Lögberg - 16.10.1958, Qupperneq 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 16. OKTÓBER 1958
Lögberg GefiB tlt hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 303 KENNEDY STREET, WINNIPEG 2, MANITOBA Utan&skrift ritstjðrans: EDITOR LÖGBERG, 303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Manitoba Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Skrifstofustjðri: INGIBJÖRG JONSSON Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram “Lögberg” is published by Columbia Press Limited, 303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Manitoba, Canada Printed by Columbia Printers Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa WHitehall 3-9931
Þakkargerðarhátíðin
Þó því sé vitaskuld ekki eins almennt að fagna og æski-
legt hefði verið, ber því ekki að neita að bjartara sé allmiklu
umhorfs þennan þakkargerðardag en suma aðra fyrirrennara
hans, og þó að vopnin hafi að vísu eigi verið kvödd, hefir
þeim verið beitt með nokkru meiri varkárni en að undan-
förnu; erjurnar sem geisað hafa undanfarið í kínversku
sundunum út af smáeyjunum, sem þar eru, eru vægari nú
en þær áður voru og er engan veginn óhugsanlegt að vopna-
hlé komist þar á. Dynkirnir milli stórveldanna eru engan
veginn jafn háværir og þeir voru, og meiri líkur á en áður
var, að takast megi áð miðla málum hér og þar. Hvaða
skoðanir sem menn hafa og hvernig svo sem menn skiptast
í andstæða flokka, eru lítt skiptar skoðanir um það, að Sam-
einuðu þjóðirnar hafi leyst af hendi stórvirki með því að
koma í veg fyrir þriðju heimsstyrjöldina.
Frá hvaða sjónarmiði, sem skoðað er, verður ekki um
það vilst, að einn af þeim stærstu menningarlegu sigrum
síðari alda sé stofnun Sameinuðu þjóðanna. Þær eru stofnaðar
í anda Hans og undir merki Hans, sem skildi gildi þakkar-
innar öllum betur. Að kunna að þakka er að kunna að elska
og kunna að lifa.
Það er ekki einasta að okkur, jarðarinnar börnum, beri
að þakka hinar margbreytilegu gjafir Guðs okkur sjálfum
til handa, heldur ber okkur engu að síður að þakka þá lífs-
fegurð og þá óumræðilegu mildi, sem nú við þessi tímamót
varpar dásamlegum þakkarbjarma út yfir gervalt mannkyn
frá einu skauti jarðar til annars.
Það er dýrðlegt og undursamlegt til þess að hugsa, að
finna sjálfan sig dálítinn part of hinni undursamlegu þakkar-
hátíð. —E. P. J.
★ ★ ★
Greiðið atkvæði 22. okf-óber
Á miðvikudaginn 22. október verður gengið til kosninga
í Winnipeg til að kjósa borgarstjóra og bæjarráðsmenn. í
kjöri verða núverandi borgarstjóri Stephen Juba, Stan
Carrick bæjarráðsmaður og W. A. Kennedy formaður lífs-
ábyrgðarfélags. Talið er að núverandi borgarstjóri muni
bera sigur úr býtum. Hann hefir jafnan haft lag á því að fá
umsagnir um sig á forsíðum dagblaða borgarinnar, og hefir
reynzt allvel í stöðu sinni.
í annari kjördeild, þar sem flestir íslendingar eru bú-
settir, sækja þessir um sæti í bæjarstjórn: Mrs. Lillian Hallon-
quist; hún hefir átt sæti í bæjarstjórninni í 6 ár og hefir verið
formaður í mörgum aðalstarfsnefndum og virkur meðlimur
í flestum nefndum bæjarstjórnarinnar. Hún er ötul og sam-
vizkusöm ,enda hlaut hún fleiri atkvæði en nokkur annar
bæjarráðsmaður fyrir tveim árum. Á hún sannarlega skilið
að vera endurkosin.
Mr. Charles H. Spence býður sig fram í fyrsta sinn. Er
hann talinn af þeim, er til hans þekkja, ágætur maður og
efni í góðan bæjarráðsmann.
Mr. William Steíanik bauð sig fram í fyrra og fékk tals-
vert fylgi, þótt ekki næði hann kosningu. Hann hefir ekki
trú á því að sama fólkið eigi að sitja í bæjarráði ár eftir ár;
telur hann að nýir vendir sópi bezt, og væntir hann stuðnings
íslendinga.
