Lögberg - 13.02.1958, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 13. FEBRÚAR 1958
7
Úr ýmsum óttum
Póstmálaráðherra Banda-
ríkjanna á lítinn skrýtinn
hund. Segja má, að sá litli sé
heiðursmeðlimur ráðherra-
fjölskyldunnar, öllum þykir
vænt um hann og hugsað er
um hann eins og „litla barnið
á heimilinu." Þess vegna er
hann bara kallaður Bo-Bo
enda þótt hann heiti fullu
nafni Beau Brummel.
En póstmálaráðherrann veit
að hundar eru verstu óvinir
hinna 128,899 póstþjóna
Bandaríkjanna, því að 6,000
póstþjónar eru að jafnaði
bitnir af hundum á hverju ári.
Allt hefur verið reynt. Póst-
þjónar hafa verið látnir klæð-
ast buxum úr sterkara efni —
og þeir hafa fengið vatns-
byssur til þess að verjast með.
Allt hefur samt komið fyrir
ekki: Hundarnir eru jafn-
ágengir sem áður-
Annaðhvori — eða
Og að frumkvæði póstmála-
ráðherrans var gripið til gagn
gerra ráðstafana á dögunum.
Nú beindi póstmálastjórnin
orðum sínum til hundaeig-
enda, en ekki hundanna
sjálfra — aldrei þessu vant.
Hundaeigendum var sem sé
gert það ljóst, að annaðhvort
yrðu þeir að sjá til þess að
hundar þeirra næðu ekki til
buxnaskálma og fótleggja
póstþjóna, þegar þjónarnir
bæru póstinn til hundaeig-
endanna — eða þá að útburði
póstsins til hundaeigenda yrði
hætt.
í ljósi reynslunnar
Hvort sem þið trúið því eða
ekki — þá er það satt, að
bandarískum stjórnarvöldum
hafa þegar borizt allmargar
umsóknir um vegabréfsáritun
til geimferða, frá mönnum úr
mörgum fylkjum Bandaríkj-
anna. I því sambandi má geta
þess, að ekki er vitað til að
nein bandarísk tík hafi sótt
um svipaða vegabréfsáritun,
enda munu örlög rússnesku
„geimtíkarinnar" ekki hafa
vakið neinar gyllivonir í
brjóstum bandarískra tíka um
aukna lífshamingju úti í
geimnum.
Eisenhower dáðastur
Gallupstofnunin bandaríska
kannaði um áramótin hvaða
maður það væri, er Banda-
ríkjamenn hefðu dáð mest á
árinu sem leið. Eisenhower
forseti hlaut vinninginn í
fimmta sinn í röð, en af kon-
um bar E. Roosevelt sigur úr
bítum. Meðal þeirra sem voru
ofarlega á blaði voru Truman,
fyrrum Bandaríkjaforseti, —
Winston Churchill og Elísabet
Englandsdrottning.
SAS fær samkeppni
SAS fær nú brátt harðan
keppinaut á flugleiðinni frá
Evrópu til Japan, yfir heim-
skautið. Það er franska flug-
félagið Air France, sem hér
um ræðir — og verður það
fyrsti keppinautur SAS á
þessari flugleið. Fyrsta flug-
ferðin verður farin eftir
nokkra daga, en reglubundnar
ferðir hefjast í apríl, mun fyrr
en forstöðumenn SAS höfðu
búizt við- Um 5,000 manns
hafa flogið með SAS yfir
heimskautið — og þykir flug-
leiðin hafa gefið góðan arð.
Sem kunnugt er varð SAS
einnig fyrst til þess að hefja
flugferðir milli N.-Evrópu og
vesturstrandar Bandaríkjanna
með því að fljúga stytztu leið,
yfir heimskautssvæðið, en nú
eru brezk, bandarísk og kana-
dísk flugfélög einnig farin að
fljúga sömu leið. Hollending-
ar og Þjóðverjar bætast við á
næstunni.
Dean Acheson handleggs-
brolnaðd
Dean Acheson, fyrrum utan
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
varð fyrir því óhappi um dag-
inn að handleggsbrotna, er
hann hrasaði í hálku á götu í
Á vegum útgáfunnar Leift-
ur í Reykjavík kom út síðast-
liðið haust ný bók eftir Axel
Thorsteinson rithöfund, er ber
hið heillandi heiti Eyjan
græna, ferðaþættir frá írlandi,
sem segja frá dvöl höfundar
og ferðalögum í landi þar
haustið 1956.
