Alþýðublaðið - 06.09.1960, Síða 3

Alþýðublaðið - 06.09.1960, Síða 3
TÓKUST BÁÐIR Á LOFT 'I ÁREKSTRL Hjónin lágu eftir á göt- unni slösub níu skurSi á höfuðið, og hefur Alþýðublaðið það fyrir sátt, að yfir fimmtíu saumspor hafi þurft til að ná þeim öllum sam- an. Framhald á 13. síðu. HARÐUR árekstur varð á laugardagskvöld milli tveggja bifreiða á Reykjavíkurvegi við vegamót Fossvogsvegar með þcim afleiðingum að tvennt slasaðist illa. Það voru hjón er voru á heimleið úr Kópavogi og ætluðu að beygja inn á Foss- vogsveg. Maðurinn, sem er rúm lega sjötugur, fékk níu skurði í andlit, en konan handleggs- brotnaði og fékk áverka á höf- uð. ■Árekstur þessi varð klukkan hálf tíu um kvöldið. Hjónin Ólafur Jóhannsson og Sigríður Magnúsdóttir, Sogamýrarbletti 15, 'komu akandi í bifreiðinni E-628, sem er Austin árgerð 1932, norður eftir Reykjavíkur vegi. Ólafur ók bílnum og ætl- aði hann að beygja inn á Foss- vogsveg. Var bílaröð fyrir fram an hann og aftan á vinstri veg- brún, en á Fossvogsvegi stóð bíll, sem beið eftir að komast inn á brautina. Stjórnandi hans varð síðan sjónarvottur að því, rð um leið og Ólafur ekur bíl sínum út á hægri helming Reykjavíkurvegar kemur bíll- inn R-5033, sem er Buick, ár- gerð 1940, á ægiferð og lendir á vinstri hlið Austin-bílsins. 'Við höggið köstuðust hjónin út um hægri hurðina og lágu eftir á götunni, þegar bíll þeirra þeyttist mölbrotinn og gjöró- nýtur út af veginum og valt ofan í skurðinn í krikanum sunnan við Fossvogsveginn. Segja sjónarvottar að Austin- bíilinn hafi runnið einungis á hjólum hægri hliðar út af veg- inum og ekki komizt niður á vinstri hjólin eftir höggið. Önn ur framfjöðrin undan honum þeyttist hundrað metra suður Reykjavíkurveg og sætið langt út fyrir veginn. Þá segja þeir ennfremur að Buick-bíllinn hafi tekizt á loft að framan, svo séð hafi undir hann, en runnið síðan áfram og lenti hann á símastaur. Tveir piltar voru í þeim bíl og sakaði hvorugan. Hjónin voru flutt í slysavarð- stofuna. Hafði Ólafur fengið MYNDIN sýnir brakið af Austin-bílnum, þar Sem það lá í vegaskurðinum eft ir áreksturinn á Reykja- víkurvegi. Bíllinn er gjör ónýtur og brak úr honum þeyttist vítt um, þeg'ar á- reksturinn varð. Tvennt var í bílnum og kastaðist fólkið út við áreksturinn.. Bæði út um sömu dyrnar og lágu eftir á veginuift. >%%%%%%%%%%%%%%%l%%%%%(%%%%%%%%%%% EFTIRTALDIR togarar Bæj- arútgerðar Reykjavíkur lögðu afla á lánd í Reykjavík í s. 1. viku: B.v. Þorsteinn Ingólfsson 168 tonn. B.v. Jón Þorláksson 146 tonn, B.v. Skúli Magnússon 165 tonn. Samtals 479 tonn. Þá seldi b.v. Þormóður goði 176 tonn í Bremerhaven 29. ág- úst s. 1. fyrir 87.529 mörk. TRYGGVI Helgason, flug- maður á Akureyri, fór í fræki- legt sjúkraflug til Ólafsfjarð- ar aðfaranótt s. 1. sunnudags. Erindið var að sækja mann, sem var í bráðri lífshættu, og má fullyrða, að Tryggvi hafi borg- ÞAÐ verður dregið hjá okkur annað kvöld um enn einn Volkswagen. HAB er stærsta blaðahappdrætti landsins. Sex bílar á ári — og aðeins 5,000 númer. HAB-umboðið í Alþýðuhúsinu er opið til kl. 10 í kvöld. ið lífi mannsins og um leið stofnað sjálfum sér í lífsháska. Það var fyrst hringt í Tryggva um miðnætti aðfaranótt sunnu- dags, en þá var talið, að flugið mætti dragast til morguns. Líð- an sjúklingsins versnaði hins vegar óðum og um 3-leytið var aftur hringt og beðið um hiálp. Tryggvi ákvað þegar að fara í ferðina, þó að aðstæður væru allar mjög varhugaverðar og beinlínis lífshættulegar. Lagði hann af stað um kl. 3,30 og var kominn til Ólafsfjarðar rétt fyr ir kl. 4. Flugbrautin var lýst upp með Ijósi á liverju horni, en það var eins lítil lýsing og minnst var hægt að komast af með. Hins vegar eru bæði raf- magns- og símalínur nærri Framhald á 13. síðu. f GÆR stöðvaði borgarlæknir útskipun á nýjum fiski, sem verið var að lesta f vélbátinn Guðmund Þórðarson frá Rvík. Var stöðvun þessi sett vcgna þess, að fiskurinn hafði verið þveginn um borð í bátnum mcð sjó úr höfninni. Fiskurinn var ætlaður til útflutnings. Búið var að skipa út í bát- inn um 18 tonnum af fiski, sem keyptur hafði verið af drag- nótabátum. Hluti af fiskinum var kominn í lest, en nokkuð af honum lá á dekki. Meðan verið var að skipa úf fiskinum koni Finnbogi Árnason yfirmatsmað ur að bátnum, og sá að verið var að þvo fiskin, sem á dekki var, upp úr sjó. Gerði hann borgarlækni þegar viðvart og voru strax gerðar ráðstafamr til að útskipun yrði hætt. Þaþ er vitað mál að mikill óþverri kemur í Reykjavíkur- höfn úr frárennslum, sem þang að liggja. Eins er og, að á sjón- um flýtur olíubrák og annar óþrifnaður. sem í höfnina er fleygt. Gerir þetta að verkum, að sjórinn er morandi í sct.t- kveikjum, sem geta verið hsettu legar, ef þær komast í fisk, sem ætlaður er fil manneldis. Af þessum sökum var eig- anda bátsins gert að senda fisk- inn í „gúanó“, og síðan aö sótt hreinsa allan bátinn. Var þetta þegar gert, og mun'útskipun í bátinn hefjast aftur í dag. Verð mæti fisksins, sem þarna fór forgörðum, mun vera um 40 þús. krónur og því tilfinnanlegur skaði' fyrir eigandann. Rétt hjá þeim stað, þar sem skipið lá við Grandagarð, er vatnshani með fersku vatni. — Eru það furðuleg mistök, að það vatn skyldi ekki notað. í stað þess að.þvo fiskinn úr sjó, sem allir hljóta að sjá, að er óhæfur til slíkra nota. — ár. Námsmenn! ANiNAÐ kvöld verður hald- inn fundur þeirra, námsmanna. er nám stunda erlendis Fundur- inn verður haldinn í Mennta- skólanum (Fjósinu) og hefst kl. 21. Verða þar rædd hagsmuna- mál námsmanna erlendis og lagt farm skjaþ sem í ráði er að leggja fyrir menntamálaráð- herra. Allir þeir, er stunda eða hyggjast stunda nám erlendis á komandi vetri eru beðnir að mæta á fundihum. — 6. isept. 1960 J 3 Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.