Lögberg - 07.11.1957, Blaðsíða 2
2
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 7. NÓVEMBER 1957
Fréttir frá storfsemi S. Þ. október 1957
Sameinuðu Þjóðirnar 12 ára — Dagsins minsl um víða veröld
Þann 24. október voru 12 ár
liðin frá því að stofnskrá Sam-
einuðu þjóðanna gekk í gildi.
Er sá dagur síðan talinn af-
mælisdagur alþjóðasamtak-
anna. Er dagurinn ár hvert
hátíðlegur haldinn um víða
veröld, fyrst og fremst meðal
hinna 82 þátttökuþjóða, en
einnig víðar.
Á Norðurlöndum var dags-
ins minst á líkan hátt og fyr.
Forystumenn héldu ræður,
efnt var til fundahalda, hljóm
leika, sérstakir útvarpsþættir
samdir o. s. frv. Það eru fyrst
og fremst félög sameinuðu
'þjóðanna, sem gangast fyrir
hátíðahöldum í tilefni dagsins,
en hans er einnig minst í
skólum og sumstaðar á vinnu-
stöðum.
Víða var dagsins minst á
sérkennilegan hátt. í Brazilíu
hélt t. d. Fjallamannafélagið
í Rio de Janeiro upp á daginn
með því, að félagarnir klifu
eitt af hæstu fjöllunum, sem
umlykur borgina. Fóru þeir
áður ókunna stigu upp fjallið
og reistu fána Sameinuðu
þjóðanna á fjallstoppnum. I
sjónvarpinu var efnt til sam-
keppni í spurninga og svara
stíl, þar sem verðlaun voru
geisihá, en spurningarnar all-
ar frá starfsemi Sameinuðu
þjóðanna. Sveit flugvéla flaug
í rökkurbyrjun yfir borgina
og kastað var úr flugvélun-
um upplýsingaritum um sam-
tökin.
í Bandaríkjunum höfðu
5000 borgarstjórar gefið út
fyrirmæli um, að dagsins
skyldi minst og voru skipaðar
jafnmargar nefndir til þess að
sjá um hátíðahöldin á hverj-
um stað- 3,200 útvarsstöðvar
víðsvegar um Bandaríkin
fluttu einhverskonar efni um
S. Þ. þennan dag og eins gerðu
fjöldi sjónvarpsstöðva víðs
vegar um Ameríku. Félag
Sameinuðu þjóðanna í Banda-
ríkjunum gaf út svonefnda
„bókahillu S. Þ.“, en það er
safn bóka um Sameinuðu
þjóðirnar.
Útvarpsstöðvar í Tyrklandi,
Grikklandi og ísrael efndu til
sérstakra útvarpsþátta í til-
efni dagsins og var að lokum
flutt bæn í dagskrárlok fyrir
Sameinuðu þjóðunum og
framtíð þeirra.
I Chile söfnuðust saman
20,000 börn á einum stað til
þess að hylla fána Sameinuðu
þjóðanna. í Rangoon (Burma)
var eftnt til alþjóðlegrar há-
tíðar, þar sem sýndur var
dans og hljómlist frá fjölda
þátttökuríkja S. Þ. — í Egypta
landi var ávarpi Dags Ham-
marskjölds aðalforstjóra sami
takanna útvarpað á ensku og
frönsku, eins og hann hafði
talað það, en síðan útvarpað í
arabiskri þýðingu.
-—0-----
Norrænir sérfræðingar
í þjónusiu S. Þ.
Sænski hagfræðingurinn K.
G. Brolin, sem er aðstoðar-
forstjóri hagdeildar mennta-
málaráðuneytisins sænska, er
staddur í Teheran um þessar
mundir, þar sem hann vinnur
að því að skipuleggja skóla-
hagskýrslur landsins. Það er
UNESCO — Mennt-, vísinda-
og menningarstofun Samein-
uðu þjóðanna, sem gekkst
fyrir að Brolin var ráðinn til
þessa starfa.
