Kirkjublaðið - 01.12.1897, Qupperneq 4

Kirkjublaðið - 01.12.1897, Qupperneq 4
180 mus sárnaði að »ofsatriíarmaðurinn« Lúter skyldi fá á sitt band annað liið skærasta menntaljós aldarinnar. En áhrifavald Erasmusar á Melankton kemur margvíslega fram i trúarskoðunum hans síðar, t. d. um ófrelsi hins mannlega vilja, þar sem hann aldrei gat sætt sig við hina ram-lútersku skoðun, og einna beizkastar deilurrisu um, enda eitt sinn svo að orði kveðið um Melankton, að hann kysi fremur að fylgja Erasmusi dauðurn en Lúter lifandi. Þessi frumstefna Melanktons samfara lundareinkunn hans, gjörði hann þrátt fyrir trúareinlægni hans og hrein- leik hjartans nokkuð tvfbentan í trúardeilunum, og gjör- ir iíf hans svo mæðusamt, en eigi er minnst varið í það í siðbótarstarfsemi Melanktons, að hann miklu fremur en Lúter byggir fasta brú milli trúar og guðhræðslu annars- vegar og mennta og visirida hins vegar. Hið nána kærleiks- og virðirigarsamband þeirra Lúters og Mel- anktons allt til síðustu stundar þrátt fvrir allan skoðuna- mun er alkunnugt. II. »Sjer/wer trúaður sleýrari hinnar himnesku kenningar verður að hafn þrennt til að bera: Hann verður að vera vel að ejer i fornmálunum, fær til þex* að rekja rjettar rökserndir af hinu ritaða mdli og lokx boðinn og biíinn að vitna um trú sina«. Skólaspeki miðaldanna hafði gjört skýringu beilagr- ar ritningar að hjákátlegum orðaleik, þar sem sízt varð uppi á teningnum það sem beinast lá við. Melankton kennir að hin himnesku sannindi sjeu ofur eiuföld. Ekki nema ein merking orðanna. Hin mikla náðargjöf post- ulatímans var tungutalið, náðargjöf siðbótartímans var fornmálaþekkingin. Melarikton hafði eigi sem Lúter tungutakið frá hjartarótum hinnar þýzku þjóðar, en hann var miklu lærðari i hebresku og grísku, og hann hjelt þvi fast og fjekk það viðurkennt að málfræðislegur skilningur á ritningunni verður að ganga á undan hinum guðfræðislega. En Melankt.on gleymdi eigi heldur að

x

Kirkjublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.