Lögberg - 20.03.1958, Blaðsíða 7

Lögberg - 20.03.1958, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 20. MARZ 1958 7 Dior trúði meira á Hver iekur sæii hans sem tízkukóngur? Við fráfall tízkukonungsins, Christians Dior, hefir kven- fólk víða um heim komizt í mikinn vanda. Hvað tekur nú við? Hver verður leiðtogi tízkunnar? Og má treysta því, að nokkur komizt með tærnar þar sem Dior hafði hælana? Margar slíkar og þvílíkar spurningar brenna nú á vör- um kvenfólksins, og það hugg- ar sig við, að „maður komi manns í stað“ — og að sjálf- sögðu hljóti klæðaburði þess að vera borgið í framtíðinni, þótt Dior sé fallinn frá. Christian Dior var aðeins 52 ára er hann lézt, — það er á líkum aldri og fyrirrennarar hans og starfsbræður Jacques Fath, Rochas og Piguet. í endurminningum sínum segir Dior m. a-: — Fegurstu endurminningarmínar hef ég ennþá ekki fest á blað. Fortíð mín er svo stutt, hún nær raunverulega ekki nema níu ár aftur í tímann. Og það sem ég hef mestan áhuga fyrir er það, hvernig framhaldið muni verða. Hann hafði aðeins gert á- aúlanir fram til 1962, en þá ætlaði hann að draga sig í hlé frá viðskiptalífinu. Hann seldi hús sitt í nágrenni Milly og bjó fagurlega einkahús, sem hann keypti hjá Cannes, þar sem hann ætiaði að eyða elli- aögunum. En hann fékk aldrei notið þessa glæsilega húss. í september 1956 gáfu for- lögin honum dálitla vísbend- ingu um að hann ætti ef til vill ekki langt eftir ólifað. Hann varð þá var hjartasjúk- dóms, sem leit út fyrir að geta haft alvarlegar afleiðingar, ef ýtrustu varfærni væri ekki gætt. En hann vildi ekki breyta lífsvenjum sínum. — Hann elskaði góðan mat og bordeuxvín. Læknir hans að- varaði hann og bað hann að lara varlega með sig, en Dior yppti aðeins öxlum. Hann hafði ekki mikla trú á lækn- um; — hins vegar byggði hann allt sitt traust á spákonum, og sérslaklega var það ein, sem hann hafði mikið dálæti á, en til hennar hafði hann sótt ráð í tvo áratugi. Þessi spákona hafði sagt honum: spókonur en lækna — Þér munuð verða auðug- ur og frægur með hjálp kven- fólksins! í hvert sinn sem Dior þurfti að taka mikilvægar ákvarðan- ir, leitaði hann ráða völvunn- ar. Það gerði hann einnig fá- um mánuðum áður en hann dó, þegar honum hafði hug- kvæmst að fara á heilsuhæli í Montecatini til þess að megra sig, en hún réð honum frá því að fara þangað: — Gerið það ekki, monsieur Dior, spilin ráða frá því, sagði spákonan. — Hvaða þýðingu ætli fjór- tán daga dvöl á hressingar- hæli geti haft? í fyrsta sinn hlustaði Dior ekki á aðvaranir spákonu sinnar. Hann óttaðist að fitna um of, og þess vegna vildi hann megrasig, og hann fór af stað eins og hann hafði ætlað sér í fylgd með tveimur nánustu starfsmanneskjum sínum, — tveim stúlkum. Önnur þeirra varð eftir hjá honum og við hana sagði hann: — Ég verð óþekkjanlegur, þegar ég kem aftur héðan. Þriðjudaginn 9. október átti að fara fram ráðstefna í tízku- húsi hans út af fyrirhugaðri sumartízku næsta árs, því að tízkuhúsin verða jafan að verja hálfu ári til ári á undan með nýjustu tízku-model sín. En ráðstefna þessi var aldrei haldin. Hins vegar fór útför Diors fram einmitt þann dag, sem ráðstefnan hafði verið boðuð- Fyrirtækið Christian Dior var ekki aðeins