Lögberg - 12.02.1959, Qupperneq 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 12. FEBRÚAR 1959
7
Fréttir frá Gimli, 2. febrúar, 1959
Bœjarráðsfundur var hald-
inn á Gimli 6. jan. s.l. kl. 10 f.h.
Allt bæjarráðið var viðstatt,
en það skipa: Mr. Barney
Egilson, bæjarstjóri; bæjar-
ráðsmenn: Mr. B. V. Árnason,
endurkosinn, Mr. H. Dalman,
Mrs. Violet Einarson og Mr.
J. S. E. Beauchemin, sem er
eini nýi maðurinn í bæjar-
ráðinu fyrir 1959. Málafærslu
maður var endurkosinn Arni
G. Eggertson, með $25.00
fastalaunum. H. E. Beddome
var endurkosinn friðdómari,
með $50.00 árslaun.
Reikningar borgaðir í des-
ember komu upp á $24,123.34,
og voru þeir samþykktir.
Eftirfarandi nefndir voru
skipaðar fyrir árið 1959:
“Public Works”: B. V. Árna-
son, H. Dalman, J. S. E.
Beauchemin.
Eldliðsnefnd: J. S. E. Beau-
chemin, H. Dalman, B. V.
Árnason.
Heilsu-, velferðarmála- og
vatnsverks-nefnd: H. Dalman,
Mrs. Violet Einarson og J. S.
E. Beauchemin.
Fjármála- og almennramála
nefnd: Mrs. Violet Einarson,
B. V. Árnason, J. S. E. Beau-
chemin.
Skemmtigarðsnefnd: G. B.
Magnússon, B. Egilson, J. S. E.
Beauchemin, B. V. Árnason,
W. J. Árnason, M. Graboski,
William Whiteæay.
Sjálfboða-slökkviliðssveit:
E. G. Anderson, formaður, T.
K. Árnason, varaformaður, A.
Markússon, J. S. E. Beau-
chemin, F. M. Árnason, T. K.
Árnason, J. H. Menzies, Dick
Sprowl, S. Erickson, H. Sin-
clair, A. Bailey, N. Cherniak.
“Town Planning” nefnd: —
J. T. Árnason, F. M. Árnason,
H. V. Thorsteinsson, A. Seaby,
Dr. F. E. Scribner, Mrs. Violet
Einarson.
Ákvarðað kaup fyrir að sitja
á lögákveðnum bæjarráðs-
fundum: Bæjarstjóra $10.00,
bæjarráðsmönnum $8.00, —
einnig að bæjarstjóra verði
borgaðir $400.00 fyrir önnur
ábyrgðarstörf.
Árslaun yfirverkstjóra bæj-
arins $3,060.00, aðstoðarverk-
stjóra $2,820.00, bæjarskrifara
$3,060.00, — aðstoðarskrifara
$1,920.00. Auka-verkamönnum
bæjarins $1.00 á kl.stund.
Samþykkt að borga skrif-
ara $300.00 fyrir nauðsynlega
skrásetningu og fyrir inn-
heimtu á gjaldi greiddu undir
nýju Sjúkrahúslögunum.
Samþykkt að endurborga
verkstjóra $25.00 á mánuði
fyrir notkun bíls hans í þágu
viðhalds á vegum o. s. frv. í
bænum.
$40.00 gefnir til Gimli Curl-
ing klúbbsins.
Samþykkt var að slökkvi-
lið Gimli-bæjar fari til hjálp-
ar út í sveitinni, með þeim
skilmálum að sveitarstjórn
Gimli sveitar borgi $10.00 á
kl. fyrir slökkvivél og áhöld
ásamt $2.00 á kl. fyrir hvem
mann.
Mr. S. E. Sólmundson er
“poundkeeper” fyrir 1959.
----0----
Þriðja þ.m. ætla þau Mr. og
Mrs. Harold Bjarnason í ferða
lag vestur til Victoria, B. —
Þaðan fara þau suður til
Bandaríkjanna og ferðast svo
norður til Campbell River.
----0----
Lestrarfélagið „Gimli“ hélt
ársfund sinn 4. janúar s.l. —
Stjórnarnefndin var öll endur
kosin: Forseti,Mr. J. B. John-
son; vara-forseti, H. V. Thor-
steinsson; skrifari, Lárus B.