Axel hefir fyrir löngu sýnt
það í blaðagreinum sínum og
bókum, að honum lætur vel
að segja frá, bæði um lipurð í
málfari og glöggskyggni í lýs-
mgum, og þessir ferðaþættir
hans sverja sig í sömu ætt;
þeir eru hvort tveggja í senn
fróðlegir og skemmtilega rit-
aðir.
Bókin hefst á einkar greinar
góðum almennum yfirlitskafla
um írland og Irlendinga, þar
sem lýst er landinu, rakin
saga þjóðarinnar í megin-
dráttum, og jafnframt brugð-
ið upp skyndimyndum af
skaphöfn hennar. Eins og
kunnugt er og höfundur bend-
ir réttilega á, eru írar mikil
bókmenntaþjóð; ræðir hann
því sérstaklega um þá hliðina
á merkilegri menningu þeirra,
og um annað fram um nútíðar
bókmenntir þeirra. Fer hann
meðal annars um þær þessum
orðum:
„Devin A. Garrity segir í
inngangi að úrvalssafni írskra
smásagna, að írar hafi jafan
verið orðhagir, enskt mál hafi
í meðförum þeirra fengið á
sig hreinan töfraljóma, og
komi það hvergi skýrar í ljós
en í smásögnum þeirra, þar
sem samtvinnast ljóðræn
fegurð, einfaldleiki, hugsjóna-
auðlegð, vefurinn haglega of-
inn, hvort sem um blæ glettni
eða harms er að ræða, í lýs-
ingum frá sviði hversdagsleik-
Washington — og féll endi-
langur á götuna. Fregnir
herma, að brotið hafi verið
slæmt, en hann sé nú heldur
að ná sér.
Farþegaflug umhverfis jörðu
Ástralska flugfélagið Quan-
tas hefir nú hafið flugferðir
umhverfis hnöttinn. Sex daga
vikunnar leggja tvær flugvél-
ar upp frá Sidney í Ástralíu.
Önnur þeirra heldur í austur,
hin í vestur — og tekur hnatt-
ferð hvorrar um sig fimm til
sex sólarhringa. — Þetta er
fyrsta flugfélagið, sem hefur
flugferðir umhverfis jörðu.
Hins vegar hafa tvö bandarísk
flugfélög áður selt farmiða um
hverfis jörðu, en farþegar
hafa þá þurft að skipta oft um
flugvél — og hefir ferðin þá
jafan tekið mun lengri tíma.
Viðkomustaðir Quantans á
nýju flugleiðinni eru: Hawaii,
San Francisco, New York,
Róm, Istanbul, Karachi, Cal-
cutta, Bangkok, Singapore,
Jakarta og Darwin, en enda-
stöðin er Sidney í Ástralíu,
sem fyrr segir.
ans, án tilraunar til að mála
með sterkum litum, — þær
leyni á sér við fyrsta lestur,
en við nánari kynni komi í
ljós, hve mikið þær geymi.
Garrity segir og, að engin til-
raun hafi verið gerð til þess
að fara yfir allt það, sem eftir
írska rithöfunda liggur, við
valið í safnið:
„Það mundi vissulega verða
mjög erfitt, því að næstum
allir írlendingar hafi ort eitt
eða tvö kvæði, skrifað smá-
sögu eða leikrit, einhvern tíma
ævinnar- Irsk ljóð og leikrit
hafa á síðari árum vakið tals-
verða athygli — en írskar
skáldsögur ekki sem skyldi.
