Lögberg


Lögberg - 13.03.1958, Qupperneq 3

Lögberg - 13.03.1958, Qupperneq 3
I 3 LÖGBERG, PlMMTUDAGINN Í3, MARZ 1958 Samvinnumálanefnd (nefnd, sem fjallar um samvinnu við Islendinga austan hafs): Dr. Valdimar J. Eylands, W. J. Lindal, dómari Kristín Þorsteinsson Páll Guðmundsson. Útgáfumálanefnd: Davíð Björnsson Tímóteus Böðvarsson Kristinn Goodman. 3. Forseti las álit stjórnar- nefndar um styttu Leifs Ei- ríkssonar, en það mál hefir verið mjög á döfinni á undan- farandi þjóðræknisþingum. — Stjórnarnefnd hefir komizt að þeirri niðurstöðu, að réttast myndi, að Vestur-íslendingar afhendi téða styttu að gjöf því safni, þar sem hún er niður komin, við hentugt tækifæri. Studdi þingið þá tillögu ein- dregið. 4. Rætt var um tillögur þær, sem sr. Benjamín Kristjánsson bar fram í ræðu sinni á íslend- ingadeginum á Gimli s.l. sum- ar um samvinnumál við ísland og nánari samskipti milli Austur- og Vestur-íslendinga. Var þeim tillögum vísað til samgöngumálanefndar. Þess skal getið að lesið var á þinginu bréf frá þeim Árna Bjarnasyni bóksala á Akur- eyri og Steindóri Steindórs- syni yfirkennara, þar sem þeir félagar tilkynna komu sína til Winnipeg á vori komanda. Ætla þeir ásamt fleiri mönn- um, sem koma með þeim að heiman að safna hér vestra efni í „Æviskrár Vestur-ís- lendinga.“ Getur hver sá feng- ið nafn sitt skráð í þetta fyrir- hugaða rit ásamt mynd og stuttu æviágripi, ef sá hinn sami er fús að greiða áskrift- argjald, er svari $10—$15- Efni bréfsins var vísað til samgöngumálanefndar, sem seinna meir lýsti fylgi sínu við áætlun þeirra félaga svo og tillögur sr. Benjamíns, en hér er ekki rúm fyrir álit nefndarinnar í heild. 5. Frú Björg Isfeld las nefndarálit milliþinganefndar í húsbyggingarmálinu. Var frúin þess mjög hvetjandi, að eitthvað yrði gert í því máli. Allmiklar umræður urðu um nefndarálitið. Að því búnu skipaði forseti þingnefnd í húsbyggingarmálið sem hér segir: Dr. Tryggva J. Oleson, Dr. Valdimar J. Eylands, frú Björgu ísfeld, Stefán Eymundsson Kára Byron. FJÓRÐI FUNDUR (kl. 2 e. h. 25. febr.) 1. Ritari, Haraldur Bessason, ræddi nokkuð um söfnun ætt- fræðiheimilda, er varða Vest- ur-íslendinga, sem nú er verið að vinna að. Fór hann fram á stuðning Þjóðræknisfélagsins við þau mál. Var þeirri beiðni vísað til samgöngumálanefnd- ar, en sú nefnd lýsti fullum stuðningi við málið, svo og þingheimur í heild. 2. Mrs- Thomasson frá Brown flutti skýrslu þjóð- ræknisdeildarinnar þar. 3. Tómóteus Böðvarsson las nefndarálit útgáfumálanefnd- ar. Var nefndarálitið viðtekið og samþykkt. 4. Forseti las bréf frá bisk- upinum yfir íslandi, hr. Ás- mundi Guðmundssyni, sem hafði að geyma árnaðaróskir til þjóðræknisþingsins. 5. Frú Hólmfríður Daníels- son las nefndarálit mennta- málanefndar. Var nefndar- álitið viðtekið og samþykkt. DEHORN COMMERCIAL CATTLE Save dollars by bruising and carcass damage Save dollars by avoiding the marketing penalty Dehorn Your Herd Dehorners, Calf Gougers, Dehorning Paste available from your Agricultural Representative ***** CONTROL CONTAGIOUS ABORTION (Bang's Disease) Plan to vaccinate all your heifer calves Consult a registered veterinarian and arrange for his services A grant of $1.00 per head payable on all calves vaccinated * * * * * TREAT CATTLE FOR WARBLES NOW Control this serious cattle pest by treating with Warble Fly Powder Secure supplies of Powder from your Municipal Office or your Agricultural Representative * * * * * IMPROVE THE QUALITY OF YOUR CATTLE Secure a good quality purebred bull under the Purebred Sire Purchase Assistance Policy Department pays 20% of purchase price Policy available to owners of grade herds. Use high quality bulls through Artificial Insemination A good way to improve your herd economically. FIMMTI FUNDUR kl. 10 f. h., 26. febr.) 1. Ritari las ársskýrslu þjóð- ræknisdeildarinnar „Báran“ á Mountain. 2. Frú María Björnsson las nefndarálit þingnefndar í skógræktarmálum. Var skýrsl- an viðtekin og samþykkt með örlitlum breytingum. 3- Dr. Tryggvi J. Oleson flutti nefndarálit þingnefndar í byggingarmálinu. Nefndar- álitið var samþykkt, eftir að fjármálanefnd hafði athugað þá liði þess, sem sérstaklega var til hennar vísað. 4. Dr. Valdimar J. Eylands las nefndarálit samgöngumála nefndar. Var það viðtekið og samþykkt. Áður hefir verið minnzt örlítið á einn einstak- an þátt þessa álits. 