Alþýðublaðið - 27.08.1960, Qupperneq 4
r í SÍÐUSTU GREIN ræddi .
2 “banSSLrlfu'X": Gy/rí Þ. Gíslason, viðskipfamálaráoherra:
ur á því sviði hlutu að vera
ein megin forsenda þess, að
, ásiand í gj aldeyrismálum
þjóðarinnar gæti breytzt til
i 'batnaðar.
iHvernig skyldi nú vera um-
. horfs á því sviði? Til þess að
i mynda sér rétta skoðun á á-
hrjfum stefnubreytingarinnar
. í efnahagsrnálum á gjaldeyris-
. afjstöðuna verður að taka til-
lit til margs. í fyrsta lagi má
. að sjálfsögðu ekki bera á-
, standið í dag saman við á-
, standið um síðastliðin áramót,
heldur verður að bera það
saman við þann tíma, er
. stefnubreytingin kom til
framkvæmda. En á þessu
• tyennu er mikill munur,
: vegna þess. að síðustu mán-
. uðirnir fyrir gengisbreyting-
; una, þ. e. fyrstu mánuðir árs-
; ins, voru sérstaklega erfiðir
: einmitt vegna þess, að hið
, gallaða kerfi var þá að syngja
. sitt síðasta vers. En staðhæf-
. ingar blaða stjórnarandstöð-
, unnar undanfarið um gjald-
, eyrismálin hafa einmitt ver-
. ið byggðar á því, að bera á-
, standið nú saman við ástand-
j ið um áramótin, þ. e. a. s. á
því að gera hina nýju stefnu
ábyrga fyrir vandræðum, sem
áttu sér stað, meðan gamla
kerfið var enn við líði, og voru
afleiðingar þess.
í öðru lagi verður að
taka tillit til þess,
að gjaldevrisstaða landsins
versnar yfirleitt alltaf á tíma-
bilinu febrúar—júlí, vegna
þess að gjaldeyrisnotkun er
þá mikil, en gjaldeyristekjur
minni en verður síðar á árinu.
4. GREIN
í þriðja lagi verður að taka
tillit til þess, að aukið frelsi
í viðskipta- og gjaldeyrismál-
um hlaut að leiða af sér aukna
gjaldeyrisnotkun fyrst í stað,
og að ríkisstjórnin hafði gert
alveg sérstakar ráðstafanir til
að afla varasjóða, er mætt
gætu þeirri aukningu.
W Mb&dsskrilstGSur
Xaoftleida, á íslandi
AKHANES:
AKUREYEI;
HOSAVIK:
ESAFJÖHÐUH:
KEFLAVÍK:
UESKAUPSTAÐUH:
K..TKEKSFJÖHÐUR:
HEYKJAVÍK:
SELFOSS:
SIGLUFJÖRÐUR:
STYKKISHÓLMUR:
VESTMAX'JNAEYJAR;
'Magnús Guðmundsson, fulltrúi, c/o Haraldur Böðvarssoa <S Co.
Jón Egilsson, iorstjóri, Túngötu l.
Ingvar Þórarinsson. bóksali.
Ami Matthíasson, umboðssali. Siliurtorgi 1.
Sakarias Hjartarson. kaupmaður. Greniteigi 2,
Bjöm Bjömsson, kaupmaður.
Ásmundur B. Olsen, kaupmaður, Aðalstrœti 5,
Ferðaskrifstofan SAGA, Hverfisgötu 12.
Ferðaskrifstofan SUNNA, Hverfisgötu 4.
Ferðaskriistofa riidsins, Gimli v/ Lœkjargöiu.
Gunnar A. Jónsson, skriistofumaður, Skólavöllum S.
Gestur Fanndal, kaupmaður, Suðurgötu 6.
Ámi Helgason, pósimeistari, Höfðagötu 27,
Jakob ó. Óiafsson, skriistoiustjóri, Faxastig 1,
P
m
m
Oiangreindir umboðsmenn Loítleiða annast útvegim farseðla og veita allar upp-
lýsingar um ferðir félagsins. Vœntaniegir farþegar geri svo vel að haia samband
við umboðsmennina eða
(M/WHUBWIJÍÆ
J| LÆKJARGÖTU 2 OG REYKJANESBRAUT 8 • SlM 18440
Jj LOFTLEÍÐIS L A N D A M I L L I
—i § n maammm -
27. ágúst 1960 — Aíþýðufeiaðið
m
Hvernig er þá ástandið í
gjaldeyrismálunum, þegar allt
þetta er haft í huga? í vöru-
skiptagjaldeyri hefur gjald-
eyrisstaða bankanna batnað
um 122 millj. kr. frá febrúar-
lokum til júlíloka. Hér verður
þó að hafa það í huga, að á
þessu tímabili hefur olía frá
Sovétríkjunum verið keypt
með þriggja mánaða gjald-
fresti, en að þau kaup munu
aftur breytast í sitt fyrra horf
fyrir áramót. Sé tillit tekið til
þessa, má gera ráð fyrir, að
gjaldeyrisstaðan við vöru-
skiptalöndin hafi í raun og
veru batnað um því sem nær
60 millj. kr. Þessi bati hefur
þó takmarkaða þýðingu vegna
þess, að staðan í vöruskipta-
gjaldeyri var tiltölulega góð
áður en gengisbreytingin var
íranakvæmd.
