Kirkjublaðið - 01.08.1895, Blaðsíða 14
öss gefna, i þarfir útbreiðslu ríkis síns. Sjálfir mégnuni
vjer ekkert netna að leyfa Guðs anda að verka í gegn-
um oss, og kynnum vjer það fyllilega, hvílík blessun
myndi þá eigi streyma út meðal hinna ungu og óspilltu,
og þeirra er byrjaðir eru á unga aldri að feta á hinum
breiða glötunarvegi ósiðsemi, drykkjuskapar og annara
lasta.
Þessar fáu bendingar hefi jeg skrifað, af því mjer
hefur borizt til eyrna sú gleðifregn að bráðum megi vænta
samskonar hreyfingar á ættjörðu minni, í þeirri von að
það mætti vekja velvilja manna til hennar. Guð gefi að
slík hreyfing næði góðum framgangi, og yrði til þess að
vekja marga af uppvaxandi frjóöngum þjóðar minnar til
lifandi persónulegs trúarlífs og gróðursetja þá djúpt í
samfjelaginu við frelsara vorn og Drottin.
Og þjer æskumenn, allir þjer sem af öllu hjarta
viljið vera Jesú Krists sannir lærisveinar, leyfið saratök-
in urtdir leiðbeiningu hinna eldri triiaðra manna. I slík-
um samtökum byggðum á slíkum grundvelli liggurkrapt-
ur, lífsmagn heillar kynslóðar, kraptur sem Guð getur
notað í þjónustu ríkis síns. Postirlinn Jóhannes hefir
sagt um æskumennina að þcir væru sterkir og hafi sigr-
að hinn vonda (1. Jóh. 2. 14). Þjer hafið kraptana með
Guðs hjálp, beitið þeitn svo í þjónustu hins góða sem
frutnherjar á móti hinum vonda og tálsnörum hans. All-
ir trúaðir danskir drengir fjelags vors biðja í Jesú nafni
að heilsa sínutn ungu bræðrum á Islandi, sem vilja ganga
í þetta fóstbræðralag og berjast undir krossins sigursæla
merki.
Fr. Friðriksson.
Synodus
var haldin 4. júlí Og byrjaði með guðsþjónustugjörð í dómkii kjunni
kl. 11. l'. in. Sjera Jens Pálsson stje í stól og lagði át af Rómv.
J; 14—16. Að aflokinni guðsþjónustunni var fundur settur í sal
efri deildar alþingis undir forsæti amtmanns og biskups. Fundinn
sóttu 5 prófastar, 8 prestar og 2 prestaskólakennarar. Biskup setti
fundinn með ávarpsræðu og minntist þá sjerstaklega með hlýjum
yirðingar og þakkarorðum Þórarins heitins prófasts Böðvarssonar.