Sunnanfari - 01.01.1893, Page 5
09
Eiríks rauða og Grænlendíngaþáttur láu eins og
hulinn fjársjóður á Islandi fram eptir öllum öld-
um og vissu fáir af þeim. Að minsta kosti urðu
frásagnirnar um fund Grænlands og Vínlands
ekki heyrum kunnar í útlöndum fyr en Torfæus
(jpormóður Torfason) gaf út Gronlandia og Vin-
landia 1715. Fram til þessa tíma er Vínland
örsjaldan nefnt í útlendum ritum svo menn viti.
Adam frá Brimum drepur með fáum orðum
á Vínlandsfund Íslendínga í Danmerkurlýsíngu
sinni. Hún var prentuð fyrst 1582 og er það í
fyrsta skipti sem menn þekkja nafnið Vír.lar.d
eða Vinlandia á prenti, svo að víst sé að það
eigi að þýða Vesturheim, en eptir þetta fer
nafnið að sjást einstökum sinnum, bæði eptir
riti Adams og íslenzkum fornsögum, eptir að
farið var að prenta þær í Svíþjóð á 17. öld.
Sumir efuðust þó um að Vinland það, sem
Adam nefnir, væri Vesturheimur. Olafur Rudbeck
segir t. d. að eyja sú sem Adam af Brimum
nefni Vínland séFinnland og allstaðar sé átt við
Finnland, þar sem Vínland sé nefnt í íslenzku
sögunum og er hann jafnvel svo ósvífinn að
bera Snorra (Sturluson) fyrir þessu1). þ>etta er
bersýnilega rangt hjá Rudbeck, en aptur getur
leikið meiri vafi á sumstaðar, hvað átt er við
þar sem Vínland er nefnt. þ>ess er þannig
getið í lögum Játvarðs góða (1042—66) að
Arthúr Bretakonungur hafi lagt undir sig ís-
land, Grænland og fleiri lönd og þar á meðal
Vínland2). Hér er ekki ómögulegt að átt sé
við Vesturheim, en þó er eins sennilegt að Vin-
land bendi hér til Finnlands að sínu leyti eins
og »Finlandiæ« stendur í staðinn fyrir »Vin-
landiæ« í neðanmálsgrein við þýzka þýðíngu á
ritum Adams frá Brimum eptir Migaés. C. C.
Rafn og Finnur Magnússon halda aptur að þar
sem Ordericus Vitalis3) getur þess í kirkjusögu
sinni, að Orkneyjar, ísland, Grænland, »Finlanda«
og fleiri lönd lúti Noregskonungi4) eigi hann við
Vínland og hafi átt að standa »Vinlanda« í
staðinn fyrir »Finlanda« og mun ekki vera gott
að skera úr hvort réttara er. Sami ruglíngur-
inn kemur jafnvel fram í íslenzkum ritum. í
Gottskálksannál5) og Oddaverjaannál, sem báðir
eru ritaðir seinast á 16. öld, stendur t. a. m.
»Vindlands« og »Windlandz«, þar sem minst er
á Eirík upsa við árið 1121, en Vínlands er í
hinum eldri annálum og er það rétt.
Einna verst er þó að ráða í hvað átt er
') Olavi Rudbeckii Atlantica sive Manheim. Upsalæ
[675. I; bls. 291—292.
z) Lambardi Archæonomia. Cantabrigiæ 1644; bls.
148 —149.
3| Enskur múnkur (1242).
4) Duchesne: Historiæ Normannorum Scriptores. Paris
1619; bls. 767.
5) 1 handriti af annál þessum í AM. 412, 410 stendur
þó Vínlands.
við, þar sem nafnið Vínland eða svipuð nöfn
koma fyrir á gömlum kortum. Eins og kunn-
ugt er, eru gömul kort mjög ógreinileg, einkum
þegar þau eiga að sýna allan heiminn. þ>au eru
optast kringlótt eða sporöskjulöguð, en utan um
kríngluna er útsærinn sýndur og liggja þar
ýmsar eyjar, sem opt eiga reyndar að tákna
ýmsa hluti af meginlandinu, en sjálfri kringlunni
er að jafnaði skipt í fjóra hluti jafnstóra tneð
línum, sem liggja í gegnum hana miðja eptir
þveru og endilaungu. Norðurálfan eða að minsta
kosti norðurhluti hennar, er að jafnaði á þeim
krínglufjórðungnum, sem veit til suðvesturs, en
Norðurlönd eru optast látin vera eyjar í sæn-
um utanfyrir. Ekkert er að tnarka lögun land-
anna á hinum elztu kortum og lítið afstöðuna,
svo menn verða venjulega að halda sér við
landanöfnin, ef menn vilja rannsaka landfræðis-
þekkingu manna á tímum þeim, sem hér er um
að ræða, en það er tímabilið frá því kort voru
fyrst búin til, sem nokkur mynd var á, og fram
utn 1500. Nú eru nöfnin opt ramskæld og
liggur því í augum uppi hve erfitt er að fást
við gömul kort.
Eg rak mig fyrst á nafnið Vínland á korti
einu í kortasafni Nordenskiölds, sem tekið er
eptir þýskri bók, Rudimentum Novitiorum. Lu-
beck 1475 og er það meðal annars merkilegt
fyrir það, að það er fyrsta kort sem til er
prentað, svo að ártal fylgi. þ>ar stóð Vínland
með fullum stöfum eða »Vinlád«, er þá var
tíðkað að binda n-ið. Mér þótt þetta merkilegt,
því kort þetta var prentað 17 árum áður en
Kólúmbus fann Vesturheim og hélt eg fyrst
að þetta væri vís vottur þess, að Kólúmbus
hefði þekt Vínlandsfarir Íslendínga; þessa bók
hlaut hann að hafa þekt, því hún var mjög
merkileg bók á sinni tíð og má heita að þar
sé ágrip af öllum sögulegum og landafræðis-
legutn vísindum, sem menn þektu um þessar
mundir. Eg fór því að rannsaka þetta ná-
kvæmara og fann nafnið Vínland eða svipuð
nöfn á ýmsum eldri kortum, en komst jafnframt
að þeirri niðurstöðu, að Vínland það sem þar
var nefnt gæti ekki átt við Vesturheim; skal eg
nú stuttlega skýra frá þessum rannsóknum, því
eg veit ekki til að aðiir hafi tekið eptir nafninu
Vínland á svo gömlum kortum og því síður
reynt að skýra það.
Fyrst koma til greina tvö kort í British
Museum, frá 13. öld og eru þau bæði prentuð
í Atlas De Santarems. 1852. Hið fyrra er spor-
öskjulagað og eru ýmsar eyjar þar í hafinu
fyrir suðvestan meginlandið. þ>ar er Noregur
meðal annars og ísland og standa stuttar
klausur á hvorutveggja landinu. Norður frá Is-
landi eru tvær eyjar; er Tile1) vestar en Vind-
*) Tile, Tyle eða Thule er í gömlum landafræðisritum
ýmist nafn á íslandi eða eyju við Skotland.