Lögberg - 13.03.1958, Qupperneq 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 13. MARZ 1958
Úr borg og bygð
Séra Robert Jack, prestur
að Tjörn á Vatnsnesi er ný-
kominn til Bandaríkjanna, þar
sem hann ferðast á vegum
National Lutheran Council og
flytur erindi og fyrirlestra um
ísland víðsvegar í austurríkj-
unum. Býst hann við að þess-
um fyrirlestraferðum verði
lokið um 20. maí, en þann dag
er ráðgert að hann flytji er-
indi í Minneapolis- Gerir hann
ráð fyrir að skreppa hingað
norður til að sjá gamla kunn-
ingjá, áður en hann hverfur
aftur til Islands í byrjun júní-
mánaðar.
☆
Góðar gjafir gefnar Betel
Mrs. F. Kristjánsson 122V2
Garfield Sreet, Winnipeg,
hefir auðsýnt Betel þann
höfðingsskap, að gefa fullkom-
inn húsgagnaútbúnað í eina
íbúð byggingarinnar í minn-
ingu um mann sinn, Friðrik
heitinn Kristjánsson; verður
skjöldur festur á dyr íbúðar-
innar, þar sem þess er getið,
að íbúðin sé helguð minningu
hans.
Þjóðræknisdeildin „FRÓN“
í Winnipeg hefir, undir for-
ustu Jóns Johnson, sýnt þá
góðvild og þann dugnað, að
afla á stuttum tíma nægilegs
fjár fyrir húsgagnaútbúnað í
eina íbúð á Betel, og hefir nú
afhent stofnuninni þessa góðu
gjöf.
Með innilegu þakklæti,
Fyrir hönd fjársöfnunar-
nefndarinnar,
Grettir Eggertson
— DÁNARFREGNIR —
Mrs. Guðrún Friðrika Bristow
lézt að Gimli, Man. á fimmtu-
daginn 6. marz, 86 ára að aldri,
mæt kona, ein af frumherjum
Gimli-byggðar. Hana lifa þrír
synir, Arthur, George og
Frank, allir búsettir á Gimli;
sex dætur, Mrs. Joe Sigurgeir-
son, Steveston, B.C.; Mrs L. M.
Vezey, Winnipeg; Mrs. R. W.
Bowyer, The Pas; Mrs. S.
Thoísteinson, Vancouver; Mrs.
E- S. Einarson og Mrs. B.
Thordarson, báðar til heimilis
á Gimli; 19 barnabörn og 23
barna-barnabörn. Ennfremur
einn bróðir Paul Olson á
Gimli.
Útförin var gerð á mánudag-
inn frá lútersku kirkjunni og
hin látna lögð til hinztu hvíld-
ar í Gimli-grafreit.
John Hendrickson, 375 Lang-
side Street, Winnipeg, lézt í
Deer Lodge spítalanum á mið-
vikudaginn 5 marz. Hann var
66 ára, fæddur á Islandi, en
fluttist hingað á unga aldri;
hafði átt heima í Winnipeg í
56 ár. Hann var í herþjónustu
í fyrra stríðinu. Hann lætur
eftir sig þrjá bræður, Thomas
og Percy í Winnipeg, og Thor
í Springfield, Ohio; þrjár
systur, Mrs. W. D. Crawford,
Mrs. J. Miller og Miss Inga
Thornson, allar í Winnipeg.
Útförin var gerð frá Bardals
á luagardaginn.
KAUPIÐ og LESIÐ
—LÖGBERG
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
HOME COOKING SALE
A sale of Home Cooking and
Cooked Meats (rúllupylsa and
lifrapylsa) will be held by the
Women's Association of the
First Lutheran Church on
Friday March 21st.
The Sale will be from 2 p.m.
to 5 p.m. in the lower auditor-
ium of the church.
There will be a coffee table.
General Convenors—Mrs. A.
Blondal, Mrs. G. J. Johnson.
