Lögberg - 23.01.1958, Side 4

Lögberg - 23.01.1958, Side 4
4 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 23. JANÚAR 1958 Lögberg GeflB Ot hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 303 KENNEDY STREET, WINNIPEG 2, MANITOBA Utanáskrift ritstjðrans: EDITOR LÖGBERG, 303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Manitoba Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Skrifstoíustjðri: INGIBJÖRG JÓNSSON Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram "Lögberg” is published by Columbia Press Limited, 303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Manitoba, Canada Printed by Columbia Prlnters Authorized as Second Class Mall, Post Offlce Department, Ottawa WHitehall 3-0931 ______________ Liberalar velja sér flokksforingja 1 vikunni, sem leið, háðu Liberalar flokksþing sitt í Ottawa til að velja eftirmann St. Laurents, er lét af forustu flokksins vegna þreytu og fyrir aldurssakir; flutti hann á þinginu fagra og áhrifamikla kveðjuræðu, en með því lauk forustu hans af hálfu Liberala, og var hann hyltur ákaft af öllum þingheimi. Mr. St. Laurent reyndist hollur og árvakur stjórnarfor- maður; hann stækkaði landnám Canada bæði út á við og inn á við. Newfoundland varð tíunda canadiska fylkið, og rödd þjóðarinnar á vettvangi alheimsmálanna skýrðist að mun. — Það var í rauninni aldrei neinum vafa bundið, hver eftirmaður St. Laurents myndi verða í foringjasessi; mikill meirihluti flokksins, eins og skjótt kom í ljós á flokksþinginu, hallaðist á þá sveif, að fylkja liði um Lester B. Pearson, fyrrum utanríkisráðherra, er í verkahring sínum hafði aflað sér heimsfrægðar og haft víðtæk áhrif á framvindu heims- málanna, svo sem meðán á Suezvandræðunum stóð; var Mr. Pearson ekki lengi að hugsa sig um hvaða stefnu skyldi taka; að afloknum ráðuneytisfundi í Ottawa, flaug hann rakleitt til New York, og kom því til leiðar við Sameinuðu þjóðirnar að stofnaðar skyldu í þeirra nafni löggæzlufylkingar, er send- ar yrðu til Egyptalands til að koma í veg fyrir hjaðningavíg og blóðsúthellingar. Mr. Pearson fékk máli sínu framgengt. Tíu þjóðir úr fylkingu Sameinuðu þjóðanna gengust inn á að senda hervædda lögreglu til ófriðarstöðvanna í Mið-Austri. Canadiski mannaflinn varð langstærstur, bæði að fótgöngu- liði og flugstyrk; og svo rösklega var til verks gengið að hin hervædda lögregla var komin til stöðva sinna áður en nokk- urn varði. Áhrif Mr. Pearsons á þessum vettvangi heimsfriði til öryggis verða ekki metin í hendingskasti, þó Verkin sýndi merkin, er hann hinn 14. október síðastliðinn var form- lega sæmdur friðarverðlaunum Nóbels. Og víst er um það, að stórblöð vítt um heim, leggja meira upp úr um- mælum Mr. Pearsons en Diefenbakers forsætisráðherra og dr. Sidney Smiths. Mr. Pearson er sextugur að aldri, eða rétt að segja tveimur árum yngri en Mr. Diefenbaker; hann er fæddur í Toronto af prestakyni, vanur sveitalífi í Ontario frá barn- æsku, en lauk ungur prófi við Toronto-háskóla; hann tók þátt í fyrri heimsstyrjöldinni, fór því næst til Chicago og starfaði þar um hríð við heildsölukjötverzlun; hag sínum undi hann þar ekki lengi, en lagði þaðan leið sína til Oxford- háskóla; en er heim kom gegndi hann í nokkur ár prófessors- embætti við Toronto-háskóla, þar sem hann einkum kendi sögu; árið 1925 kvæntist Mr. Pearson og gekk að eiga Miss Maryon Moody, sem