Norskur efnafræðikennari,
K. A. Risan frá Kristiansand
hefir verið ráðinn til að fara
til Ceylon til þess að leggja
á ráð um efnafræði og stærð-
fræðikennslu í æðri skólum
þar í landi. — Risan er einnig
á vegum UNESCO.
----0---
ísrael siefnir Búlgaríu fyrir
Alþjóðadómsiólinn — KrefsJ
skaðabóia fyrir farþegaflug-
vél, sem var skolin niður, en
58 manns fórust
ísrael hefir kært Búlgaríu
fyrir Alþjóðadómstólnum í
Haag og krafist skaðabóta
fyrir farþegaflugvél, sem
skotin var niður yfir Búl-
garíu- 58 manns, 51 farþegi og
7 manna áhöfn, fórust er flug-
vélin var skotin niður þann
27. júlí 1955.
ísrael heldur því fram, að
s.l. tvö ár hafi verið gerðar
tilraunir til þess að komast að
friðsamlegu samkomulagi við
stjórnarvöldin í Búlgaríu um
greiðslu skaðabóta, en að þær
málaleitanir hafi ekki borið
neinn árangur. Fer Israel
fram á, að Alþjóðadómstólí-
inn skeri úr um það, að
Búlgaría sé skaðabótaskyld
og einnig er farið fram á, að
dómstóllinn meti tjónið til
skaðabóta.
ísrael bendir á, að all-
margir af farþegunum hafi
ekki verir borgarar í Israel
og að ættlönd þeirra muni
gera sérstakar kröfur um
skaðabætur á hendur Búlgör-
um.
Alþjóðadómstóllinn m u n
bráðlega taka málið fyrir.
----0---
Endurskoðun stofnskrár S. Þ.
frestað
Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna, er nú situr í New
York, hefir ákveðið að- fresta
umræðum um endurskoðun á
Stofnskrá samtakanna, sem
samin var og samþykkt í San
Francisco. Verður engin end-
urskoðun framkvæmd fyr en í
fyrsta lagi eftir tvö ár, eða á
Allsherjarþinginu 1959.
Ályktunin um, að fresta
Jones þykir ekkert
varið í kálhöf uð...
Þó JONES þyki ekkert varið í kálhöfuð
finnur hann ekki til neinna óþæginda yfir
slíku. Enginn þröngvar honum til að neyta
þeirra. „Enginn segir það gott fyrir þig
að fá þér svolítinn bita “
Smith fellur ekki áfengi; þó er hann engan
veginn sem ánægðastur. Félagar hans eru
stöðugt að leggja að honum með að fá sér í
staupinu. Þeir segja:„Fáðu þér einn gráan;
falli þér ekki rúgur mun vera eitthvað til
af Scotch á heimilinu; þeir sýnast líta þannig
á, að taka ekki dropa sé móðgun við þá,
sem fá sér hressingu; stundum er honum
borið það á brýn, að hann skoði sig öðrum
„betri og meiri.“
Finst yður ekki að Smith verðskuldi sömu
nærgætnina og Joneses? Taki maður þá
stefnu að neyta ekki áfengis, ber
hlutaðeigendum að virða afstöðu hans
í þeim efnum.
Hafið hugfast, að það er óviðeigandi að
þröngva mönnum með ólíkan smekk til að
gera eitt og hið sama.
Þetta er ein þeirra fræðslugreina, weni birt er
almennina’i til gafins af
MANITOBA COMMITTEE
on ALCOHOL EDUCATION
Departmcnt of Education, Room 42,
L«si>l«tivt Buiidins, Winnipts 1.
3-1-57
endurskoðun á Sáttmálanum,
var lögð fram af sérstakri
nefnd, sem skipuð var 1955 til
þess að gera tillögur um
breytingar á Stofnskránni, ef
þær þættu æskilegar. Nefnd
þessi ákvað á fundi sínum 1
sumar, að leggja til við Alls-
herjarþingið, að Stofnskráin
yrði höfð óbreytt enn um
hríð.