The Jon Sigurdson Chapter
of the I.O.D.E. will hold their
annual birthday Whist drive
and Bridge, Friday March 21st,
at 8.15 p.m. in the lower
Auditorium of the First
Federated Church, Banning
St. Prizes as usual for both
Whist and Bridge, also Door
prize. Refreshments will be
served.
☆
Mr. og Mrs. W. J. Sigurgeir-
son frá Minaki, Ont. voru í
borginni í fyrri viku. Komu
þau úr tveggja vikna skemmti
ferð austur um Canada til
Montreal og þaðan til New
York og til baka um Chicago
og Minneapolis; fóru þau
hringferðina flugleiðis-
☆
— ÞAKKARÁVARP —
Með þessum línum viljum
við hjónin votta börnum okk-
ar, barnabörnum, öðrum ætt-
ingjum og fjölmörgum vinum
hjartanlegar þakkir fyrir dýr-
mætar gjafir, heimsóknir og
allan virðingarvott auðsýndan
okkur í tilefni gullbrúðkaups
okkar 2. marz s.l.
Þórunn og Hannes Anderson
Ste. 4, Karlston Apts.
Bernard Shaw sagði eitt
sinn, að Englendingur væri
ekki ánægður nema hann ætti
sitt eigið hús.
Hvað þá með okkur Amerík-
ana? sagði einn slíkur, er hjá
stóð.
Jú, sagði Shaw, ég verð að
játa, að til eru nokkrir
Ameríkana, sem vilja byggja
slík hús við bílskúrana sína.
I
PROVINCE OF MANITOBA
PUBLIC NOTICE
Public hearing will be held regarding the
distribution of natural gas in the Greater
Winnipeg Area.
Anyone desiring to present their viewpoint
regarding this subject will have an opportunity
to do so. They must first present their views in
the form of a letter or written brief on or before
APRIL 2nd, 1958.
The time and place for public hearings will
be announced at a later date.
Address all communications to the secretary,
The Natural Gas Distribution Enquiry Commis-
sion, 511 Power Bldg., Winnipeg.
The Nalural Gas Disíribution Enquiry
Commission of Greater Winnipeg
Commissioners:
Chairman: J. J. DEUTSCH
E. F. BOLE
STEPHEN JUBA
Til fróðleiks og skemmfunar
Lagið Heims um ból
Þetta heimsfræga lag var
fyrst sungið á jólunum 1824.
Lagið er þannig til orðið, að
prestur að nafni Mohr kom
einn dag til kennarans, Hans
Gruber, og sýndi honum jóla-
sálminn „Stille Nacht“, er
hann hafði ort. — Gruber, sem
var tónskáld varð svo hrifinn
af sálminum, að hann settist
þegar við hljóðfæri sitt, og
samdi lagið, er eitt gerði hann
heimsfrægan mann.
Hans Gruber var fæddur
árið 1787 í litlu þorpi, Hallein
í Tyrol. Hann andaðist árið
1863. Milljónir manna hafa
síðan sungið þetta yndislega
lag á hverjum jólum, og vafa-
laust verður það sungið meðan
nokkur maður og þjóð heldur
jól- Á þessu ári eru því 170
ár liðin frá því þetta fræga
tónskáld fæddist.
----0----
HAUST
Falla blóm um foldarvang,
fækka gleðihljómar.
Á lofti sólin lækkar gang,
lúður haustsins ómar.
Tímans rennur hjólið hart,
haustar í sálu minni.
Náttúrunnar skýra skart
skyggir að þessu sinni.
Lóan fer að breyta um bú,
býst við kuldahretum,
eftir sitjum eg og þú,
ekki flogið getum.
—Kr. H. Breiðdal
GLÆÐUR
Andans sölna blóm á Björk.
Breiðdal starir glæður í.
Eru þetta ellimörk?
Ekki vil eg trúa því.
Vetur færir flest í dá,
fræ um klaka lifa sæl.