Mörg ágæt sýnishorn írskrar
smásagnagerðar eru enn
„grafin“ í litlum tímaritum,
sem skjóta upp kollinum við
og við á írlandi, og hverfa
jafnskjótt, og hafa því aldrei
orðið víðkunn.“
Hér þarf eengum skýring-
um við að bæta, en þessi orð
Garrity’s gætu alveg eins vel
átt við íslendinga. — „Margt
er líkt með skyldum.“
Eins og vænta má, víkur
höfundur víðar í bókinni að
sögulegum og ætternislegum
tengslum íra og Islendinga, og
sér í lagi í byrjun meginhluta
hennra, ferðaþáttanna frá
Norður-írlandi. Lýsir hann
fögru og tilbreytingaríku
landslagi á þeim slóðum, stór-
byggingum, einkum í höfuð-
borginni Belfast og nágrenni,
landbúnaði og öðrum atvinnu-
vegum, ininnisstæðri heim-
sókn hjá forsætisráðherra
Norður-Irlands og ánægju-
legum samvistum við írska
útvarps- og blaðamenn, er
margs þurftu að spyrja starfs-
bróður sinn frá tslandi. Enn-
—Mbl. 25. jan.
Fræðandi og skemmtilegir ferðoþættir
fremur lýsir Axel Drottningar
háskólanum í Belfast og öðr-
um menntastofnunum, og tel-
ur, að á sviði fræðslumála
sæki Norður-Irar yfirleitt ör-
ugglega fram. Inn í marg-
þætta lýsinguna á Norður-
írlandi er ofin saga þess lands-
hluta, og eykur það drjúgum
á fróðleiksgildi frásagnar-
innar.
En höfundur brá sér einnig
til Suður-írlands og er um það
einkar hugþekkur þáttur í
bókinni, „Dagur í Dyflinni,“
þar sem saga borgarinnar er
rakin að nokkuru og sérstak-
lega vikið að tengslum hennar
við norræna víkinga. Ágæt-
lega ber Axel írum söguna
fyrir alúðlega framkomu
þeirra og hina góðu fyrir-
greiðslu, sem hann átti hvar-
vetna að fagna á ferðum
sínum um land þeirra.
Lokaþáttur bókarinnar, —
„Þar sem ástin átti sér ekkert
griðland,“ er þýðing á hjart-
næmri frásögn um ungan ír-
lending, sem kröpp kjör heima
fyrir knúðu í gæfuleit til
Vesturheims, og þarf ekki
langt að leita hliðstæðra
dæma úr sögu Islendinga og
annarra þjóða.
Islendingum, sem rennur
írskt (keltneskt) blóð í æðum
samhliða hinu norræna (þó að
fræðimenn greini á um hlut-
föllin), munu lesa þessa bók
sér til ánægju og fræðslu. Hún
er snotur að ytri búningi,
prýdd allmörgum myndum. -
RICHARD BECK
■
■
1
■
■
■
■
■
■
■
■
■
■
I
■
■
B
B
1
liillBlíllBliilBililBIIIIBIBIIIIBIIIIB'lílBilllBllillBiillBiiílBÍIIIBiiilBlíllBIfflB'illB'iílBiíllBllllBlB
I A L • • • ÍSLENZKA MILLILANDAFLUGFÉLAGIÐ
—r4h'
Lægstu fluggjöld
til
ÍSLANDS
i
i
H
B
B
B
fl
B
B
B
B
B
B
*
fl
Á cinni nóttu til Rcykjavíkur . . . ágætur kvöldverður með
koníaki, náttvcrður AI.I/T ÁN' AUKAGREIÐSIitl MEÐ IAL.
Rúmgóðir or þa-gilcgir farþegaklcfar mcð miklu fótrýml . . .
áhöfnin. 6 Skandinnvar, sem þjálfaðir hafa verið í Randaríkjun-
um, býður yður vclkominn um borð. Ekkert flugfclag, sem
hcldur uppi föstum flugfcrðiim yflr Norður-Atlantshaflð, býður
lægri fargjöld.
Eftir sknmina viðdvöl á islandi lialda flugvélarnar áfram til
B
■
:
■
B
B
B
:
B
NOREGS, SVIÞJGÐAR, RANMERKUR, STÓRA-BRETRANDS,
M-ZKALANDS.
Upplýsingar í öllum feröaskrifstofum.
ICEL
INES
15 West 47th Street, New York 36 PL 7-8585
NEW YORK . CRICAGO . SAN FRANCISCO
m • » ■ u «
niBiiuBnnii«iBii«BiiiiaimflniiBmBNBiiiiaiiiBiiiiBiiiiaiii!B!iiiBiiiiBiiiiBiii,l