Lögberg - 20.03.1958, Side 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 20. MARZ 1958
3
Sígaunar — þjóðflokkur á faraldsfæti
EVRÓPUSAGAN segir frá
tveimur þjóðflokkum, sem
löngum hafa verið ofsóttir:
Gyðingum og Sígaunum. Báð-
ir þessir kynþættir hafa mynd
að ríki í ríkinu, og hvorum
tveggja hefir tekizt að varð-
veita séreinkenni sín, siði og
tungu. En fleira eiga þeir ekki
sameiginlegt. Gyðingar voru
ofsóttir vegna fastheldni sinn-
ar við trú forfeðranna og fé-
söfnun, en Sígaunarnir fyrir
trúleysi, fátækt og iðjuleysi.
Enn þann dag í dag eru Gyð-
ingar og Sígaunar ofsóttir víða
um heim. Sígaunar eru enn á
flakki. Það er öllum kunnug
meðferð nazista á Gyðingum,
en það hefir minna verið gert
úr þjáningum Sígauna í þeim
löndum, sem Þjóðverjar réðu,
og munaði minnstu, að þeim
tækist að útrýma með öllu
þessu söngelska fólki.
Það er ógerlegt að fá vit-
neskju um, hversu fjölmennir
Sígaunar eru. Þeir eru á sí-
felldu flandri frá Evrópu til
Ameríku, frá Ameríku til
Asíu og Ástralíu og aftur til
Evrópu. Flestir fræðimenn
hallast að því, að Sígaunar
hafi verið frá einni til þrjár
milljónir að tölu. Þær tölur
eru miðaðar við 1939.
Enginn veit með vissu
hversu margir þeirra misstu
lífið í síðari heimsstyrjöldinni.
Af þeim 7000 Sígaunum, sem
bjuggu í Þýzkalandi fyrir
stríð, eru nú eftir aðeins 700. í
þeim löndum, sem Þjóðverjar
hernámu voru Sígaunar of-
sóttir af mikilli grimmd. Fyrir
1940 lifðu Sígaunar góðu lífi í
Lithauen. Þeir, sem vildu
vinna fengu starf við sitt hæfi,
þeir, sem ekki nenntu að
vinna, voru látnir í friði.
Þegar Rússar hernámu Eystra
saltslöndin voru allir Sígaun-
ar settir í vinnu, en þeir hlutu
góða meðferð, og fengu að
ganga í skóla eins og aðrir.
En þegar Þjóðverjarnir komu
til Lithauen hallaðist á ógæfu-
hlið fyrir Sígauna. Þeir voru
settir í fangabúðir og tugþús-
undir beinlínis sveltar í hel.
Aðeins örfáir Sígaunar lifðu
af hörmungarnar í hinum her-
numdu löndum Austur-Ev-
rópu-
Margar ágizkanir eru uppi
um uppruna Sígauna. Fræði-
menn telja, að þeir hafi komið
frá Indlandi fyrir um það bil
500 árum. Evrópuríkin tóku
þeim illa og var víða sett lög-
gjöf, sem meinaði þeim land-
vist. Eina landið, sem tók þeim
vel var Ungverjaland. Á 18.
öld var þeim leyft að ferðast
um alla álfuna, og þurftu
hvergi að eiga borgararétt.
Þeir stunduðu ýmsar iðn-
greinir á milli þess sem þeir
flökkuðu land úr landi. Flest-
ir fengust við hnífagerð, vefn-
að, skósmíði, og í Tyrklandi
voru Sígaunarnir konunglegir
böðlar, en fyrst og fremst
voru þeir tónlistarmenn. —
Karlmennirnir fengust við
hestaprang. Konurnar spáðu
og unglingarnir stálu öllu,
sem hönd á festi, en almenn-
ingur naut góðs af kunnáttu
Sígaunanna í meðferð jurta til
lækninga. — Eftir fyrra stríð-
ið reyndu mörg lönd að fá
Sígaunanna til þess að setjast
um kyrrt og taka upp borg-
aralega háttu. Tékkar settu á
fót skóla fyrir Sígauna, og
þeir urðu brátt í hópi beztu
leikhúsmanna landsins. í
Rúmeníu, Júgóslavíu og Rúss-
landi voru gefin út blöð á
Romani, máli Sígaunanna, og
þeir sóttu æðri skóla í þess-
um löndum og gátu sér gott
orð sem lærdómsmenn. Marg-
ir snjallir rithöfundar komu
úr þeirra hópi.
