Lögberg - 06.03.1958, Qupperneq 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 6- MARZ 1958
Úr borg og bygð
Höfðingleg gjöf
Mr. Randver Sigurðsson,
898 Banning Street, Winnipeg,
hefir auðsýnt Betel á Gimli
þá góðvild, að gefa stofuninni
allan húsgagnaútbúnað í eina
íbúð byggingarinnar. Þess er
æskt, að þessi íbúð verði
helguð minningu foreldra gef-
andans, Sigurði Sigurðssyni
og frú hans Ragnheiði Thor-
veigu Sigurðsson og minningu
sonar þeirra Jóns Sigurðs-
sonar.
Skjöldur verður settur við
innganginn, þar sem þess er
getið, að íbúðin sé helguð
minningu Sigurðar Sigurðs-
sonar, frúar hans og Jóns
sonar þeirra.
Fyrir hönd fjársöfnunar-
nefndar Betels,
Greííir Eggeríson
☆ •
Meðal utanbæjargesta, er
komu á þjóðræknisþingið í
fyrri viku voru þessir: Kristín
Pálsson, Lundar; Veiga Jó-
hannesson, Árborg; E. J. East-
man, Elfros, Sask.; Árni
Brandson, Hnausa; J. Melan,
Transcona; Aðalbjörg Sig-
valdason, Árborg; Th. G. Sig-
valdason, Árborg; Ásgeir
Möller, Riverton; Gunnar Sæ-
mundsson, Árborg.
☆
Á þriðjudaginn um hádegis-
bil efndi W. J. Lindal dómari
til ríkmannlegrar máltíðar í
salarkynnum Hudson’s Bay
verzlunarinnar hér í borginni;
var þetta gert í heiðursskyni
við Dr. B. N. Árnason, aðstoð-
arráðherra samvinnustofnana
í Saskatchewan, sem hingað
var kominn til að fiytja ræðu
á samkomu Icelandic Canad-
ian Club.
Lindal dómari bauð gesti
sína velkomna með fögrum og
hlýjum orðum, en auk hans
tóku til máls Senator Thor-
valdson, séra Eric H. Sigmar,
Grettir Eggertson og heiðurs-
gesturinn, Dr. Árnason. Um
sextíu manns munu hafa setið
boðið.
☆
Auk þeirra kveðjuskeyta til
þjóðræknisþingsins, er getið
var um í síðasta blaði bárust
félaginu kærkomnar kveðjur
frá biskupi íslands, Ásmundi
Guðmundssyni, og frá Árna G.
Eylands og frú, sem um þessar
mundir dvelja í Noregi.
☆
Próf. Haraldur Bessason
flutti nýlega erindi um ís-
lenzkar bókmenntir á 12. og
13. öld fyrir Saturday Club,
félag prófessora við Manitoba
háskólann.
Embællismenn endurkosnir
Á nýafstöðnu ársþingi Þjóð-
ræknisfélags íslendinga í
Vesturheimi, voru allir em-
bættismenn félagsins endur-
kosnir í einu hljóði fyrir hið
nýbyrjaða starfsár.
☆
Einhver hafði orð á því á
nýafstöðnu þjóðræknisþingi,
að af þinggestum væri meiri-
hlutinn ekkjur-
Alt í lagi. — Okkur virtist
ágæt þjóðræknin.
En áberandi á því birtist
ekkjusvipurinn. —R.
☆
Jon Sigurdson Chapter,
I.O.D.E. will meet at the home
of Mrs. P. J. Sivertson, 497
Telfer St. Friday March the
7th.
☆
— DÁNARFREGN —
Nýlega er látinn Theodore
Vatnsdal, bóndi í Henselbyggð
inni í N. Dakota, nálega sex-
tugur að aldri, sonur Elíasar
heitins Vatnsdal, er búsettur
var um hríð í Vatnabyggðun-
um í Saskatchewan, San
Diego, Calif. og Hensel, N.
Dakota. Mr. Vatnsdal lætur
eftir sig konu sína og þrjú
uppkomin börn.
☆
Mrs. Petrun Kristjanson, a
pioneer of the Bredenbury,
Sask., district, died Dec. 5,
1957 at the home of her
daughter, Mrs. B. Bjarnason,
Minnedosa, Man. Mrs. Krist-
janson was born in Iceland
and came to Canada in 1900.
In the same year she married
Kristjan Kristjansson and
they homesteaded in the
Bredenbury district, where
they farmed for many years.
Survivors are a son, Johann,
of Winnipeg, her daughter,
Mrs- Bjarnason, and four
grandchildren. Funeral was at
Concordia Lutheran Church,
burial in the Concordia ceme-
tery.
☆
Til kaupenda Lögbergs
Um þessar mundir berst
blaðinu mikið af ársgjöldun-
um; við breytum ártalinu á
listanum, þegar gjaldið kem-
ur og er það nokkurs konar
kvittun. Gerið svo vel og at-
hugið nafnmiðann á blaðinu
og látið okkur vita, ef láðst
hefir að breyta ártalinu.