tízkuhús í París, heldur breiddi það anga sína svo að segja um gervalla jörðina. Flest þessi fyrirtæki hafði Dior stofnað í samvinnu við franska vefnaðarvöru- furstann Marcel Boussac. En frá tízkuhúsinu í París var „línan“ gefin. Tvisvar sinnum á ári voru sendar út tízku- nýjungar; 180 model voru frá- tekin fyrir París, 100 fóru til New York og 100 til Lundúna. Þetta var umfangsmikið starf fyrir einn mann, sem aðeins hafði tvo tízkuteiknara sér til aðstoðar við frumgerð tízku- moldelanna. Vandamálið, sem nú hefur komið upp eftir dauða Diors, Gifts to Betel Mrs. J. L. Thomson, Elmhurst, 111. In memory of Magný Helgason $10.00; Mrs. B. Ey- olfson, Churchbridge, Sask. $10.00; Mr. & Mrs. Daniel Peterson, Betel, In memory of Rebekka Anderson, Baldur, $10.00; Mrs. Margrét Björnson, Lundar, Man. In memory of Margrét Thorsteinson and Jó- hann Jónasson $10.00; The Icelandic Ladies Group, Flin Flon, Man. $100.00; Lutheran Ladies Memorial Wreath Fund, Glenboro, Man. $25.00; María Stefánson, Betel $5.00; A friend of Betel, Winnipeg $25.00; Ladies Aid, Sigurvon, Húsavík, Man- $25.00; Stein- unn Valgardson, Betel $3.00; Julius Davidson, Gimli, Man. $10.00; Beatrice E. Johnson, Winnipeg $25.00; Henrietta Johnson, Betel $2.00; Mr. & Mrs. S. Gudmundson, Betel, In memory of H. G. Sigurdson, Winnipeg $5.00; Mr. Kristinn Johnson, Gimli, Man. $5.00; Mrs. G. D. Wilson, A Gift from Dianne $6.00; Dr. R. Beck $500; Steinunn Valgardson, Betel, „1 minningu um ást- kæra vinkonu, Kristínu Mar- kússon“ $5.00; Mr. & Mrs. T. E. Halldórsson, Evanston, 111. In memory of Gunnar Thor- láksson $5.00; Miss Dorothy Hollinshead, Winnipeg In memory of Mrs. Lára Burns $5.00; Mrs. Thora Geston and Miss Joan Geston, San Francisco, Calif. In memory of Gunnar Thorláksson $5.00; Miss S o f i a Halldorson, Chicago, 111. In memory of Gunnar Thorláksson $5.00; Miss Guðrún A. Johannson, Saskatoon, Sask. $10.00 In memory of Mrs. Lára Burns; Mrs. Gunnlaugur Johannson, Winnipeg $5.00 In memory of Mrs. Lára Burns; Mrs- Anna Thordarson, Betel, $3.00; Mrs. Sigríður Goodman, Betel $3.00; er fyrst og fremst það, hver muni fær um að halda starfi hans áfram. Þess eru dæmi fyrr að tízkuhús hafi liðið undir lok með skapara sínum. Þannig fór um fyrirtæki Jaéues Fath, sem leið undir lok ári eftir dauða stofnand- ans. Aftur á móti hefur fyrir- tæki Patou verið rekið áfram, og eru þó liðin tuttugu og fimm ár frá því Patous lézt. Sagt er, að Marcel Boussac leiti nú með logandi ljósi eftir ungum, hugkvæmum, en ó- þekktum tízkuskapara, — manni sem fær sé um að taka sæti Diors sem „frægasti Frakki veraldarinnar.“ — Og með vor- og sumartízkunni verður sjálfsagt úr því skorið, hver farið hefur höndum um j nýjustu „línuna,“ en eftir er þá að vita, hvort kvenfólkið krýnir þann tízkumeistara lár- viðarsveig, sem verðugan eftir- mann Diors. THOMAS BLAINE Liberal — Norlh Cenire SKATTAH. — Þetta myndl spara y!5ur aS minsta kosti einn dollar af hverjum fjórum (nema jjér sóum í hærri launa- flokkum). Til dæmis. Sérhver sá, er greiSir skatt af $2,000 myndi spara $80. S.J ÚKRATRY CrGIN GAR. — Greiéslur til atvinnuleysinK ja vegna veikinda. COMMITTEE ROOMS 748 Sargent Ave. Phone SP. 4-0756. 