Lögberg - 20.03.1958, Síða 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 20. MARZ 1958
Lögberg
GefiS ðt hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
303 KENNEDY STREET, WINNIPEG 2, MANITOBA
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG. 303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Manitoba
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Skrifstofustjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
"Lögberg” is published by Columbia Press Dimlted,
303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Manitoba, Canada
Printed by Columbia Prtnters
Authorized as Second Class Mall, Post Offlce Department, Ottawa
WHitehall 3-9931
Útdráttur úr þingræðu
eftir Ásmund Loplson, þingmann Saltcoats-kjördæmisins
í Saskalchewan.
Ásmundur hefir átt flestum mönnum lengri setu á þingi
vestur þar og hefir staðið af sér margar pólitískar hryðjur,
er hafa mundu riðið mörgum kappanum að fullu; en Ás-
mundur er meira en lífseigur, er til pólitískrar baráttu
kemur; hann virðist í rauninni alveg ósigrandi. —
Hér fara á eftir ummæli hans í skyndiþýðingu, en hann
flutti þau á þingi 25. febrúar síðastliðinn:
„Mér dylst ekki, að eins og nú horfir við, verði það
einkum utanríkismálin, er dragi að sér athygli allra hugs-
andi manna jafnt í Canada sem annars staðar, og þá vita-
skuld engu síður í Saskatchewanfylki en í öðrum landshlut-
um á bygðu bóli. Það er þess vegna í rauninni ekkert
undrunarefni þótt mörg augu hvíli á Canada um þessar
mundir og fólk bíði með nokkurri óþreyju kosningaúrslitanna
þann 31. þessa mánaðar; ekki einungis vegna þeirra viðfangs-
efna, er ráða verður úr heima fyrir, heldur og engu síður
vegna þess að nú hefir verið fjarverandi síðan 10. júní frá
friðarfundum Sameinuðu þjóðanna sá maðurinn, sem saknað
er þaðan mest og dýpst hafði áhrif á viðhorf friðarmálanna
í mannheimi undanfarinn áratug; er hér átt við Lester B.
Pearson, fyrrum utanríkisráðherra Canadastjórnar og erind-
reka hennar hjá Sameinuðu þjóðunum; það var ekki einasta
að Mr. Pearson aflaði sér persónulega víðfrægðar í embætti
sínu, heldur stækkaði hann svo landnám Canada, að þar hafa
fáir komist í hálfkvisti við.
Stórblaðið Manchester Guardian lét á sínum tíma þess
getið, að Mr. Pearson væri vafalaust merkasti utanríkisráð-
herra sem þá væri uppi, en þau ummæli voru skráð í fyrra
sumar.
Að Mr. Pearson sé sjaldgæfur sáttasemjari verður eigi
um vilst; það er ekki einasta að hann sé manna lagnastur
við að slétta úr minniháttar misfellum, heldur nýtur hann
sín bezt þar, sem mestra átakanna er þörf, og af þeirri ástæðu
er það, að honum er af mörgum að miklu þakkað hve giftu-
samlega það tókst í fyrrahaust, að afstýra vandræðum í Mið-
austrinu, er leitt hefðu getað til meiriháttar ófriðarbáls.
Það var ekki að ástæðulausu, að Mr. Pearson var sæmdur
friðarverðlaunum Nóbels; marghliða barátta hans í þágu al-
þjóðafriðar, mun mega teljast einstæð í sinni röð, þar sem
viljafesta og drengilegur tilgangur féllust í faðma við hug-
sjónafestu og mannlund. Mr. Pearson er fyrsti Canadamaður-
inn, sem fallið hefir áminstur heiður í skaut; hann var vel
að honum kominn og hefir með slíkri viðurkenningir orpið
ljóma á nafn þjóðar sinnar.
Sú er ósk og von margra, að málum skipist þannig til,
að þess verði eigi langt að bíða, að Mr- Pearson taki sitt fyrra
sæti við sáttmálsgerðarborð hinna Sameinuðu þjóða, þannig,
að þar megi áhrifa hans gæta sem lengst og bezt, en til þess
að tryggja slíkt, þarf flokkur hans, Liberalflokkurinn, að fá
kosna á þing eins marga fylgjendur hans og framast má verða.