Sígaunarnir eru deyjandi
kynþáttur, sem smám saman
er að missa öll sérkenni sín.
Á Norðurlöndum eru mjög
fáir hreinir Sígaunar eftir.
eru flestir orðnir mjög bland-
aðir, en þó iðka þeir ennþá
sínar kærustu iðnir fiðluleik
og söng.
Margt er gert til að vernda
dýrategundir og jurtir, en ekk-
ert er gert til verndar Sígaun-
unum. Það er verið að reyna
að temja þá, en uppeldisfræð-
ingar verða að gera sér ljóst,
að þeirra lífstaktur er annar
en Vesturlandabúa. Þeir halda
kyrru fyrir á vetrum og senda
börn sín í skóla, en samtímis
fyrstu vorleysingum fella þeir
tjöld sín og reika um byggðir
og óbyggðir til hausts. Sígauna
rithöfundurinn Mateo Max-
inoff sagði eigi alls fyrir
löngu: — Sígaunar vilja hafa
fullt frelsi til þess að fara
sinna ferða hvert á land sem
er, og fara hindrunarlaust yfir
öll landamæri. Enginn getur
bannað blómunum að opna
krónur sínar, og enginn mein-
að Sígaununum að reika að
vild um allan hnöttinn- Við
erum hluti af náttúrunni.
Hvar sem við komum vekjum
við gleði og söng, og leyndar-
dómur uppruna okkar og eðlis
er fólkinu sífellt umræðu- og
umhugsunarefni í fásinni
hversdagslífsins.
—Alþbl., 7. febr.
Raforka hjartans
Framhald af bls. 2
aðstoðar, og getur hann jafn-
vel myndað rafverkanir, ef
aðalhnúturinn bregst.
En hvað myndar þá sjálfar
rafverkanirnar? Það eru efna-
breytingar, sem eiga sér stað í
blóðinu og byggingu frum-
anna í þessum hnútum. Frum-
urnar í líkama mannsins eru
ekki jafn móttækilegar fyrir
öll efni, sumum hleypa þær
inn, öðrum ekki. Til dæmis
taka þær á móti kalíum-frum-
um en ekki natríum-frum-
eindum. Nú eru fleiri natríum
frumeindir í blóðinu en kalí-
um-frumeindir, og skapast
þannig jákvæð afstaða utan
við frumurnar en neikvæð
inni í þeim.
Það er ennfremur kunnugt,
að frumurnar í áðurnefndum
hnútum er ráða fyrir hjart-
slættinum, hleypa natríum-
frumeindum inn í sig. Þegar
visst magn þeirra er komið inn
í frumuna, opna þær hana,
svo að natríum-frumeindirnar
geta streymt inn, en kalíum-
frumeindirnar eru reknar út.
Afleiðing þess verður breyt-
ing frá neikvæðu ástandi í
frumunum til jákvæðs, en af
því myndast raföldurnar.
Þessi hleðsla myndar „spreng-
ingu“ vegna vissra efna í
blóðinu, en það eru t. d. kalí-
um, natríum, kalsíum, súrefni
og sykur í einhverri mynd.
Þessi sprenging myndar svo
keðjuverkun, er breiðist um
Við sambandskosningarnar
31. marz
Greiðið C.C.F. atkvæði
Endurkjósið
BRYC E, ' M f. Scottie X
Published by Authority of Selkirk C.C.F. Federai Elcction Committee
Business and RroSessional Cards
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA 1 VESTURHEIMI
Foraetl: DR. RICHARD BECK
801 Llncoln Drive, Qrand Forks, North Dakota.
StjrkiS félaslS meS þvl að gerast meSllmir.
ArsKjald $2.00 — Timarit féliMfsins frítt.