Nordal; vara-skrifari, Guð-
mundur Pétursson; féhirðir,
P. S. Pálsson; vara-féhirðir,
Óli Josephson; bókavörður er
Sam Sigurdson; vara-bóka-
vörður er Baldur Peterson.
Bækur eru lánaðar út á
sunnudögum frá kl. 10 til 12
f.h. Mikið er til af góðum bók-
um. Fólk ætti að koma og fá
bækur sér til fróðleiks og
skemmtunar. Ákveðið var að
hafa hina árlegu Sumarmála-
samkomu eins og undanfarin
ár. Heiðursfélagar eru þrír: —
Guðm. Fjeldsteð, Jóhann Sæ-
mundsson og Óli Bjarnason.
----0----
Þjóðræknisdeildin „GIMLI“
hélt ársfund sinn 27. jan. í
neðri sal lútersku kirkjunnar.
Stjórnarnefndin var endur-
kosin, hana skipa: Forseti,
Mrs. Kristín Thorsteinsson;
vara-forseti, Mrs. Elín Sigurd-
son; skrifari, Ingólfur N.
Bjarnason; vara-skrifari, Mrs.
I. N. Bjarnason; féhirðir,' Mr.
W. J. Ámason; vara-féhirðir,
Mrs. W. J. Árnason; fjórmála-
ritari, Hjálmur V. Thorsteins-
son; vara-fjármálaritari, Mrs.
John Stevens; skjalavörður,
Mrs. Guðrún Stevens.
Skýrslur sýndu, að deildin
hafði verið vel vakandi þetta
nýliðna ár. — Bæði kaffi- og
samkomunefndir voru endur-
kosnar. Þrír erindrekar voru
útnefndir til að sitja hið fer-
tugasta ársþing Þjóðræknis-
félagsins í Winnipeg 23., 24. og
25. þ.m. — Eftir fundarstörf
hófst skemmtiskrá og kaffi-
veitingar. Mr. Ingólfur N.
Bjarnason skemmti með því
að segja frá og lesa upp um
hjátrú og ýmsar sagnir um
eldfjallið Heklu á íslandi frá
16. og 17. öld. — Mrs. Aldís
Peterson las ágæta sögu. —
Miss Sæunn Bjarnason las
þulu.
——0------
Miss Gloria Frances Dixon
og Mr. Norman Valgardson
voru gefin saman í hjónaband
10. jan. s.l. í lútersku kirkj-
unni á Gimli. Séra John
Fullmer gifti. Faðir brúðar-
innar leiddi hana að altarinu.
Brúðarmeyjar voru Mrs. Jack
Valgardson, tengdasystir brúð
gumans, Miss Sylvia Dixon,
systir brúðarinnar og Miss
Marion Valgardson, systir
brúðgumans. Blómamær var
Susan litla Valgardson, bróð-
urdóttir brúðgumans. Aðstoð-
armaður brúðgumans var
Jack Valgardson, bróðir hans.
Til sætis vísuðu Jack Yure-
chuk og William Valgardson.
Eftir giftingarathöfnina var
veizla setin af 100 manns í
neðri sal kirkjunnar. — Séra
Fullmer var veizlustjóri. W.
Zimmerman talaði fyrir minni
brúðarinnar. — Brúðguminn
flutti þakkarávarp fyrir sína
hönd sína og brúðar sinnar.
Heillaóskasímskeyti voru les-
in upp frá Edmonton, Alta.,
og Moose Jaw, Sask., voru
þau frá bróður og föðurbróður
brúðgumans. Brúðurin er
dóttir Mr. og Mrs. Jack Dixon
á Gimli. Brúðguminn er sonur
Mrs. Joseph Syzylo og fyrri
manns hennar Sveinbjörns
Valgarðssonar, sem lézt á
Gimli fyrir mörgum árum. —
Framtíðarheimili ungu hjón-
anna verður á Gimli.
----0----
Gimli-lúterski söfnuðurinn
hélt ársfund sinn 25. jan. Dr.
F. E. Scribner, forseti safnað-
arins, gaf ýtarlegt yfirlit yfir
starfsemi safnaðarins árið
1958. Dr. C.R. Scribner, fé-
hirðir, skýrði frá því að
$8,403.63 hefðu farið í gegnum
fjárhirzluna yfir árið. Mrs. J.