Lífið mikla auðlegð á
undir landsins frera hæl.
Þegar vorar vaknar ný
von, er gróður þekur Mörk.
Andans laupa læt ég í
lauf, er falla’ af Skilnings-
björk.
Brestur ís er brennur sól,
bæinn lýsir nótt, sem dag.
Andinn rís, sem Ótta fól,
orkt er vísa í nýjan brag.
Himinsmóðu Máninn tróð.
Mökkinn hlóð á tinda.
Báran óð um varir vóð,
en Vafurglóðin rinda.
—Kr. H- Breiðdal
----0----
Góð síldarmið
Arnarstapi í háan hrygg
og Hólar í miðju kafi.
Ekki er síldin afar stigg
oft þó brugðizt hafi.
(G. S. 1905)
Esjan frí við Akrafjall,
og eyðið í kafi að vestan,
sagði gamall sjávarkall,
síldar afla beztan.
Arnarstapi í hnúk, sem við
köllum „miðhnúk“, og kemur
inn uppi af Jöklinum þegar
siglt er vestur í Jökuldjúpið,
sem er olnbogi sem gengur
inn milli Lóndranga grunnt og
Kanta. Eyðið í kafi er sundið
milli Lóndranga og Hólahóla.
25/8—1955,
—Geir Sigurðsson
Nýlega rakst ég á þessar
vísur, er vinur minn Geir
Sigurðsson sendi mér 1955.
Hann ritaði afbragðs hönd, en
á þeim miða, er hér um ræðir,
er hún farin að gefa sig dá-
lítið, svo að ég er ekki alveg
viss um að skýring hans á
vísunum sé alveg rétt. Vona
ég að hann geti enn leiðrétt
þetta ef rangt væri með farið.
Um leið vil ég þakka Geir
fyrir þessar vísur. Þakka hon-
um gamalt og gott og óska
honum gleðilegra jóla.
—Ó. B. B.
----0----
LÍFIÐ
Svona er lífið, verra en vildi,
vonbrigðin flestir hljóta í arf.
Þó er tvennt, sem gefur því
gildi,
gagnkvæm ást og heilbrigt
starf.
Margan ástarörlög hrjá
alla lífsins daga,
valda angri þraut og þrá,
en það er önnur saga.
—G. B., Arkarlæk
Einni stjórn þarf ekki að lá,
allar góðu lofa,
en loforðunum löngu á,
liggja þær og sofa.
—G. B. að sunnan
—-0------
Vakandi maður og röggsamt
yfirvald
Hér koma smáútdrættir úr
Dagbók Akraneshrepps frá
hendi Hallgríms Jónssonar
hreppstjóra:
7/1 1878: „Lýsing á flugu,
sem skemmir jarðepli, og er
þetta birt almenningi til eftir-
tektar.“
13. jan. 1879. „Til sýslu-
mannsins, uppástunga við-
víkjandi póstferðum og gufu-
bát milli Akraness og Reykja-
víkur.“
27. okt. 1879. „Tilkynning til
hreppsnefndar Akraneshrepps
um að Jón á Kúlu, Hallsteinn
á Krossi, Hákon á Háteig,
Þorsteinn kaupmaður, Ólafur
á ólafsvöllum, Guðbjarni í
Teigabúð og Jón í Garðhúsum,
séu sektaðir um 1 krónu, fyrir
rirðuleysi; að koma ekki á
hreppskilaþing, og beri hrepps
nefndinni að innheita þetta.“
—AKRANES
Maður nokkur var að tala
um landeyðu eina og spurði
annan mann, er þekkti hana
vel:
— Er það satt, að hann sé
mill j ónamæringur?
— Hm, hljóðaði svarið. —
Ef allar whisky-verksmiður
borguðu eina krónu fyrir
hverja tóma flösku, sem skilað
er, mundi hann vera það, en
þar sem þeir borga ekki svo
mikið, skal ég ekki um það
segja.