Með hliðsjón af því hve þungt er í lofti á vettvangi heims-
málanna og óráðið veðurfar, virðist það liggja í nokkurn veg-
inn í augum uppi, að kjósendur þessa lands fylki liði um
foringja Liberala hinn 31. þessa mánaðar, hinn þaulreynda
diplómat, sem heimurinn dáir.
Herra forseti! Sú er óbifandi sannfæring mín, og ég tel
víst, að fjöldi manna og kvenna séu svipaðrar skoðunar, að
ef lánast megi að útiloka stríð næstu nokkur árin, dragi
smám saman úr hættunni. Ég hallast á þá sveif, að kommún-
ista- eða sósíalistaþjóðirnar séu að smáslaka á klónni varðandi
ný viðskiptasambönd og gagnkynni, en slíkt hvorttveggja
horfir jafan til heilla.
GERLAFRÆÐI
eftir SIGURÐ PÉTURSSON — Reykjavík 1956 — 144 s.
Éð var að vaxa úr grasi,
þ e g a r Náttúrufræðingurinn
hóf göngu sína 1931, og var á-
skrifandi hans og barnablaðs-
ins Æskunnar í senn. Vel má
vera, að sumt af því marga,
sem þetta nýja tímarit flutti,
hafi farið fyrir ofan garð eða
neðan hjá mér á fimmtánda
árinu í einangrun ísfirzkra
fjalla, en eflaust höfðu þessar
greinar allar sín áhrif á fram-
tíð mína. Ýmislegt í tímarit-
inu virðist hafa vakið athygli
mína til slíkra muna, að ég
man meginið af innihaldinu
ennþá. Meðal slíkra er ein um
köfnunarefni og jarðvegsgerla
í fyrsta árgangi ritsins, önnur
um jarðslagann, og sú þriðja
um rotjurtir í öðrum árangi.
Það var ungur stúdent að
nafni Sigurður Pétursson, sem
skrifaði þessar greinar, en eng-
inn gat sagt mér meira um
hann fyrir nær þremur ára-
tugum.
Síðan Náttúrufræðingurinn
birti hinar fyrstu greinar
Sigurðar Péturssonar, hefir
hann ekki legið á liði sínu við
að kynna íslenzkri alþýðu
ýmsa hluta náttúruvísindanna
með greinum og góðum bók-
um. Mun óhætt að fullyrða, að
Árni Friðriksson einn hafi
lagt jafnmikið af mörkum á
þessu sviði, og hefir þó Sig-
urður dregið mjög á hann hin
síðari ár. Hann er höfundur
þeirrar kennslubókar í líf-
fræði, sem lesin er í fram-
haldsskólum, mjólkurfræði
hans hefir eflaust átt sinn
þátt í bættri meðferð á þessari
dýrmætu fæðutegund, og
heyrt hefi ég fróða menn fara
fögrum orðum um bók Sig-
urðar um matvælaiðnað. Sig-
urður hefir eytt miklum tíma
í myndun nýyrða á sviði líf-
fræðinnar í víðasta skilningi
þessa orðs. Ýmis þessara orða
verða ef til vill aldrei eign al-
mennings, og sum verða alltaf
umdeild, en önnur eru til
prýði og jafnvel það góð, að
fáir munu trúa því, að þau séu
ekki forn. En þótt Sigurður
hafi þannig auðgað málið
manna mest og bætt úr þekk-
ingarskorti á mörgum sviðum,
hefir hann forðazt að skrifa
nema nokkrar smágreinar um
aðalfag sitt og áhugamál, —
gerlafræðina. Þessu bætti
hann ekki úr fyrr en árið 1956
með bók sinni um „Gerla-
fræði.“
„Gerlafræði“ Sigurðar Pét-
urssonar er ekki mikil að
vöxtum, en því meiri að gæð-
um. Ég þekki enga aðra slíka
bók á erlendum málum, þar
sem þjappað er saman jafn-
miklum fróðleik um gerla á
aðeins 144 síðum- Þrátt fyrir
þetta hefir höfundinum tekizt
að koma í veg fyrir þurrar
upptalningar, og bókin er
skemmtileg aflestrar um leið
og hún er iærdómsrík og
menntandi fyrir leika jafnt
sem lærða. Engar tegundir
gerla hafa gleymzt, og öllum
þeim gerlum, sem mikilvæg-
astir eru taldir, er lýst stuttort
og gagnort svo að þykkir doð-
rantar gera ekki betur.