H. Menzies gaf skýrslu yfir
starf Sunnudagaskólans, sem
hefir 16 kennara og 148 börn.
Mrs. J. Jacobson, féhirðir
kvenfélagsins, las fjárhags-
skýrslu þeirra, er sýndi, að
þær höfðu gefið $500.00 til
kirkjunnar 1958. Mrs. E.
Stevens greindi frá því að
Dorcas félögin hefðu samein-
ast í eitt félag, og hefði það
gefið $587.00 til kirkjunnar;
einnig hefði það gefið til “Re-
tarted Children,” Gimli graf-
reitsins og Sunudagaskólans.
Safnaðarnefnd fyrir 1959
skipa: — Forseti, Dr. F. E.
Scribner; vara-forseti, Barney
Egilson; skrifari, Art Seaby;
féhirðir, Dr. C. R. Scribner;
aðrir nefndarmenn: John
Menzies, Harold Bjarnason,
Óli Markússon, A. J. Nnickey,
B. V. Árnason, Lorne Ander-
son, J. B. Johnson og Allan
Bailey. — Eftir fundinn báru
konurnar fram kaffi og veit-
ingar.
Mrs. Kristín Thorsteinsson
Matthíasarsafn
Matthíasarfélagið á Akur-
eyri, sem nýlega var stofnað,
hefir unnið að því að undan-
förnu að fá keypt húsið Sigur-
hæðir á Akureyri, sem var
heimili Matthíasar skálds
Jochumssonar siðari hluta
ævi hans.
Fyrir jólin varð félaginu
það ágengt að það festi kaup
á aðalhæð hússins, en ris-
hæðin hefur ekki fengizt
keypt.
í húsinu búa sem stendur
tvær fjölskyldur og flytur sú,
sem býr á neðri hæðinni ut í
vor. Verður þá hafizt handa
um að breyta íbúðinni í það
horf, sem hún var á dögum
Matthíasar, svo og að flytja
þangað inn ýmsa muni og hús-
gögn, sem verið höfðu í eigu
skáldsins.
Hversu ágengt verður í
þessum efnum fer mjög eftir
fjárhag félagsins, en hann er
sem stendur ýkja þröngur,
enda húsverðið að mestu í
skuld ennþá. Akureyrarbær
mun þó hlaupa undir bagga
með 50 þús. kr. framlag og á
fjárhagsáætlun ríkisins hefur
verið gert ráð fyrir 25 þús. kr.
framlagi til húsakaupanna.
Húsið Sigurhæðir stendur á
fögrum stað uppi á brekkunni
skammt austan við Akureyrar
kirkju og sér þaðan vítt yfir.
í Matthíasarfélaginu eru nú
120 félagar og er árgjaldið 100
krónur. Er þess vænzt að sem
flestir gangi í félagið til þess
að hrinda hugðarefni þess sem
fyrst í framkvæmd og koma
up sem fullkomnustu Matt-
híasarsafni. VÍSIR, 29. des.
K aupið Lögberg
V ÍÐLESN AST A
ÍSLENZKA BLAÐIÐ
þér drekkið ekki
Sá sem drekkur alls ekki fær stundum leiðin-
legt orð á sig fyrir að vera dómharður í garð
þeirra, sem drekka. Þótt hans afstaða sé kannske
aðdáanleg ætti hann að varast, að móðga þá,
sem ólíkir eru honum, með framkomu sinni.
HINN UMBURÐARLYNDI BINDINDISMAÐUR
• Lætur ekki mikið yfir bindindi sínu
• Er kurteis, er hann hafnar drykk
• Mælir með sinni eigin afstöðu með framkomu
sinni fremur en með áleitnum og móðgandi
ádellum.
• Gerir og segir ekkert drykkjumanninum til
háðungar.
• Virðir og sýnir umburðarlyndi þeim, sem líta
öðruvísi á málið.
EF ÞÉR ERUÐ BINDINDISMAÐUR, VERIÐ
VISS UM AÐ FRAMKOMA YÐAR MÆLI MEÐ
AFSTÖÐU YÐAR.
Þetta er ein aí þeim fræSslugreinum,
almenningi til gagns af
sem birt er
MANITOBA COMMITTEE
on ALCOHOL EDUCATION
Department of Education, Room 42,
Legislative Building, Winnipeg 1.
11-7