31. marz greiðið atkvæði: BlaínB, Thomas | X Authorized by Charles A. Remnant 2179 Gallagher Ave., office agent Mrs. Inga Kjernested, Betel $10.00; Mrs. J. Reykjalín, Langenbury, Sask. In memory of Mrs. Vigfúsína Beck and Thorberg Thorbergson $10.00; Mrs. Nikólína Friðriksson, Betel $10.00; Miss Stefanía Bjarnason, Camp Morton, to be used for the Infirmary $20.00. With sincere thanks on be- half of the Betel Committee. S. M. BACHMAN, Ste. 40, 380 Assiniboine Ave. Winnipeg, Man. Kona nokkur heimsótti list- málara nokkurn og varð mjög hrifin af málverkum hans. — Þvílík einstæð snilligáfa, sagði hún. — Ég vildi óska, að ég gæti tekið þessa dásamlegu liti heim með mér. — Þér munuð fá ósk yðar uppfyllta, svaraði listamaður- inn rólega. — Þér sitjið nefni- lega á litaspjaldinu mínu. ☆ Þú ert skilinn við konuna þína. Hvert ykkar fékk íbúð- ina? Málafærslumaðurinn. Kjósendur Selkirk kjördæmis Kjósið ERIC STEFANSON 31. marz Stuðlið að endurkosningu Diefenbaker-sljórnarinnar Rt. Hon. Jolin Dk't'cnhukei' Mr. Eric Stefanson Tíu gildar áslæður fyrir því að greiða Progressive Conservative atkvæði 31. marz: 1. John Diefenbaker hefir framfylgt svo kosninga- loforðum sínum, að met er sett í sögu Canada. Hann verðskuldar endurkosningu til að fullnægja stefnu- skrá sinni. 2. John Diefenbaker hefir hrundið af stokkum áhrifa- miklu upphafi að þjóðlegri þróun til að bæta lífskjör allra Canadabúa. 3. John Diefenbaker þarfnast starfhæfs meirihluta á þingi til að veita Canada ábyggilega stjórn. 4. John Diefenbaker hefir unnið aðdáun veraldar fyrir árvekni sína og skilning á hlutverki Canada í alþjóða- málum- Hann fylgir fram stefnu friðar og frelsis meðal allra manna. 5. Conservative flokkurinn er hinn eini “One Canada flokkur,” sem nær jafnt til allra manna og í öllum stéttum á öllum aldri, án hliðsjónar af trúarbragða- legri afstöðu eða þjóðernislegum uppruna. 6. Conservative flokkurinn er “All Canada” flokkur. Hann er eini flokkurinn með þingfulltrúa úr hverju fylki. Hann hefir skapað nýjan samstarfsanda meðal sambandsstjórnar, fylkja og sveitarhéraða. 7. Conservative flokkurinn er flokkur æskunnar; fullur þriðjungur þingmanna hans eru menn innan við fertugt, þar á meðal nokkrir ráðherrar. 8. Conservative flokkurinn undir forustu Johns Diefen- baker er flokkur, þar sem menn og konur upp og ofan finna sig heima; hann hefir lækkað skatta, hækkað elli-lífeyri, komið verði landbúnaðarafurða á fastari kjöl, framlengt tímabil atvinnuleysistrygginga, gert lánstraust auðveldara, stuðlað að auknum húsabygg- ingum, tvöfaldað framlög til sjúkrahúsa, hrundið áleiðis sjúkrahústryggingum og skipulagt stórvirki til aukinnar atvinnu fyrir Canadamenn. 9. Eric Stefanson frambjóðandi Progressive Conserva- tives er persónulegur fulltrúi Johns Diefenbaker og Conservative flokksins í þessum kosningum. 10. Eric Stefanson frambjóðandi yðar af hálfu Progres- sive Conservative flokksins er kunnur út um bygðar- lög yðar vegna strangs heiðarleika, fjölþættra gáfna, reynslu í meðferð opinberra mála öllum kjósendum kjördæmisins jafnt í hag. Merkið kjörseðil yðar þannig: Stefanson, Eric | X —Sunnudagsblaðið Published by the Progressive Conservative Party of Canada

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.