Vel má vera, að við séum
farnir að gera meiri kröfur til
Sigurðar um málvöndun en
almennt gerist, svo að manni
finnist hann eiga að gera bet-
ur en allir aðrir á þessu sviði.
Hvað sem slíku veldur, þá
virðist mér Sigurður hafa far-
ið betur með málið á öðrum
sviðum en í sinni sérgrein.
Nokkur dæmi skulu nefnd.
Ég hélt, að „stífkrampi“
væri nefndur „stjarfi“ á ís-
lenzku, en hið danska „örger“
hefir ef til vill hlotið ríkis-
borgararétt og útrýmst hinu
íslenzka „jastri“ úr alþýðu-
máli. Það er varla hentugt að
nota orðið „frumplöntur,“ sem
í sjálfu sér er óíslenzkt, um
þær jurtir, sem eru svo frum-
stæðar, að þær eru aðeins ein
fruma, þótt ég hafi ekkert
betra orð á takteinum. Og í
sambandi við flokkun eða
kerfun hinna ýmsu gerla talar
Sigurður um, að þeir „grein-
ist“ eða „flokkist“ á þennan
hátt eða hinn, en notar aldrei
sögnina „að kerfa,“ sem þó
virðist liggja hendi næst.
Fleiri slík orð mætti fetta
fingur út í og eins hitt, að
höfundurinn notar stundum
að óþörfu erlend orð í stað
gamalla íslenzkra. En þótt
gagnrýna megi slík smáræði,
ber ekki að gleyma því, að í
bókinni úir og grúir af góðum
nýyrðum, sem líklegt er að
samlagi sig alþýðumáli fyrr en
varir.
Það má vel vera, að smámis-
tök séu hér og hvar í bókinni,
þegar gerlafræði sleppir, en
þau eru engin aðalatriði. Eitt
slíkt hefi ég til dæmis rekið
augun í í sambandi við frumu-
skiptingar: þegar talað er um
„kjarnanet“ er það úrelt hug-
tak byggt á lélegum smásjám
fyrir hálfri öld, og endurtekið
í sífellu af þeim, sem minna
kunna í frumufræði. Mikil-
vægt er aftur á móti, að bókin
er ekki aðeins alþýðlega skrif-
uð, heldur og á allan hátt að-
gengileg og fróðleg um hluti,
sem alla varða mjög.
í stuttu máli sagt: „Gerla-
fræði“ Sigurðar Péturssonar
er vel skrifuð bók um merki-
legt efni. Lærðir geta mikið af
henni lært og leikir hafa lengi
beðið hennar og munu með
hennar aðstoð sjá leiðir til að
koma í veg fyrir sjúkdóma og
skemmdir af ýmsu tagi sem og
læra hvernig nota má gerla
við dagleg störf. Lestur henn-
ar ætti að auka skilning á
nauðsyn fyllsta hreinlætis í
meðferð matar, sem eflaust er
mjög ábótavant á íslandi
engu síður en erlendis. En
bókin er að auki gott dæmi til
eftirbreytni fyrir aðra sér-
fræðinga á sviðum, sem ekki
hafa verið tilhlýðilega kynnt
íslenzkri alþýðu, því að betur
verður ekki skrifað í stuttu
máli um svo flókin atriði. Sig-
urður á þakkir skilið fyrir
allar þær stundir, sem hann
hefir eytt til að kynna ís-
lenzkri alþýðu náttúrufræði
alla tíð síðan hann skrifaði
greinarnar góðu í hin fyrstu
hefti Náttúrufræðingsins, en
eflaust yrði hann hvað á-
nægðastur, ef „Gerlafræðin11
hans kæmist á sem flest heim-
ili og yrði lesin af öllum. Hún
er meira en þess verð.
Áskell Löve
Mbl., 31. jan-
Kaupið Lögberg
VIÐLESNASTA
ISLENZKA BLAÐIÐ
"Betel"$205,000.00
Building
Campaign Fund
1—180
Make your donations to the
"Betel" Campaign Fund,
123 Princess Street,
Winnipeg 2.
HAVE A WINNIPEG NORTH CENTRE
REPRESENTATIVE in the
DIEFENBAKER GOVENRMENT
Elect
John MacLEAN
JOHN MacLEAN ELECTION COMMITTEE