5. Þá var kosið í milliþinga- nefnd í húsbyggingarmálinu, en þessi hlutu kosningu: Frú Björg Isfeld, dr. Tryggvi J. Oleson, frú Hólmfríður Dan- íelsson, dr. Valdimar J. Ey- lands og Guðmann Levy. SJÖTTI FUNDUR (kl. 2 e. h., 26. febrúar) 1. Kosið var í stjórnarnefnd Þjóðræknisfélagsins, og fóru kosningar þannig: Dr. Richard Beck forseti, sr. Philip M- Pétursson varaforseti, Harald- ur Bessason skrifari, W. J. Lindal varaskrifari, Grettir L. Johannson féhirðir, frú Hólm- fríður Daníelsson varaféhirðir, Guðmann Levy fjármálaritari, Ólafur Hallsson varafjármála- ritari, Ragnar Stefánsson skjalavörður. Endurskoðendur voru þeir kosnir Davíð Björns- son og J. T. Beck. 2. Forseti skipaði í milli- þinganefnd í skógræktarmál- um sem hér segir: Frú María Björnsson, Haraldur Bessason, Jakob Kristjánsson, Kári Byron og Emma von Renesse. 3. Sr. Philip M. Pétursson flutti nefndarálit útbreiðslu- málanefndar og allsherjar- nefndar, og voru bæði nefnd- arálitin viðtekin og samþykkt. 4. Borið var undir þingið álit stjórnarnefndar þess efnis, að stofnuð verði sérstök deild í íslenzka bókasafninu við Manitobaháskóla, er helguð sé dr. Vilhjálmi Stefánssyni og hafi að geyma bækur og rit- gjörðir eftir hann og um hann. Það skal tekið fram hér, að dr. Vilhjálmur hefur þegar lýst því yfir, að hann myndi fúslega styðja þetta áform. Varla þarf að taka það fram, að álitsgjörð stjórnarnefndar í þessu máli hlaut einróma samþykki þingsins. SJÖUNDIFUNDUR (kl. 8*30 e. h.. 26. febr. í Sam- bandskirkjunni á Banning St.) 1. Kosning heiðursfélaga. Að þessu sinni kjöri þjóðrækn- isþingið Guðmann Levy sem heiðursfélaga. Kom fram til- laga um það fyrir hönd stjórn- arnefndar Þjóðræknisfélags- ins. Guðmann hefir nú starfað sleitulaust í stjórnarnefnd Þjóðræknisfélagsins um aldar- Business and Professional Cards ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA 1 VESTURHEIMl Forsetl: DR» RICHARD BECK 801 Llncoln Drive, Grand Forks, North Dakota. StyrkiC félaglð með því að gerast meðllmir. Ársgjald $2.00 — Tímarlt félagsins frítt. Sendlst U1 fj&rm&larltara: MR. GUÐ>IANN IiEVY, 185 Dlndsay Street, Winnipeg 9, Manitoba. Minnist BETEL í erfðaskrám yðar SELKiRK METAL PRODUCTS Reykh&far, öruggasta eldsvörn, og &valt hreinlr. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- við, heldur hita fr& aö rjöka Ot meö reyknum.—SkriflC, stmlC tll KELLY SVEINSSON 625 WaU St. Wlnnlpeg Just North of Portage Ave. SPruce 4-1634 — SPruoe 4-1634 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir Keystone Fisheries Limited Wholesale Distrlbutors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise St. WHitehall 2-6227 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPÖRATE SEALS CELLULOID BUTTON& 324 Smilh St. Winnipeg WHltehaU 2-4624 Van's Electric Ltd. 636 Sargenl Ave. Authorized Home Appllance Dealers GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL McCLARY ELECTRIC — MOFFAT SUnset 3-4890 A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur likklstur og annast um út- farir. Allur ötbúnaBur s& bezti. StofnaB 1894 SPruce 4-74T4 PARKER, TALLIN, KRIST- JANSSON. PARKER AND MARTIN BARRISTERS — SOLICITORS Ben C. Parker. Q.C. (1910-1951) B. Stuart Parfter, Clive K. Tallin, Q.C., A. F. Kristjansson. Hugh B. Parker, W. Steward Martin Sth fl. Canadian Bank of Commerce Building, 389 Main Street Wlnnipeg 2, Man. WHltehall 2-35« Thorvaldson, Eggerison, Bastin & Siringer Barristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage and Garry St. WHltehall 2-8201 P. T. Guttormsson BARRISTER, SOLICITOR, NOTARY PUBLIC 474 Groln Exchonge Bldg. 147 Lombord Strnet Offlce WHltehall 2-4820 Resldence 43-3864 SPruce 4-7855 J. M. Ingimundson Re-Roofing — Asphalt Shinglen Iniul-Brlc Slding Vents Installed to Help EUmlnate Condensation 032 Simcoe St. Wlimipeg 3, Mnn. CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish Muir's Drug Siore Lid. J. CLUBB FAMILY DRUGGIST SERVING THE WE8T END FO* 27 YEARS SPruce 4-4422 Elllee 4 Home 311 CHAMBERS STREET Office: Res.: SPruce 4-7451 SPruce 2-3917 ERLINGUR K. EGGERTSON, B.A., LL.B. BARRISTER, SOLICITOR NOTARY PUBLIC Offices: GIMLI: CENTRE STREET, PHONE 28 RING 2 ARBORG (THURS.): RAILWAY AVE. PHONE 76 566 Mailing Address P.O. BOX 167, GIMLI fjórðungs skeið. Hann hefir reynzt ötull starfsmaður og á- valt fengið bezta orð hjá sam- verkamönnum sínum. Hann verðskuldaði því í alla staði þann heiður, sem Þjóðræknis- félagið sýndi honum við lok þessa þings. 2. Forseti, dr. Beck, sleit þinginu með nokkrum vel völdum orðum. Harladur Bessason, ritari

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.