Á Allsherjarþinginu greiddu
54 þjóðir atkvæði með því að
fresta endurskoðun, engin
greiddi mótatkvæði, en 9
þjóðir sátu hjá, auk þeirra
Sem fjarverandi voru.
----0----
Veðurfræðingar búa sig undir
þrýsiiloftsöld farþegaflugsins
Framkvæmdaráð Alþjóða-
veðurfræðistofnunarinnar —
(WMO) — kom nýlega saman
til fundar í Genf til þess að
ræða aðkallandi mál, en það
er hvernig veðurfræðingar
eigi að snúast gegn auknum
kröfum, sem gerðar verða til
þeirra þegar þrýstiloftsöld
farþegaflugsins heldur inn-
reið sína fyrir alvöru. Það er
ekki svo ýkja langur tími til
stefnu.
Framkvæmdaráðið sam-
þykkti að skipa nefnd sér-
fræðinga til að taka málið til
rækilegrar meðferðar og skila
skýrslu um niðurstöður sínar
fyrir næsta ársþing stofnun-
arinnar, sem haldið verður að
vori (1958). Það þykir vitað
mál, að gerðar verði enn meiri
kröfur til veðurþjónustunnar,
en nú er gert, þegar farþega-
flugvélar fara að þeysast gegn
um geiminn með allt að því
1000—1200 km. hraða á klukku
stund. Vafalaust þarf að taka í
notkun nýjar vélar og breyta
til um starfsaðferðir frá því
sem nú tíðkast.
Loks samþykkti fram-
kvæmdaráð WMO að setja á
stofn sérstaka deild innan
skrifstofu stofnunarinnar í
Genf, sem á að hafa það hlut-
verk, að fylgjast með öllum
nýjungum, sem fram kunna
að koma á þessu sviði-
----0----
Fréllir írá S. Þ. í stuttu máli
Fulltrúi Spánar var kjörinn
níundi vara-forseti á Allsherj-
ar þingi Sameinuðu þjóðanna
á dögunum. Varaforsetar voru
áður 8, er þátttökuríkin voru
aðeins 60.
Austurríki hefir lánað hinni
nýju Alþjóðakjornorkustofn-
un 1 miljón dollara á meðan
beðið er eftir tijlögum frá
þátttökuríkjunum. Kjarnorku
stofnunin hefir aðalaðsetur
sitt í Vín.
Chana hqfir gerst aðili að
GATT (Tolla- og viðskipta-
samkomulaginu).
Sudan hefir gerzt aðili að
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og
að Alþjóðabankanum.
TBLmiOHE DlRECTOkY
W/LL 8E kEADY
NOV.202
Áskrifendur geta fengiö
hina nýju símaskrá á
næstu símastöS, aS
UNDANTEKNUM
ÞEIM STÖÐUM ÞAR
SEM DIAL SKRIF-
STOFURNAR ERU. Á
slfkum stötSum má vitja
simaskrárinnar á næsta
pösthfls.
COMMUNITY DIAL SKRIFSTOFUR ER AÐ
FINNA Á EFTIRGREINDUM STÖÐUM:
Anolo Fork River Medora Son Claro
Arborg Goodlands Miniota Sf. Jeon
Arden Hazelridge Minitonas Shilo
Belmont Inglis New Sorum 6inclair
Bculoh Inwood Oak Bank Starbuck
Brokcnhead La Broquerie Ninette Tilston
Churchill Lac du Bonnet Oakburn Vidir
Cleor Lake Leteilicr Pctersfield Woldersee
Cronberry Portoge Libou Pierson Waskoda
Crondall Lockport Pine Falls Warren
Crawford Park Lorette Pipestone Whitemouth
Cromer Lundor Plcasant Valley Winnipegosis
Erickson Lyleton Reston Woodlands
Fisher Branch Marquette Riverton
4
MANITOBA TELEPHONE SYSTEM