Alþýðublaðið - 27.08.1960, Blaðsíða 3
Golda Meyer
fær Guð-
brandsbiblíu
í HEIMSÓKN sinni í fsra-
el hefur Guðmundur f.
Guðmundsson meðal ann-
ars átt viðræður við Golda
Meyer, kvenskörunginn,
sem er utanríkisráðherra
suður þar. Afhenti Guð-
mundur frúnni Guðbrand
arbiblíu að gjöf við það
tækifæri og sýnir myndin
hana skoða gripinn. f bak
sýn er Hinrik Sv. Björns-
son, ráðuneytisstjóri.
mVMMtMMMMUUMMtMHIMHHMVmHMMMMHIMimW
Narfi fékk
100 tonn
sólarhrin
TOGARINN Narfi
komst skyndilega í mok-
afla á nýjum miðum við
Austur-Grænland aðfara
nótt sl. fimmtudags. Fékk
togarinn 100 tonn af karfa
á einum sólarhring. Aðrir
WMMMMMMMMMMMMMM
ROM, 26. ág. (ORN). — ís-
lenzku frjálsíþróttamenn-
irnir hafa unnið góð afrek
á æfingum. Jón Pétursson
hefur kastað kringlunni
51 metra og stokkið 1,98 í
hástökki. Valbjörn hefur
stokkið 4,30 og Hilmar
hlaupið 100 metra á 10,9,
Vilhjálmur er mestum-
talaði íslendingurinn, en
einnig er talsvert talað um
Pétur vegna kvikmynda-
leiks hans.
MtMHMMtMWIMmmmW
togarar fréttu fljótt af
þessu og komu á vettvang.
Afli hafði verið mjög tregur,
,,steindauður siór“, eins og sjó-
menn segja og því vakti það
mikla athygli er Narfi tók að
mokfiska á hinum nýju mið-
um, 40 mílur austur af Græn-
landi.
MARGIR FENGU
GÓÐA VEIÐI.
Margir íslenzkir togarar
sigldu þegar á þessi mið og
fengu góðan afla. — Narfi tek-
ur 450 tonn og hafði fengið 100
tonn áður en hann komst í
þennan mokafla. Má búast við,
að hann haldi heimleiðis með
fullfermi um helgina.
Orgelvígsla
á Akranesi
NÝLEGA var sett upp 13
radda rafmagns pípuorgel af
þýzkri gerð í Akraneskirkju.
Orgelið verður vígt við messu
kl. 14 á sunnudag og mup dr.
Páll ísólfsson leika á orgelið.
Að kvöldi sama dags halda
dr. Páll og frú Þuríður Páls-
dóttir ásamt kirkjukór Akra-
ness tónleika í kirkjunni.
Stjórn
kærö fyrir ó
ALÞÝÐUBLAÐIÐ birti
fyrir nokkrum dögum bréf
til Sjómannadagsráðs frá
vistmönnum á Hrafnistu.
Þar var því mótmælt, að
vistfólkið þyrfti að greiða
rándýru verði mat og þjón
ustu. Um langan tíma
hafa verið erjur á milli
vistmanna og stjórnenda
Hrafnistu vegna margvís- j
legra hluta. r
Einn vistmanna hefur geng-
ig fram fyrir skjöldu í barátt-|
unni fyrir ýmsum hagsmuna- i
málum þeirra. Hann skrifaði
meðal annars undir fyrrgreint j
mótmælabréf.
Það hefur nú gerzt, að þessi
maður hefur neyðst til að senda j
borgarlækni bréf, bar sem ráða
menn Hrafnistu hafa reynt að
ná sér niðri á honum með því
að banna starfsstúlkum að þrífa
í herbergi hans. Gólfið í her-
bergi hans hefur ekki verið sóp
að né þvegið í rúma viku og
ekki búið um rúm hans í 2—3
vikur, eins og gert er fyrir aðra
vistmenn.
Alþýðublaðinu er ekki kunn-
ugt um, hvaða ráðstafanir borg
arlæknir hefur gert í málinu,
en blaðið mun fylgiast með því.
Hér á eftir fer afrit af bréfi
ÓHAGSTÆÐ
VÖRUSKIPTI
r a /
I JULI
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR-
INN í júlímánuði s. 1. var óhag-
stæður um 81.9 milljónir kr.
Inn voru fluttar vörur fyrir
218.8 milljónir, en út fyrir
136.9 milljónir króna.
í júlímánuði 1959 var vöru-
skiptajöfnuðurinn óhagstæður
um 145.5 milljónir króna. Þá
voru fluttar inn vörur fyrir
272.7 milljónir, en út fyrir 127.3
milljónir.
Vöruskiptajöfnuðurinn á tíma
bilinu janúar-iúlí 1960 var óhag
stæður um 524.6 miiljónir. Inn
voru fluttar vörur fyrir 1.872.4
(þar af skip og flugvélar f. 277
millj.), en út fyrir 1.347.7 millj.
Á sama tímabili í fyrra var
vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um 410.2 milljónir. Þá
voru fluttar inn vörur fvrir
1.795 milljónir (þar af skip og
flugvélar f. 55 millj.), en út fyr-
ir 1.384.7 milljónir króna.
