Kirkjublaðið - 02.09.1894, Síða 9

Kirkjublaðið - 02.09.1894, Síða 9
169 komu á hans fund og spurðu hver hann væri, hefði freist- ingin til þess að taka sjer æðra vald en honum var gefið, auðveldlega getað vaknað í brjósti hans, ef Jóhannes hefði verið svo gjörður, sem menn eru almennt; en vjer trúum því ekki, að sú freisting hafi nokkurn tíma vakn- að í brjóst hans; enda bera svörin, sem hann gaf sendi- herrunum, þess ljóslega vott, að ekkert var fjær honum en að upphefja sjálfan sig og taka sjer vald, sem honum ekki var af Guði gefið. Hann var glaður yfir því hlut- verki, sem Guð hafði fengið honum, að vera verkfæri í hendi Guðs, rödd hrópandans í eyðimörkinni, til þess að greiða þeim veg, sem var honum miklu æðri. Þess vegna var trúmennska hans óbifanleg, þess vegna gleymdi hann aldrei köllunarverki sínu, heldur hjelt áfram starfi sínu, sannfærður um, að hann væri f nánd, sem hann var að greiða veg. Jóhannes þóttist og viss um, að hann mundi koma fram við Jórdan, þar sem mannfjöldinn var saman kominn, svo að hann gæti bent lýðnum á hann segjandi: Þarna erMessías, hann, sem þjer leitið að; — og sennilega hefir Jóhannes trúað vinum sinum, sem gjörzt höfðu lærisveinar hans í þrengri merkingu, fyrir von sinni i þeim efnum. Og daglega prjedikaði hann og skírði hjá Bethabara og daglega leit hann yfir mannfjöldann, eins og hann skyggndist eptir, hvort Messfas væri ekki þar á meðal. Yjer höfum hjer að framan getið þess til, að Jóhannes hafi að öllum líkindum verið Jesú persónulega ókunnugur, svo að einnig megi skilja orð skírarans um Jesú: »jeg þekkti hann ekki!« (Jóh. 1, 31J bókstaflega. En Jóhannes vissi og, að sá tími mundi koma fyr eða síðar, er hann fengi að sjá Messías augliti til auglitis, því Guð hafði lofað Jó- hannesi teikni, svo að hann gæti þekkt Messías, er hann kæmi. »Sá, sem þú sjerð andann koma yfir og staðnæm- ast yfir, hann er sá, sem skírir með heilögum anda« (Jóh> 1, 33), — hafði Drottinn sagt og því efaðist Jóhannes ekki. Loks upp rann þessi eptirþráða stund. Jóhannes stóð við Jórdan og skírði; þá kom til hans maður einn á líku reki og Jóliannes og bað um að mega

x

Kirkjublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.