Kirkjublaðið - 01.08.1895, Blaðsíða 6

Kirkjublaðið - 01.08.1895, Blaðsíða 6
xm hendur, sem gjöra mA rAð fyrir, að haldi áfram í líka stefnu. Þá er hin aðahskoðunin, sú skoðun, að prestar eigi sem viðast við að koma og láta sem mest til sín taka um aila hluti. í orði kveðnu er þessari skoðun sjaidan haldið á lopti hjer á landi, en sumstaðar erlendis er henni mjög haldið fram, og er hún látin styðjast við þá kenn- ingu Krists, að Guðs ríki eigi að gagnsýra allt. Þó að þessi skilningur muni ekki almennt hafa rutt sjer til rúms hjer á landi, þá lítur þó nærri þvi svo út, eptir þvi, hvað prestar koma víða við. En til þessa eru þó optast allt aðrar orsakir; og aðal-orsök þessa er sú, að prestarnir hafa til skamms tíma verið næstum einu menntuðu mennirnir, og eru það enda enn viða hvar. En eptir þvi sem menntun vex ílandinu, eptir þvi verður síður þörf á að nota prestana til alls, sem þeim hefir verið beitt fyrir. Þess verður þó auðvitað langt að bíða, að margir menn verði i landinu, er notið hafa jafn-mik- illar menntunar, sem prestar hafa notið til þessa, þó hún sje ekki meiri en húu er; en í þessu tilliti hefur það ekki mikla þýðingu, því að ekki þarf svo all-mikla menntun til að gjöra flest af þvi, sem prestar gjöra utan prestskapar. Af því, sem hjer hefir sagt verið, er það auðsætt, að flest af þessum veraldlegu störfum presta hafa verið faiin þeim sem menntuðum mönnum, en alls ekki sem prestum eða kirkjunnar þjónum, enda væri slíkt með öllu ástæðulaust. Það er auðvitað engin minnsta ástæða til að setja kirkjulegan stimpil á daglegar at- hafnir. Slíkt er prestum eins ljóst og hverjum öðrum, og það má ganga að því vísu, að enginu prestur kæri sig vitund um það, og það þvi siður, sem þeim hlýtur að liggja það í augum uppi, að þeir einmitt ynnu minna gagn á þann hátt. Þess munu heldur varia vera nokkur dæmi, að prestar hjer á landi á þessum timum hafi gjört nokkrar tilraunir í þá átt. Prestum hjer á landi virðist vera það full-ijóst, að orð Krists, að Guðs riki sje súrdeig, sem sýri allt deigið, hafa aðra og æðri þýðingu, það er að segja þá þýðingu, að allt á að sfjórnast af kristilegum anda; en hann heyrir ekki fremur til prest-

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.