Ef á nafnmiðanum stendur
Jan. ’58, þá þýðir það, að greitt
hefir verið fyrir blaðið fram
að þeim tíma, en ekki fyrir
yfirstandandi ár.
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Betel-samkoman á mánu-
dagskvöldið tókst með af-
brigðum vel, var vel sótt og
skemmtileg- — Samskotin til
arðs fyrir Betel námu $190.00.
Wynyard, Saskatchewan,
27. febrúar 1958
Kæri Einar minn:
Mig langar mikið til að láta
prenta í blaðinu Lögbergi
dánarfregn Guðbjargar systur
minnar. Hún lézt 27. janúar
1958 mjög snögglega að 1140
Beacon Street, Brooklin 46,
Mass., U.S.A. Hún var gift Dr.
Maurice E. Peters, sem nú á
á bak henni að sjá. Guðbjörg
var dóttir hjónanna Jóhannes-
ar Kr. Péturssonar og Þor-
bjargar Hósíasdóttur, sem
námu land og bjuggu lengi
skammt frá Wynyard-bæ í
Sask., en fluttu síðan til Win-
nipeg og eru nú bæði látin.
Guðbjörg var fædd 23. janúar
1905 í Wynyard-byggð; hún
var allvel mentuð og skóla-
gengin eftir því, sem gerðist í
þá daga. Hafði hún fyrir
nokkrum árum umsjón með
Sunnudagaskólum Sameinaða
kirkjufélagsins og söfnuðum
þess og var mjög mikils metin
í því starfi.
Liljan hreina ljós er deyr
legst að torfu jarðar.
Minninganna mikli reyr
mönnum leiðið varðar.
Hósías B. Peierson
TILBÚNIR AUGASTEINAR
Talið er að tuttugasti hver
maður missi sjónina vegna
þess að ský kemur á auga-
steininn. Hefir það verið
venja að taka augasteinana úr
þeim mönnum og láta þá síð-
an ganga með mjög þykk og
kúpt gleraugu, sem brjóta
ljósið líkt og augasteinninn.
En svo kom brezkur læknir,
Harold Ridley til sögunnar,
og bjó til augasteina, sem
hægt var að setja í stað þeirra,
sem teknir voru. Hefir þetta
gefizt mjög vel, að því er tveir
læknar í Filadelfíu segja. Þeir
hafa skipt um augasteina í 115
sjúklingum, og hafa flestir
þeirra fengið ágæta sjón á
eftir.
----0---
Milljónamæringur var á
ferð í bíl sínum í fjallaskarði
nokkru. Þá kom bíll á móti
honum. Vegurinn var svo
þröngur, að hvorugur komst
áfram, klettaveggur á aðra
hönd en hengiflug á hina. —
Milljónamæringurinn var á
hraðri ferð. Hann keypti því
hinn bílinn og lét velta honum
út af hengifluginu.
NOTICE T O CREDITORS
In the matter of the Estate of HALLGRIMUR SIGURDSON,
late of the City of Winnipeg, in the Province of Manitoba,
Retired Employee, Province of Saskatchewan, deceased.
All claims against the above estate, duly verified by
statuary declaration, must be filed with the undersigned at 389
Main Street, Winnipeg 2, Manitoba, on or before the 15th day
of April, A.D. 1958.
Dated at Winnipeg, in Manitoba, this 26th day of February,
A.D. 1958.
Messrs. Parker, Tallin, Krisljansson, Parker & Mariin,
Solictors for the Administratix, Sigrid Sigurdson.
STEFNUSKRA PEARSON’S
I VARÐANDI
W. J. (BILL) WOOD
þingmannefni í Selkirk
VELMEGUN
LANDBÚNAÐUR
1. Korn
(a) Verðlagsstuðningur — $1.50 fyrir hveiti.
(b) Greiðslur fyrir korn, sem geymt er á
bújörðum.
2. Verðlagsstuðningur við smjör hækkaður —
frá 58c. til 63c.
FÉLAGSLEGT ÖRYGGI
1. Sjúkdómar — Atvinnuleysisstyrkur verði greiddur sakir vinnu-
taps af völdum veikinda.
2. Fjölskyldustyrkur handa stúdentum framlengdur til 18 ára
aldurs.
Núgildandi innflutningstollur á bílum, er nemur 7^% verði afnum-
inn, en slíkt sparar að minsta kosti $120 á nýjum bíl.
MENTUN
Námsstyrkir af ýmissum upphæðum handa háskólastúdentum.
Kjördagur, mánudagur 31. marz
Kjörsiaðir opnasi kl. 8 f. h. — lokasi kl. 6 e. h.
LÁTIÐ ÁHRIFA KJÖRSEÐILS YÐAR GÆTA - KJÓSIÐ LIBERAL
Merkið kjörseðilinn þannig:
WOOD
By aulhorily Selkirk, Liberal Aisocialion