Art Coulter býður sig fram á ný af hálfu C.C.F. flokksins
og er sá eini í kjöri frá þeim flokk í annari kjördeild. Þá leitar
og Mr. H. B. Scolt endurkosningar.
★ ★ ★
Fjárveitingarlögin
Greidd verða atkvæði um fern fjárveitingarlög: $2,500,000
fyrir vegina að hinni fyrirhuguðu Disraeli-brú; $3,000,000
fyrir nýjar skólabyggingar; $300,000 fyrir 3 ný bókasöfn og
$150,000 fyrir barnaleikvelli. — Væntanlega greiða sem flestir
atkvæði með þessum umbótum, sem eru nauðsynlegar borg-
inni til framfara.
Fréttabréf frá California
Kæri Einar Páll!
Mér þótti það slæmar frétt-
ir að þú værir lasinn; mér
finnst aðeins að ég geti hugs-
að um þig sem hraustan og
hressan og hinn góða íslend-
ing. Ég vona að þú fáir skjót-
an bata, þar sem þú ert okk-
ur, hinum hálftýndu íslend-
ingum, alveg ómissandi! —
Greinin, sem ég sendi þér nú
hefur inni að halda mörg
nöfn, en ef til vill eiga þessir
menn náin skyldmenni í
Vesturheimi.
Beztu kveðjur til ykkar
hjónanna. — Sami og ætíð,
—SKÚLI
íslendingar í Suður-
Californíu!
Þrátt fyrir heitasta septem-
ber í manna minnum í Los
Angeles var nefnd frá hinum
mörgu Norðurlanda félögum
í Californíu vel að verki með
undirbúning hinnar árlegu
Leifs Eiríkssonar samkomu,
sem fram fór laugardags-
kveldið hinn 4. október s.l.,
var samkoman vel sótt og fór
hið bezta fram á allan hátt.
íslendingar lögðu fram sinn
skerf af dugnaði og myndar-
skap með frú Guðnýju Thor-
waldson í fararbroddi. —
Skemmtiskráin var mjög góð:
Kórsöngur, einsöngur og tví-
söngur, ræðuhöld og skraut-
dansar; ennfremur spiluðu á
harmonikur þrjár ungar ís-
lenzkar stúlkur, Erla, Hanna
og Inga Erlendsson; þær eru
dætur Erlendar Erlendssonar
og Þórdísar konu hans í
Hollywood. Þær spiluðu eins
og þeir sem valdið hafa; æska
þeirra og yndisþokki heillaði
alla; var það nautn að horfa
á hinar björtu og sviphreinu
dætur Reykjavíkur, sem nú
eru að gjöra garðinn frægan
hér á yztu ströndum. — Edda
Karlsson bar íslenzka fánann
og sómdi sér vel í hinum ís-
lenzka búning. — Dansað var
til kl. 1 um nóttina í hinum
vistlega sal, en úti undir beru
lofti voru hinar beztu veit-
ingar á boðstólum. — Án efa
voru þarna 75 íslendingar
ásamt vinum sínum. Frá Is-
landi var þarna Hrefna Egils-
dóttir hjúkrunarkona, hún er
náskyld Fred Friðgeirsson;
Heima, 6. oklóber 1958
ennfremur margir ungir menn
alveg nýkomnir til skóla-
göngu; nöfn þeirra eru: Karl
Rasmussen, Páll Johnson,
Arnar Jörgensen, Yngvi Guð-
mundsson, Elías Guðmunds-
son, Siggeir Sverrisson og
Jóhann Erlendsson. — Á för-
um til íslands eru þessir: Jón
Sigurðsson, Stefán ólafsson,
Stefán Bjarnason, Ingimar
Þorgeirsson og Kristján Valdi
marsson; sömuleiðis Reynir
B. Oddsson leikari, sem fer til
London í Englandi; einnig er
farin heim frú Anna Long,
sem dvalið hefur hjá dóttur
sinni Guðríði Watts.
Þau hjónin Fisher Níelsson
lyfjafræðingur og Hallbjörg
Bjarnadóttir leikkona eru nú
stödd í Hollywood. Hallbjörg
er alin upp á Akranesi, en
ættuð af Snæfellsnesi, og al-
systir Steinunnar Bjarna-
dóttur leikkonu í Reykjavík.