(ATH. Allar tölur miðaðar
við núverandi gengi).
vistmannsins til borgarlæknis,
sem blaðið hefur fengið:
Reykjavík, 25. ág. 1960.
„Hér með vil ég tjá yður,
herra borgarlæknir, að starfs-
stúlkum á Hrafnistu hefur
verið bannað að þrífa gólf í
herbergi mínu þar eða taka til
í því á annan hátt. Hefur ekki
verið gert hreint í því nú í
rétta viku, að ekki sé talað
um að ekki hefur verið búið
um rúm mitt í 2—3 vikur.
Leyfi ég mér að óska þess,
að stofnun yðar krefjist þess
fyrir mína hönd, að hér verði
bót á ráðin, og að þér jafn-
framt gerið ráðstafanir til
þess að bolabrögðum sem þess
um verði hvorki beitt við mig
né aðra vistmenn eftirleiðis,
með brottvísun þeirra ráða-
manna, sem slíkar fyrirskip-
anir gefa og þær framkvæma“.
Virðingarfyllst,
Til borgarlæknisins í
Reykjavík.
Taka ekki Jbátt í
sundinu vegna van-
skila íþróttasjóðs
Fregn til Alþvðublaðsins.
SIGLUFIRÐI í gær' — S.l. þrjú
ár hefur staðið yfir endurbygg-
ing á sundlaug Siglufjarðar.
Sundlaugin hefur verið yfir-
byggð. Húsið hefur allt verið
múrhúðað innan og veggir ein-
angraðir. Neglt hefur verið
upp timburloft og plast hljóð-
einangrun neðan á það. Þá hef-
ur rafmagnskerfi hússins verið
allt endurnýjað og nýtt sett
upp. Þá hefur miðstöðvarkerfið
verið ýmist endurnýjað það
sem fyrir var og nýtt sett upp
til viðbótar samkv. teikning-
um. Þak hússins hefur verið
járnklætt. Eftir er að koma fyr
ir lofthitunar- og loftræsti-
kerfi, op; sömuleiðis er eftir að
einangra með gosull ofan á loft
ið yfir sundlauginni.
Efni og vinna við það, sem
eftir er, þangað til telja má
sundlaugina tilbúna til að tak-
ast í notkun, má áætla að kosti
um 300 þús. kr.
Siglufjarðarbær mun vera
búinn að leggja til þessara fram
kvæmda ca. 1 milljón króna. Á
sama tíma hefur framlag í-
þróttasjóðs (þ. e. þátttaka rík-
isins) numið 35.600,00 kr., en
samkvæmt lögum á ríkið að
greiða 40% af byggingarkostn-
aði sundlaugarinnar.
Framlag bæjarsióðs í ár er
allmiklu meira en gert var ráð
fyrir í fjárhagsáætlun 1960.
Bæjarstjórn Siglufjarðar hafði
samþykkt að taka sundlaugina
í notkun 1. ágúst s. 1., en bann
16. júlí s. 1. barst eftirfarandi
símsekti frá íþróttafulltrúa:
„Mæli gegn notkun sundlaug
arinnar strax, nema fullkomin
einangrun sé yfir lofti. Stop.
Rjáfur loftræst og loftblásturs-
tæki virkt.
íþróttafulltrúi.
Á bæjarstjórnarfundi þann
9. ág. s. 1. var samþykkt, að þar
sem íþróttafulltrúi legði gegn
því, að sundlaugin yrði tekin í
notkun fyrr en loftræstingar—
lcfthitunarkerfi væru komin
upp, skyldi sundlaugin ékki
tekin { notkun í haust.
Það er því fullséð, að vegna
vanskila íþróttasjóðs, þá mun
ekkert skólaskyldusund fara
fram hér í haust, — eitt árið
í viðbót, — og Siglfirðingar
útilokaðir frá því að taka þátt
í samnorrænu sundkeppninni,
en síðast er sú kenpni fór fram,
tóku rúmlega 900 Siglfirðingar
þátt í henni.
Siglfirðingum finnst yfir-
leitt að hlutur ríkisins og í-
þróttafulltrúa sé ekki til fyrir-
myndar í þessu máli.
J.G.M.
Guðmundur
varð 41.
RÓM, 26. ág. (ÖRN). —
Guðmundur Gíslasoú
keppti fyrstur fslendinga
í 100 m. skriðsundi í morg
un og varð 41. af 51 kepp-
anda. Úrslitin í riðli Guð-
mundar urðu þessi: Hen-
dricks, Ástralíu, 56,9, Lind
berg, Svíþj., 57,1, Lantos,
Ungverjal., 57,4, Clarke,
Engl., 59,1, Nabucode,
Brasilíu, 1.00,1, Guðm.
1.00,8, Ezialde, Filippseyj-
um, 1.03,0, Dawling,
Möltu, 1.08,9.
Guðmundur náði all-
góðu viðbragði og var 6.
í snúningnum og lengi leit
út fyrir, að hann mundi
fara fram úr Nabucode, en
tókst ekki. Virtist Guðm.
vera jþreyttur.
MMMMtMtMMMMMtMMMW
Alþýðublaðið — 27. ágúst 1960 J