Reykvíkingur - 01.04.1892, Page 2
14
á sinn hátt!! Á þann hátt hverfur eðlilega
ailur sannur kærleiki barnanna til móður-
innar og heimilisins og þá um leið sjálfsögð
virðing og hlýðni, og lenda þau svo að lok-
um í iðjuleysisrangli á götunum. Þess eru
dæmi, að bæjarmenn sjá hættuna fyrir börn-
in á götunum og koma þeim þá í sveit á
sumrin til þess að læra hina almennu reglu-
semi og starfsemi, sem þar er kunn, en
allt of lítið er gjört að því vegna þess, að það
þykir ekki nógu „fínt11 fyrir börnin, að vera
upp í sveit og kannske eltast þar við kýr
og kindur. Menn eru því sumir, sem nokk-
uð hugsa um að varna drengjum sínum
göturólsins, að hola þeim í búðir, sem er j
lítil bót, því mörg dæmi eru þess, að dreng-
ir hafa einmitt þar lært drykkjuskap og
aðra óreglu. Ennþá mun ekki komið í i
móð að láta stúlkubörn í búðir, sem einu I
gildir, en þau fá heldur ekki að fara í j
sveit á sumrin, sem telja má mikinn skaða, i
bæði fyrir andlega og líkamlega framför j
þeirra.
Jeg geri nú ráð fyrir, að einhverjum kunni
að þykja þessi fáu orð nokkuð hörð, og má
vera að eiuhverjir finni hinni almennu heim-
ilisstjórn eitthvað til afsökunar, en jeg hygg
þó að hverjum skynberandi manni, sem
kynnt hefur sjer þetta ástand hjer, og les
þessar fáu línur, gæti komið til hugar þessi
orð: „Ljótt er það, en satt er það“.
X
Grötur og byggingar o. 11. í Iteykjavík.
Eptir ísl. stúdent í Khöfn.
Göturæsin
eru Reykvikingum til skammar og svívirð-
ingar. Úr húsunum liggja rennur út í þau
og er í þær hellt öllu skolpi og mörgum
óhroða og úrgangi, fiskruðum og þvílíku.
AUt þetta sígur lengri eða skemmri leið
eptir ræsunum, en fæst kemst svo langt að
það komist út í fjöru eða lækinn, en liggur
hálfþornað og úldið í rennunum, og leggur
af megna fýlu, sjerlega þar sem hús eru
þjett. Þessu verður að kippa í lag, hvort
sem það þykir súrt eða sætt, því óðum
hlýtur þetta að versna, eptir því sem bær-
inn vex og húsin verða þjettari. Sje sama
snið haft sem nú tíðkast, hlýtur svo að
fara eptir nokkur ár að engum menntuð-
um manni verði við þetta líft. Ræsi þau
sem lögð hafa verið nýlega, hafa einungis
það fram yfir þau gömlu, að steinarnir með-
fram þeim eru betur höggnir en í eldri ræs-
um, en ekki ná þau betur tilgangi sínum.
Úr þessu má bæta á að eins einn hátt,
og er það að koma upp lokuðum og vönd-
uðum göturæsum (kloaker) eins og títt er
í öllum stærri borgum erlendis, og þyrfti að
fá til þess í byrjun mann, sem kynni til
slíkra starfa og gæti sagt fyrir verkum
svo í lagi færi. Auðvitað yrði það að vera
útlendingur, því engan íslenzkan verkfræð-
ing eigum við enn á landi voru.
Sumir segja ef til vill að þetta sje eitt
af þvi sem engin efni eru til. Þá vil jeg
einungis spyrja: Er oss ekki til skammar
og óheilnæmis, að halda þessu í gamla horf-
inu, og verður annar vegur að kippa þessu
í lag, en sá sem jeg hefi bent á?
Tjörnin
fyllist óðum af öliu því góðgæti, mold,
rusli og sorpi sem í hana er borið. Vera
kann að bærinn gæti fengið nokkurt fje
fyrir tjamarblettinn, ef hann væri orðinn
þur og þar væri tún, eða hús byggð. En —
það er fleira sem um þarf að hugsa en
peningar, þó mikils virði sjeu. Væri tjörn-
in ekki eins vanrækt og hún er, þá væri
hún bæjarprýði og eigi lítil. Auk þess, þá
er ófyrirgefanlegt, að taka af bæjarbúum
þennan eina blett, sem hægt er að fara á
skautum á á vetrum; það eitt ætti að vera
nóg til þess að friða tjörnina. Þegar hún
hefur verið fyllt upp, sakna drengir og full-
orðnir skautasvellsins, en sjálfum sjer mega
menn um kenna, ef allir horfa þegjandi á
hve illa er með hana farið.
Mín tillaga er sú, að gersamlega sje bann-
að að bera nokkuð í tjörnina, að þegar
tími og tækifæri gefst, sje hún hlaðin lag-
lega upp og helzt dýpkuð og hreinsuð um
leið. Væri það ekki ókleyft verk, því grjót
er nóg til beggja handa og halli að tjörn-
inni öllu megin, svo auðvelt er að færa það
að henni. Tæma mætti hana með ljettu
móti meðan hreinsuð væri, og myndi botn-
leðjan vera bezti áburður.
Kring um tjörnina ætti svo að leggja
breiða götu, og gætu hjer hæfileg trje þrif-
ist, þá mætti gróðursetja trje með fram
henni.
Allt þetta þyrfti ekki að kosta mjög
mikið, ef rjett er að farið og verkið unnið
svo ljett sem vera mætti. Tjörnin yrði þá
bænum til stórprýði, en ekki til skammar
eins og nú gjörist.
Salerni
fyrir almenning væri nauðsynlegt að fá
byggð hjer, eins og títt er erlendis, þótt