Reykvíkingur - 01.08.1895, Page 3

Reykvíkingur - 01.08.1895, Page 3
 það al-ónýtt. „Þar hafi þjer öldungis rjett í“, segir hann, — og bætti því við — „hjer hjá mjer hefur verið beðið um þakjárn, sem sendast átti til íslands, en það átti að vera svo þunnt og ódýrt, að jeg vildi öldungis ekki fást við að búa það til, því jeg vil ekki búa til þynnra járn en Nr. 26, en hjer hef jeg búta af plötum frá öðrum verksmiðj- um“ segir hann, „sem eru Nr. 27 og 28; vilji þjer ekki sjá, hvað sterk er á þeim 4gal- vaniseringin’ og hvernig járnið svo lítur út, þegar hún er komin af því“. Brá hann þá járnplötunum niður í mjögþunna sýrublöndu, og varð þá þetta þunna járn alit með smá- götum og svo hrúðurkarlslegt. að mig furð- aði stórum. Tók hann frá búta af járni Nr. 24 og 26 og vann þessi sýrublanda ekkert á. Þá bætti hann sýrum við, svo galvaniseringin ieystist upp og var þá það járnið sljett og með engum götum. Ef menn vissu hvaða ótætis hroða, að þetta þunna járn, sem einungis fer til ís- lands, er búið tii úr, og hvaða fávizka það er, að kaupa slíkt byggingarefni, þá mundu menn ekki glæpast á, að kaupa það fyrir næstum því sama verð og hið brúklega þak- járn, heldur láta þá, sem ekki hafa meira vit (ef það ekki er nú gjört viljaudi) á bygg- ingarefni, en svo, að flytja hjer upp slíka vöru, sitja með hana sjálfir, og er það sann- arlega sá vægasti úrskurður. Útgefandi. Þjórsárbrúin vígö. Með landshöfðingja brjefi, dagsettu 25. f. m., lýsti herra landritari H. Hafstein því yfir við brúna, sunnudáginn 28. júlí kl. 4 e. m., að hann væri skipaður af landshöfðingja sökum hans annríkja við þingið, til þess að mæta við brú þessa og taka á móti henni fyrir hönd landshöfðingja, vígja hana og af- henda hana til almennrar umferðar með þeim ákvörðuuum, sem síðar yrðu settar af lauds höfðingja. Hjelt svo herra Hafstein að hans vanda mjög snjalt framborna skáldmælta ræðu. Tók það fyrst fram, að vígjandinn að Ölves- árbrúnni, herra landsh., hefði óskað að hún mætti margfaldast, sem hringurinn Draupnir, en það væri þó fjærri þvíý að Ölvesárbrúin væri sá Draupnis-hringur, sem hefði fætt af sjer Þjórsárbrúna, því það hefði löngu áður— eður 1879 — verið veittar af þinginu 100 þús. kr. til beggja brúnna til samaus, en það hefði staðið mjög fyrir fljótum framgangi brúnna, að þær hefði lengi verið álitnar óaðskiijanlegar, að þær yrðu báðar að setj- ast á samstundis, en 1887 hefði þó verið ákveðið að brúa fyrst Ölvesá, eður eptir það hinn góðkunni þingmaður Rangárvallasýslu, Sighv. Árnason, hefði komið með það góða ráð, til fljótari fyrirgreiðslu á brúnum, að láta ekki allan kostnaðinn af þeim lenda á landssjóði. Þannig væri nú þjóð og stjórn búin i sameiningu að þvinga þessar tvær óviðráðaulegu heimasætur til að taka saman liöndum o. s. frv. Þá gat hann þess, að það væri ekki rjett, að landið væri að blása upp, það væri miklu fremur að blómgast, en svo gróður- inn sje varanlegur, þá verði menn að taka höndum saman og halda vongóðir áfram. Þá miuntist hann á sögu eptir Björn- stjerne Björnsou um djúpa dalinn með hinni stóru gróðurlausu hlíð, en ueðst í dalnum stóð útlend hrísia sem fjalldrap- inn, sem var þar stutt frá, kom til og bað um að vera í fjeiagsskap með sjer til þess að klæða hina klettaberu hlíð, en útlenda hríslan vildi ekkert sinna því. Fór þá fjalldrapinn til lyngsins og fjekk það undireins í lið með sjer til að klæða alla hlíðina, og er þau komu upp á fjallið, sáu þau að allt, sem þau hjeldu vera autt og bert, var skógi þakið. Þaunig væri, að stefna upp og fram, og láta ekki hughverfast, en trúa á mátt sinn og megin, þá yunist ótrúlega mikiö til gagns f'yrir nútímann og eptirbreytnis fyrir fram- tíðina, sem væri dóttir nútímans o. s. f'rv. Þakkaði hann svo Mr. Vaughan frá landshöfðingja fyrir hans starf, og óskaði, að hann ætti eptir að gjöra enn margar brýr hjer. Þá gat lianu þess að brúin ætti að bera eptir samningum 80 pund á □ íet- inu, samtals 200 þúsuud pund. En með því Mr. Vaughan óskaði, að brúin yrði ekki reynd nú þegar að burðarafli, þar sem límið (sementið) í stöplunum væri ekki orð- ið nógu hart, þá yrði það aðbíða. Að end- ingu óskaði hann til fukku og blessunar með brúna, og gat þess að landshöfðingja- frúin, sem var þar viðstödd, klipti í sundur streng þann sem lokaðí nú brúnni, og var þá þegar strengur sá suudur kliptur og brúin opnuð. Sökum rúmleysis i blaðinu er hjer ein- ungis stutt ágrip af'brúarvígslu-ræðu herra iaudritara H. Hafsteins. Þegar fólkið f'ór að fara yfir um brúna skeði það ofur-óheppilega atvik, að austur- stöpuilinn, sem ber alía strengina þeim meg- in sem halda uppi brúnni, hreyfðist úr stað

x

Reykvíkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/139

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.