Sendist til fj&rm&larltara:
HR. GUÐMANN DEVT,
185 Undsay Street, Wlnnipeg 9, Manltoba.
Minnist BETEL í erfðaskróm yðar SELKIRK METAL PRODUCTS Reykhfiiar, öruggasta eld*vörn, og 'fivalt hreinlr. Hltaeiningar- rör, ný uppfynding.. Sparar eldi- viC, heldur hlta frfi aC rjðka öt meB reyknum.—SkrifiB, BlmiB til KELLY SVEINSSON 625 WaU St. Winnlpeg Just North of Portage Ave. SPruce 4-1634 — SPruce 4-1634
G. F. Jonasson. Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Dlatrlbutors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise St. WHitehali 2-5227 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTAKY & CORPÖRATE SEALS CELLlTLOID BUTTONS 324 Smilh 82. Winnipeg WHltehaU 2-4624
Van's Electric Ltd. 836 Sargenl Ave. Authorized Home Appllance Dealert GENERAL ELECTRIC — ADMIIiAL McCLARY ELECTRIC — MOFFAT SUnsel 8-4890 A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur likkistur og annast um öt- farir. Allur ötbönatSur s& bezti. StofnaÖ 1894 SPruce 4-7474
P. T. Guttormsson BARRISTER, SOLICITOR, NOTARY PUBLIC 474 Sraln Exchonge Bldg. 147 Lombard Stroot Offlce WHltehaU 2-4829 Residence 43-3864
PARKER, TALLIN, KRIST- JANSSON, PARKER AND MARTIN BARRISTERS — SOUCITORS Ben C. Parker. Q.C. (1910-1951) B. Stuart Pariter, Clive K. Tallin, Q.C., A. F. Kristjansson. Hugh B. Parker, W. Steward Martin 5th fl. Canadian Bank of Commerce Buildlng, 389 Maln Street Wlnnipec 2, Man. WHltehaO 2-1551
SPruce 4-7855 ESTlMATgS J. M. Ingimundson Re-Rooflng — Asphalt Shingle* Inaul-Bric Sldlng Vents Installed to Help EUmlnate Condensation 632 Sinicoe St. Winnlpeg 3, Man.
Thorvaldson, Eggertson. Bastin & Stringer Barrittert and Solicitort 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage and Garry St. WHlteball 2-8291
Muir's Drug Store Lid. J. CLUBB FAMILY DRUGGIST SERVING THE WEST END FOE 27 YEARS SPruce 4-4422 EUice A Home
CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managlng Dlrector Wholesale Distrlbutors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Office: Bes.: SPraee 4-1451 SPruce 2-3917
S. A. Thorarinson Barrister and Bollcitor 2nd Floor Crown Trnst Bldg. 364 MAIN ST. Offlce WHltehall 2-7051 Res.: 40-6488
FRÁ VINI
Dunwoody Saul Smiih & Company Chartered Accountantt WHilehall 2-2468 100 Princess St. Winnlpeg, Man. And offíces at: FORT WILLIAM - KENQRA FORT FRANCES - ATIKOKAN
ERLINGUR K. EGGERTSON, B.A., LL.B. BARRISTER, SOLICITOR NOTARY PUBLIC Offices: GIMLI: CENTRE STREET, PHONE 28 RING 2 ARBORG (THURS.): RAILWAY AVE. PHONE 76 566 Mailing Address P.O. BOX 167, GIMLI
The Business Clinic Anna Larusson Offíce at 207 Atlantic Ave. Phone JU 2-3548 Bookkeeping — Ineome Tax Insurance
framhólf hjartans og síðar allt hjartað, á broti úr sekúndu. Meðan þetta hefur átt sér stað, befur aftur skapazt neikvæð afstaða í frumunum, en hvern- ig og hvers vegna það verður, er enn ekki að fullu ljóst. Þessar verkanir fara síðan fram um það bil sjötíu og tvisvar sinnum á mínútu, allt lífið út í gegn! —Sunnudagsblaðið
Dr. ROBERT BLACK SérfræBingur I augna, eyrna, nef og hfilssjökdömum. 401 MKDICAI. ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Office WHitehall 2-8851 Res.: 40-3794