í frjálsum gjaldeyri var
gjaldeyrisstaða bankanna að
heita mátti hin sama í júlílok
og í febrúarlok. Það sem af
er ágústmanaðar hefur hún
síðan farið nokkuð batnandi.
Þetta er athyglisverður árang
ur, þegar það er haft í huga,
að í júlílok voru einmitt liðn-
ir tveir fyrstu mánuðir hins
nýja skipulags á viðskipta-
málunum og að júlímánuður
er einnig sá tími árs, þegar
gjaldeyrisstaðan yfirleitt er
hvað lökust. Benda má á, að
á sama tíma ársins 1959, frá
febrúarlokum til júlíloka,
versnaði gjaldeyrisstaðan í
frjálsum gjaldeyri um 140
millj. kr. miðað við núverandi
gengi.
Nú mun verða spurt, hvort
skuldbindingar, sem ekki eru
taldar með í gjaldeyrisstöð-
unni, hafi ekki aukizt veru-
lega, vegna þess að innflutn-
ingur með þriggja mánaða
greiðslufresti hafi nú verið
leyfður skilyrðislaust, en slík-
ur greiðslufrestur hafi ekki
tíðkast rnikið áður. Er því þá
fyrst til að svara, að slík aukn
ing skuldbindinga hlaut auð-
vitað að verða afleiðing hinn-
ar breyttu stefnu í viðskipta-
málum, og var alltaf við bví
búizt. Slík aujcning var þó
ekki talin varhugaverð vegna
þess, að viðskipti með briggja
mánaða greiðslufresti tíðkast
um heim allan, og er hægt að
halda þeim áfram, meðan það
frjálsræði ríkir í viðskiptamál
um, sem nú hefur verið l,agð-
ur grundvöllur að hér
á landi. Sé aftur á móti á þess
ar greiðsluskuldbindingar lit-
ið, kemur í ljós, að þær hafa
aukizt furðu lítið, þegar tillit
er tekið til árstímans. Þann-
ig voru ábyrgðarskuldbind,-
ingar bankanna í frjálsum
gjaldeyri að heita má hinar
sömu í júlílok 1960 (97 millj,
kr.) og í júlílok 1959 (96 millj,
kr.), og er þá miðað við nýja
gengið. Greiðsluskuldbind-
ingarnar voru hins vegar 48
millj. kr. hærri í júlílok 1960
en í júlílok 1959 (186 millj.
kr. samanborið við 138 millj,
kr.). Þessi hækkun stafar
fyrst og fremst af því, að inn-
flutningur með þriggja mán-
aða gjaldfresti hefur rutt sér
til rúms, og má gera ráð fyr-
ir, að þessi hækkun verði að
mestu, ef ekki öllu leyti, var-
anleg.
Af því, sem hér hefur verið
rakið, má vera ljóst, að gjald
eyrisstaðan hefur þróazt með
eðlilegum hætti, síðan efna-
hagsráðstafanirnar voru fram
kvæmdar. Hrakspár stjórn-
arandstöðunnar um það, affi
allt mundi kollsteypast vegna
gífurlegrar gj aldeyrisnotk-
unar, hafa síður en svo rætzt.
Gjaldeyrisstaðan í vöruskipta
gjaldeyri hefur batnað, og
gjaldeyrisstaðan í frjálsum
gjaldeyri haldizt óbreytt ein-
mitt á þeim tíma, sem erf-
iðastur var, bæði vegna árs-
tímans og afnáms innflutn-
ingshafta. Hvergi nærri hef-
ur reynt á að nota þyrfti að
fullu þá varasjóði, sem aílað
hafði verið til þess að mæta
þessum fyrirsjáanlegu erfið-
leikum. Nú .fer sá tími að
nálgast, að búast mætti við,
að árangur efnahagsráðstafan
anna færi að koma fram í
batnandi gjaldeyrisstöðu,
Hið mikla verðfall mjöls og
lýsis og hin lélega síldarver-
tíð hlýtur þó mjög að draga
úr þeim árangri, frá því, sem
ella hefði orðið.
Nýstárleg
skákkeppni
TAFLFÉLAG Reykjavíkur
mun halda skákmót með all-
nýstárlegu sniði uni næstu
helgi. Tefldar verða 5 umferðir
eftir Monrad-kerfi í einum
flokki, og er öllum lieimil þátt-
taka.
Verður þetta hraðkeppni, því
Ijúka á mótinu á 4 dögum. Mun
mótið hefjast á föstudagskvöld
kl. 8. 2. umferð verður tefld á
laugardag kl. 2, 3 umferð á
sunnudag kl. 2, 4. umferð sunnu
dagskvöld kl. 8 og 5. umferð á
mánudagskvöld kl. 8.
Taflstaður verður Breiðfirð-
ingabúð, niðri. Umhugsunar-
tími verður 2 klst. á 40 leiki og
síðan V2 klst. til lúkningar
skákinni.
Verðlaun í mótinu verða
þrenn: 1000 kr., 500 kr. og 300
kr. Efstu mer.n úr 1. og 2. flokki
flytjast upp um flokk.
Þess skal getið, að fyrirhug-
aðri för Taflfélags Reykjavíkur
til Norðurlands verður írestað