var í hópi nemenda hans; þau eiga tvö börn. Árið 1928 gekk Mr. Pearson í þjónustu sambandsstjórnar, og tókst á hendur aðstoðarutanríkisráðherraembætti 1941, en árið eftir var hann skipaður sendiherra Canadastjórnar í Washington; hann var í fremstu röð þeirra stjórnmálamanna, er grundvöll lögðu að sáttmála Sameinuðu þjóðanna í San Francisco. Árið 1953 var Mr. Pearson forseti Sameinuðu þjóðanna, og féll það meðal annars í hans hlut, að hafa víðtæk áhrif á vopnahlésaðgerðirnar í Kóreu; hann átti einnig sinn mikil- væga þátt í því, að hrinda í framkvæmd vopnahléi í Indo- China og að Canada átti sæti í nefndinni, sem falið var að vernda sættargerðir þar um slóðir. Hinn 10. september 1948 tókst Mr. Pearson á hendur utanríkisráðherraembætti í ráðu- neyti St. Laurents og gegndi því með miklum ágætum fram að þeim tíma, er Liberalflokkurinn beið ósigur í sambands- kosningunum 10. júní síðastliðinn. Um flokksforustuna gegn Mr. Pearson keptu Paul Martin fyrrum heilbrigðismálaráðherra og borgarstjórinn í Portage la Prairie, Mr. Henderson, er fékk á ársþinginu eitt atkvæði; hann gegnir jafnframt prestsembætti í heimaborg sinni. Mr. Pearson var kosinn við fyrstu talningu með yfir þúsund at- Samlal við JAKOB JÓH. SMÁRA: „Mér þykir gaman að fóst við róðgótu tilverunnar — jafnvel í Ijóði" . . . Ný ljóðabók kemur út um þessar mundir hjá Bókaút- gáfu Menningarsjóðs. Hún hefur sérstöðu gagnvart öðr- um bókum Menningarsjóðs að því leyti, að hún flytur frum- ort ljóð eftir núlifandi skáld. Skáldið, sem þessa heiðurs nýtur, er Jakob Jóh. Smári. Útkoma þessarar ljóðabókar, „Við djúpar lindir“, þykir sömuleiðis tíðindum sæta vegna þess, að Jakob Jóh. Smári hefur ekki látið frá sér fara ljóðabók í átján ár. Hann hefur reyndar ekki setið auð- um höndum þennan tíma. Hann hefur afkastað miklu á sviði bókmennta, meðal ann- ars þýtt feikimikið, bæði ljóð, sönglagatexta, óperutexta og sögur- Jakob Jóh. Smári er nú hniginn á efri ár, 68 ára gam- all. Hann er að menntun magister í norrænni málfræði og var um skeið íslenzkukenn- ari við Menntaskólann í Reykjavík. Hann hefur samið og gefið út kennslubók í mál- fræði og setningafræði og samið orðabók. Fyrsta kvæðabók Jakobs Jóh. Smára kom út árið 1920 og hét „Kaldavermsl“, en næsta bók, „Handan storms og strauma“, kom út 1936. Þriðja bókin kom út þremur árum síðar og hét „Undir sól og sjá.“ Og nú — átján árum síðar — kemur út fjórða ljóðabók Jakobs Jóh. Smára. í tilefni þess átti tíðindamaður blaðs- ins viðtal við skáldið, og fer rabb þeirra hér á eftir: — Hve langt er síðan sein- asta ljóðabók þín kom út? — Það eru átján ár frá því að seinasta ljóðabók mín kom út. Hún hét „Undir sól og sjá.“ 1 nýju bókinni, „Við djúpar lindir,“ eru 125 kvæði og er hún 10 arkir að stærð.“ — Eru kvæðin nýlega ort? — Hér um bil öll kvæðin eru ort seinustu árin, en örfá áður. Ég er alltaf að yrkja öðru hvoru. — Og þýðir mikið úr er- lendum málum? — Síðustu missirin hef ég unnið að því að þýða söguna “The Woodlanders” eftir Thomas Hardy. Ég hef nú lok- ið við það verk, en sagan er ennþá óprentuð. Skemmti- legra þykir mér að þýða kvæði, og hef ég þýtt mörg ljóð og nokkrar sonnettur eftir ensk skáld. —Þú yrkir tíðum sonnettur? —Ég hef ort yfir hundrað sonnettur um dagana. Mér þykir gaman að fást við sonnetturnar, en þær eru vandmeðfarnar. — Þú hefur ekki þrætt nýj- ar leiðir í