Landneminn - 01.12.1892, Qupperneq 4
4
LANDNEMINN.
Um Þingvallanýlenduna ritar Mr. M. Paulson í
„Lögl)ergi“ á þessa leið eptir að hann liefur minnzt á, að nokkr-
ir íslendingar hafi flutt burt fir nýlendunni og að einhver hefði
ritað í „Lögberg11 um ýmsa misbresti þar:
„t>að er satt, að uppskeran hefur allviðast brugðist hjá ís-
lendingum (þó eru fallegir akrar hjá fáeinum).-Eptir þeim
upplýsingum, sem jeg fjekk, álít jeg að grasbresturinn í syðri
nýlendunni sje mjög eðlilegur. Síðastliðinn vetur fjell því nær
enginn snjór í nýlendunni; það eitt hefði verið nóg ástæða til
að þetta sumar yrði grasbrestur, en þar við bættist sljettueldur.
Við svona löguðu óhappi þarf ekki að bfiast framvegis, segir
bann; snjólausir vetrar komi þar örsjaldan og sljettuelda megi
fyrir byggja. Uppskerubrest'irinn muni að nokkru lcyti vera
Islendingum að kenna. Þjóðverjar sem búa innan um íslendinga
hafi fengið meðal-uppskeru. — Hvað vatnsleysið snertir, segir Mr.
Paulson, að alstaðar sje hægt að bæta úr því með brunngrepti.
AUGLÝSINGAR.
Dominion-línan.
Konungleg brezk póstgufuskip.
Þessi lína flytur fólk frá íslandi til allra staða í Canada og
Bandarikjunum, sem járnbrautir Iiggja að, fyrir lægsta verð.
Gufuskip þessarar línu fara frá Liverpool til Quebec og Mortreal
og ýmsra staða í Bandaríkjunum einu sinni í hverri viku; þau
eru meðal hinna stærstu, sterkustu og hraðskreiðustu í heimi
og eru orðin heimsfræg fyrir þægilegan og góðan fitbúnað.
Þeir sem taka sér far með Dominion-línunni frá íslandi,
mega eiga það víst, að það verður farið betur með þá á leið-
inni, en áður hefur átt sjer stað með vesturfara. Þegar ekki
fara mjög fáir, hafa þeir góðan tfilk alla leið frá íslandi til
Ameríku, nægilegt og gott fæði á skipum línunnar og þann
tíma sem þeir kunna að dvelja í Englandi, læknishjálp og rneðul
ókeypis; og auk þess hafa þeir á skipum línunnar nauðsynleg borð-
áhöld ókeypis, og undirdýnu og kodda geta þeir fengið keypt
fyrir að eins 1 kr 35 aura, og á þeim skipum, sem eru fitbfiin
með „canvas-rúm“, fríast farþegar við þann kostnað. Þeir sem
flytja með Dominion-línunni eru ekki látnir ganga langt af
skipi eða á skip.
Dominion-línan sendir velfitbúið skip til íslands á næsta
sumri eingöngu til að sækja vesturfara, ef svo margir biðja mig
eða agenta mína um far með línunni að slíku verði viðkomið,
og gera það í tíma, og verða þeir þá fluttir viðstöðulaust frá
Islandi til Liverpool og fríast þannig við það ónæði, sem þeir
ávalt að undanförnu hafa orðið fyrir með því að skipta um skip
og vagna í Skotlandi.
Dominion-línan hefur verið viðurkennd af Canadastjórn
fyrir sjerstaklega góða meðferð á vesturförum, og nfi hefur
stjórnin lagt fyrir umboðsmann sinn, herra B. L. Baldwinson,
sem dvelur á íslandi í vetur, að fylgja vesturförum Dominion-
línnnar á næsta sumri, og væri því heppiiegt fyrir sem flesta,
er flytja vestur á næsta sumri, að verða honnm samferða, sem
af öllum vesturförum er mj’óg vel líitinn og nfi er allra ís-
lendinga kunnugastur þeim ferðum. Herra Sigurður Christo-
pherson fir Argyle, umboðsmaður Manitobastjórnarinnar, sem
líka dvelur á íslandi í vetur, verður einnig tfilkur og umsjónar-
maður með einhverju af því fólki, sem flytur með Dominion-
línnnni næsta sumar. Líka býst jeg við að fara sjálfur vestur
á næsta sumri.
