Lögberg - 13.03.1958, Síða 2
2
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 13. MARZ 1958
Þrítugasta og níunda ársþing
Þjóðræknisfélags fslendinga í Vesturheimi
(Úídráiiur úr
FYRSTI FUNDUR
(kl. 10 f. h. þann 24. febr. 1958)
1. Þingsetning (forseti, dr.
Richard Beck).
2. Bæn (dr. Valdimar J. Ey-
lands). Sálmar voru sungnir
fyrir og eftir bænina.
3. Forseti, dr- Beck, flutti
ársskýrslu sína, sem var bæði
mjög ýtarleg og vel samin.
Forseta var þökkuð skýrslan,
svo og starf hans á árinu í
þágu Þjóðræknisfélagsins með
skýrslu riiara)
því að fundarmenn risu úr
sætum.
4. Að fenginni heimild frá
þinginu skipaði forseti eftir-
taldar nefndir:
Dagskrárnefnd, en hana
skipuðu þessi:
Dr. Valdimar J. Eylands
Elín Hall
Kristín Þorsteinsson.
Kjörbréfanefnd, sem var
þannig skipuð:
Guðmann Levy
Herdís Eiríksson
Rósa Jóhannsson.
5. Féhirðir, Grettir L. Jo-
hannson, flutti hjárhags-
skýrslu félagsins og skýrslu
um húseign þess á Home
Street. Var báðum skýrslun-
um vísað til væntanlegrar
fjármálanefndar, um leið og
þær voru viðteknar og sam-
þykktar.
6. Fjármálaritari, Guðmann
Levy, las skýrslu sína, og var
hún viðtekin og samþykkt.
7. Forseti, dr. Beck, flutti
kveðjur, sem borizt höfðu
þinginu frá eftirtöldum mönn-
um og stofnunum: Sr. Benja-
mín Kristjánssyni á Lauga-
landi, Félagi til eflingar nor-
rænum fræðum í Bandaríkj-
unum, en forseti Þjóðræknis-
félagsins er formaður þess fé-
lagsskapar. Sérstök kveðja
barst og frá Ríkisháskólanum
í Norður Dakota og forseta
þeirrar stofunar. Munnleg
kveðja barst og frá sr. Ólafi
Skúlasyni á Mountain, North
Dakota.
8- Þá var tekið fyrir næsta
mál á dagskrá, sem var skýrsl-
ur deilda. Jón Jónsson forseti
„Fróns“ í Winnipeg flutti
skýrslu deildar sinnar, sem
bar þess órækan vott, að sú
deild hafði verið mikilvirk á
árinu. Ritari las skýrslu þjóð-
ræknisdeildarinnar „Aldan“ í
Blaine, Washington. Gestur
Jóhannsson las ársskýrslu
deildarinnar „Brúin“ í Sel-
kirk, en Stefán Eymundsson,
fulltrúi „Strandamanna“ á
þinginu las skýrslu deildarinn-
ar „Ströndin“ í Vancouver.
ANNAR FUNDUR
(kl. 2 e.h., 24. febr.)
1. Frú Herdís Eiríksson
flutti ársskýrslu þjóðræknis-
deildarinnar „Esjan“ í Árborg,
en sú deild hefir mikið gert á
árinu sem kunnugt er. Frú
Kristín Þorsteinsson las
skýrslu deildarinnar „Gimli“.
2. María Björnsson flutti
skýrslu milliþinganefndar í
skógræktarmálum. Var skýrsl-
an hin hin fróðlegasta, enda
frú María mjög ötul í starfi
sínu sem formaður skógrækt-
arnefndar. Nokkrar umræður
urðu um þessa skýrslu, og
sýndist öllum, að skógræktar-
málið væri hið mesta nauð-
synjamál.
3. Frú María flutti einnig
skýrslu milliþinganefndar í
minjasafnsmálinu. — Skoraði
frúin eindregið á þinggesti að
ljá því máli stuðning.
4. Forseti skipaði þriggja
manna milliþinganefnd í
minjasafnsmálið, eftirtaldar
konur voru skipaðar í þá
nefnd:
Frú María Björnsson
Frú Kristín Johnson
Frú Herdís Eiríksson.
5- Ræðismaður íslands í
Winnipeg, Grettir L. Johann-
son, las kveðjur til þingsins
frá hr. Thor Thors ambassador
íslands í Washington, D.C.
Var þeim kveðjum mjög vel
fagnað.
6. Gísli Gíslason las skýrslu
þjóðræknisdeildarinnar á
Lundar.
7. Forseti skipaði í allsherj-
arnefnd sem hér segir:
Sr. Philip M. Pétursson
Anna Austmann
Gestur Jóhannsson.
ÞRIÐJI FUNDUR
(kl. 10 f. h., 25 febr.)
1. Samþykkt var, að þingið
sendi Ríkisháskólanum í N.
Dakota heillaóskir í tilefni af
75 ára afmæli skólans.
2. Forseti skipaði í nefndir
sem hér segir:
Útbreiðslumálanefnd:
Sr. Philip M. Pétursson,
Stefán Eymundsson
Guðmundur B- Magnússon
Margrét Goodman,
Gísli Gíslason.
F j ármálanef nd:
Guðmann Levy
Jón Jónsson
Halldóra Austmann.
F ræðslumálanef nd:
Hólmfríður Daníelsson
Herdís Eiríksson
Elín Sigurðsson
Þórunn Jóhannsson
Soffía Benjamínsson.
GREIÐID ATKVÆÐI MEÐ
SKIPULAGNINGU
AÐ LÆKKA SKATTA - AUKA ATVINNU
ENDURVEKJA TRAUST
LÁTIÐ LIFNA YFIR CANADA Á NY
MEIRI ATVINNA
FYRIR CANADAMENN
vegna fjölgaðra
viðskipta dollara
• 50% skattlækkun á árlegum
ágóða alt að $10,000, styrkir
hinar smærri viðskiptastofnanir.
• 50% hækkun á afskriftargjöld-
um hvetur til fjárframlaga til
nýrra fyrirtækja í ár.
Þessi tímabæra skattívilnun, er enn
önnur aðferð til þess, að peningar
komist í veltu á ný og almenningur
komist aftur til iðju.
ÞESSI ÁKVEÐNU ÁTÖK TIL AÐ AUKA ATVINNU EINMITT NÚ
HRINDIR í FRAMKVÆMD HINNI STAÐREYNDU LIBERAL STEFNU: AÐ LÆKKA SKATTA,
AUKA KAUPMÁTTINN ÞEGAR ÞUNGT ER YFIR VIÐSKIPTALÍFINU OG ATVINNULEYSI
FÆRIST í VÖXT.
VEGNÁ aBYGGILEGRAR FORUSTU NÚ ÞEGAR
GREIÐIÐ LIBERAL ATKVÆÐI
NATIONAL LIBERAL COMMITTEE
MEIRI PENINGAR
HANDA YÐUR
vegna
lægri skatta
• 25% skattlækkun á alla cana-
diska þegna með skattskyldar
tekjur alt að $3,000!
• 100% hækkun á undanþágum
fyrir gift fólk fyrstu þrjú
giftingarárin!
• Enginn sérstakur innflutnings-
skattur af bílum!
MEIRI PENINGAR
FYRIR ALLA
$400,000,000
til aukaafnota
Þessi aukni kaupmáttur aflar
mönnum og konum vinnu þegar í
stað — hvetur viðskiptafrömuði til
framkvæmda — eykur notkun hrá-
efna, sem nota þarf til bygginga og
annara stórvirkja, sem vaxandi
Canada þarfnast.