenvis áfram,
verður ríkisstjórnin að leggja
skýrar tillögur um það fram
í þjóðþinginu, svo sem það,
hversu mörgum handritum
ríkisstjórnin hyggst að skila.
Telur blaðið nauðsynlegt að
íslenzku ríkisstjórninni verði
afhent endanlegt tilboð og á-
kvörðun Dana. Þá geti íslend-
ingar annað hvort tekið til-
boðinu eða hafnað því og þar
með verði þetta útrætt mál.
Blaðið bendir að lokum á
að það geti verið hættulegt að
skipa handritanefndina ein-
tómum stjórnmálamönnum,
því að meðal íslenzkra þing-
manna séu sérfræðingar í
handritum, sem ekki séu til í
hópi danskra þingmanna. Því
geti svo farið að íslendingar
verði sterkari en Danir við
samningsborðið.
----0---
Kaupmannahafnarblaðið -—
Extra bladet segir, að danska
ríkisstjórnin verði nú að
leggja þetta mál fyrir danska
þjóðþingið, svo hægt sé að
skera úr því, hvort hún hafi
meirihluta þingsins með sér
fyrir afhendingu handritanna.
Komi handritamálið til at-
kvæða, segir blaðið, að Réttar-
sambandið kæmist í slæma
klípu. Því að sá flokkur virð-
ist í fullri andstöðu við hina
stjórnarflokkana um hand-
ritin-
Extrabldet segir, að það
yrði til smánar, ef handrita-
málið færi enn allt út um
þúfur. Menn verði að reyna
að skilja, að það leysist aðeins
með málamiðlunum.
----0---
Blaðið Information skrifar
einnig um handritamálið. Það
staðhæfir, að nú sé óvíst,
hvort ríkisstjórnin treysti sér
til að skipa nefnd, eftir að það
hefir mætt sterkri mótspyrnu
hjá íhaldsflokknum, Vinstri-
flokknum og hjá Viggo
Starcke foringja Réttarsam-
bandsins. —Mbl. 12. sept