Sunnanfari - 01.03.1893, Page 7
87
Magnús Magnússon, cand. theol., hefir nú í
Vetur haldið nokkra fyrirlestra hér við ýmsa lýðhá-
skóla (t. a. m. í Haslev, Nörre Nissum) um Island,
íslenzkar bókmentir og hag og háttu Islendinga,
og var því vel tekið og létu menn í ljós áhuga á
því að fræðast um landið og landsmenn. 1 vetur hefir
og Magnús gefið út smásögusafn á dönsku, kristi-
legs efnis, i sameiningu við danskan prest, að nafni
Aschenfeldt-Hansen, sem kunnur er meðal annars
fyrir það, að hann hefir ritað alþýðlega kirkjusögu.
Tryggvi Gunnarsson, bánkastjóri hefir feingið
heiðurspening úr silfri frá dýraverndunarfélaginu
danska.
Hovgaard kapteinn hefir feingið heiðursgjöf
frá íslenzkum kaupmönnum hér í bænum og nokkrum
mönnum öðrum; eru það þrjú olíumálverk eptir
danskan málara, er heitir B1 acke. Eitt málverkið er
af Eyjafirði, annað frá Horni, en hið þriðja er af
höfninni hér i bænum. Á öllum myndunum sézt
gufuskipið »Thyra«, er Hovgaard stýrði síðastliðin
sumur. Málverkin eru yfir 1000 kr. virði. Auk
þess færðu þeir honum lampa og silfurkönnu.
Gnllbrúðkanpssjóönr konungs og drottningar,
sem safnað var til í öllu ríkinu i fyrra vetur, varð
þegar öllu var safnað saman, 200,000 kr. Fyrir
skömmu var það ákveðið, að rentum af fénu skal
verja handa dönskum konum, ekkjum eða ógipt-
um, er eldri eru enn 45 ára.
íslenzkt stúdentafélag. Lög féiagsins voru
samþykt 21. Jan. I stjórn voru kosnir: Bjarni
Jónsson, formaður, Guðmundur Björnsson,
skrifari, Bjarni Sæmundsson, féhirðir, og í vara-
stjórn þessir: þorlákur Jónsson, Sigurður Péturs-
son (frá Ananaustum) og Magnús Sæbjörnsson.
Fiskiveiðar Dana við ísland Með vorinu senda
Danir út 5 seglskip stór, er öll eiga að fiska við
Island. Auk þess ætla þeir að hafa i förum 3
gufuskip til Islands og eiga þau að flytja fiskinn
ósaltaðan í ískössum burt á heimsmarkaðinn jafn-
ótt og hann kemur upp úr sjónum.
Dáinn er 25. Febrúar Westy Chr. Ludvig
Stephensen héraðsfulltrúi og settur héraðsfógeti
i Varde á Jótlandi, sonur Olafs héraðsfógeta í
Eplatópt og Varde (d. 1854) Stephánssonar amt-
manns á Hvítárvöllum, en bróðir Hilmars forstjóra
íslenzku stjórnardeildarinnar (d. 1889), vinsæll
maður og vel látinn.
Öldungar í Stúdentafélaginu danska hafa þessir
verið islenzkra manna: 1848 Hilmar Finsen, lands-
höfðingi (d. 1886); 1871 Hilmar Stephensen for-
stjóri i íslenzku stjórnardeildinni (d. 1889) og
1876 Björn Stephensen cand. philos. i Khöfn, sonur
Oddgeirs.
Þjóðvinafélagið sendir nú með þessu blaði
Sunnanfara auglýsingu sína um lækkun á verði
bóka þeirra, er það hefir til sölu, og fá flestir
þeir kaupendur blaðsins auglýsinguna, er ekki
feingu hana í fyrra vetur. Vér höfum verið beðnir
að geta þess, að almanökin fyrir 1880 eru öll út-
seld, enn fremur »Lýsing Islands« og »Uppdráttur
lslands«. Sum heptin af »Dýravininum« eru og
rétt á förum og 1. hepti af »Hversvegna?—Vegna
þess!« Tilboð félagsins stendur ekki leingur en
til 1. Júli þ. á. og er þvi liklegt að margir noti
sér það nú þegar. — Síðasta hepti af »Hvers-
vegna?—Vegna þess« er nú fullprentað. Félagið
gefur út fjórar bækur þetta árið.
Dagsbrún heitir mánaðarblað kirkjulegs efnis á
stærð við Sameininguna, sem séra Magnús Skapta-
son er farinn að gefa út í Vesturheimi. Verð 3 kr.
Má panta hjá Skandinavisk Antikvariat, Gothers-
gade 49.
Laura hefir verið inni frosin hér síðan í Janúar
og fór »Vaagen« í hennar stað til Islands. En nú
(3/3) er búið að brjóta ál í Eyrarsund, svo að skip
mega komast út.
Nokkur eintök af fyrsta árgangi Sunnanfara
fást nú til kaups hjá útgefendunum í Kaupmanna-
höfn.
Á kostnað Sunnanfara er út komið:
Mynd af forstöðumanni prestaskólans séra Helga
Hálfdánarsyni.
Kostar áíslandi 1 krónu, íVesturheimi
30 cents.
Mynd af, Guðbrandi biskup Þorlákssyni.
Kostar á íslandi 50 a., í Vesturheimi
20 cents.
Aðalútsala á íslandi hjá herra bóksala
Sigfúsi Eymundssyni, íVesturheimi fástmynd-
irnar hjá öllum útsölumönnum blaðsins.
„Sameiningin“, mánaðarrit til stuðnings kirkju og
kristindómi Islendinga, gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi
í Vesturheimi og prentað í Winnipeg. Ritstj. Jón JBjarna-
son. Verð í Vesturh. I dollar árg., á íslandi nærri því helm-
ingi lægra: 2 kr. Mjög vandað að prentun og útgerð allri.
8. árg. byrjaði í Marts 1893. Fæst í bókaverzlun Sig. Krist-
jánssonar í Reykjavík og hjá ýmsum mönnum víðs vegar út
um alt land.
>Heimskringla og Öldin«
er stærsta íslenzka blað í lieimi, elzta og út-
breiddasta íslenzka blað í Vesturheimi, kemur út hvern
miðvikudag og laugardag, tvö blöð á viku, hvort 24 dálkar.
Ritstjóri: Jón Ólafsson fyrv. alþm.
Kostar í Danmörk, sent eitt sinn á viku 6 kr.; sent
tvisvar á viku 7 kr. 50. Á íslandi 6 kr. í Canada og
Bandarikjunum 2 dollara.
Almanak Þjóðvinafélagsins 1894
kemur út í miðjum Martsm. og verður þá þegar
sent til Vesturheims og til íslands með fyrstu
vorskipum. í því eru myndir af Washington
og Cleveland, sex þingskörungum Frakka og
tveim helztu þingskðrungum Englendinga og
greinar um þá alla; enn fremur eru þar tnyndir
af Jerúsalem, Grœnlandi og Grænlandsfaranum