Kirkjublaðið - 02.09.1894, Blaðsíða 14

Kirkjublaðið - 02.09.1894, Blaðsíða 14
174 velþóknunar-yfírlýsingunni. Faðírínfí lýsir yfir því, að hann beri fullt traust til sonarins, að hann sje þess full- viss, að Jesús framvegis, eins og hingað til, muni lifa eptir hans vilja og þannig fullnægjandi leysa af hendi það hlutverk, sem honum hafi verið fengið i hendur. Þannig sjáum vjer, að skírn Jesú í Jórdan var ann- ars og miklu æðra eðlis, en skírn Jóhannesar almennt var. Hún var, eins og því á öllum tímum hefir verið haldið fram í kirkjunni, vlgsla til hans háleita embœttis. Með skirn sinni tekst Jesús á hendur verk það, sem Guð hafði fengið honum að framkvæma. Sem skírnar til syndanna fyrirgefningar þarfnaðist Jesús ekki Jóhannesar- skírnarinnar, en sem vígslu til embættis síns þarfnaðist hann hennar. Eins og orð Drottins kom til Jóhannesar í eyðimörkinni og kvaddi hann til starfa þegar undir- búningstíma hans var lokið, þannig kom einnig orð Drottins til Jesú í skírninni og kvaddi hann til starfa, jafnframt því sem faðirinn úthelti yfir hann anda sínum og lýsti jdir honum íöðurlegri velþóknun sinni. Skírn Jesú var vígsla, embættisvígsla hans. Við sjerhverja vígslu eru einkum tvö aðal-atriði, sem öll áherzlan hvílir á, annars vegar: játning og loforð þess, sem vígsluna tekur, og hins vegar staðfesting þess, sem vígsluna veitir. Vjer höfum þegar sýnt, hvernig bæði þessi atriði finnast í vígslu Jesú: játning og loforð sonar- ins og staðfesting föðursins. Enn þá kynni einhver að spyrja: var heilagur andi ekki íbúandi Jesú fyr en eptir skírn hans? Jú vissulega! svo sannarlega sem Jesús var getinn af heilögum anda, var andinn íbúandi honum allt frá þeirri stundu, er hann var getinn í móðurlífi og þroski hans frá fæðingunni til skírnarinnar var undir áhrifum hins sama anda. En vjer verðum að álíta svo, að við niðurstigning heilags anda yfir Jesús í skírninnij hafi andinn sameinast per- sónu frelsarans á enn þá hærra stigi, sem andi starf- lífsins, sem nú átti að byrja. En það, sem augað sá og eyrað heyrði, átti að end- ingu að vera Jóhannesi, eins og áður er á minnzt, teikn þess, að Jesús frá Nazaret væri í sannleika Messías og

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.