ljóðagerðinni? — Ég hef aldrei reynt að þóknast neinum, ekki heldur almenningsálitinu, heldur hef ég ort eins og andinn hefur innblásið mér í það og það skiptið. — Yrkir þú órímuð ljóð? — Ég hef ort nokkur órím- uð ljóð og eru nokkur slík í einni eldri ljóðabókinni. — Hvert er álit þitt á kveð- skap yngri skáldanna? — Ég hef ekkert á móti atómkveðskap, en ég held, að þeim skáldum liggi lítið á hjarta, sem þannig yrkja- Þau fikta við tilfinningar sín- ar án þess að þeim virðist vera næg alvara í því. Annars tel ég sjálfsagt að ung skáld reyni nýjar leiðir, ef þeim býður svo við að horfa, en þau ættu helzt að hafa eitthvað að segja, sem máli skiptir. — Hafa yrkisefni þín breytzt frá því að fyrri kvæða bækurnar komu út? — Það fer minna fyrir ásta- ljóðunum nú en áður, æsku- blossinn er farinn, en þó er ég ungur í anda. — Ortir þú ekki mörg ásta- ljóð á yngri árum? — Ég byrjaði fyrst að yrkja þá er ég var 19 ára gamall. 1 skóla gat ég ekki ort neitt nema skens og skæting, sem þótti illa kveðinn. — Hvaða viðfangsefni eru þér hugstæðust? — Ég hef að undanförnu þýtt óperur og óperettur fyrir Þjóðleikhúsið. Sem dæmi má nefna Leðurblökuna og Töfra- flautuna, sem sýnd hafa verið, og Rakarann í Sevilla, sem fluttur verður á næstunni, og fleira og fleira hef ég þýtt, til dæmis ótalmarga söngtexta fyrir karlakóra. 1 þessu liggur mikil vinna, en kvæðagerðin er mér kærust. — Hvað er framundan? — Ég er nú orðinn svo gamall, að ég legg ekki langar áætlanir, en læt ráðast, hver afköstín verða þann og þann daginn. — Ertu ánægður með nýju bókina? — Já, ég er fyllilega ánægð- ur með bókina, og ánægðastur með það, að hún er með öllu prentvillulaus. Frágangur er eftir því. Ég er þakklátur Bókaútgáfu Menningarsjóðs og Menntamálaráði fyrir að vilja gefa bókina út. — Hvaða kvæði bókarinnar telur þú bezt? — Ég held, að kvæðið Fá- vitar sé bezt. Það er byggt á sálrænni reynslu. Ég var á fávitahæli fyrir mörgum árum og þekki „þjáningabörnin“ af eigin raun. Annars held ég einna mest upp á tvær sonnettur, Mót og Isis. — Viltu segja nokkuð um reynslu þína viðvíkjandi ljóðagerðinni? — Mér þykir mest um vert að hafa kynnt mér sálarrann- sóknir (spíritisma). Þær hafa orðið mér mikill aflgjafi. Ég hef gaman af að fást við ráð- gátu tilverunnar — jafnvel í ljóði. —U. S. —Alþbl-, 21. nóv. ADDITIONS to Betel Building Fund Miss Alma Tergesen P.O- Box 9600, Selkirk, Man. $25.00 ----0--- Gilbart Funeral Home Ltd., 300 Eveline Street, Selkirk, Manitoba $50.00 Kaupið Lögberg VIÐLESNASTA ÍSLENZKA BLAÐIÐ "Befel##$205#000.00 Building Campaign Fund —180 Make your donations to the "Betel" Campaign Fund. 123 Princess Street. Winnipeg 2. kvæðum, en atkvæðamagn Mr. Martins var nokkuð á fjórða hundrað; hann er maður mikill fyrir sér og stórmælskur; mun hann verða foringja sínum og Liberalflokknum í heild ómetanlegur styrkur, er til kosningabaráttunnar kemur, því hann vill gjarnan vera í fremstu víglínu og hlífir sér lítt. Mr. Pearson var fyrst kosinn á þing fyrir Algoma East 25. október 1948, sem liggur í norðurhluta Ontariofylkis, og vann kjördæmi sitt í síðustu kosningum með álitlegu at- kvæðamagni, þrátt fyrir ófarir flokksins, þar sem þrettán ráðherrar féllu í val. Liberalflokkurinn hyggur gott til forustu Mr. Pearsons, og slíkt hið sama mun meirihluti þjóðarinnar gera í heild.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.