Allar upplýsingar viðvikjandi ferðinni vestur fást hjá undir-
skrifuðnm og áðurnefndum herrum Baldvin og Sigurði.
Sveinn Brynjólfsson,
útflntni ngastjóri.
Dominion of Canada,
r
Abýlisjarðir ókeypis
fyrir miljónir manna.
200,000,000, ekra
af hveiti- og beitilandi í Manitoba og Vestur- Territóríunum í
Canada ókeypis fyrir landnema. Djúpur og frábærlega frjósam-
ur jarðvegur, nægð af vatni og skógi og meginhlutinn nálægt
járnbrautum. Afrakstur hveitis af ekrunni 30 bush., ef vel er
umbfiið.
í HINTJ FRJÓSAMA BELTI,
í Rauðár-dalnum, Saskatchewan-dalnum, Pease Biver-dalnum, og
umhverfisliggjandi sljettlendi, eru feikna miklir flákar af ágæt-
asta akurlendi, engi og beitilandi—hinn víðáttumesti fláki í lieimi
af lítt byggðu landi.
Málm-náma landL.
Gull, silfur, járn, kopar, salt, steinolía, o. s. frv. Ómældir flákar
af kolanámalandi: eldiviður því tryggður nm allan aldur.
JAItNBRAUT FRÍ HAFI TIL HAFS.
Canada Kyrrahafs-járnbrautin i sambandi við Grand Trunk og
Inter-Colonial brautirnar mynda óslitna járnbraut frá öllum
hafnstöðum við Atlanzhaf i Canada til Kyrrahafs. Sfi braut
liggur um miðhlut frjósama beltisins eptir því endilöngu og um
hina hrikalegu, tignarlegu fjallaklasa, norður og vestur afEfra-
vatni og ura hin nafnfrægu Klettafjöll Vesturheims.
Heilnæmt loptslag1.
Loptslagið i Manitoba og Norðvesturlandiuu er viðurkennt hið
heilnæmasta í Ameríkn. Hreinviðri og þurrviðri vetur og sum-
ar; vetur kaldur, en bjartur og staðviðrasamur. Aldreiþokaog
súld, og aldrei fellibyljir eins og sunnar i landinu.
SAMBANDSST.JÓRNIN í CANADA
gefur hverjum karlmanni yfir 18 ára gömlum og hverjum kvenn-
manni sem hefur fyrir famílíu að sjá
160 ekrur af landi
alveg ókeypis. Hinir einu skilmálar eru, að landnemi bfii á land-
inu og yrki það. Á þann hátt gefst hverjum manni kostur á
að verða eigandi sinnar ábýlÍBjarðar og sjálfstæður í efnalegu
tilliti. .
ÍSLENZKAR NÝLENDUR
i Manitoba og canadiska Norðvesturlandinu eru nfi þegar stofn-
aðar í 6 stöðum. Þeirra stærst er NÝJA ISLAND liggjandi
45—80 mílur norður frá Winnipeg, á vesturströnd Winnipeg-
vatns. Vestur frá Nýja íslandi, i 30—35 mílna fjarlægð, er
ÁLPTA YAJ'NS-N ÝLENDAN. í báðum þessum nýlendum er
mikið af ónumdu landi, og báðar þessar nýlendur liggja nær
höfuðstað fylkisins en nokkur hinna. ARGYLE-NÝLENDAN
er 110 mílur suðvestur frá Wpg., ÞINGVALLA-NÝLENDAN
260 mílur i norðvestur frá Wpg., QZFAPPELLE-NÝLENDAN
um 20 mílur suður frá Þingvaila-nýlcndu, og ALBERTA-NÝ-
LENDAN um 70 mílur norður frá Calgary, en um 900 mílur
vestur frá Winnipeg. 1 síðasttöldu 3 nýlendunum er mikið af
óbyggðu, ágætu akur- og beitilandi.
Prekari upplýsingar i þessu efni getur hver sem vill fengið
með því að skrifa um það:
□3. Xj. 3EK£Llc3LT7«r±zxísozx,
Ieelandic Agent.
DOM. GOV’T IMMIGRATION OFFICE
Wlnnipeg, - - - Canada.
Ábyrgðarmaöur samkvæmt prentlögunum:
Vald. Ásmundarson.
Fj elagsprentsmitj an