Þrátt fyrir margra ára dvöl
erlendis er hún mjög íslenzk
í anda og glæsileg kona; eink-
um er hún kunn fyrir eftir-
hermur sínar á hinum óskyld-
ustu röddum. Maður hennar
talar jöfnum höndum ís-
lenzku og ensku, auk móður-
máls síns. Þau hugsa sér jafn-
vel að ílengjast í Ameríku.
Þá eru hér á ferð Hörður
Jóhannesson með frú sinni,
eru þau í heimsókn til annars
sonar síns; nú sem stendur
eru þau í Seattle hjá Dr. Jó-
hannesi Jóhannesson föður
Harðar.
Laugardaginn 20. sept. s.l.
voru gefin saman í hjónaband
Miss Freda Johnson og Gavin
John Boyd í St. Columba
Presbyterian Church í Van-
couver, B.C.; eru þau bæði
ættuð frá Manitoba í Canada.
Hinn 23. ágúst höfðu ís-
lendingar hér “Picnic” í hin-
um fagra Echo Park. Um 150
manns voru þar saman kom-
in; veðrið var hið ákjósanleg-
asta. Guðný Thorwaldson
veitti ókeypis kaffi allan dag-
inn við tjörnina lygnu og
stóru með fuglum, fiskum,
bátum og fögrum gróðri allt
frá smáblómum til himin-
hárra pálmatrjáa. — Frá ís-
landi voru Sveinn Thordar-
son og kona hans frá Kópa-
Við Rangalon
Hálfgrónar tættur, hér er mikil saga
um heiðar skráð með alda-þungu letri,
tún koma ennþá tönnuð undan vetri,
traðkaða velli hross og sauðir naga.
Fallinn er garður, fúinn sérhver raftur,
fátækleg minning stríðs er lengi háðu
konur og menn er kosti litla þáðu,
kotbóndans leið var jafnlöng fram og aftur.
Bíll fer um veginn, bjart er yfir landi,
blikar á silungsvatn og lækjarósinn,
rúmt e rtil veggja, há er Herðubreið.
Langt er á milli stráa á Stórasandi,
sterk er mín jörð með hrís og norðurljósin,
fátæk en rík með töp og sókn og seið.
Árni G. Eylands
vogi, hann er hér við nám.
Sennilega fáum við hér fleiri
gesti frá íslandi en nokkur
önnur borg í Vesturheimi,
ætti þetta að vera hinn bezti
blóðgjafi þjóðernislega séð,
því að undatekningarlaust er
allt þetta fólk hið gjörvuleg-
asta og tekur mikinn þátt í
íslenzkum félagsskap og er
án efa hinir beztu fulltrúar
til þess að efla sambandið
yfir lönd og höf.
Skúli G. Bjarnason
Announcement
The building and furnishing
of the Betel Old Folks Home
is now complete. This has
been made possible by the
generous donations made by
many friends of the Home as
well as special gifts from
organizations and grants from
the Provincial Government.
A recent additional grant
from the Province of Mani-
toba was made in the amount
of $13,622.00.
The Board of Directors of
Betel wish to publicly ex-
press their appreciation to
Frank R. Lount & Son Ltd.
who donated their services as
architects and contractors.
For the record this is con-
servatively estimated as a
donation of $15,500.00. In ad-
dition to the above Mr. Frank
R. Lount donated the large
picture window in the library
of the Home. As previously
announced the furniture for
the library was a special gift
from Iceland.
The total cost of the project
now is $250,000. The major
portion of the increase from
the original estimate is due
to the purchase of furniture,
equipment and automatic ele-
vator. The amounts collected
and the balances required are
indicated below on the two
thermometers.
The Campaign must con-
tinue until these deficits have
been paid. Your assistance is
urgently needed.
BETELCAMPAIGN
$250,000.00
223.015
218^569
26, 985
Sd 15, 665
« a
a S 1 0.
5 o s
13 ~ o s ö
t o 5 S 9
a c ~ - P 3 cr § 3
w ca
Make your donations to the
"Betel" Campaign Fund.
123 Princess Street.
Winnipeg 2.