Sunnanfari - 01.03.1893, Blaðsíða 4

Sunnanfari - 01.03.1893, Blaðsíða 4
84 skýra frá hinu helzta, sem hér segir um kortsðgu íslands. Bls. 94— 95 i Landafræðissögu f>orvalds er etið um Islandskort Nikulásar Donis’ 1482. sland er þar sporöskjulagað og leingra frá norðri til suðurs en austri til vesturs. Níu eyjar eru um- hverfis landið og nokkur nöfn á landi uppi, af- bökuð mjög. Islandskortin á þremur fyrstu kort- unum í riti þvi, sem hér er um að ræða, eru mjög lik Doniskortinu. Lagið er hið sama og nöfnin að mestu leyti hin sömu. þó eru þau ekki alveg eins á öllum kortunum. Eg hefi ritað annarstaðar um nöfnin á Doniskortinu og öðrum gömlum Is- landskortum, og vona eg að sú ritgjörð komi út innan skamms; er því ekki ástæða til að fjölyrða hér umnöfnin á þessum kortum. þó má geta þess að á 1. kortinu heita Hólar í Hjaltadal: holléss en Skálholt: steloth. Seinna nafnið er svipað á þriðja kortinu: stelölh, en Hólar heita hér hollésis. Á mið- kortinu heita Hólar: holésis, en Skálholt: steloct. Kort þessi eru öll frá 15. öld og frumritin eru öll suður i Flórens. Bls. 76—81 og 140—43 í bók þorvalds er getið um ferðasögu Zenianna og er skýrt þar frá, að menn telji nú að kort það, sem fylgir henni, sé tekið eptir öðrum kortum, einkum korti Olausar Magnusar 1539. þetta er eflaust rétt, en aptur hljóta enn þá eldri kort að liggja til grundvallar fyrir þvi og sést það berlega á kortasafni þessu, þvi á 5. kortinu er eyja ein, Fixlanda norðvestur frá írlandi og svarar hún auðsjáanlega til Frís- lands á Zeníkortinu. Kort þetta er sjókort frá 15. öld og stafar frá Baleareyum. Frumritið er í Milano. Fixlanda er hér ekki ólíkt fslandi í lag- inu, þvi það virðist móta bæði fyrir Vestfjörðum, Snæfellsnesi, eyjunum á Breiðafirði, Reykjanesi, Vestmanneyjum og Melrakkasléttu. Auk þess er landið vogskorið mjög að austan, eins og Island er. þetta bendir alt til þess að höfundur kortsins hafi haft allljósa hugmund um Island og að Fixlanda svari ekki síður til Islands en Fríslands hjá( Zení- unum, enda hafa sumir talið að það væri Island. 22 nöfn eru á kortinu og eru sum hin sömu og á Zenikortinu. Flest eru þau óskiljanleg og að eins tvö virðast vera islenzk að uppruna: porlanda — Portland = Dyrhólaey og bodifordi austan á land- inu og bendir það eflaust til einhvers fjarðar. 7. kortið er sjókort frá 1584 eptir Bartolemeo Olives frá Baleareyum. Frumritið er í París. Hér er FRIXLADA á sama stað og með sama lagi og Fixlanda á 5. kortinu og nöfnin eru að mestu leyti hin sömu. Bodifordi heitir hér bodifedi. Sama eyjan sést á 8. kortinu, en það er sjókort eptir Matteo Prunes frá Baleareyum, 1586. Frum- ritið er í París. Eyjan heitir hér Fixlandia og er svipuð i laginu og á 5. og 7. kortinu. Nöfnin eru lika mjqg svipuð. Portland heitir hér parlanda en fjörðurinn bodifordj eða vodifordj, En norðaustur írá Fixlandia er hér önnur eyja, norður frá Irlandi og heitir Estilanda. Kringum hana eru ýmsar smáeyjar, þar á meðal jlle parlanda, sem líka svarar til Dyrhólaeyjar. Estilanda á eflaust að tákna Island og nær lögunin þó eingu lagi. Sex nöfn eru á eynni auk aðalnafnsins. Oll nöfnin eru norðantil eða norðvestantil, sandelar austast, þá stogafordi, þá sorgal, þá darafordi, þá ardtfordi, þá a grri fordi eða acri fordi vestast. Nöfn þessi líta fremur undarlega út og skal eg ekki eyða mörgum orðum til að reyna að skýra þau að svo stöddu, en stogafordi virðist þó eiga að vera Súg- andafjörður, darafordi Dýrafjörður, en ardtfordi Arnarfjörður. 6. kortið er sjókort frá byrjun 16 aldar. Frumritið er i París. Frixlanda er lítil eyja norð- vestur frá Irlandi, en norðaustur frá henni og vestur frá Noregi er stór eyja nafnlaus, sem á að tákna Island. Mjög er hún ólöguieg. Kringum eyna eru ýmsar eyjar og smákrossar, sem eiga ef til vill að þýða ís, en suðvestan við hana er stór kross, þríálmaður, sem opt stendur á sama stað á gömlum íslandskortum. þrjú stórhýsi sjást á eynni og eiga þau ef til vill að tákna Skálholt, Hóla og Bessastaði. Vestur frá íslandi stendur latínsk klausa á þessa leið: »Eyja þessi er full af fjöll- um og er þar ávalt frost og snjór. A sinu eigin máli heitir hún islanda, en á latínu er hún kölluð thile. Hún liggur mjög langt til norðvesturs frá Bretlandi. Sagt er að þar séu mjög langir dagar, 22 sólstundir eða meira, en nætur mjög stuttar, vegna fjarlægðar eyjarinnar frá miðjarðarlínu, enda er talið að hún sé landa leingst þaðan. Vegna þess hve loptslagið er þar kalt og óstöðugt fæst þar eing- inn matur nema fiskur, sem harðnað hefir við kuld- ann. F"isk þennan greiða eyjarskeggjar Englend- ingum í stað peninga, því þá hafa þeir ekki, fyrir korn, mjöl og aðrar nauðsynjar; eru Englendingar vanir að fara til þeirra á ári hverju til að sækja til þeirra þenna fisk. Eptir því sem Englendingar segja er þjóð þessi ósiðuð og vilt. Hún geingur hálfber og býr i lágum húsum, sem eru grafin i jörð niður. Hér er hafið líka frosið í sex mánuði og ógeingt skipum«. Nokkuð af klausu þessari vantar á kortinu sjálfu, en er fylt út i skránni yfir kortin. Mart af klausu þessari má til sanns vegar færa, því um þetta leyti verzluðu Englendingar mest við Islendinga, eins og kunnugt er. Sumt er aptur ranghermt, en lýsingin er ekki verri en aðrar Islandslýsingar frá þessum tima, eins og sjá má á Landfræðissögu þorvalds og ritgjörð þeirri eptir mig, sem bráðum verður prentuð, að eg vona. 9. kortið í kortasafni því, sem hér er um að ræða, snertir þó Islendinga langmest, því það er hvorki meira né minna en lslandskort Guðbrands biskups þorlákssonar og er tekið hér eptir Atlas Gerh. Mercators. Duisburg. 1595. Kort þetta er að ýmsu leyti ólíkt því, sem stendur i Ortelius: Theatrum orbis terrarum 1595, en þó er auðséð að hvorttveggja er sama kortið. Um kort Guð-

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.